Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 6
Pillan hefur leyst marga konuna úr hömlum og úr viðjum óttans, og það hefur aukið lífsgleði þeirra. Aðrar hafa því miður aðra sögu að segja. NÆSTUM HELMINGUR ÞJAIST AF DAPURLEIKA UG ÚHAMIHGIU Þáttur pillunnar i þvi aö gera konuna frjálsa og óháða er meiri en metiö veröur. Það er einnig örðugt að gera sér grein fyrir likamlegum áhrifum hennar, varð- andi vissa einstaklinga.en einungis það að losna viö þungunaróttann er gifur- legur álagsléttir, sem frelsað hefur fjölmargar konur kynferðislega. Annað mál er svo það, að hitt er einnig til að konum finnist notkun pill- unnar hafa svipt þær allri samfaranautn. Og það er kannski ekki svo undar- legt, þegar það er tekið með i reikninginn að notkun pillunnar hefur dregiö úr östrogenmagn- inu i blóði þeirra um helming. Það eru nokkrar konur, sem reiðst hafa þessum greinum. Svo mikla þýð- ingu hefur pillan fyrir hversdagslegt lif þeirra og fjölskyldunnar — ef til vill á allt viðhorf þeirra gagnvart tilverunni, að ekki má orðinu halla i gagnrýnisátt varðandi pilluna, að þær taki upp hanzkann fyrir hana. Ég er þvi að kalla yfir mig talsverðar óvinsældir þessa dagana og þá sér i lagi á meðal kvenþjóðar- innar. Það verður að hafa það. Ef til vill hefur það lika jafnað sig nokkuð um það leyti, sem ég hef lokið máli minu. Það er siður en svo ætlun min að vinna að þvi að pillan verði bönnuð. Einungis að hún verði metin samkvæmt kostum og löstum. Svo að þær konur sem nota hana, viti að hverju þær ganga. Þær munu og halda notkuninni áfram, þrátt fyrir allt, og það ber ótvi- rætt vitni þvi hve mikla jákvæða þýöingu pillan hefur haft fyrir þær. Og — eins og áður er fram tekið — þær einar eru þess umkomnar að vega það og meta, hver fyrir sig, hvort kostirnir séu þess virði að áhættan sé tekin. Það cr ckki einungis ótlinn við þungunina... Að sjálfsögðu hafa menn, allt frá þvi er pill- an kom fyrst til sögunnar, haft mikinn áhuga á hugsanlegum áhrifum hennar á kynfýsn og kyn- nautn konunnar. Og það jafnvel löngu áður en mönnum var kunnugt um áhrif pillunn- ar á hið kvenlega hor- mónakerfi. öll skýrslugerð þar að lútandi hefur reynzt mót- sagnakennd og villandi og mismunandi eftir ein- staklingum. Eigi að siður hefur niðurstaðan af við- tækum spurningakönnun- um orðið sú, að kynfýsn stúlkna aukist að mun, þegar þær fara að nota pilluna. Hvað ekki er annað en gera mátti ráð fyrir. Það gefur auga leið að þung- unar óttinn hefur dregið verulega úr allri sam- skiptaánægju, áður en stúlkan tók að nota pill- una, og þó sér i lagi úr samra'ðisnautninni. Þessi frelsun frá þung- unaróttanum fyrir at- bcina pillunnar, hefur um leið þýtt frelsun frá mörgu öðru. Aukið frelsi til að njóta að fullu þess kynlifs, sem áður var háð allskonar hömlun- um og bönnum i okkar menningu. Ekki hvað sizt varðandi þær stúlkur, sem fengið höfðu ,,gott” uppeldi. Þannig hefur pillan leystaf þeim margskonar viðjar, með þvi að frelsa þær frá óttanum. En einnig af öðrum ástæðum vafalaust. Það var töluverð áhætta að fara að taka inn hormóna. Dálitið djarft teflt. Og allt fram að þessu hafa undantekningarlaust allar stúlkur — og reyndar flestir læknar lika - ekki talið það neitt efamál, að östrogen- magnið i pillunni hækkaði östrogenmagnið i blóðinu. Og östrogenið — nafnið er dregið af sem þýðir ,,kynfýsn” — hefur þau áhrif á kvendýrin i dýra- rikinu iþáiáltina, að ekki tungum. östrogenið i pillunni er þvi að margra áliti kyn- fýsnarhormón. Þess er þvi einungis að vænta að kynfýsnin aukist, þegar stúlkur byrja að nota pilluna. Iiiiyndunin hcfur mikið að scgja... Nú getur imyndunin beinlinis ráðið úrslitum, þegar maður notar pillur — eða lyf i öðru formi. Hrezkur kvenlæknir, sem fylgzt hefur með áhrifum piliunnar af mikilli gaumgæfni, hefur látið svo um mælt — i einkasamtali reyndar — að um 80% af áhrifum pillunnar byggðust á imyndun. Væru svonefnd „placebo” áhrif. „Placebo” eru óvirkar töflur, sem gefnar eru i rannsóknarskyni, án þess aö viðkomandi sjúklingur hafi hugmynd um annað en að hann noti virkar töflur. Það sannast undantekningarlaust að óvirku töflurnar hafa einnig tilætluö áhrif — hafa meðal annars reynst afbragðs svefntöflur. Hafi brezki kvenlæknir- inn lög að mæla, er það siður en svo undarlegt þó að margri konunni hafi liðið vel meö notkun pill- unnar. Ef til vill betur en nokkru sinni fyrr. 4(1% kváðu kynfýsnina liafa aukizt. Flestar þær konur, sem byrja á þvi að nota pill- una, binda við það vissar vonir. Að minnsta kosti má reikna með þvi að flestar af þeim. sem héldu notkuninni siðan áfram. hafi fyrirfram haft jákvæða afstööu i þvi sambandi Það furðulega sem siðan gerist er einungis það, að þær konur sem slika afstöðu höfðu fyrir- fram, skyldu ekki verða allar glaðir pilluneyt- endur þegar til lengdar lét, og pillan hafði frelsaö þær frá þungunaróttan- um — og þá oft og tiöum einnig margvislegum kynferðislegum hömlum og fordómum. En þaö hefur bara farið á allt aðra leið, ef marka má niðurstöðurnar af könnun, sem gerð hefur verið i Kanada. Þar var um að ræða sjötiu stúlkur, sem notuöu pilluna, annaðhvort sam- kvæmt tilvisun lækna eða ráðgefandi stofnana. Um 40% kváðu — eins og vænta mátti — kyn- fýsnina hafa aukizt, en næstum 30 % að dregið hefði úr henni. Hinar kváðust ekki hafa orðið varar við teljandi breyt- ingu hvað það snerti. 45% gripust þunglyndi. Sú hefði alls ekki átt að verða raunin. Engin af þessum stúlkum haföi hugmynd um að östrogen- magnið i blóði þeirra hafði minnkað. Þær hefðu undantekn- ingarlaust allar átt að skýra svo frá að kyn- fýsnin hefði aukizt að mun — vegna imyndunar sinnar og aö vera lausar við þungunaróttann. En athugunin leiddi óvænt allt annað i ljós . 45% af stúlkunum höfðu gripist þunglyndi. Þær voru óhamingju- samar og þeim leið illa. Misstu matarlystina og áhuga á samförum, fengu grátköst. þjáðust af sjálfsásökunum — voru jafnvel á stundum að hugleiða sjálfsmorð. Hvað il slika „sjúkl- inga” snerti. hélzt þung- lyndi á meðan þær notuðu pilluna. en hvarf óðara þegar þær hættu notkun- inni. Orsökin virtist ekki vera neinum vafa bundin. Ilormón lifsgleðinnar og kvenleikans. Þarna gæti auðvitað lika verið um imynduð áhrif að ræða, þótt senni- legra sé að þau hefðu átt að vera gagnstæð. l>að er að minnsta kosti augljóst mál, að þegar 45% gripast þunglyndi, þá er það ekki fyrir neina imyndun heldur þá stað- reynd.. að pillan rænir viðkomandi helmingi af östrogenmagni blóðsins. Þegar um tiðahvörfin hefur verið að ræða, þá hefur östrogenið verið kallað hormón lifsgleð- innar. kvenleikans og æskunnar. Og margar eldri konur hafa fengið það bætt, þegar dregið hefur úr framleiðslu likamans á þessum hormóni, eftir tiðahvörfin. Þær fá það tap bætt, vegna þess að þá verður östrogenmagnið i blóði þeirra svipað og hjá pillu- stúlkunum... Það er þvi sizt að undra þótt þunglyndi gripi sumar kanadisku stúlk- urnar, þegar östrogen- magnið i blóöi þeirra minnkaði um helming. En — sem betur fer, þá er það lika staðreynd, að pillan hefur gert konur svo þúsundum skiptir lifsglaðari. af raun- hæfum. lifefnafræði- legum orsökum. Þaö ræöi ég i næstu grein. Á morgun: Laus við mánaðarlegar vftiskvalir r' mlm PILLAN ESA EHKÍ r'^4 GREINAFLOKKUR EFTIR DANSKA LÆKNINN KNUD m LUNDBERG UM GETNAÐ- m ARVARNARPILLUNA w II ^ WcStf :>WéÉM C~ # æ Sagan af ísadóru Duncan, einhverri stórkostlegustu listakonu allra tima, er geysilega mikil saga skammrar ævi stórfenglegrar konu, — og kvikmyndin, sem i gærkvöldi var frumsýnd hér á landi i Laugarásbiói er gerð eftir sjálfsævisögu ísadóru Duncan og ævisögu hennar, sem Sewell Stokes ritaði, „Isadóra Duncan, an Intimate Portrait.”. Myndin hefst árið 1927 þegar ísadóra býr i Nice i Frakklandi og er að lesa fyrir endurminningar sinar. Á meira en 30 ára listferli hefur hún kynnzt sigrum og vonbrigðum, ástum og hörmum. Margir hafa talið hana fegurstu konu heims og hún hefur i senn verið dáð og fyrirlitin, elskuð og hötuð viða um heim. ÁSTIR ÍSADÓRU Það er Vanessa Redgrave, sem fer með hlutverk ísadóru i myndinni og hefur hlotið lof fyrir. Myndin um ísadóru fjallar um frægðar- feril dansdrottningarinnar, einkalif hennar og list, allt frá þvi hún kom fyrst til Evrópu, bjó þar á lúxushóteli og strauk það út um bakdyrnar, þar til hún fer i sina hinztu ökuferð. ÞETTA GERÐIST LÍKA MÁL ARAMEISTARA DÆMDAR 180,000 Framkvæmdanefnd bygginga- áætlunar var nýlega dæmd í borgardómi Reykjavikur til aö greiða málarameistara 180 þús- und krónur i skaðabætur. Málarameistarinn missti af verki, sem hann haföi gert tilboö i, og meginástæöan fyrir þvi mun hafa veriö sú, að Framkvæmda- nefndin létundan hótunum, sem Vinnuveitendasamband tslands hafði i frammi. Hótanirnar setti sambandið fram, þar sem það taldi manninn ekki hafa full réttindi til þess aö bjóða i verkið. 1 ljós kom, aö hann hafði þau réttindi. Stefnandi málsins, málara- meistarinn, gerði tilboð i málun þriðja áfanga Breiöholtsfram- kvæmdanna haustið 1969. Tilboð hans reyndist hagstæð- ast, en þvi var ekki tekið innan þess frests, sem FB hafði. Hann skrifaði nefndinni siöan bréf, þar sem hann kvaðst standa við til- boðið áfram. Skömmu seinna samþykkti FB á fundi, að leita tilboða hjá stefn- anda. 1 millitiðinni haföi félagi stefn- anda, sem var aöili aö tilboðinu, dregið sig til baka, og stóð hann þvi eftir einn. Vegna tilboösins haföi Vinnu- veitendasamband Islands skrifað FB bréf, þar sem þvi var mót- mælt, að litið yrði á tilboöið, þar sem hér væri um sveinatilboö að ræða. Báöir þeir, sem stæöu að tilboðinu, væru meðlimir i sveinafélaginu en ekki félagi málarameistara. Þessi mótmæli eru einmitt ástæðan fyrir þvi, aö annar til- boðsmannanna sagði sig frá þvi. Hins vegar haföi stefnandi sagt sig úr sveinafélaginu áður en til- boðin voru opnuö enda hafði hann full meistararéttindi. Eftir samþykkt FB um að leita tilboða við stefnanda dróst þaö fram á sumar næsta ár, að samn- ingagerðin hæfist. Allan þennan tima var stefn- anda alltaf svarað þvi til, að samningageröin myndi dragast, þar sem fyrr þyrfti aö semja viö aðra, en hins vegar ekki sagt að ekki yröi reynt að semja við hann. 1 júli 1970 skrifar svo FB stefn- anda og honum er tilkynnt, aö verkið verði boöið út aö nýju „vegna mikilla breytinga á verk- inu og öryggisleysis um fram- kvæmd verksins”, eins og þaö var orðaö. Stefnandi ásamt öðrum bauð i verkið á nýjan leik, en var ekki með lægsta boð aö þessu sinni og þvi var samið við annan. Um leið og hann lagði fram sið- ara tilboöiö, mótmælti hann þvi, að verkið væri boðiö út aftur, þar sem hann liti svo á, að búið væri að semja við sig um framkvæmd þess. Vegna alls þessa endar svo stappiö meö málaferlum og nið- urstaða dómsins varö sú, að hann er talinn hafa rétt fyrir sér. Þó með þeim fyrirvara, aö FB hafi ekki veriö búiö að semja við hann, heldur hafi Framkvæmda- nefndin hætt samningaumleitun- um viö hann sumariö 1970 á röng- um forsendum. t málinu kom nefnilega i ljós, að FB lét bjóöa verkið út að nýju vegna endurtekinna yfirlýsinga málarameistara um, aö þeir hyggöust grlpa til aögerða, ef stefnandi fengi verkiö. En þar sem meistarar höföu engan grundvöll undir sinum hót- unum mátti FB ekki láta þær hafa áhrif á sig að áliti dómsins. Auk skaðabótanna var FB dæmt til að greiða málskostnað. Upphafleg stefnufjárhæð var tvær milljónir króna. Edda Þórarinsdóttir, Rúrik Haraldsson og Róbert, Makki hnífur. ÁRIÐ BYRJAR Á TÚSKILDINGSÓPERUNNI Nú er aðeins vika þar til leikár Þjóðleikhússins hefst, en fyrsta frumsýningin verður þriðjudag- inn 10. október. Það er Túskild- ingsóperan, eftir Bertolt Brecht, sem þá verður byrjað að sýna undir leikstjórn Gisla Alfreðs- sonar, en Róbert Arnfinnsson fer með aðalhlutverkið, hlutverk Makka hnifs. Það er ný leikgerð, sem verður nú tekin til sýninga, en Túskild- ingsóperan hefur veriö sýnd tvis- var sinnum áður hér á landi. Leikfélag Reykjavikur sýndi leik- ritið 1959, og Leikfélag Akureyrar 1971. Þorsteinn Þorsteinsson geröi nýja þýðingu fyrir þessar sýningar, en söngtextana þýddu þeir Þorsteinn frá Hamri, Böðvar Guðmundsson og Sveinbjörn Beinteinsson. Túskildingsóperan er þriðja verk Brechts, sem sýnt er i Þjóö- leikhúsinu. hin fyrri voru Mutter Courage, sem var sýnt árið 1965, og Fúntila og Matti, árið 1968. A hinn bóginn er Túskildingsóperan tvimælalaust vinsælasta verk Brechts, og hefur verið sýnt i flestum löndum þar sem leikhús er starfandi, og daginn eftir að verkið er frumsýnt hér i Þjóðleik- húsinu verður það frumsýnt i Kaupmannahöfn. Ijeikmyndir og búninga geröi Ekkehard Kröhn, sem geröi leik- myndir i Fást og Höfuösmann- inum frá Köpernik, þegar þau verk voru sýnd i Þjóðleikhúsinu, en hljómsveitarstjóri er Carl Billich. A blaðamannafundi með Sveini Einarssyni Þjóöleikhússtjóra og Gisla Alfreðssyni i gær sagði sá siðarnefndi, að Túskildings- óperan hafi oft veriö látin gerast á einhverjum ákveönum timum, m.a. hafi hún verið miðuð við tima Al Capones i Bandarikj- unum, og búningar og sviðs- myndir þá að sjálfsögðu farið eftir þvi. 1 þessari uppsetningu sagði Gisli, að hafi verið gripið til þess ráðs, að láta leikritið gerast á óákveðnum tima, en þó i nútiö- inni, og um leiö reynt að minnka hiliö á milli leikenda og fólksins i salnum m.a. með þvi að láta per- sonurnar ekki vera frábrugönar þvi i klæöaburöi. Vafalaust fýsir marga til þess að leggja leið sina i Þjóðleikhúsiö á næstunni til þess að sjá þetta meistaraverk Brechts, ekki sizt þegar þess er gætt, að brezkur leiklistargagnrýnandi sagði um það, að vinsældir þess stafi ein- faldlega af þvi, að það sé bezti söngleikur sem nokkurn timann hafi veriö saminn. GIÚRBREYTT VIDHURF TIL HASSREYKINGA USA Það er ekki ýkja langt siðan hver sá bandariskur stjórnmálamað- ur, sem ekki fordæmdi hass eða marjuana harðlega, mátti þakka fyrir að vera ekki grýttur. Dr. James L. Goddard, fyrrum starfsmaður bandariska heil- brigðisráðuneytisins varð var við þetta fyrir fimm árum siðan, þeg- ar hann sagði 1 ræöu i Minnea- polis, að hann efaöist um að marijuana væri skaðlegra en alkóhól. I þá daga sjaldgæf skoð- un, en nú almennt álit nefndar þeirra, sem Nixon forseti Banda- rikjanna skipaði til að gera úttekt á skapsemi hamps. Dr. Goddard varð fyrir aðkasti i bandariska þinginu og af hálfu yfirmanna hans hjá ráðuneytinu. Hann var kallaður fyrir rann- sóknarnefndir þingsins hvað eftir annaö, m.a. þrisvar eina vikuna, og einn þingmanna sagði að það ætti hiklaust að reka hann fyrir að fara svo mildum oröum um marijuana. Svipuð reynsla Dr. Stanley F. Yolles, fyrrum for- stöðumaður bandarisku geð- verndarstofnunarinnar, varð fyr- ir svipaðri reynslu þegar tveim árum siðar er hann sagði rann- sóknarnefnd öldungadeildarinnar að sér fynndust refsingar fyrir neyzlu marijuana vera of strang- ar. Hann sagði að þessi einkaskoö- un sin, hann hafi ekki verið aö tala sem forstöðumaður opin- berrar stofnunar, hafi leitt til þess að hann hafi verið látinn vikja úr starfi ári siðar. En nú er þetta allt að breytast. Rannsóknarnefnd, sem skipuð var að meirihluta mjög ihalds- sömum mönnum, (niu tilnefndir af Nixon, hinir fjórir þingmenn) komst i vor að þeirri niðurstöðu að marijuana væri ekki fiknilyf og neyzla þess ætti ekki aö varða fangelsisvist. Þessi breyttu viöhorf til marij- uana reykinga hafa aö talsverðu leyti fylgt þeirri breytingu, sem oröiö hefur á neyzluvenjum. Þaö eru ekki lengur bara listamenn, hippar og siikir, sem neyta hamps, heldur er hin svonefnda „millistétt” farin að neyta hans I rikum mæli, og eins og fram kom á sfðasta læknaþingi i Bandarikj- unum, er þó nokkuð stór hluti bandarlskra lækna, sem reykir hass að staöaldri, og mjög stór hluti þeirra hafði prófað það einu sinni eöa oftar. Marijuana er komiö inn I skól- ana, og inn á heimilin, það eru ekki lengur bara börnin, sem reykja það þar, heldur eru for- eldrarnir að uppgötva það lika. Nefndarmennirnir, sem áðurer getið, urðu lika fyrir hugarfars- breytingu, meöan á rannsókninni Framhald á bls. 4 Miðvikudagur 4. október 1972. Miðvikudagur 4. október 1972.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.