Alþýðublaðið - 28.10.1972, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.10.1972, Blaðsíða 1
HITAVEITAN KYNDIR UNDIR í KÓPAVOGI BÆJARSTJÓRNIN SPRAKK í GÆR / Vonzkuveður og snjókoma var um nær allt landið i gær. A nokkrum stöðum var blind- bylur, og komst veðurhæðin viða i 10 vindstig. Hér i Reykja- vik var hryssingsveður og hrollur i mönnum eins og myndin sýnir. Margir fjallvegir lokuðust, og ekki var unnt að fljúga á nema einn stað i gær, eina ferð til Vestmannaeyja. Veður fer nú lægjandi, og jafnframt hlýnar i lofti að sögn Veðurstofunnar, og má þvi búast við mikilli hálku á vegum. Það er þvi hlákuhelgi framundan. Mestur var verðurhamurinn á Suðurlandsundirlendinu. Komst verðurhæðin i 10 vindstig á Hellu og i Vik i Mýrdal. Mikil úrkoma fylgdi óveðrinu, og tepptust vegir. Hellisheiði er ófær, en verður rudd á morgun að sögn Vegagerðarinnar. Þrengslin og vegir á Suður- landsundirlendi verða væntan- lega orðnir færir i dag, en Vega- gerðin varaði við mikilli hálku. Veðurofsinn tafði mjög allar samgöngur um Suðurlands- undirlendið, og kom þetta ein- kanlega illa við mjólkurbila, sem töfðust sumir i margar klukkustundir. Slikur var veðurofsinn, að bilarnir treystu sér ekki heim afleggjarana að nokkrum bæjum, vegna hræðslu um að fjúka hreinlega að af veginum. Ekki er vitað um að tjón hafi orðið mikið, nema einhverjar Framhald á bls. 4 ÞETTA VERÐUR HLÁKU- HELGI VOPNAHLÉD IINDIR- RITAD A ÞRIDJUDAG? NORÐUR-VIETNAMAR KREFJAST ÞESS Norður-Vietnamar lýstu sig i gær reiðubúna til að halda hvenær sem væri nýjan fund með Henry Kissinger um loka- atriði samkomulagsins um frið i Vietnam. Formælandi Norður- Vietnama á Parisarfundunum sagði i gær, að þessi fundur með Kissinger gæti þeirra vegna hafizt á mánudag. Hins vegar kvaðst hann ekki sjá neina ástæðu til að halda nýjan fund og itrekaði þá kröfu Norður - Vietnama, að samkomulagið yrði undirritað á þriðjudag. Við annan tón kveður hjá Van Thieu forseta Suður-Vietnam. Eftir honum var haft i gær, að ekkert samkomulag sé gilt án undirskriftar hans sjálfs og samþykkis þingsins i Suður- Vietnam. Thieu forseti itrekaði enn á ný i gær þá afstöðu, að samkomu- lag, sem gert væri milli Banda- rikjamanna og Norður- Vietnama væri Suður- Vietnömum óviðkomandi. Enn- fremur sagði forsetinn, að hann myndi ekki undirrita neitt leyni- samkomulag um framtið mála i Vietnam og lagði áherzlu á, að samkomulag væri einskis virði án undirskriftar hans. Einnig bar Thieu forseti fram á ný tillögu, sem þjóðfrelsis- Framhald á bls. 4 Bæjarstjórn Kópavogs sam- þykkti i gær að fela Hitaveitu Reykjavikur að leggja hita- veitu i Kópavoginn.— t Kópavogi er 'ekki lengur til staðar neinn samstæður bæjar- stjórnarmeirihluti. A bæjar- Stjórnarfundi i gær fór endanlega út um þúfur meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins um stjórn bæjar- málanna er einn af þrem aðalfull- trúum Sjálfstæðisflokksins i bæjarstjórninni — Eggert Stein- sen — kvaðst hættur stuðningi við meirihlutann og bæjarstjóra. Gaf hann þessa yfirlýsingu m.a. vegna þess, að hann mun andvig- ur fyrirætlunum bæjarstjórnar- innar, sem umræddur meirihluti studdi, um þá tilhögun á hita- veituframkvæmdum fyrir kaup- staðinn, sem Alþýðublaðið sagði frá i gær og felur það i sér, að samið verður við Reykjavikur- borg um verkið. t upphafi fundar i bæjarstjórn Kópavogs i gær kvaddi Eggert Steinsen sér hljóðs, en hann stjórnaði fundinum sem varafor- seti bæjarstjórnarinnar i fjarveru Framhald á bls. 4 JAFNTEFL115:15 OG FRAM GETUR KOMIST ÁFRAM! Fram og danska liðið Stadion gerðu jafntcfli 15:15,1 fyrri leik liðanna i Evrópu- keppninni i gærkvöld. Fram nægir þvi eins marks sigur ■ seinni leik liðanna annað kvöld til að komast i 2. umferð keppninnar. Sjá nánar á iþróttasiðum 15,1 (t, og 17. siðu. ERLENDAR FRÉTTIR: HYIAR VIDRÆÐUR Á NÆSTA LEITI Búizt er við, að nýjar viðræður milli Islendinga og Breta um lausn landhelgismálsins hefjist snemma i næsta mánuði — að þvi haft var eftir brezkum embættis- mönnum i Lundúnum i gærkvöldi. F'réttastofan Associated Press hafði eftir sömu heimildum, að ákvörðun um að reyna að koma hreyfingu á viðræður hafi verið tekin, eftir að Ólafur Jóhannes- son, forsætisráðherra, og Heath, forsætisráðherra Breta, hefðu skipzt á persónulegum orð- sendingum. Enn mun ekki vera ákveðið, hvort viðræðurnar fara fram i Reykjavik eða Lundúnum, en lik- legt þykir samkvæmt þessum fréttum, að Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, verði for- maður islenzku viðræðunefndar- innar, en lafði Tweedsmuir hinn- ar brezku. Frumkvæði að þvi að hefja við- ræður á ný kom frá Heath, en i fyrradag afhenti John McKenzie, sendiherra Breta i Reykjavik, Ólafi Jóhannessyni , forsætisráð- herra, bréf frá Heath, þar sem brezki forsætisráðherrann leggur áherzlu á nauðsyn skjótrar lausn- ar til að koma i veg fyrir, að deilan harðni. Samkvæmt frétt AP frétta- stofunnar var Ólafur Jóhannesson sammála Heath i svarbréfi sinu, um, að lausn væri aðkallandi. Bréf forsætisráðherra var afhent i Lundúnum i gær. Ekki þarf að taka fram, að hvorki forsætisráöuneytið né rikisstjórnin sem slik hafa minnzt einu orði á bréfaskipti þessi milli forsætisráðherranna né gefið út neina fréttatilkynningu þar að lútandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.