Alþýðublaðið - 28.10.1972, Page 2

Alþýðublaðið - 28.10.1972, Page 2
Ingólf s-Café BINGO á sunnudag kl. 3 Aðalvinningur eftir vali. 11 umferðir spilaðar. Ingólfs-Café Gömludansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Horvaldar Björnssonar. Söngvari: Grétar Guðmundsson. ^ðgöngumiðasalan frá kl. 5 — Simi 12826 Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiöir og jeppabifreið, er sýndar verða að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 31. október kl. 12-3. Tilboð veröa opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. Laus staða Staða bókara við bæjarfógetaembættið á ísafirði er laus til umsóknar. Umsóknum ásamt upplýsingum um fyrri störf sé skilað fyrir 15. nóvember n.k. Laun samkvæmt launalögum. Skrifstofa Isafjarðar 20/10 1972. Björgvin Bjarnason. fíÍk \ Sunnudagsferð 29/10. Selatangar Brottför kl. 13 frá sSgggy B.S.l. Verð 300 kr. Kerðafélag islands Þvottamann vantar nú þegar við Þvottahús rikisspital- anna að Tunguhálsi 2 i Árbæjarhverfi. Umsóknarfrestur til 2 nóvember n.k. Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf, ásamt meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist til skrifstofu rikisspital- anna, Eiriksgötu 5. Nánari upplýsingar gefur forstöðukona þvottahússins i sima 81714. Reykjavik, 26. október 1972 Skrifstofa rikisspítalanna. Vélstiórar — Vélstjórar Framhalds aðalfundur Vélstjórafélags ís- lands verður haldinn á Hótel Sögu, sunnu- daginn 29. október n.k. kl. 2 e.h. Félagsmenn fjölmennið Stjórnin. AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60 ELLIHEIMILIÐ GRUND 50 ÁRA A efri myndinni er Gísli Sigur- björnsson forstjóri i hópi vist- manna. Myndin hér til hliðar er tekin á snyrtistofu vistheimilis- ins. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund í Reykjavik er 50 ára á morgun. Fyrstu tildrög að stofnun Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund- ar eru þessi i mjög stuttu máli: Stjórn Samverjans, sem annaðist matgjafir handa fá- tækum börnum og gamalmenn- um i Reykjavik i 10 ár, 1913- 1922, stofnaði til skemmtunar fyrir gamalt fólk sumarið 1921, og hélt þvi áfram i allmörg ár. Árið 1922 varð afgangur af slikri skemmtun 541 króna. Sú upp- hæð var lögð til hliðar sem stofnfé „handa elliheimili, sem vonandi yrði einhvern tima stofnað”. Jón Jónsson beykir bauðst þau til að gefa 1500 krónur og safna fé hjá bæjarbúum, ,,ef stjórn Samverjans lofaði að byrja heimilið þá um haustið”. Eftir miklar bollaleggingar fékk Jón þetta loforð og tók hann þá að safna fé. Á einum mánuöi söfnuðust um 9 þúsund krónur og nýlegt stein- hús, kallað að Grund, — þar sem nð er barnaheimilið Vestur- borg, — var keypt fyrir 35 þús- und krónur. 27. október fluttust fyrstu sex vistmennirnir i húsið, en tveimur dögum siðar, 29. októ- ber 1922, var húsið vigt að við- stöddum fjölda manns.eða yfir 1000 manns að sögn blaðanna þá. Hús þetta gat tekið 24 vist- menn og varð það brátt full- skipað. Stofnendur heimilisins voru : Sr. Sigurbjörn Á. Gislason, Har- aldur Sigurðsson, Páll Jónsson, Flosi Sigurðsson og Július Árnason. Eru þeir nú allir látnir. I stjórnarnefnd voru: Fri- mann Ölafsson frá 1935 til dauðadags 1956, Hróbjartur Árnason frá 1940 til dauðadags 1953 og Páll Árnason frá 1953 til dauðadags 1970. Fyrstu árin var forstöðukona heimilisins frú Maria Péturs- dóttir, en Haraldur Sigurðsson, verzlunarmaður, annaðist fjár- mál þess. Haraldur var siðan forstjóri heimilisins 1930-1934, en Gisli Sigurbjörnsson hefur verið for- stjóri siðan i október 1934. Húsið „Grund” við Kapla- skjólsveg reyndist brátt of litið . Fékk heimiliö þá lóð, Þar sem heimilið stendur nú við Hring- braut. Hófust byggingafram- kvæmdir þar i ágúst 1928. Nýja húsið var vigt 28. sept- ember 1930 að viðstöddu fjöl- menni. Fyrstu árin eftir 1930 var að- sókn vistmanna ekki næg til þess að fylla húsið, en hún fór vaxandi, og þegar húsið var 10 ára, voru vistmenn orðnir um 150 og kominn langur biðlisti, sem aldrei hefir horfið siðan. Vistmenn 1. janúar 1935 voru 108 talsins, en eru nú á Grund einni 373. Vistmönnum hefur þannig fjölgað á þessu timabili um 265. En samtals á Grund, i Ási og Asbyrgi eru vistmenn nú 524, þar af 367 konur og 157 karl- ar. o Laugardagur 28. október 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.