Alþýðublaðið - 31.12.1972, Page 1
\
ÞAU SEM SYNTU
200 METRANA
Viö komumst i óvenjumikinn
vanda hér á ritstjórn Alþýðu-
blaðsins þegar að þvi kom að
kjósa mann ársins 1972 á inn-
lendum vettvangi.
Flestir voru sammála um að
maöur ársins á alþjóðavett-
vangi væri Willy Brandt, kanzl-
ari Vestur-býzkalands, — tveir
iþróttamenn komust þó með
tærnar þar sem hann hafði hæl-
BJARNI
SIGTRYGGSSON
í ÁRSLOK
ana, þeir Bobby Ficher og Mark
Spitz, hinn sjöfaldi gullverð-
launahafi ólympiuleikanna.
A innlendum vettvangi virðist
þó enginn einstaklingur hafa á
neinn hátt skarað svo fram úr á
neinu sviði að hann gæti talizt
verður þess að vera kjörinn
maður ársins 1972. Af stjórn-
málamönnum komu engir tii
greina, — þó var Einar Ágústs-
son nefndur. Það virtist samt
helzt vera vegna þess að hann
nyti mjög góðs af samanburði
viö hina ráðherrana, ekki vegna
þess að hann hafi afrekað nokk-
uð það á árinu, sem til viður
kenningar gæti talizt. Eflaust
hefði Bjarni Guðnason komið
sterklega til greina hefði svo
farið að hann hefði valdið þvi að
fella þá stjórn, sem hann stuðl-
aði að myndun. En þótt Bjarni
segði sig úr þingflokknum er
varla hægt að segja að nokkur
umskipti hafi orðið i heimi
islenzkra stjórnmála.
Heimsmeistaraeinvigið í skák
er óneitanlega atburður ársins
hér á Islandi — og þótt heims-
meistarinn i skák sé óneitanlega
verður þess að vera kjörinn
maður ársins, þá er hann ekki
tslendingur — þótt hann hafi
unnið meiri kynningarstörf fyr-
ir land og þjóð en nokkur annar
aðili, einstaklingur, stofnun eða
félag, nokkru sinni.
En eins og við nefndum, þá
voru það einmitt skákmaður og
sundkappi, sem okkur fundust
liklegir sem menn ársins á
alþjóðavettvangi, þeir Fischer
og Spitz, og i vissu tilliti má
segja að árið, sem nú kveður,
hafi verið ár skáklistarinnar og
sundiþróttarinnar. Þessir tveir
menn hafa báðir verið góð aug-
lýsing iþrótta sinna og hafa auk-
ið gifurlega áhuga manna og
iðkun þessara óliku en hollu
greina, sem geta hæglega talizt
hið ákjósanlegasta trimm, and-
lega og likamlega. Þess hefur
gætt hér á landi ekki siður en
annars staðar.
En sá Islendingur, sem að
okkar mati hefur unnið stærstan
sigur á þessu ári, er hver sá
maður, sem lagði sinn skerf til
sigurs okkar i norrænu sund-
keppninni.
Slika yfirburði bárum við þar
yfir hinar þjóðirnar, að þess
munu fá dæmi ef nokkur i sögu
alþjóðlegrar iþróttakeppni.
Þess vegna höfum við hinn al-
menna sundmann mann ársins
1972.
SUNNUDAGUR 31. DES. 1972 — 53. ÁRG. — 295. TBL