Alþýðublaðið - 31.12.1972, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 31.12.1972, Blaðsíða 7
BILAR OG UMFERD O ÚRVAL ÚR BfLIIM NÆSTA ARS Um áramót þykir alltaf tilhlýðilegt að lita um öxl og rifja upp helztu atburði ársins, sem er að liða. í bílaþætti er að sjálfsögðu eðlilegt að fjalla um helztu nýjungar ársins í „bílabransanum", og þar er af nógu að taka. Raun- ar er af svo miklu að taka, aðómögulegt er að gera öllum merkum viðburð- um full skil, og því verða lesendur að sætta sig við persónulegt val undirrit- aðs um það, hvað fjalla ber um i þessum þætti. Sé litið yfir árgerðir næsta árs, sem hafa verið að koma fram í haust og vetur kemur fljótlega í Ijós, að óvanalega mikið er um svonefnda „mini- bila", eða litla og ódýra bila. Um nokkra þeirra hefur þegar verið fjallað hér á siðunni, en annarra er ógetið ennþá. Þá eru áberandi á mörgum gerðum útlíts- breytingar> sem eru af- leiðingar nýrra öryggis- krafa. Þar ber líklega mest á „öryggisstuður- um" úr gúmmíi eða plasti, og sumir aII fyrir- ferðamiklir. Allmikill viðburður má teljast, þegar farið var að framleiða Mazda hinn japanska með wankelvél, en margir spá þvi, að sú vél sé vél framtiðarinnar og leysi gömlu stimpla- vélina af hólmi. Að lokum nefnum við gamla Volkswagen, sem hefur fengið dálitla „and- litssnyrtingu" til þess að standa betur í baráttu smábilanna um vinsældir. Margt fleira má teljast til tíðinda í bílaheimin- um, en þetta verðum við að láta nægja að sinni og láta myndirnar hérna á síðunni tala sínu máli. FIAT 126 Við höfum áöur gert nýja Fiatnum, Fiat 126 sæmileg skil, og skal hér aðeins rifjað upp, að hann er arftaki Fiat 500, sem var framleiddur i nær fjórum milfjónum eintaka á 15 árum. Flesttækniatriði eru fengin frá Fiat 500, svo sem „pönnuköku- vél” og pendúlöxlar, en framleiðendur afsaka sig meö þvi, að engin önnur leið sé þekkt við framleiðslu svo ódýrra bfla. — Vélin er 594 ccm og 23 hö. Billinn er 305 cm langur og hámarkshraðinn er 110 km/klst. PEUGEOT 104 Peugeot i Frakklandi er nú farinn að keppa á pinubflamarkaðnum að nýju með nýjasta bil sinum, Peugeot 104. Þetta er samsvarandi bill og Renault 5 og Fiat 128 o.fl., en áfram er hann sannur Peugeot. Eins og 204 og 304 hefur hann þvertliggjandi vél, en drifinu er þannig fyrirkomið, að það myndar 90gráðuhorn við vélina. Oll hjól hafa sjálf- stæða fjöðrun, og aksturseiginleikar og mýkt eru ekki minni en á lúxus- bilum. Vélin er með yfirliggjandi knastási, og rúmtakið 954 ccm, sem gefa 46 hestöfl. Billinn ætti að ná 135 km/klst. auðveldlega, segja verksmiðj- urnar, og viðbragðið er 0-100 á 20 sek. Hann er nokkuð dýr miðað við stærð eins og aðrir bilar af þessari gerð, en eins og venjulega þarf meira en tommustokk og vikt til þess aö meta gæði Peugeot. DAF 66 Daf 66 er talinn mesta nýjung frá þvi að Daf 33 með variomatic skiptingunni kom fyrst á markað- inn árið 1958. Hann er nokkuð breyttur i útliti, en þó að mestu byggður á gerð- inni DAF 55. Vélin er sú sama og i honum, 1108 ccm Renaultvél, sem er 47 hö upp i 55 i Marathon gerð- inni. Mesta nýjungin er mikil breyt- ing á hjólahengslunum að aftan. Til þessa hefur DAF-inn verið meö svonefnda pendúlöxla, og þaö hefur verið veikasti punktur hans. 1 staðinn fyrir pendúlöxlana eru komnir tvöfaldir öxlar af gerðinni Dion, og við það ger- breyttust aksturshæfileikarnir. — Gamla gerðin er ennþá i minni út- gáfunum. Fyrir utan standard, de luxe og Marathon verður hægt að fá þennan nýja DAF 66 sem coupé og station. RENAULT 5 Það nýjasta frá Renault i Frakklandi er Renault 5, i alla staði mjög heppilegur þriggja dyra fjöl- skyldubill, sem er að miklu leyti innréttaður sem station-bill. Hann er mjög rúmgóður og þægilegur er hann eins og Renault er von og vfsa. Að þvi er danskar heimildir okkar herma er stærsti gallinn við hann verðið, en það er nokkru hærra en verðið á Fiat 127, sem er samsvarandi bill. I Danmörku á hann að fást i TL útgáfu með 845 ccm vél og 47 SAE hestafla vél og L-útgáfu, sem er dá- litið fátæklegri aðýmsum útbúnaðiogmeð782 ccm vél, 38SAE hestöfl. ÍM V) ÍJ IPPJSS MAZDA CHNTEZ Nú er Japaninn kominn með „pinubil”, sem er ætlaður fyrir fjóra litla Japana. Þetta er Mazda Chantez, og hann er ekki nema þriggja metra langur og 1,30 m. breiður. Vélin er ekki nema 359 ccm og 35 SAE hestöfl, en ætlunin er, að útgáfan, sem flutt verður út verði með 600 ccm vél. VOLKS- WAGEN 1303 Þá ljúkum við þessu spjalli um bila árið 1973 með þvi að minnast á nýjustu breytinguna hjá Volkswagen. Breytingin er ekkert byltingarkennd ennþá, en nú um skeið hefur verið von á nýjum „mini VW”, en heyrzt hefur, að hann komi ekki fyrr en eftir tvö ár. Allar gerðir VW hafa breytzt, nema VW 1600 og breytingin er aðallega fólgin i smá upplyft- ingu á framendanum. Þá hefur ný gerð bætzt við, Volkswagen 1303, sem kemur i stað 1302 og 1302 S. Hann er frábrugðinn hin- um gerðunum að þvi leyti, að framrúðan er bogin og mæla- borðið hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Þá hefur upp- henging á girkassanum verið endurbætt, og á sú endurbót aö draga úr hávaða i honum. UMSJoN: ÞORGRIMUR GESTSSON Sunnudagur 31. desemþer 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.