Alþýðublaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 2
MILLJÓNIR BARNA ÞOLA VINNUÞRÆLKUN Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur nú afhjúpað þá staðreynd, að milljónir barna um allan heim, verða að þola svivirðilega vinnu- þrælkun. Fer þvi fjarri, að barnaþrælkun sé úr sögunni á siðari hluta tuttugustu aldar. Meira en 43 milljónir barna i heiminum draga fram lifið frá degi til dags með þvi að vinna störf, sem eru launuð langt undir þvi lágmarki sem leyfilegt er. En i Evrópu og einnig i Bandarikjunum eru börn þrælkuð i landbúnaði, i verzlunum og veit- ingastöðum og sem blaðasalar og mjólkurpóst- ar. Viða i heiminum vinna drengir og stúlkur á aldrinum 10-15 ára, og jafnvel frá 6 ára aldri, átta til f jórtán stundir á sólarhring sjö daga vik- unnar við aðpakka sigarettum, brjóstsykri, kexi og ýmsum vörum fyrir svivirðilega lágt kaup. Ofan á hið lága kaup bætist svo, að þessi vinna fer i flestum tilvikum fram á stöðum, sem bæöi eru illa upplýstir og loftlausir, — segir i skýrsl- unni. En barnaþrælkun á sér ekki aðeins stað i þró- unarlöndunum. i suölægari löndum Evrópu eru börn oft notuð sem ódýr vinnukraftur við land- búnaðarstörf. Laun þeirra eru mjög lág og stundum fá þau aðeins mat og húsnæði að laun- um fyrir langan og erfiðan vinnudag. í Norður-Evrópu er barnaþrælkun ekki eins útbreidd og sunnar i álfunni og kemur lögbundin skólaganga i mörgum tilvikum i veg fyrir hana. En samt sem áöur er barnaþrælkuninni þar lika til að dreifa, — segir i skýrslu ILO. Börnin vinna alls staðar; á kaffihúsum, á hótelum. á rakarastofum, sem götusalar og sem atvinnu-betlarar. Fjöldi barna undir 14 ára aldri vinna i heima- húsum hjá efnuðum fjölskyldum og þurfa oft að þola óhugnanlega vinnuþrælkun og langan vinnudag. Alþjóðavinnumálastofnunin vill nú stuðla að þvi að stöðva barnaþrælkunina i heiminum. Á ráðstefnu á vegum stofnunarinnar, sem haldin var nýlega, náöist samstaöa um, að haf- inn veröi undirbúningur að gerð alþjóðlegs samnings um bann við barnavinnu. — AGÆTAR UNDIRTEKTIR I • • LANDHELGISSOFNUNINNI t>ó að ljársöfnunin til styrktar Landhelgisga'zlunni hafi enn ekki verið formlega skipulögð, hafa þegar borizt hundruð þúsunda króna framlög i Landhelgissjóð frá sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum til Olafs Jóhannessonar. forsælisráð- herra. Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Oliufélags islands h.f. gekk i fyrradag á fund forsætisráðherra og afhenti honum hálfrar milljón- ar króna framlag fyrirtækisins til Landhelgissjóðs. Fylgdi framlaginu bréf' frá stjórn Oliufélagsins, þar sem seg- ir. að fclagið lagni útfærslu fisk- veiðilandhelginnar i 50 sjómilur. i lyrradag barst forsætisráð- herra lOOþúsund króna ávisun frá hreppsnefnd olafsvikurhrepps og skal féð renna i Landhelgissjóð. Fylgdi framlaginu itarleg álykt- un frá hreppsnefndinni, sem sam- þykkt var I. september sama dag og fiskveiöilandhelgin var færð út, þar segir m.a. að útfærslu fisk- veiðilandhelginnar i 50 sjómilur sé fagnað og sé hún eitt mesta framfaraspor i sögu þjóðarinnar. liltrygging hennar i nútið og framtið. t ályktuninni mótmælir hrepps- nelnd Ólafsvikurhrepps harðlega bráðabirgðaúrskurði alþjóða- dómstólsins i Haag og segir hreppsnefndin, að úrskurðurinn sé bein árás á sjálfsta'ði og lifsaf- komu þjóðarinnar. l>á hafa Ólafi Jóhannessyni borizt fjölmörg framlög til Land- helgissjóðs frá einstaklingum. sem eru hvert að upphæð 2.000 — 10.000 krónur. Eins og fyrr segir er söfnunin fyrir Landhelgsisjóð enn ekki t'ormlega halin og hefur söfnun- arstarfið ekki verið skipulagt. Heir aðilar, sem annast munu skipulagningu þess. hafa enn ekki komið formlega saman. í gær átti Giis Guðmundsson. alþingismaður að kalla saman fyrsta formlega fund stjórnar landssöfnunarinnar fyrir Land- helgissjóð. en hún verður skipuð niu mönnum. Fjórir þeirra eru valdir af þeim aðilum, sem stóðu að ávarpinu og áskoruninni um, að til söfnunarinnar yrði efnt. en auk þess eiga. stjórnmálaflokk- arnir hver sinn fulltrúa i stjórn- inni,- 50.000 FRÁ JÁRN- IDNADARMÖNNUM Blaðinu barst i gær svo- bljóðandi fréttatilkynning: Stjórn Félags járniðnaðar- manna hefur ákveðið. að Félag járniðnaðarmanna leggi kr. 50.000.00 i fjársöfnun til Land- helgissjóðs i tilefni útfærslu fisk- veiðilögsögunnar i 50 milur 1. september s.l. KOSTAR ÞÚSUND AÐ BRJÓTA ÚT- SÖLUREGLURNAR Ef verzlunareigandi brýtur lög um verzlunarha'tti getur þaö kostað hann ,,allt að” 1000 krón- ur i bótagreiðslur til keppinauts sins! Hess ber þó að geta, að lögin eru frá árinu 1933, og ef bóta- fjárhæðin héldist i hendur við breytt verðlag. næmi hún i dag a.m.k. þúsundum króna. Viðurlögin fyrir 39 árum gátu semsagt numið tvöföldum for- stjórlaunum. eins og þau eru i dag. Þúsund króna gæti meö- altekjumaður núna hins vegar aflaö sér meö 3—4 klukkustunda vinnu. Nokkrar vefnaðarvöru- og íataverzlanir brutu i gær, vilj- andi eða óviljandi, þessi lög með þvi að hafa á boðstólum vörur á niðursettu verði. Samkva’mt lögunum er þess- um verzlunum heimilt að hafa útsölur tvisvar á ári. Timabilin eru lrá 10. janúar til 10. marz og frá 20. júli til 5. september. Siðara timabilið rann þvi út á mánudag. en i gær stóðu enn yf- irútsölur i nokkrum verzlunum. Talsmaður Kaupmannasam- takanna sagði i viðtali við Al- þýðublaðið i gær. að þeim heföu borizt nokkrar kvartanir vegna þessa. Taldi hann. að ástæðan fyrir áframhaldandi útsölum væri sú. að viðkomandi kaupmönnum væri ekki kunnugt um þennan lagabókstaf. og þvi væri gott. að þetta kæmi fram. i kjölfar einvigis aldarinnar. sem nú er farsællega afstaðið, kemur ein ægileg bókaskriða út um allan heim. Ekki ætla tslend- ingar að verða eftirbátar i bókaútgáfunni fremur en öðru. að minnsta kosti sé miðað við höfðatölu. Og allar bækur skulu á mark- aðinn eins fljótt og mögulegt er. þvi það sem gildir er, að sú bók, sem kemst fyrst út. selst bezt. Við höfum þegar sagt l'rá fyrir- hugaðri útgáfu Skáksambands islands og Almenna Bókafélags- ins á skákum einvigisins. Ekki vildi Baldvin Tryggvason fram- kvæmdastjóri AB mikið um þessa útgáfu segja. er Alþýðublaðið hafði tal af honum i gær. en sagði þó. að hún væri va’ntanleg innan skamms. Við höfum lika sagt frá útgáfu Skáksambandsins á einvigisbók i Bandarikjunum. Lá fréttum við i gær. að tsafold sé á leiðinni með bók. sem Guð- mundur Danielsson heíur skrifað, en Halldór Fétursson teiknað myndir i. Hún er væntanleg i nóvember. Að sögn Ragnars er þetta engin fræðileg bók um skák. og ekki verða skákirnar þeirra Fischers og Spasskis i henni. Hann sagði, að Guðmundur segi um bókina. aðhún sé um ..einvigi aldarinnar i réttu Ijósi”. hvort sem það verð- ur heiti bókarinnar eða ekki. l>á höfum við fregnað. að þýzk; ir bókaútgefendur séu nú a' sprettinum að gefa út skákbækur, og hin opinbera einvigisbók komi innan skamms út hjá Droemer i Munchen. en fyrirtækið greiddi vist um 260 þús. isl. krónur fyrir útgáfuréttinn. Annað fyrirtæki i Munchen gef- ur út i mikilli skyndingu bók. sem sögð er vera eftir Fischer. og nefnist ..Lærið að tefla með Bobby”. t henni verða lika allar einvigisskákirnar. Há hefur tékkneski stór- meistarinn Fachmann skrifað bók fyrir skákútgáfuna Walter Rau i Hýzkalandi. LOKS SKRiFAÐ Við heyrðum í gærkvöldi að Fischer hefði loks fengizt til að skrifa upp á taflborðin fyrir Skák- sambandið, sem ætlunin er að selja dýrum dómum sem minja- gripi. Spasski og Fischer skrif- uðu. að sögn, báðir á taflborðin i gær, en i dag mun Spasski fara úr landi. BJÓDDU ÓVINUM ÞÍNUM SÍGARETTU! 2 Fimmtudagur 7. september 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.