Alþýðublaðið - 07.09.1972, Side 4

Alþýðublaðið - 07.09.1972, Side 4
ÓNSKÓLI SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR I Innritun og greiðsla námsgjalda fyrir haustönn 1972 fer fram i húsi skólans Hellusundi 7, jarðhæð, miðvikudaginn 6. fimmtudaginn 7. og föstudaginn 8. sept- ember kl. 17—20 alla dagana. Þeir nemendur sem innrituðust siðastliðið vor, eru sérstaklega beðnir að mæta sem fyrst til þess að staðfesta umsóknir sinar, þar sem búast má við, að skólinn verði f'ullskipaður, fyrir þessa önn. Skólastjóri. RITARI Vegna forfalla vantar ritara nú þegar, um nokkurra mánaða skeið. Góð kunnátta i vélritun og islenzku nauðsynleg. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Auglýsing um lausar lögregluþjónsstööur í Reykjavik Nokkrar lögregluþjónsstöður i Reykja- vik eru lausar til umsóknar. Launakjör, föst laun, auk álags fyrir nætur- og helgi- dagavaktir, samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Upplýsingar um starfið gefa yfirlög- regluþjónar. Umsóknarfrestur er til 1. október 1972. Lögreglustjórinn i Reykjavík. Fóstrur 4 fóstrur óskast til starfa við skóla fyrir fjölfötluð börn. Upplýsingar gefur Bryndis Viglundsdóttir forstöðukona i sima 43968 kl. 19 - 22 daglega. + Móðir min og tengdamóðir Pálina Þ. Árnadóttir, Krosseyrarvegi 5, Hafnarfirði, lézt i Landspitalanum, 5. september. Dóra Pétursdóttir, Rúnar Brynjólfsson. Laus störf Alþýðubankinn h.f. auglýsir eftirtalin störf laus til umsóknar. 1. starf götunarstúlku. 2. Starf sendisveins (þarf að hafa vélhjól). 3. Nokkur störf i afgreiðslusal. Umsóknum skal skila til skrifstofustjóra bankans fyrir 12. september n.k. Alþýdubankinn hf Tilkynning um lögtök í Seltjarnarneshreppi 23. ágúst s.l. var úrskurðað, að lögtök geta fram farið vegna gjaldfallinna en ógreiddra útsvara, aðstöðugjalda, kirkju- og kirkjugarðsgjalda, fasteignagjalda álagðra i Seltjarnarneshreppi árið 1972 svo og heimtaugargjalda hitaveitu, allt ásamt dráttarvöxtum og kostnaði. Lögtök fyrir gjöldum þessum geta farið fram að liðnum átta dögum frá birtingu auglýsingar þessarar, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tima. Tryggingastofnun ríkisins Bótagreiðslur Almannatrygginganna i Reykjavik. Útborgun ellilífeyris i Reykjavik hefst þessu sinni föstudaginn 6. september. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS SKÓVER (áður Skólavörðustíg 15) er flutt að TÝSGÖTU 1 (áður Karnabæ) SKOVER Týsgötu 1 Sími 14955 EITT STERKflSTA_____________9 liðið danska liðinu AGF frá Árós- um i fyrstu umferð og féll úr — einnig á markatölu. Danirnir sigruðu i Árósum með 3:0, en töp- uðu ekki nema 1:0 i Varsjá. En eftir þetta fór að ganga mun betur hjá Pólverjunum i Evrópu- bikarkeppninni. Næst lék Legia i keppninni 1969—1970 og vann þá fimm leiki af átta — tapaði loks fyrir þvi liði. sem varð Evrópu- bikarmeistari. Fyrstu leikirnir voru gegn UT Arad og vann Legia báöa, 2:1 og 6:0. Þá var leikið gegn franska liðinu Saint Etienne i annarri um- lerð og aftur vann Legia báða leikina fyrst 2:1 og siðan 1:0. 1 þriðju umferð lék Legia við tyrk- neska liðið Galtasarey og eftir jafntefli i fyrri leikunum í Tyrk landi. 1:1, vann Legia i Varsjá 2:0 og var þar með komið i undanúr- slit þessarar miklu keppni. Og i undanúrslitum lék liðið við Feyenoord, hollenzka liðið heims- fræga. sem fyrr i þessari keppni, 1969, hafði sigrað KR með 12:0 og 4:0, en báðir leikirnir voru háöir i Ilollandi. Legia gerði jafntefli i heimaleiknum við h’eyenoord 0:0, en tapaði i Rotterdam 0:2. Þar með voru Hollendingarnir komnir i úrslit og þar sigruðu þeir Celtic 2:1 i Milanó. Legia lék aftur i Evrópukeppni 1970—1971 og eftir mjög góða keppni tapaöi liðið á einu úti- marki. Legia lék fyrst við IF Gautaborg og vann heima 4:0 og 2:1 i Gautaborg. i annarri umferð mætti Legia belgiska liöinu Standarr Liege og eftir að hafa tapað i Belgiu 0:1 vann Legia heimaleikinn 2:0 og var þar með komið i átta-liða-úrslit. Þar drógst Legia gegn hinu fræga liði Atletico Madrid og voru leikirnir milli þeirra afar skemmtilegir og tvisýnir. Fyrri leikurinn var i Madrid og sigraði Atletico með 1:0. Siðari leikinn vann Legia með 2:1 i Varsjá. Stigatalan var þvi jöfn og markatalan einnig, en spænska liðið komst i undanúrslit á markinu, sem það skoraði i Varsjá, þar sem útimörk gilda tvöfalt er markatalan er jöfn. Eins og áður segir tók Legia þátt i borgakeppni Evrópu 1969—1970. Liðið lék þar fyrst við Waregem frá Belgiu og vann heimaleikinn 2:0, en tapaöi hin- um 0:1. I annarri umferð lék Legia við TSV Munchen og sýndi þar frábæran leik i Varsjá — sigr- aði með 6:0. í Munchen sigraði Legia einnig 3:2. i þriðju umferð lék liðið við hið fræga lið Ung- verjalands Ujpest Doza — gerði jafntefli i Varsjá 2:2, en tapaði útileiknum 0:1. Af þessari upptalningu má sjá, að Legia, Varsjá, er mjög sterkt lið — eitt sterkasta lið, sem komið hefur hingað til lands i keppni i Evrópumótunum. Það tekur nú i fyrsta sinn þátt i Evrópukeppni bikarhafa og er talið hafa mikla möguleika á að komast i úrslit — en sigurstranglegast liða i keppn- inni er Leeds United, ensku bik- armeistararnir taldir. Legia, Varsjá, hefur á undan- förnum árum leikið fjölmarga „vináttuleiki” við heimsfræg knattspyrnulið og unniö þar góða sigra. í Frakklandi vann það til dæmis Stade Reims 2:1, i Vestur- Þýzkalandi Rot-Weiss, Essen. 5—1, Fortuna. Dusseldorf 3:1, Hannover 96 með 3:2 — og I Ung- varjalandi eitt frægasta lið heims hér áður fyrr. Hoved. með 3:1. LUÐRASVEIT 3 Fyrsti viökomustaður var Minneapolis í Banda- ríkjunum, en síðan voru þræddar íslendinga- byggðir þar og í Kanada. Lagt var af stað 3. ágúst og komið heim 23. ágúst. LANAMAL______________________5 gera til að lögin um veðtryggingu iðnrekstrarlána verði meira virði. en pappirinn, sem þau eru prentuð á. Ég hef áður sagt, að ég muni taka ofan fyrir iðnaðarráðherra, þegar hann hefur komið i lag lánamálum iðnaðarins. Ég bið með að kaupa hattinn. 4 Fimmtudagur 7. september 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.