Alþýðublaðið - 02.12.1972, Blaðsíða 6
Kjötverzlun
TOMASAR spyr:
Ætlíð þér að senda ættingja eða
VINIERLENDIS
hangikjöt eða annað hnossgæti?
£f þér viljið spara yður
hlaup og erfiði
leysum við alian vandann
fyrir yður á
nokkrum mínútum
i Kjötverzlun Tómasar, Laugavegi 2, getið þérvalið
matinn, fengið hann pakkaðan og sendan á áfanga-.
stað — hvar sem er i heiminum.
Við pökkum hangikjötinu i loftþéttar umbúðir og
göngum frá öllum öðrum mat á viðeigandi og
öruggan hátt.
Við önnumst siðan sendinguna — og getur viðskipta-
vinurinn greitt flutningskostnaðinn i verzluninni.
Þannig getið þér sparað yður mörg spor í önnum
jólamánaðarins.
KAFFISAlt
HRINGSINS
JÚLAMARKADUR
Að' Hótel Borg sunnudaginn 3. desember kl. 3 e.h.
Jóiaskraut og skreytingar
Glæsilegt skyndihappdrætti
Komið og styðjið gott málefni
Vélstjórafélag íslands
heldur félagsfund að Hótel Sögu, miðviku-
daginn 6. desember kl. 20.000.
Dagskrá: Uppstilling til stjórnarkjörs.
Kvenfélagið Hringurinn
Stjórnin.
BÆKUR TIL
BLAÐSINS
Eftirtaldar bækur eru nýkomn-
ar ut hjá forlaginu Orn og Orlygur
h.f.
MKÐAN JÖRÐIN
(iRÆIt
Einar Guðmundsson er fæddur
i Hergilsey á Breiðafirði árið 1931
og þar ólst hann upp til 11 ára ald-
urs. Þá flutti faðir hans, Guð-
mundur J. Einarsson, að Brjáns-
læk. Ekki hefur Einar slitið
mörgum skólastólum. Hann iærði
i farskóla frá 9 ára til 14 ára ald-
urs, en stundaði siðan nám i
bréfaskóla.
Frá unga aldri stundaði Einar
margs konar vinnu á sjó og landi,
þar til hann einn góðan veðurdag
gifti sig stúlku af sömu slóðum.
Þau stofnuðu nýbýliö Seftjörn hjá
Brjánslæk, og hafa búið þar siðan
og eignast sjö börn.
Einar lét þess getið nýlega i
blaðaviðtali að sögusviðið væri
tvimælalaust i ætt við Vestfirði
sunnan verða, sögutiminn er frá
þvi seint á striösárunum og fram
undir 1950, en þá urðu viða snögg
umskipti i afskekktum byggðar-
lögum.
MEÐAN JÖRÐIN GRÆR er
þjóölifssaga að vestan og sunnan.
Söguþráðurinn verður ekki rak-
inn hér, eh þess má þó geta, að
betta er magnþrungin mannlifs-
saga, sem enginn leggur frá sér
ólesna.
Bókin er sett i prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð i Viðey
hf. og bundin i Bókbindaranum
hf. Hilmar Helgason teiknaði
kápu, en Litróf gerði myndamót.
NÆTURSTAÐUR
— brot úr lífi borgar-
barna
Það er ekki á hverjum degi,
sem ung skáldkona kveður sér
hljóðs og þvi munu án efa margir
vera forvitnir, bæði um höfundinn
sjálfan og framlag hennar til is-
lenzkra bókmennta. Snjólaug lét
þess getið nýlega i blaðaviðtali,
að saga hennar væri fyrir venju-
legt fólk, skrifuö á venjulegu
máli.
NÆTURSTAÐUR er samtima-
saga úr Reykjavik. Þrjár ungar
konur, með ólikt uppeldi og lifs-
viðhorf, leigja saman ibúð. Sagan
greinir frá sambúðinni, sorgum
og gleði. Margs konar vandamál
er við að etja, bæði félagsleg og
Snjólaug Bragadóttir
persónuleg, sum leysast, önnur
ekki. Vinir og kunningjar koma
við sögu, og ekki má gleyma mis-
jafnlega flóknum ástamálum.
Snjólaug Bragadóttir fæddist á
nýjársdag 1945 á Skáldalæk i
Svarfaðardal. Foreldrar hennar
eru Guðbjörg Hermannsdóttir frá
Bakka á Tjörnesi og Bragi Guð-
jónsson frá Skáldalæk.
Snjólaug ólst upp á Akureyri i
hópi fjögurra bræöra og gekk i
skóla eins og lög gera ráð fyrir.
Lauk hún gagnfræðaprófi vorið
1962. Eftir ýmis störf á Akureyri
næstu fimm árin, fluttist hún til
Reykjavikur og settist við ritvél
hjá Timanum, þar sem hún hefur
verið siðan, þar af háift fjórða ár
sem blaðamaður.
Bókin er sett i prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð i Viðey
hf. og bundin i Bókbindaranum
hf. Káputeikningu gerði Hilmar
Helgason, en prentmót vann Lit-
róf hf.
BRtJ MILLI HEIMA
Einar Jónsson á Einarsstöðum
i Reykjadal hefur i kyrrþey unnið
merkilegt liknar- og lækninga-
starf. Nafn hans hefur viða heyr-
st, þótt þeir séu færri sem kynnst
hafa Einari náiö. Einn þeirra
manna, sem notið hefur hjálpar
Einars er Jónas Jónasson, út-
varpsmaður. Jónas hefur nú fært
til bókar kynni sin af hinum
merka lækningamiðli og nokk-
urra annarra karla og kvenna,
sem telja Einar hafa komið sér til
hjálpar, þegar á reyndi.
Á bókarkápu segir m .a.: í þess-
ari bók er rætt við nokkra aðila,
sem kynnzt hafa af eigin raun
Jonas Jónasson
lækningamætti Einars Jónssonar
á Einarsstöðum. Bók þessi tæmir
ekki þaö ómælanlega verkefni aö
skrásetja merkar frásagnir, sem
eru i geymd viöa um land, en hún
bregður ljósi á merkan lækninga-
miðil og starf hans.
1 upphafi bókar segir m.a.:
Hjálparstarf Einars er ekki bund-
ið þvi fólki, sem sækir hann heim.
Fjarlægð skiptir engu og margir
eru þeir, sem skrifa honum og höf
skilja á milli. Þegar dagurinn
breiðir nóttina yfir höfuð, lokar
Einar sig inni i lækningaherberg-
inu og kemst þegar i samband við
lækna sina. Hann gefur upp nöfn
og heimilisföng sjúklinga, og
óteljandi hjálparsveitir eru þegar
að störfum.
... Eitt er vist; við dyr Einars á
Einarsstöðum logar ljós og þang-
að leitar mörg þreytt sálin. Innan
Jyra, i húmi nætur, fer fram sálu-
messa. Hinar óteljandi hjálpar-
>veitir eilifðarinnar taka sér
■íraft, hvar sem hann er að finna,
oeita honum siðan til hjálpar lif-
andi og látnum...
Bókin er sett i Prentstofu G.
Benediktssonar, en prentuð i Við-
ay hf. Bókbindarinn hf. sá um
Dókbandið en Litróf hf. um prent-
mót. Káputeikningu gerði Hilmar
Helgason.
IIÉR KEMUR
PADDINGTON
'Lnnað ævintýrið um Perúbjörn-
nn, sem getur talað og býr með
Brownfjölskyldunni
Höfundur: Michael Bond
Þýðandi: örn Snorrason
Teikningar: Peggy Fortnun
Á siðasta ári hélt hinn gunnreifi
hrakfallabálkur, PADDINGTON
Perúbjörn, innreið sina á islenzk-
an bókamarkað. Paddi, eins og
bann er venjulega kallaður, geng-
ur um með rauðan, háan hatt, og
hefur sinar eigin skoðanir á lifinu,
sem fara þvi miður ekki alltaf i
sama farvegi og ann'arra. Þess
vegna lendir Paddi i alls konar
ævintýrum og klandri, enda er
hann skjótur að taka ákvarðanir
og framkvæma þær, en hugsar
minna um afleiðingarn ír — og
raunar alls ekki fyrr en það er
orðið allt of seint.
Bókin er sett i prentstofu G.
Benediktssonar, prentuð i Viðey
hf. og bundin i Bókbindaranum
hf. Hilmar Helgason teiknaði
kápu, en Litróf gerði Myndamót.
0
Laugardagur 2. desember 1972