Alþýðublaðið - 03.01.1973, Page 3

Alþýðublaðið - 03.01.1973, Page 3
FRIÐUR — JOLAGJÖFIN SEM BRAST i ávarpi sinu á nýársdag gerði forseti islands, dr. Kristján Eldjárn, viðburði á vettvangi alþjóðastjórnmála á siðastliðnu ári að umtalsefni. Forseti islands sagði m.a.: ,,En það er eðlilegt að beina huganum að þvi nú við áramót, að liöna árið hefur verið við- buröarikt á marga lund á sviði alheimsmála og fengið mönnum margt að hugsa. Ef til vill er of- dirfskufullt að segja, að við þessi áramót sé friðvænlegra um að litast i heiminum en verið hefur um nokkurt skeið, enda er kynslóð hins kaida striðs tor- tryggin og marghvekkt og trúir varlega, þótt teikn sjáist á lofti, sem virðast spá góðu. Engu að siöur hefur þvi veriö almennt fagnað, að margt hefur gerzt á siðastliðnu ári, sem i svip hefur orðið til þess að slaka á strengdum taugum hins kaida striðs milli valdaþjóöa heims og höfðingja þeirra.” Forseti isiands sagði enn- fremur: „Menn höfðu bundið miklar vonir við allt þetta og margt fieira af stórtiöindum lið- ins árs, og gera það enn, þótt önnur tiöindi og dapurlegri hafi ekki látið sig vanta. Þess er skemmst að minnast, að mönn- um virtist friðargerð i Vietnam- striöinu vera á næsta le iti. Það átti að vera stærsta jólagjöfin. En hér brustu vonirnar enn einu sinni. Enn einu sinni hafa kristnir menn haldið friöarhátið sina við dyninn af sprengjunum, sem falla austur þar.” Forseti islands gerði einnig landhelgismálið að umræöuefni i ávarpi sinu til þjóöarinnar á nýársdag, og sagði m.a.: „En hvernig sem þessi mál skipast, hljótum vér aö óska og vona á þessum nýársdegi, að ekki rofni sú samstaða, sem allir stjórn- málaflokkar náðu sin á milli hinn 15. febrúar s.l., hvort held- ur blitt eða stritt oss ber til handa á næstu mánuöum eða allan þann tima, sem liða kann þangað til takmarki voru er náð. Með kappi og forsjá mun Framhald á bls. 4 1200 MÓT- MÆLTU ÁRÁS- UNUM A gamlársdag var haldinn i Háskólabiói fjölmennur mót- mælafundur gegn loftárásuin Bandarikjamanna á Norður- Vietnam. Gizkaö er á, að um tóli hundruö manns að minnsta kosti hafi sótt mótmælafundinn. Hvcrtsæti hússins var skipað og auk þess stóð fjöldi fundar- manna á göngum. Ræðumenn á fundinum voru Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráðherra, Jóhann S. Hannesson, fyrrverandi skó la m e is ta r i, Magnús Kjartansson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Sól- veig llauksdóttir, fulltrúi Viet- namnefndarinnar. Fundarstjóri var Eðvarð Sigurösson, formað- ur Verkamannasambands ts- iands. I lok fundarins var eftirfar- andi áiyktun samþykkt einróma og hún siðan afhent utanrikis- ráðherra og sendiherra Banda- rikjanna á islandi: „Almennur fundur haldinn i Háskólabiói á gamlársdag 1972 fordæmir harðlega hinar glæp- samlegu loftárásir Bandarikj- anna á alþýðulýðveldið Viet- nam. Framhald á bls. 4 NÝIR SAMNINGAR VIÐ ISAL: STARFSMATID ÚR SðGUNNI A gamlársdag var undirritað samkomulag sem náðst hafði nóttina áður i samningaviðræðum starfsmanna Alversins i Straumsvik við vinnuveitendur. Höfðu samningafundir þá staðið linnulitið i nær tvo og hálfan sólarhring. Veigamestu atriði hins nýja samnings eru þau, að samið var um nýtt launaflokkakerfi, sem fcyggist i röðun i staö starfsmats áður. Þá var samið um almenna kauphækkun og lengingu orlofs, auk smærri atriða sem lagfærð voru. Samið var um 8,62% almenna kauphækkun sem gildir frá og með 1. desember s.l. Er i þessari hækkun innifalin 6% hækkun i al- mennum samningum verkalýðs- félaganna sem til framkvæmda eiga að koma 1. marz. Hið nýja launaflokkakerfi gerir það að verkum, að margir starfs- menn Alversins i Straumsvik hækka mjög verulega i launum vegna nýrrar röðunar og annarra tilfærsla. Er hið nýja flokkakerfi byggt á 9 flokkum, i stað 14 flokka áður. Samningarnir eru háðir sam- þykki félagsfunda, en verði þeir samþykktir þar, sem fastlega er reiknað með, gilda þeir i eitt ár, eða til 1. janúar 1974. Samningar við Álfélagið runnu út 1. desember. Hafa samninga- fundir staðið yfir siðan. Miðaði lítið i fyrstu, en um jólaleytið komst skriður á samningana. Tiu verkalýðsfélög eiga aðild að samningunum og sendu þau fram sameiginlega aðalnefnd til við- ræðnanna. INNANLANDSFLUGIÐ JÚKST LANGMEST Farþegaflug innanlands jókst verulega á siðasta ári, og sem dæmi um það má nefna aö viðkomur farþegaflugvéla i innanlandsflugi á Reykjavikur- flugvelli urðu 11,646 i fyrra, en það er aukning um 18,3% frá árinu áður. Lendingar á öllum öðrum helztu flugvöllum landsins jukust einnig verulega. Varð aukningin mest á isafirði, eða rösk 37%, þá á Hornafirði, 29% á Egilsstöðum 17,4% og talsverð aukning varð einnig á lendingum á Akureyri, Vestmannaeyjum og Sauðárkróki. Að Reykjavikur- og Keflavikur- flugvellum undanskildum, var umferðin mest á Akureyrarflug- velli. Þar lentu um 25000 vélar á árinu, Vestmannaeyjar voru i næsta sæti, og þá Egilsstaöir og tsafjörður, en á öllum þessum völlum lentu yfir þúsund vélar á Vöruflutningar Flugfélagsins frá Reykjavík iðulega 30 tonn á dag árinu. Talsverður samdráttur varð á umferð smávéla. A eftir Reykjavikurflugvelli er næst mesta umferðin um Kefla- vikurflugvöll, en þar lentu 3,750 farþegarvélar i millilandaflugi á árinu, sem er 3% aukning frá fyrra ári. Af þessum fjölda voru aðeins 212 skrúfuvélar, enda fækkaði þeim um 65% en afgangurinn var þotur, en þeim fjölgaði um rösk 12%. Ekki liggja fyrir upplýsingar um lendingafjölda hervéla, Um islenzka úthafs-flug- stjórnarsvæðið, fóru nú mun fleiri vélar en nokkru sinni áður. ARIÐ HEILS- AÐI MEÐ GÓÐRI FÆRÐ Nýja árið byrjaði með sæmi- legri færð um vegi landsins, þar sem á annað borð má búast við, að vegir séu opnir á þessum árs- tima. Þeir vegir á Vestfjörðum, sem ekki eru ófærir á annað borð, eru þungfærir, og færð er tekin að þyngjast á Austfjörðum á ný eftir þiöuna skömmu fyrir jól. Jafnfallinn snjór var yfir öllu suðvestur- og vesturlandi, en vegir allsstaðar mjög vel færir, allt frá Skeiðarársandi og vestur á Svinadal, en þar var þungfært i gær. Brattabrekka var mokuð i gær, en Heydalsvegur var fær. Frá Svinadal er þungfært með köflum i Króksfjarðarnes, en þó mátti fara þessa leiö á stórum bilum og jeppum. 1 gærmorgun var Holtavörðu- heiöin opnuð, og var þá fært öllum bilum norður i Skagafjörð og þaðan til Siglufjarðar. Oxnadals- heiðin var mokuð i gær, en þar var talsverður skafrenningur, og búizt við, að heiðin lokaðist fljót- lega aftur. Snjóflóð féll i Ólafs- fjarðarmúla, en vonir standa til, að þar verði fært fljótlega aftur. Stórum bilum og jeppum var i gær fært milli Akureyrar og Húsavikur um Dalsmynni, og opna átti vegina um Tjörnes. Hafi það tekizt er fært allar götur norður á Raufarhöfn. A Austfjöröum er enn ófært um Fjarðarheiði, og sömuleiðis um Vatnsskarð eystra. Oddsskarð var orðið ófært aftur eftir vatns- veðrið um daginn en er nú opið. Yfirleitt er þungfært um Hérað, en þó hægt að komast um á stórum bilum. Fagridalur er fær, og frá Reyðarfirði suður með öllum fjörðum og eftir að Lóns- heiðin var mokuð i gær var fært allt suður á Hornafjörð. Hafin er bygging nýrrar vöru geymslu á Reykjavfkurflugvelli á vegum Flugfélags tslands. Þetta verður allmikil bygging, um 800 fermetrar að flatarmáli og stend- ur hún sunnan viö aðalflugskýli Flugfélagsins. Upphaflega var áformað að helmingur hússins yrði tilbúinn tilnotkunar i vetur, en þaö sem hamlaði þvi, var aö ekki fengust tilskilin leyfi til byggingarinnar fyrr en það seint og sýnt yrði að húsiö myndi ekki verða nothæft fyrr en næsta sum- ar. Var þá gripið til þess ráðs, að byggja húsið allt i einum áfanga i staðtveggja Vöruafgreiðslan býr við hin verstu þrengsli, og falli dagur úr, til flutninga skapast hálfgert vandræðaástand. Iðulega eru fluttar um 30 lestir af vörum á dag frá Reykjavik og er þá ekki . meðtalinn farþegafarangur. Flugfélag íslands mun hefja áætlunarfiug til Gautaborgar og mun fyrsta feröin verða farin i i júni 1973. ...... /, „POPP-HLJOMLISTARMENN DJÚPT SOKKNIR í DÓPIД „All flestir hljómlistarmenn i popp bransanum eru djúpt sokknir i fikniefna- og dóp- neyzlu”. Þetta er dómur eins poppar- ans, trommuleikarans þekkta Gunnars Jökuls Hákonarsonar, er hann svarar spurningu i sið- asta hefti Vikunnar. „Árið 1972 hefur verið það tið- indalausasta, leiðinlegasta og ómerkasta i sögu poppheimsins, siðan ég byrjaði að spila”, segir Gunnar i svari sinu, og hann bætir við orðrétt. „En hverju er þetta að kenna? Að minu áliti er sökin ekki músikunnenda, eins og hljómlistar- og bissnismenn vilja halda fram, heldur hljóm- listarmannanna sjálfra. All flestir i þessum poppbransa eru það djúpt sokkniri fikniefna- og dópneyzlu, að þeir grafa sjálfa sig inn i eigin heim tónlistar og telja sér trú um, að þeir hafi það góða músik fram að færa, að allir „eigi að hlusta”. o Miðvikudagur 3. janúar T973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.