Alþýðublaðið - 03.01.1973, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
ALÞÝÐUFLOKKSÚRRÆÐIN
í áramótagrein sinni i Alþýðublaðinu á
gamlaársdag ræðir Gylfi Þ. Gislason m.a. efna-
hagsmálin, — vandamál og viðbrögð. Eftir að
hann hefur farið nokkrum orðum um óstjórn nú-
verandi rikisstjórnar i efnahagsmálum, sem
leiddi m.a. til þess, aðgripa þurfti til kreppuráð-
stafana i góðæri, vikur formaður Alþýðuflokks-
ins að þeim hugmyndum, sem þingflokkur Al-
þýðuflokksins hafði bent á sem leið út úr
vandanum. Um þetta farast Gylfa svo orð:
„Auðvitað varð að gripa til einhverra ráðstaf-
ana, eins og málum var komið undir lok þessa
árs. Aðalatriðið var að hefta frekari vöxt verð-
bólgu og koma útflutningsatvinnuvegunum aft-
ur á réttan kjöl. Það er efalaust rétt hjá sér-
fræðingunum, sem þeir leggja þunga áherzlu á i
ýtarlegri og vandaðri álitsgerð sinni, að hvor-
ugu markmiðinu verður náð, að algerlega
óbreyttu þvi visitölukerfi, sem samtök launþega
og atvinnurekenda hafa samið um. Á þetta hef-
ur sá, sem þessar linur skrifar, oft bent á i ræðu
og riti. En reynslan sýnir, að slikt verður að ger-
ast i'samstarfi við launþegasamtökin. Það ætti
að vera eitt aðalatriði i undirbúningi næstu
heildarsamninga að athuga hleypidómalaust,
með hvaða ráðum bezt verði tryggt, að launþeg-
ar fái ávallt þá hlutdeild i vaxandi þjóðartekj-
um, sem þeir eiga sjálfsagðan rétt á.
EINMITT MEÐ HLIÐSJÓN AF ÞESSU
HEFÐI UNDIR NÚVERANDI KRINGUM-
STÆÐUM VERIÐ HYGGILEGAST AÐ LEYSA
EFNAHAGSVANDANN TIL BRÁÐABIGRÐA
MEÐ SVIPUÐUM RÁÐSTÖFUNUM OG
MINNIHLUTASTJÓRN ALÞÝÐUFLOKKSINS
GREIP TIL SUMARIÐ 1959. ÞAÐ HEFÐI
DREGIÐ ÚR VERÐBÓLGUVEXTINUM OG
GETAÐ KOMIÐ ÚTFLUTNINGSATVINNU-
VEGUNUM Á RÉTTAN KJÖL. SÍÐAN HEFÐI
ALLT VANDAMÁLIÐ ÁTT AÐ TAKAST UPP í
VIÐRÆÐUM MILLI LAUNÞEGASAMTAKA,
VINNUVEITENDA OG RÍKISVALDS VIÐ
UNDIRBÚNING NÝRRA KJARASAMNINGA,
SEM GERA Á NÆSTA HAUST. ÞÁ HEFÐI
VERIÐ VON UM VARANLEGAN ÁRANGUR.”
Þetta sagði Gylfi Þ. Gislason i áramótagrein
sinni og á þessa leið benti Alþýðuflokkurinn á
Alþingi fyrir jól. Þar brá Alþýðuflokkurinn út af
þeim leiða vana, sem stjórnarandstöðuflokkar á
tslandi hafa tamið sér: Að skamma rikisstjórn
en benda aldrei á neina leið sjálfir. Alþýðu-
flokkurinn lét sér ekki nægja að benda á mistök
stjórnarinnar. Hann benti á aðra lausn — hina
góðu og gömlu Emilsleið — og sagði: Þennan
veg skulum við ganga.
Það er ekki oft, sem almenningur á íslandi
getur valið jafn glögglega á milli stefnu stjórnar
og stefnu stjórnarandstöðuflokks og hér á sér
stað. Stjórnin vill gengisfellingu, — þá leið, sem
stjórnarflokkarnir sjálfir hafa fellt yfir þyngsta
áfellisdóminn og margyfirlýst er af þeirra
hálfu, að þeir trúi ekki á. Alþýðuflokkurinn segir
hins vegar að ýmislegt sé nú með sama hætti og
sumarið 1959 eftir fall vinstri stjórnarinnar og
þvi eigi nú að gripa til sömu úrræða og reyndust
íslendingum vel þá, þegar minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins undir forystu Emils Jónssonar
bókstaflega bjargaði þjóðinni frá að falla fyrir
björg svo notað sé orðalag forsætisráðherra
vinstri stjórnarinnar er hann lýsti efnahags-
vandanum i afsagnarræðu sinni.
FRÉTTIR
SITT ÚR HVERRI
ÁTTINNI
ÞAÐ EINA, SEM LÆKKAR
Meðalaldur bifreiða hérlendis
virðist fara heldur lækkandi hin
siðari ár, á sama tima og meðal-
aldur fslandinga sjálfra fer
hækkandi.
Vegamálaskrifstofan hefur
sundurliðað allar islenzkar bif-
reiðar eftir aldri, en bifreiöir ís-
lendinga voru um siðustu áramót
samtals 52,489, auk 274 mótor-
hjóla.
Samkvæmt sundurliðuninni var
meðalaldur vörubifreiða 9,6 ár,
meðalaldur almenningsbifreiða
9,4 ár og meðalaldur fólksbifreiða
7,1 ár.
Langflestar bifreiðarnar eru
yngri en niu ára gamlar, en 1,393
bifreiðir reyndust vera eldri en 25
ára gamlar.
FLEHSA
í KÍNA?
Þeir, sem hafa yfir að ráða
telex, eða á góðu máli fjarrita,
þurfa nú ekki annaö en slá inn
á hann númeriö 28150 til þess.
aö fá yfirlit yfir heilsufariö i
heiminum.
Þaö er Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin, sem hefur komiö
þessari þjónustu upp, og i
Genf I Sviss hafa þeir ætið á
takteinum nýjar upplýsingar
um þessi mál.
Læknar, ferðaskrifstofur,
blaöamenn eöa aðrir, sem
kynnu aö vilja fá þessar upp-
lýsingar, þurfa þvi ekki annaö
upp frá þessu en slá þetta
fyrrnefnda númer á telexinn,
þurfi þeir á að halda upp-
lýsingum um farsóttir eða
smitunarhættu i vissum lönd-
um.
Auk þess verður sent á
hverjum föstudegi viku yfirlit
yfir ástand heilbrigöismála i
öllum heiminum.
ÞANNIG BÚA SUNNLENDINGAR
Veriðer að gera heimildarkvik-
mynd i litum um búskaparhætti
og atvinnuþróun á Suðurlandi.
Myndatökumaður er . Vigfús
Sigurgeirsson, en forgöngu um
málið hafa mörg félagasamtök á
Suðurlandi.
Er ráðgert að gerð
myndarinnar verði lokið fyrir
Þjóðhátiðina 1974, og verði sýning
hennar liður i hátiðinni viðs vegar
um landið. A hún ekki hvað sizt að
vera heimild um atvinnuhætti,
sem nú eru með öllu horfnir úr
þjóðlif inu, og fjallar meðal
annars um ullarvinnu, gerð
mjólkurmatar, heyskap og eldi-
viðargerð. Eru sumir þættir
hennar gerðir i samráði við Þjóð-
hátiðarnefnd.
Fjár til myndarinnar hefur
verið aflað i félögunum, sem að
gerð hennar standa,
Búnaðarfélagi Islands, Slátur-
félagi Suðurlands, Stéttarsam-
l-"ndi bænda, Samvinnutrygging-
HEIÐURSFOLK
Forseti islands sæmdi á nýjárs-
dag eftirtalda islendinga heiöurs-
merki hinnar islenzku fálka-
orðu:
Freystein Gunnarsson, fyrrv.
skólastjóra, stórriddarakrossi,
fyrir störf að fræðslumálum.
Jón H. Bergs, forstjóra, ridd-
arakrossi, fyrir störf að atvinnu-
og félagsmálum.
Jón Sigurösson, formann Sjó-
mannasambands islands, ridd-
arakrossi, fyrir störf aö málefn-
um sjómanna.
Frú Mariu Pétursdóttur, skóla-
stjóra, riddarakrossi, fyrir störf
að félags- og hjúkrunarmálum.
Prófessor ólaf Björnsson, ridd-
arakrossi, fyrir embættis- og fé-
lagsmáiastörf.
Ragnar Jónsson, forstjóra,
stórriddarakrossi, fyrir stuðning
viö lista- og menningarmál.
Séra Sigurö Ó. Lárusson, fyrrv.
prófast, riddarakrossi, fyrir störf
að kirkju- og menningarmálum.
Sigurjón Ólafsson, myndhöggv-
ara, riddarakrossi, fyrir högg-
myndalist.
Frú Sólveigu Benediktsdóttur
Sövík, kennara, Blönduósi, ridd-
arakrossi, fyrir störf að félags- og
kennslumálum.
Steinþór Þórðarson bónda á
Hala i Suöursveit, riddarakrossi,
fyrir félagsmálastörf.
um, sem og nokkurri fjárveitingu
úr Rikissjóði.
Ekki hefur myndinni verið
valið nafn, og er nú ákveðið að
efna til samkeppni um heiti
hennar, og er fimm þúsund krón-
Aformað er, að á öndverðu
næsta ári efni Flugfélagið til
tveggja sólarferða til Miami i
Florida og verður hér um 11 daga
ferðir að ræða. Brottfarardagar
eru fyrirhugaðir 25. janúar og 5
marz og verður flogið með þotum
Flugfélags Islands.
Eitt hundrað og tuttugu farþeg
ar geta komizt i hvora ferð. Gist
verður á góðum hótelum, þar sem
aðbúnaður er allur til fyrirmynd-
um heitið fyrir beztu nafngift.
Tillögur skulu sendast til fram-
kvæmdanefndar myndatökunnar,
en formaður hennar er Stefán
Jasonarson I Vorsabæ i
Gaulverjabæ, Arnessýslu.
Flórlda og þá sérstaklega
Miami eru sérlega vinsælir staðir
meðal ferðafólks yfir þennan árs-
tima og þangað leitar f jöldi fólks i
sólskin og sjó, meðan vetur rikir
enn á norðurslóðum.
Sem fyrr segir er hér um 11
daga feröir aðræða. Kostnaðurer
áætlaður um kr. 30.000,- og er þá
innifalið forgjald, gistiverð og
morgunverður.
STRÆTISVAGNALEIOIR
EKKI ENDURSKOÐADAR
Fyrir skömmu flutti Ingvar
Asmundsson, fulltrúi Alþýðu-
flokksins i stjórn Strætisvagna
Reykjavikur, svofellda tillögu
um endurskoðun á ferðum
strætisvagnanna:
„Rekstri S.V.R. vcröi á næstu
3 árum breytt i þaö horf, aö
timabil á milli vagna á hcrri leiö
veröi aö jafnaöi helmingi
styttra en nú er. Ráöstafanir til
kaupa á nýjum vögnum og öðr-
um búnaöi veröi gerðar hiö
fyrsta og tekið tillit til þeirra I
fjárhagsáætlun fyrir árið
1973.”
Tillögu Ingvars Asmundsson-
ar fylgdi svohljóðandi greinar-
gerð:
„Fjölgun einkabila i borginni
með sama hætti og verið hefur
hlýtur að leiða til algers um-
ferðaröngþveitis á næstu árum.
Ástæða er til þess að ætla að
hamla mætti gegn þessari þróun
með þvi að stórbæta þjónustu
S.V.R. 1 þessu skyni er nauðsyn-
legt að stytta timabil milli
vagna og veita strætisvögnun-
um sérstaka aðstöðu i umferð-
inni. Telja má vist, að með
þessu móti mætti spara mikinn
gjaldeyri vegna minni stofn-
kostnaðar og reksturskostnaðar
á einkabilum. Auk þess má gera
ráð fyrir verulegum sparnaði i
viðhaldi gatna.”
1 stjórn SVR fór fram at-
kvæðagreiðsla um frávisunar-
tillögu, sem meirihluti Sjálf-
stæöisflokksins i stjórninni bar
fram við tillögu Ingvars. Var
frávisunartillagan samþykkt
með atkvæðum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins gegn atkvæðum
Ingvars og fulltrúa Fram-
sóknarflokksins i stjórn S. V.R.
Ingvar Asmundsson
í FLÓRÍDASÓLINA
ar.
Miðvikudagur 3. janúar 1973