Alþýðublaðið - 03.01.1973, Síða 12

Alþýðublaðið - 03.01.1973, Síða 12
KOPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og ' NYJA BENZIN- VERDID ER 19 KRÓNUR LÍTRINN Um áramótin tók ekki einungis viðnýttár.heldur lfka nýtt verð á bensini og olium, og má kannski segja, að timi hafi verið til kominn, þar sem gamla verðið á þessum vörum var orðið meira en þriggja ára gamalt. Nú kostar bensinlitrinn orðið 19 krónur i stað 16 áður, og gasolia á bfla kostar 6.15 kr. íitrinn i stað 5.08 áður. Og þá þurfa forráða- menn heimila og eigendur fiski- skipa einnig að gera smá breytingu á fjárhagsáætlun nýja ársins, þvi olia til húsahitunar og fyrir fiskiskip hækkaði um 74 aura litrinn. Sú olia kostaði áður 3.96 litrinn en er nú seld á 4.70. Litlir 74 aurar skipta reyndar ekki miklu, en oliueyðsla, hvort sem um er að ræða vél i fiskiskipi eða oliukyndingu i húsi, er ekki lengi að komast i þúsund litrana, og þá eru 74 aurarnir orðnir 740 krónur, og svo má lengi halda áfram. Þriggja króna hækkunin á bensinlitranum er að mestu leyti vegna hækkunar á vega- skattinum, sem tók gildi um áramótin, eða yfir tvær krónur. Hitt er hækkun vegna gengis- fellingarinnar, og svo auðvitað söluskatturinn, sem kemur ofan á allt saman. ÆTLAÐI AÐ HALDA KONSERT í MEXICÚ TIL ÞESS AÐ GETA SÉÐ KNATTSPYRNU Það eru sex til sjöhundruð tónlistarunnendur i Heykjavik, sem eru fastagestir á áskriftar hljómleikum Sinfóniuhljóm- sveitar tslands, og vafalaust mæta þeir flestir á aukatón- leikana i Háskólabiói annað kvöld til þess að hlýða á Valdimír Askenasi leika tvo pianókonserta eftir Mozart og hljómsveitina leika undir stjórn hans sinfóniu eftir þann sama. En kannski einhverjirsem hafa annað aðal áhugaefni en sigilda tónlist fái áhuga á að skreppa á þessa tónleika, þegar þeir frétta, hvert er áhugamál Ask- enasis útan tónlistarinnar. Það áhugamál er nefniléga knattspyrna, og hann neytir allra bragða til þess að geta horlt á góða knattspyrnumenn keppa. Þegar heimsmeistara- keppni i knattspyrnu fór fram i Mexikó 1970 ákvað hann t.d. að bregða sér þangað og halda nokkrá tónleika til þess að geta horft á úrslitaleikinn. Af þeirri ferð varð þó ekki, þar sem sonur hans slasaðist og var lagður á sjúkrahús. Þegar Askenasi var i London lék hann i knattspyrnuliði, sem eingöngu pianóleikarar skipuðu.ogá blaðamannafundi, sem var haldinn i gær vegna tónleikanna annað kvöld, sagðist hann hafa lalsvert leikið knattspyrnu á skólaárum sinum i Sovetrikjunum. En á þessum tónleikum annað kvöld sýnir hann ekki fimi fóta sinna heldur handa, og sveiflar tónsprotanum i Sinfóniu nr. 35 i D-dúr eltir Wolfang Amadeus Mozart. Hann lætur lika hendurnar fljúga um flygilinn i Fianókonsertum nr. 23 i A-dúr og nr. 20 i D-moll eftir sama tón- skáld, jafnframt þvi, sem hann stjórnar hljómsveitinni á þeim verkum. Á blaðamannafundinum i gær sagðist Askenasi ekki geta aukið tónleikahald sitt hér á landi frá þvi sem verið hefur undanfarið, þar sem næstu tvö ár séu þau skipulögð, og fyrirhugað sé, að hann leiki á eitt hundrað tónleikum á ári. Samanlagt býst hann við að fá fjögurra mánaða fri frá tón- leikahaldi á hverju ári, og eru þvi ekki fyrirsjáanlegar margar dvalarstundir þeirra hjóna i nýju húsinu þeirra i Reykjavik á næstunni, en þangaö sagði hann, að þau flyttu i marz nk. ASKENASI STJORNAR OG LEIKUR MEÐ SINFÓNÍU OFORMLEGT VOPNAHLÉ Á MIDUNUM Segja má, aðóformlegtvopnahlé hafi rikt i þorskastriðinu um ára- mótin, en föstudaginn 29. desem- ber vissi Landhelgisgæzlan að- eins um átta landhelgisbrjóta i is- lenzku fiskveiðilögsögunni. Þar af voru sjö vestur-þýzkir togarar, sem allir voru við veiðar við 50 milna mörkin suðvestur af Reykjanesi, en einn brezkur tog- ari var við ólöglegar veiðar á Gerpisgrunni. Þetta verður að teljast nokkuð þolanlegt ástand miðað við, að vanalega skipta veiðiþjófar við landið tugum, en þennan dag voru samtals 35 er- lendir togarar að veiðum utan 50 milna markanna. Um sama leyti árið 1971 voru hinsvegar 76 veiðiskip við landið, og langflest á þeim slóðum, sem nú eru komin inn fyrir 50 milna mörkin. Þá voru brezku togararnir flestir, eða 49 talsins, v.-þýzkir 23 og belgiskir fjórir. Árið 1970 var fjöldi erlendra veiðiskipa nokkru færri 29. des, en árið áður, eða samtals 67. Þá voru v.-þýzkir togarar flestir, eða Fullorðins mannssaknað á Siglufirði Mjög viðtæk leit hefur staðið yfir siðan á nýársdagskvöld að lullorðnum manni á Siglufirði og hafði hún engan árangur borið um klukkan hálf ellefu i gær- kvöldi, er Alþýðublaðið hafði samband við lögregluna á Siglu- firði. Mannsins, sem saknað er, var siðast vart um 10 leytið á nýárs- dagskvöld, en siðan hefur ekkert til hans spurzt. Lögreglan vildi ekki gefa upplýsingar um nafn mannsins i gærkvöldi. Um 40 manns tóku þátt i leitinni að manninum i gær,— 30, brezkir togarar 28, einn bel- giskur togari, og óstaðsettir brezkir togarar voru átta. Flestir togararnir voru, eins og venju- lega, að veiðum á þeim svæðum þar sem þeir eru núna forboðnir gestir. Það merkilegasta við talningu Landhelgisgæzlunnar á föstudag- inn er, að brezku togararnir eru komnir útfyrir fiskveiðilögsög- una, allir nema einn, en eins og kunnugt er hafa oftast verið flest- ir brezkir togarar að ólöglegum veiðum við landið eftir útfærsl- una. Hvort sem þessi skyndilega löghlýðni Bretanna er til komin vegna vasklegrar framgöngu varðskipsmanna að undanförnu eða hreinlega vegna þess, að þeir fiska betur utan 50 milnanna, er ómögulegt að segja. En Kramhald á bls. 4 VÉLARBILUN OLLIASIGLINGU f VESTMANNAEYJAHOéN Eitt af aflaskipum Vestmanna- eyjaflotans er töluvert skemmt eftir árekstur i höfninni I Eyjum á gamlársdag. Tildrögin að óhappinu voru þau, að Jörundur III. RE 300 var að koma að bryggju i Vestmanna- eyjum, og var töluverð ferð á skipinu. Skyndilega drap vélin á sér, og skipti engum togum að Jörundur rann inn i hlið Andvara RE 100sem lá við bryggju. Fengu skipverjar á Jörundi ekki við neitt ráðið, þvi þeir gátu ekki sett vélina i aftur á bak gir, og þannig afstýrt óhappinu. Urðu miklar skemmdir á And- vara, en sáralitlar skemmdir á Jörundi III. Er talið að Andvari verði frá veiðum i minnsta kosti mánuð, sem er bagalegt i byrjun vertiðar. Andvari RE 100 er eikarskip, 100 lestir að stærð og smiðað i Svi- þjóð árið 1946. Jörundur III. RE 300 er stálskip, rúmlega 250 lestir að stærð, og miðað i Englandi 1964. I gær hafði engin skýring fundist á þessari skyndilegu vélarbilun. Bliðskaparveður var þegar óhappið átti sér stað. Maður, sem talinn er hafa verið ölvaður, ók heldur ógætilega um götur Heimaeyjar aðfaranótt ný- ársdags, og endaði ökuferðin með þvi að hann ók niður tvo gangandi vegfarendur, og er talið mikið lán að ekki urðu fleiri fyrir barðinu á honum. Þetta atvikaðist að dansleikja- haldi loknu, og var fjöldi fólks á ferli i miðbænum. M.a. voru fleiri i þeim hóp, sem fórnarlömbin tvö voru i, en þeim tókst aö forða sér undan bílnum. Mannsekjurnar tvær, voru þégar fluttar á spitalana, en við rannsókn kom i ljós að meiðsli voru ekki alvarleg. Þrir aðrir Vestmannaeyingar voru teknir úr umferð vegna meintrar ölvunar við akstur um áramótin, en engin slys hlutust af akstri þeirra. Að sögn lögreglunnar i Vest- mannaeyjum, var ölvun talsverð á nýársnótt, og gistu margir fangageymslurnar, en fremur lit- ið var þó um óspektir. Hinsvegar minnist yfirlögregluþjónninn i Eyjum ekki eins rólegrar Þor- láksmessu og þeirrar siðustu. Ef þú mátt við að missa lítilræði — þá minnum við á að enn vantar matvæli og lyf til Nicaragua. Gíróreikningsnúmer Rauða krossins er 90 000 — og söfnunin stendur yfir til þrettándakvölds.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.