Alþýðublaðið - 04.01.1973, Síða 1

Alþýðublaðið - 04.01.1973, Síða 1
alþýðu f BUAST VIÐ AÐ SJOMENN BOÐI VERKFÖLL ÞÁ OG INNBROTS- ÞJÖFARNIR HINIR PRÚÐ- BÚNUSTU Oft er flagð undir fögru skinni, sannaðist áþreifanlega i fyrra- kvöld, þegar þrir prúðbúnir menn, i frökkum og með hatta á höfðum og allir hinir prúðmann- legustu, brutust inn i verzlunina Gelli i Garðastræti. Ekki höfðu þeir þó næði til að velja úr vörum verzlunarinnar, þar sem ibúi i húsinu vaknaði og kom niður. Lögðu þeir á flótta, en náðust þó daginn eftir, og játuðu á sig þetta innbrot og eitthvað meira, en þeir hafa allir komið við sögu hjá lögreglunni áður. Lögreglan greip tvo aðra þjófa á innbrotsstöðum um helgina. Annars var mikið um innbrot um helgina, og er blaðinu kunnugt um a.m.k. 25 innbrot frá þvi á föstudagskvöld og þar til i gærmorgun. Mest var þó um þau aðfaranótt laugardags og sunnu- dags, eða 16. Litlu var þó stolið i flestum tilvikum, en sumstaðar unnar nokkrar skemmdir, er þjófarnir voru að komast leiðar sinnar. Einna mesta tjónið mun hafa orðið i myndavélaverzlun i Austurstræti, en þaðan var stolið myndavél að verðmæti um 60 þúsund krónur. Myndavélin, sem er sérstaklega hönnuð fyrir blaðaljósmyndara, er af gerðinni Conica. Þá voru tveir piltar 13 og 14 ára gamlir, gripnir á innbrotsstað i fyrrakvöld áður en þeir höfðu ráðrúm til að hafa nokkurn varning á brott með sér. „Enginn sáttafundur í kjaradeilu togarasjómanna og útgerðarmanna hefur verið haldinn siðan um eða fyrir miðjan desember. Ég reikna því með, að félögin fari að boða til vinnustöðv- unar allt hvað líður, ef ekkert gerist á allra næstu dögum", sagði Pétur Sig- urðsson, varaformaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, i gær, er blaðið innti hann eftir gangi mála í togara- deilunni. Deilan er nú I höndum sáttasemjara ríkisins, sem ekki hefur kallað aðila saman til fundar um all- langt skeið m.a. vegna óvissunnar um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum með tilliti til afkomu útgerðarinnar og vegna óvissunnar um ákvörðun nýs fisksverðs. SKEMMDU I PENINGALEIT 1 fyrrinótt var brotizt inn i enn eitt verksmiðjuhúsið i Hraunun- um i Hafnarfirði, en talsverð brögð hafa verið að innbrotum i verksmiðju- og verkstæðishús þar um slóðir að undanförnu. Telur rannsóknarlögreglan i Hafnarfirði ekki ósennilegt að þarna séu unglingar á ferð, og þá liklega þeir sömu i flestum til- vikunum. Yfirleitt hefur litlu verið stolið, enda virðist sem þjófarnir séu Framhald á 3. siðu. EIGASILDAR- ÆVINTÝRIN ENN EFTIR AÐ GERAST? Fiskifræöingar álita að góðar vonir séu til þess að ná islenzka sildarstofninum upp að nýju, verði hann algerlega friðaður fram til hausts 1974. Megi þá vænta þess að sildveiðar verði aftur arðbær atvinnuvegur upp úr 1974. Blaðið hafði samband við Jakob Jakobsson fiskifræðing vegna þessa máls. Sagðist hann vera þessarar skoðunar, eftir aö hafa gert athuganir á sildar- magni við Suöurland i lok sið- asta árs. Fór Jakob á rannsóknarskip- inu Arna Friðrikssyni i lok nóvember, og stóð leiðangurinn i 12-13 daga. Var leitað á svæð- inu austan Reykjaness að Stokksnesi. Fannst sild einkum á svæðinu frá Ingðlfshöfða aust- ur að Hrolllaugseyjum. Er þetta frekar afmarkað svæði. Sildin á þessu svæði reyndist vera að mestu leyti tveggja og þriggja ára sild, ókynþroska. Þriggja ára sildin gýtur i fyrsta skipti i sumar, en tveggja ára sildin i fyrsta skipti sumarið 1974. . Sagði Jakob að af þessu mætti ráða, að langbezt væri að framlengja núgildandi sild- veiðibann fram til haustsins 1974, og gefa þessum tveimur árgöngum kost á að gjóta i það minnsta einu sinni. Þannig væri hægt, ef aðstæður væru fyrir hendi, að ná stofninum upp á sem stytztum tima. En til þess að ná stofninum upp að nýju, þyrftu náttúrlegar aðstæður að vera góðar. Um sildveiðibannið við Island vildi Jakob meina, að rannsókn- irnar hefðu sannað gildi þess. Framhald á 3. siðu. JAKOB SPÁIR SÍLDARÁRI 1975 UNGIR ÞJOFAR OG QHEPPNIR EN EKKI ÓREYNDIR I.ögreglan handtók tvo unga drcngi i fyrrinótt, 14 og 15 ára, er þeir voru að brjótast inn i Skátabúðina við Snorrabraut, FIINDU SJALFIR UPP ADFERD TIL AD BIARGA KERJUNUM og við nánari yfirheyrzlur ját- uðu þeir á sig að hafa framið sjö innbrot á mánaðartima. Piitarnir hafa framið þessi innbrot vitt og breitt um borg- ina, en viðast livar náð heldur litlum verðmætum. Gátu þeir skilað meirihluta þýfisins aft- ur. Að sögn lögreglunnar liafa þeir ckki komið við sögu fyrr fyrir afbrot. Öll innbrotin frömdu þcir i sameiningu. — Gangsetning kerjanna i álverk- smiðjunni gengur þolanlega sagði Ingvar Pálsson deildarstjóri i viðtali við Alþýöublaðið i gær. Af þeim kerjum, sem varð að stöðva vegna rafmagnsleysisins sagðist hann reikna með, að 60-70 yrðu komin i gang I dag. Hluti hinna 12- 14 sagði hann, að færi i gang i næsta mánuði, en nokkrir mán- uðir liða þar til öll kerin eru komin i gang að nýju, þar sem sum þeirra eru mjög illa farin. Reiknað er með, að kerin séu notuð i fjögur ár þar til fóðrunin innan i þeim þarfnast endur- I nýjunar við, en að sögn Ingvars voru þessi 84 ker fæst eldri en tveggja og hálfs árs gömul, en þau voru gangsett i maí 1970. | Endurnýjunarinnar var þvi þörf að minnsta kosti hálfu öðru ári fyrr en ella hefði þurft, en hún ! kostar venjulega 1,2 milljónir króna. Við það bætist svo kostn- aður við að brjóta upp krýolitið og sjálft álið og mjög erfitt er að eiga við það siðarnefnda, þar sem það er seigt eins og gúmmi. Það tókst nefnilega að halda 700-750 stiga hita á álinu með þvi að keyra raf- skautin i botn, og að sögn Ingvars telja þeir i Straumsvikinni sig uppfinningamenn þeirrar að- ferðar, en þeir hafi dottið niður á hana af einskærri tilviljun. Þetta hefur það i för með sér, að kerin fara ekki eins illa og hefði álið náð að harðna. ENN LEITAÐ Á SIGLUFIRÐI Viðtækri leit að fullorðnum Að sögn fréttaritara blaösins er manni á Siglufirði, sem saknað töjuvert mikill snjór á Siglufirði, hefur verið siðan að kvöldi nýárs- en leitarskilyrði i gær og fyrradag dags, var áfram haldið i allan voru þó góð. gærdag, en án árangurs. Maðurinn er sextugur að aldri.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.