Alþýðublaðið - 31.01.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 31.01.1973, Blaðsíða 12
alþýðu mmm KOPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og SEHDfBiL ASTÖÐiN Hf HÚSNÆÐIÐ OG VINNAN NÚMER EITT UR SOGUNNI 100 A SKAGA STRAX A Akranesi geta a.m.k. 100 Vestmannaeyingar fengið atvinnu nú þegar, samkvæmt könnun sem gerð var þar á vegum bæjarskrifstofunnar i gær. Vinna liggur þar á lausu við fjöldamörg störf, og auk þess eru fjögur stór frystihús á staðnum, sem hvergi nær eru fullnýtt. ,Vestmannaey er í Panamaskurðinum' FLEIRI KOMAST A STOKKS- EYRI „Við getum bætt við töluveröu af fólki i vinnu, ef fiskast á ver- tiðinni og hægt verður að skipu- leggja Vestmannaeyjabátana þannig, að þeir leggi upp hér”, sagði Steingrimur Jónsson, hreppstjóri á Stokkseyri, þegar Alþýðublaðið ræddi við hann i gær. Sjálfir geta Stokkseyringar ekki fullnýtt fiskvinnsuhús sin meðeigin bátaflota, og geta þeir þvi bæði tekið á móti meiri fiski og meira fólki. Vestmannaey- ingar hafa hins vegar ekki sótt fast að koma að Stokkseyri, en Steingrimur og oddvitinn brugðu við fyrsta gosdaginn og buðu Rauða krossinum að ráð- stafa fimm húsum utan við þorpið, sem ekki hefur verið búið i siðustu tvö til þrjú árin. Fjórar fjölskyldur hafa þegar fengiö þar inni, og von er á tveimur fjölskyldum i viöbót, en pláss er fyrir þrjár til fjórar fjölskyldur i viðbót auk 6-8 ein- staklinga. „Vestmannaey er liklega i Panamaskurðinum i dag”, sagði Þórunn Pálsdóttir i stuttu viðtali við Alþýðublaðið i gær, en Vestmannaey er skuttogari, sem Kristinn Pálsson og fleiri bræður hennar hafa keypt. Lagði hann á stað til tslands á gamlársdag. „Ég bý nú hér á fallegu heimili einhvers elskulegs fólks, sem við höfum aldrei þekkt. Ég er hér með 4 börn min og tvö önnur mér áhangandi. Maðurinn minn, Grétar Þorgils- son, er Uti i Eyjum, til að reyna að ná bátnum sinum, Gylfanum, Ur slippnum, og vonandi tekst það i kvöld eða nótt, þv! að þá verður stórstreymt”, sagði Þórunn. Einar Viðar, lögfræðingur, og kona hans, þurftu að fara erlendis með veikt barn sitt, og afhentu Rauða krossinum hús- lyklana, svo að hægt væri að skjóta húsi yfir fólk Ur Vest- mannaeyjum. „Ég vona bara, að allt gangi vel hjá þessu elskulega fólki, og að ég geti skilað heimilinu, eins og ég tók við þvi. Annars hljótum við að eiga eftir að fara heim aftur”, sagði Þórunn að lokum. Forsætisráðherra Breta, Édward Heath, var væntan- legur til Washington i gær- kvöld til viðræðna við Nixon um nýjar friðartiilögur I deilunuin fyrir botni Miðjarðarhafs. Taiið er, að þeir muni einnig ræða nýtil- komið vopnahlé I Vietnam. Ileath mun dvelja tvo daga I Bandarikjunum. Hussein jórdanlukonungur er væntan- legur til Bandarikjanna eftir viku og Golda Meir, forsætis- ráðherra israels mun eiga fund með Nixon 1. marz n.k. önnur meðlimalönd EBE um samstöðu i málinu. Undirtektir hafa verið dræmar t.d. hafa Belgia og Bretland neitað að taka þátt i slikum aðgerðum. Þvi er talið liklegast að þýzka stjórnin svari beiðninni á þann hátt, að áhugi sé enginn á inn- flutningsbanni, og þvi sjái stjórnin ekki ástæðu til aðgerða. A meðan þessu hefur undið fram hafa islenzk skip landað afla sinum i Þýzkalandi eins og ekkert hafi i skorist. Vegna yfirvofandi verkfalls á islenzku togurunum um miðjan janúarmánuð, var litiö um landanir i Þýzkalandi, þvi togararnir komu flestir til hafnar hér stuttu fyrir verkfall, svo þau gætu verið sem lengst að veiðum meðan verkfall stendur yfir. Það hefur reyndar komið fram i fréttum siðustu daga, að verið geti að verkfallinu verði frestað vegna atburðanna i Vest- mannaeyjum, en togaraverk- fallið hefur nú staðið yfir i viku- tima. Utanrikisráðherra Dana, K.B. Andersen hefur I samráöi við f.v. utanrikisráðherra Dana, Poul Ilartling, sent Nó- belsverölaunanefnd norska Stórþingsins tillögu þess efnis, að forseti Júgóslaviu Josef Broz Tito hljóti friðarverölaun Nóbels i ár. Meðal annarra kandidata má nefna Nixon Bandarikjaforseta. Jens Otto Krag hefur hlotið Robert Schumann verðlaunin fyrir störf sín I þágu evrópskar samvinnu. „Gæti ég fengið blaðið sent á nýja heimilisfangið mitt”, sagði Stefán Arnason, þegar hann leit við á afgreiðslu Alþýðublaðsins i gær. Hann bjó áður að Kirkjuvegi 31 i Vestmannaeyjum, en er nú hjá syni sinum i Stigahlið 2 i Reykjavik. Áskrifendur blaðsins sakna þess að fá það ekki heim. Er Vestmannaeyingum velkomið að tilkynna ný heimilisföng á af- greiðsluna, i Alþýðuhúsinu, ef þeir hafa ekki náð sambandi við Eggert Sigurlásson, afgreiðslu- mann Alþýðublaðsins i Vest- mannaeyjum, i gegnum upp- lýsingamiðstöðina i Hafnarbúð- um. u LOÐNU- VERÐIÐ KOMIÐ Loðnuverð liggur nú fyrir. Verður það krónur 1,96 frá 1. janúar til 28. febrúar, en krónur 1,76 frá 1. marz til 15. mai. Frá þeim tima eru loðnu- veiðar óheimilar. Við verðákvörðun er reiknað með að verksmiðjur greiði 5 aura af hverju kiiói loðnu i sérstakan sjóð, sem dreifa á fyrir flutning loðnu til hinna einstöku verksmiðja. Verð á loðnu i beitu verður krónur 6,00 og verð á loðnu i frystingu verður krónur 7,00. ÞÁ ER ROÐIN KOMIN AÐ BLAÐINU Nú er talið næstum Utilokað að sett verði innflutningsbann á islenzkar fiskafurðir i löndum Efnahagsbandalagsins, en krafa um slikt hafði sem kunnugt er komið fram hjá fjórum sam- bandsrikjum Þýzkaiands. Vestur-þýzka stjórnin hefur haft beiðni þessa til athugunar, og meðal annars haft samband við FRÉTT- NÆMT lsland var eitt þriggja landa, sem ekki voru boðuð til óformlegs fundar I bandariska sendiráðinu I Vin I gærkvöld um- það, hverjir skuli sitja fund NATO með fulltrúum Varsjárbandalagsins um gagnkvæma fækkun herja bandalaganna I Evrópu. Itin tvö rikin voru Portúgal og Frakkland. Sjálfur fundurinn hefst i dag. BANNID ER HÚSNÆOISMÁLIÐ: .HUÚDIÐI BANDARÍKJAMONNUM GDn’ „Við hjá varnamáladeild mun- um gera allt, sem i okkar valdi stendur til að greiða fyrir þvi, að Amerikumenn rými húsnæði utan flugvallarsvæðisins, sem þeir geta með góðu móti gert, án þess að skapa vandamál hjá varna- liðinu”, sagði Páll Ásgeir Tryggvason, deildarstjóri i varnamáladeild utanrikisráöu- neytisins i samtali við Alþýðu- blaðið i gær. „Við ætlum að reyna að finna allar þær leiðir i þessu efni, sem talizt geta skynsamlegar, og eins og stendur eru ekki gefin Ut ný leyfi fyrir búsetu varnarliös- manna utan flugvallarsvæðisins og má gera ráð fyrir, að 5-6 ibúðir, sem varnarliðsmenn hafa á leigu á Suðurnesjasvæðinu geti losnað i viku hverri”, sagði Páll Asgeir ennfremur. Varnamálanefnd hélt fund i gærmorgun og var þar m.a fjallað um tilmæli bæjarstjórnai Keflavikur til nefndarinnar um að hún hlutist til um, að varna liðsmenn rými húsnæði i Keflavik og annars staðar utan Kefla vikurflugvallar eftir þvi sem tök Framhald á bls. 4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.