Alþýðublaðið - 17.02.1973, Side 2

Alþýðublaðið - 17.02.1973, Side 2
HÁR 6REHISLA f STfL Allir hundaeigendu- leggja stolt sitt i góða hriðingu og umhyggju fyrir þessum tryggasta vini mannsins i riki dýranna. Það er islenzkt fyrirbæri, sem ekki á sér nokkra hlið- stæðu i veröldinni, að eina hundahaldið, sem ekki er amast við eða bannað, er með þeim hætti, að það vekur hrylling. Annað hunda- hald verður að fara með eins og manns- morð. Þeir, sem ekki get hugsað sér að fara á mis við ánægjuna af heimilshundi, verða að læðast eins og saka- menn á næturþeli með hundinn sinn i göngu- ferð hér i Reykjavik. Þessi fallegi hundur vakti mikla athygli á hundasýningu i London nú fyrir skemmstu. Engum getur yfirsézt, að eigandinn er sér- deilis lagleg stúlka, og eftir hirðingunni á hundinum, er hún lika köttur þrifin. Þá er það skemmti- lega frumlegt, hvemig hún stælir eðlilegt háralag hundsins með sinni hárgreiðslu, og verður ekki annað sagt en að hún fari báðum vel. FRETT- NÆMT Eiturslóð „Leiöin til Katmandu” heitir næsta mánudagsmynd Háskóla- biós. Fjallar hún vandamál fikniefnaneytenda. Myndin ger- ist i Nepal, sem er nokkurs kon- ar paradis fikniefnaneytenda. Höfundur myndarinnar er Frakkinn André Cayette og hef- ur hann samiö handrit sjálfur. Segir þaö sögu fransks stúdents, sem veröur að yfirgefa Paris eftir stúdentaóeiröirnar 1968. Fer hann til Nepals, til að leita upp fööur sinn, sem skuldar honum stórfé, þar sem hann hefur aldrei greitt eyri i meðlag meö honum. Kemst hann á ferö sinni i kynni við þá, er gera þaö að atvinnu sinni að selja fikni- efni og græöa þannig á eymd og niðurlægingu samborgara sinna. I aðalhlutverkum eru Renaud Verley og Jane Birkin, en Jane hefur m.a. leikið i myndinni „Blow-Up”, en hún var sýnd fyrir nokkrum árum I Gamla biói. Aörir leikarar eru m.a. Elsa Martinelli og Arlene Dahl, en þær hafa báðar löngu hlotiö viöurkenningu fyrir leik sinn. Myndin er i litum. Eyjaflug Flugfélag íslands hóf i gær takmarkað áætlunarflug til Vestmannaeyja. Var það ákveöiö i samráði við Al- mannavarnaráð. Ferðafjöldi mun fara eftir þvi, um hve mikla flutninga verður að ræða. Brottför frá Reykjavik er kl. 10.00 árdegis en frá Vestmanna- eyjum kl. 15.00 slðdegis. Til Vestmannaeyjaflugs þurfa far- þegar samt sem áður leyfi við- komandi yfirvalda, og er Flug- félaginu aðeins heimilt að taka farþega, sem hafa slík leyfi undir höndum. Gosi ó Nesi t dag hefjast hjá Leikfélagi Seltjarnarnes sýningar á leik- ritinu Gosa eftir Jóhannes Steinsson úr Vik i Mýrdal. Hefur Jóhannes samið leikritið eftir hinu þekkta ævintýri um Gosa eftir Collodi. Eins og sagan, er leikritið ætlað börnum. Leikstjóri Gosa er Jón Hjartarson, en lög við ljóð Jóns Óskars eru eftir Magnús Ingi- marsson, Magnús Pálsson gerði leiktjöld, og dansar eru eftir Lilju Hallgrimsdóttur. Leikendur i Gosa eru 19 tals- ins. Frumsýning er I dag I Félagsheimili Seltirninga, og hefst hún klukkan 15. Leikritiö verður sýnt á Nesinu framvegis. Herpopp Hljómsveitin „Happie Sold- iers” frá Drammen dvelur hér- lendis þessa dagana á vegum Hjálpræðishersins. Mun hljóm- sveitin halda nokkra hljóm- leika, m.a. I Frikirkjunni. Dag- skrá „Happie Soldiers” er blönduð trúboði og poppmúslk. Hljómsveitin er skipuð 6 hjálp- ræðissinnum frá flokki hersins i Drammen. Ný- kandidatar Brautskráning kandidata frá Háskóla tslands fer fram viö at- högn I hátíöarsal Háskólans i dag kl. 14. Háskólarektor, dr. Magnús Már Lárusson, ávarpar kandidata, en deildarforsetar afhenda prófskirteini. Bókmennta- fræðingur Norskur bókmenntafélags- fræðingur, dr. öystein Noreng, er væntanlegur hingað til lands á næstunni á vegum Norræna hússins. Mun hann halda fyrir- lestur fyrir almenning, svo og I Háskóla Islands á vegum heim- spekideildar. Noreng hefur gert mjög at- hyglisverðar félagsfræðilegar athuganir á bóklestrarvenjum i Noregi. Hafa niðurstöður hans um sambandið milli þjóðfélags- aðstöðu og bókmenntaskynjun- ar vakið töluveröa athygli i Noregi og mun óhætt að full- yrða, að þær eigi fullt erindi til islenzkra áhugamanna um bók- menntir og félagsfræði. Fyrir- lestrarnir verða mánudaginn 19. og þriöjudaginn 20. febrúar. Sá fyrri verður haldinn i Nor- ræna húsinu og hefst kl. 20.30 en sá slöari i Háskóla tslands og hefst hann kl. 17.15. Nýr prestur A morgun verður prestsvigsla I Skálholtskirkju klukkan 14. Biskup Islands, hr. Sigurbjörn Einarsson vigir Valgeir Astráðsson til Eyrarbakka- prestakalls i Arnesprófasts- dæmi. Faðir Valgeirs, Astráður Sigursteindórsson skólastjóri og guðfræðingur lýsir vigslu. Merkja- sala A morgun, góudag, er hinn ár- legi merkjasöludagur Slysa- varnarfélagsins. Veröa merkin afhent I barnaskólunum frá klukkan 10. Að vanda sjá Slysavarnar- félagskonur um meginstarfið i sambandi við merkjasöluna, og hafa þær beðið blaðið aö koma þvi á framfæri við foreldrana að þau ieyfi börnum sinum að selja merkin, og umfram allt að þeir búi börn sin vel út i kuldann. Ljóðakvöld aldarinnar „Ljóðakvöld aldarinnar” verður haldið I Templarahöll- inni viö Barónsstig á mánu- dagskvöldið. Er það stúkan Framtiðin, sem gengst fyrir þessari fágætu skemmtun. Flytjendur kvöldsins verða yfir 20, og má þar til nefna þjóðkunn skáld og leikara, sem og félaga Kvæðamannafélagsins og Framtiðarinnar. Allur aðgangseyrir og hagn- aður af sölu veitinga gengur til styrktar Vestmannaeyjasöfn- unarinnar og Hafsteins Jósefs- sonar, sem afvopnaði skot- manninn I Yrsufelli. Dagskráin veröur fjölbreytt, allt á milli ástarljóða og skammavísna, með eða án und- irleiks, gamlar stemmur, tvi- söngslög og margt fleira. Skól! Skálklúbbur Reykjavikur hélt upp á 10 ára afmæli sitt þann 10. feb. s.l. Skálklúbbar fyrirfinn- ast nú i 93 löndum heims, alls um 360 talsins. Er Skálklúbbur Reykjavikur sá 234.1 röðinni og eru meölimir hans nú um 70 manns. 1 tilefni 10 ára afmælis- ins bauð borgarstjóri nokkrum meðlimum klúbbsins til sam- sætis að Héðinshöfða. Auk þess var Geir Zoega heiðraður af stjórn klúbbsins, en hann var fyrsti formaður hans. Núverandi formaður Skálklúbbs Reykjavikur, Emil Guðmundsson, móttökustjóri Hótel Loft- leiðum heiðrar Geir Zoega, fyrsta formann Klúbbsins. — en það kom ekki til af góðu Fyrsti loðnufarmurinn kom til Vestmannaeyja I gær. Var það Þórkatla 11 frá Grindavik sem kom með 150 lestir. Það var ekki ásetningur skipverja að halda með aflann til Vestmannaeyja, I heldur neyddist báturinn til að ' fara þar inn vegna slagsiðu sem ! skipið fékk á leið með afla til Grindavikur. Þorkalta 11 er 198 lestir að stærð. 1 fyrrinótt og fram á gærdaginn fengu 14 skip afla, eitthvaðum2000 lestir. í fyrrakvöld höfðu 10-12 skip fengið afla, 3000 lestir, og er þá heildaraflinn á vertiðinni örugglega kominn yfir 100,000 lestir. Veður hefur verið slæmt á sildarmiðunum eystra siðasta sólarhringinn, og bátum gengið erfiðlega að athafna sig, enda fengu þeir flestir einungis slatta. Seinni partinn I gær fengu tveir bátar nokkuð góðan afla austur af Ingólfshöfða, en þar er aðal veiði- j svæðið þessa dagana. Loðnurými er viðast hvar tak- 1 markað eins og ram hefur komið, nema I höfnum við Faxaflóa og á Raufarhöfn. LEIT BRÁTT HÆTT? Leitin að gúmmibátunum af Sjöstjörnunni bar engan árangur i gær. Leitarveður var sæmilegt og tóku þrjár flugvélar þátt i í leitinni og fjöldi skipa. I gær- kvöldi átti að taka um það ákvörðun hvort leit yrði haldið áfram eða ekki. Eins og fram hefur komið I fréttum, er 11 manna saknað af Sjöstjörnunni, fjögurra Islendinga og 6-7 Færeyinga. i íslendingarnir er eru Engilbert Kolbeinsson skipstjóri úr Njarð- vikum, kona hans Gréta Þórarinsdóttir, Þór Kjartansson frá Hafnarfirði og Guðmundur Jón Magnússon frá Reykjavik. Enn opið hús í Haag Alþjóða dómstóllinn i Haag lýsti þvi yfir i gær, að Islendingar hafi enn tækifæri til þess að leggja fram gögn sin i landhelgis- málinu, en þá verði þeir að endur- skoða afstöðu sina gagnvart lög- sögu dómsins i málinu. Islenzku rikisstjórninni var til- kynnt þetta i gær, og auk þess, að hún fengi frest til 15. janúar 1974 til þess að leggja fram gögn sin i málinu. Einnig er ætlazt til, að Bretar og Vestur-Þjóðverjar leggi fram sin gögn i landhelgis- málinu fyrir 1. ágúst I ár. o Laugardagur 17. febr. 1973

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.