Alþýðublaðið - 17.02.1973, Page 12

Alþýðublaðið - 17.02.1973, Page 12
alþýdu InRTimi KÓPAVOGS APÓTEK Opift öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 SeiVDfBJl AS7ÖÐ1N Hf MAFIUNEFND SEGIR AF SER Nefnd/ sem skipuö hefur verið af ítalska þinginu til þess að rannsaka starfsemi Mafíunnar á Italiu hefur sagt af sér störfum. Nefndin er óstarfhæf, þar sem 27 af 30 meðlimum hennar neituðu að vinna með manni, sem þeir höfðu rannsakað áður í sambandi við Mafíuna. Uppsögnin er talin vera sá mesti skandall, sem orðið hefur innan skipaðrar nefndar þingsins. Umrædd nefnd hefur undanfarin 10 ár rannsakað starfsemi undir- heima Sikileyjar. For- maður nefndarinnar var einn þeirra, sem sagði af sér og bað hann jafnframt um að ný nefnd yrði skipuð. Nefndarmenn sögðu af sér störfum til að mótmæla skipan Giovanni Matta í nefndina. Hann er með- limur Kristilega Demó- krataflokksins og var eitt sinn i yfirheyrslum hjá nefndinni vegna gruns um að vera aðalskipuleggjari neðanjarðarstarfsemi í undirheimum Palermo, sem álítín er höfuðstöð Mafíunnar á Sikiley. Nú hefur verið fundin upp ný aðferð, til þess að „bólusetja” gegn lömunarveiki. Sú er sérstaklega ætluð börnum og er i þvi fólgin, að bóluefnið er nú i formi sykurmola, ef svo má segja. Börn- unum er aðeins gefinn einn moli i stað sprautunnar. Það er óliklegt þægilegra lif fyrir börnin og mæður þeirra. Óttinn við sprautuna er oft á tiðum mikill, eins og margir kannast ef- laust við, þó þeir séu komnir af barnsaldri. Og úr þvi að verið er að minnast á læknis- fræði, þá segir i nýj- ustu skýrslu borgar- læknis, að algegnasta farsóttartilfellið vikuna 28. jan.-3. febrúar hafi verið kvefsótt. Auk þess voru m.a. mislingatil- felli 79 og hálsbólgutil- felli 79, en sem betur fer ekki minnzt á lömunarvejki. Myndin sýnir hvar hin nýja „bólusetn- ingaraðferð” er reynd á kornabarni. Leirinn í Dölum Merkileg rannsókn var gerð um leir okkar lands, þótt lágt væri jafnað metið gildi hans, en niðurstaðan var nýlega þjóðinni birt, svo nú er fyrir allan misskilning girt. Höfuðmunur var alltaf á leir og list, öll list er göfugrar náttúru siðast og fyrst, en litil fremd þótti að leirnum alla tið og Leirgerður gamla hraklegasta smið. Ekki skal véfengd sú athugun sem var gerð og ef til vill reynist harla mikilsverð, en illa lætur i eyrum Dalamanns, að efst á blaði um leir er sýslan hans. VEÐUR UM HELGINA landinu og búast má við éljum á vestanverðu Norðurlandi. Það mun hins vegar nokkuð bjart yfir þeim á Austurlandi. Hita- stig verður aðeins fyrir neðan frostmark um allt land svo það er ekki miklu að kvíða fyrir helgina. I dag er gert ráð fyrir minnkandi suðvestan átt á sunnan og vestanverðu landinu og ef til vill snjó- komu aðfaranótt sunnu- dagsins, tjáðu þeir okkur á Veðurstofunni í gærkvöldi. Vest-suð-vestan átt verður ríkjandi á norðanverðu TARZAN ENN Á LÍFI „Tarzan er enn á lffi, og lifir trjástofna og hagaöi sér á allan góðu lifi i frumskógum Perú”, — hátt, eins og Tarzan var haft eftir forstööumanni Aðspurður kvaðst hann heita minjasafns nokkurs i Lima, Gaston og aðeins kominn á höfuðborgar Perú. Hann var ný- þritugsaldurinn. Forstöðu- kominn úr 2ja mánaða könnunar- maðurinn er nú að undirbúa ferð um frumskógarsvæði i Perú, nýjan leiðangur til sömu svæða, en þar hafði hann hitt fyrir ungan þar sem hann vonast til að finna mann á mittisskýlu einni saman, þennan Tarzan áttunda áratugar- með hnif hangandi við belti sér. ins, til þess að geta skráð sögu Sá sveiflaði sér á tágum á milli hans. NU ER ENSKMi KOMIN I TfZKll i RAUDA KÍNA Um leið og matarleifarnar hafa verið fjarlægðar af borðunum og siðustu gestirnir eru að yfirgefa borðsalinn i Chien Men hótelinu i Peking, safnast þjónar og þjónustu- stúlkur og fl. umhverfis út- varpið og stilla inn á ensku- kennslu kinverska útvarpsins. Allir sitja umhverfis útvarpið með opnar minnisbækur og blýanta, og fylgjast vel með kennaranum, — shirt, shirt, church... SAMTÖK Hótelið er aðeins litið dæmi um, hvern áhuga Kinverjar hafa á þvi, að læra ensku. Milljónir Kinverja hafa farið eftir beiðni hins opinbera, um að einbeita sér að enskunámi. Það er sem samtök séu um allt Kina, um að læra sem bezta ensku. Þessu er oft likt við timabil i sögu Bandarikjanna árin á eftir fyrsta geimskoti Rússa. Eftir það greip um sig geysimikill áhugi i Banda- rikjunum á stærðfræði. Eftir Kinaheimsókn Nixons Banda- rikjaforseta, inngöngu Kina i Sþ og komu Kina úr áralangri einangrun, ef svo má að orði komast, þá eiga Kinverjar meiri möguleika eftir þvi, hversu vel þeir geta gert sig skiljanlega á erlendri tungu. Ensk tunga er hagkvæmust i millirikjaviðskiptum, svo þeir læra ensku, að beiðni stjórn- valda. ÁTTA SINNUM Á DAG Enskukennslan i útvarpinu er átta sinnum á dag. A markaðnum eru nú fjórar vin- sælar enskubækur. Þr hafa allar verið efstar á söluiista yfir bækur hjá bóksölum i Peking s.l. mánuði. Ungt fólk, menn i bláum jökkum, konur með siðar svartar fléttur, kin- versk alþýða, safnast saman við búðarborðin til þess að kaupa sitt eintak af ensku- bókinni. Það er fyrst og fremst ungt fólk, sem enskunámið stundar. Það er unga fólkið, sem myndar hina stóru hreyfingu enskuáhugamanna, en eldra fólkið er einnig nokkuð opið. UM ALLT Ahugi Kinverja á hinni ensku tungu lýsir sér bezt á hótelunum. Þar má sjá starfs- fólkið við vinnu sina, og með kennslubók undir hendinni eða i vasanum. Það vill gjarnan athuga hvað það hefur lært það vill tala við ferðamennina. Viljinn til að læra er mikill, fólkið nýtir hverja einustu stund til hins ýtrasta. Hinir nýju nemendur hafa veiga- mikinn tilgang með námi sinu. Þau alþjóðlegu sambönd, sem Kina hefur komizt i nú siðustu tvö ár, gerir það að verkum, aö meiri og meiri eftirspurn er i Kina eftir túlkum. Mála- kunnátta er þvi Kinverjum nauðsynleg og þess vegna er þessi gifurlegi áhugi fyrir enskri tungu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.