Alþýðublaðið - 22.02.1973, Page 2
EINSKONAR
VEGABRÉFS-
ARITUN til
EYIAFERDA
Flugumferðin þoldi ekki að
fylgt vaeri settum reglum
Flugumferðarstjórar í Frakk-
landi ollu í fyrradag miklum
töfum á flugumferð i landinu
með þvi að vinna nákvæmlega
eftir þeim reglum, sem eru sett-
ar af yfirvöldum. Þetta hafði
það i för með sér, að allt innan-
landsflug lagðist niður, og ekki
var unnt að afgreiða nema litinn
hlutaflugvéla á alþjóðlegum
flugleiðum.
Flugumferðarstjórarnir gripu
til þessa ráðs til þess að undir-
strika kröfur sinar um hærri
laun og verkfallsrétt, en aðgerð-
unum má likja við aðgerðir þær,
sem strætisvagnabilstjórar i
Reykjavik hótuðu að fram-
kvæma, þ.e. að aka ekki hraðar
en lög leyfa.
A Orly flugvelli við Paris eru
vanalega 337 lendingar á dag,
en verkfallið olli þvi, að ekki
gátu lent nema 92 vélar. A öðr-
um flugvelli við Paris, Le
Bourget, gátu 29 af 62 vélum
lent.
Mörgum vélum á alþjóða-
leitim var snúið frá Frakklandi
til lendingar i öðrum Vestur-
Evrópulöndum.
BJORN
FRIÐFINNSSON
MÝVATNSSVEIT
PISTILL
AÐ
NORÐAN
ÞJOÐDANSINN —
NÝFUNDNALANDSVALS ?
Þjóð okkar glimir nú
við afieiðingar eldgoss-
ins i Ileimaey, alvar-
legasta áfalls, sem hún
hefur orðið fyrir i lang-
an tima. Þar við bætast
svo óleyst vandamál
vegna lögmála þess há-
neyzlusamfélags, sem
hér hefur þróast á sið-
ustu/áratugum.
Þjóðfélagið i heild stigur nú
orðið háttbundinn dans. Þar
skiptast á spor kröfugerðar,
verkfalla, kauphækkana og
verðhækkana, gengisfellinga og
nýrra skatta. Samfélagið kallar
stöðugt á siaukna þjónustu og
neyzlugetu og aukinn tima til
neyzlunnar samfara slyttum
framleiðslulima. Þennan dans
stigum við öll sjálfrátt eða ó-
sjálfrátt og hann hefur öðlast
nægileg sérkenni til þess að
hann megi skilgreina sem eins
konar þjóðardans Islendinga.
Þingmenn hafa nú orðið sam-
mála um fjármögnun fyrstu
neyðarráðstafana vegna
Heimaeyjargossins. Hins vegar
virðast menn að mestu sam-
mála um að breyta i engu um
danssporþjóðardansins.Þar eru
þjóðarleiðtogarnir engin undan-
tekning og allra sizt fer rikis-
stjórnin okkar blessuð að spilla
sporinu, —hún hét þvi i upphafi
að vera vinur allra og að standa
ekki gegn kröfum dansendanna.
Þannig skaf kaupið okkar
hækka um svo sem 12% nú til að
byrja með og brennivinshækk-
unin fyrr i vetur verður okkur
bætt að fullu á endanum.
Ibúðarkytran hækkar i verði um
eina milljón i viðbót og almættið
getur þegar i stað orðið við þeim
hluta faðirvorsins, sem fjallar
um skuldirnar. Þótt áfallið
mikla hafi riðið yfir, þá heimtar
Flugfélag íslands hefur nú selt
báðar Douglas DC-6B Cloudmast-
erflugvélar sinar, sem voru not-
aðar til millilandaflugs til ársins
1967, eða þar til fyrri Boeing þot-
an var keypt. Siðari Cloudmast-
ervélin, Skýfaxi, var afhent á
Reykjavikurflugvelli i gær og var
þegar i staö flogið af stað áleiðis
til Florida i Bandarikjunum, en
kaupandinn er Rodin Enter-
prises. Henni fylgdi talsvert
magn varahluta, og auka hreyfl-
ar. Hin Cloudmastervél Flugfé-
lagsins, Snæfaxi, var seld i fyrra-
vor til Belgiu.
hver sitt, bæði einstaklingar,
fyrirtæki og hið opinbera.
Kröfugerð og verkföll ganga
sinn gang og rikið ætlar ekki að
skera niður útgjöld sin nema um
rúm 7% og það kannski mest á
pappirnum. Nei, hið ljúfa lif
skal halda áfram, hvað sem það
kostar og ekki skal hægt á dans-
inum. Menn segja bara, að er-
lendar þjóðir hljóti að hlaupa
undir bagga, t.d. Norðurlanda-
þjóðirnar, sem blaðafulltrúa
rikisstjórnarinnar virðist svo
illa við eða þá Bandarikjamenn,
sem ekki hafa átt upp á pall-
borðið hjá stjórnvöldum hér að
undanförnu.
Þótt fáir vilji sjálfsagt ljá þvi
eyru, þá á þjóðardans okkar sér
hliðstæðu i einu nágrannalanda
okkar, þótt takturinn sé annar i
samræmi við breytta tima. Ég á
þar við örlög Nýfundnalands, en
þar var tii skamms tima sjálf-
stætt riki, sem eins og islenzka
lýðveldið var fámennt, bjó við
örðugt náttúruskilyrði og hafði
megin tekjur sinar af fiskveið-
um.
Nýfundnaland var ein af elztu
nýlendum Evrópubúa i Vestur-
heimi. Nýlendan fékk eigið ráð-
gjafarþing 1832, sem þróaðist til
heimastjórnar 1855 og til sjálf-
stæðis innan brezka sambendis-
ins. Arið 1930 voru ibúar um 280
þúsund, flestir af brezkum eða
irskum uppruna.
Um siðustu aldamót voru um
90% af úrUutningstekjum lands-
ins af söliXfiskafurða, en siðan
þróaðist effcihagslifið til meiri
fjölbreytni oV námugröftur og
skógarhögg %rðu mikilvægari
atvinnugrein\r. Landið var
fyrst og frem\t matvæla- og
hráefnaframleiobndi, en iðnað-
ur átti örðugt uApdráttar.
Heimskreppan'kom mjög illa
við efnahag landsins. Verðfall
varð á útflutningsafurðunum og
sala saltfisks, pappirs og
málma tregðaðist aórum.
Rikisstjórn og þitg landsins
héldu hins vegar sitt'strik unz i
Flugvélar þessar voru keyptar
árið 1961 og hlutu strax gælunafn-
ið „sexurnar”. Eftir að þoturnar
voru teknar i notkun voru þær
notaðar til leiguflugs og innan-
landsflugs.
Nú er flugvélafloti Flugfélags-
ins tvær þotur af gerðinni Boeing
747, fjórar Fokker Friendship og
ein Doglas DC 3. Að sögn Sveins
Sæmundssonar, blaðafulltrúa
Flugfélagsins, eiga Fokkerarnir
að anna innanlandsfluginu, auk
flugs til Færeyja og eyjarinnar
Kulusuk við austurströnd Græn-
lands.
óefni var komið. Fjárlög voru
afgreidd með greiðsluhalla ár-
um saman og útgjöld til sam-
göngu-, mennta- og félagsmála
voru siaukin þótt tekjustofnar
brygðust. Dansinn mátti ekki
trufla, hvað sem yfir gengi. Er-
lend áhrif i efnahagslifinu fóru
vaxandi og kandadiskur gjald-
miðill leysti innlendan gjald-
miðil af hólmi. Þegar heims-
kreppan fór svo að segja til sin
fyrir alvöru og fjöldi undir-
stöðufyrirtækja landsins var
kominn i greiðsluþrot námu
skuldir landsmanna erlendis
um 10 milljörðum króna miðað
við okkar mynt. Enn var leitað
nýrra lána til þess að velta
byrðinni á undan sér og halda
lifskjörum almennings uppi. En
loks kom að þvi að fjármál
rikisins komust i algert öng-
þveiti. Arið 1933 neyddust Ný-
fundnalendingar til þess að
biðja um aðstoð brezku krún-
unnar og var þá skipuð opinber
rannsóknarnefnd með fulltrúum
frá Kanada og Bretlandi auk
heimamanna til að kanna
ástandið. Niðurstöður hennar
urðu til þess að rikisstjórn og
þing lögðu niður stjórn sína á
Nýfundnalandi árið 1934 og var
landið i eins konar umsjá
brezku krúnunnar þar til 1948,
er það varð eitt af fylkjum
Kanada.
H ér er löng saga stytt og ein-
földuð, en saga sjálfstæðs rikis á
Nýfundnalandi er vissulega viti
til varnaðar fyrir okkur Islend-
inga. Við getum nefnilega hald-
ið svo á málum okkar með stöð-
ugu kifi um hégóma og með þvi
að forðast að taka á aðsteðjandi
vanda af hugrekki, sanngirni og
sjálfsafneitun, að fjöreggið
sjálft — sjálfstæði Islenzka þjóð-
rikisins — glatist.
Stundum virðist nefnilega svo
sem hinir glöðu og áhyggju-
lausu dansendur hafi misst
sjónaraf aðalatriðinu...
Sveinn sagði, að liklega takist
að anna farþegaflutningunum
innanlands með Fokkerunum og
hjálp DC 3, eða „þristsins”, en
þegar álagið sé mest verði senni-
lega að nýta þennan flugvélakost
Flugfélag Islands hefur reynt
að halda uppi áætlunarferðum
milli Reykjavikur og Vestmanna-
eyja, eftir þvi sem veður hefur
leyft, siðan á föstudaginn i fyrri
viku. Að sögn ólafs Walters
Stefánssonar blaðafulltrúa Al-
mannavarnaráðs hefur á þessu
timabili verið flutt talsvert af
fólki i land, en mjög takmarkað
út, eða ekki aðra en þá, sem eiga
brýnt erindi til Eyja. Meðal
þeirra eru islenzkir fréttamenn,
og staðfesti Ólafur, að með þessu
hafi Almannavarnaráð viður-
kennt nauðsyn þess, að fjölmiðlar
geti komið mönnum sinum á gos-
stöðvarnar.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugfélagsins,
hefur áætlunarfluginu verið hag-
að þannig þá daga, sem fært
hefur verið, að brottför frá
Reykjavik hefur verið klukkan 10
á morgnana og vélin beðið i Eyj-
um til kl. 3, enda hafi meirihluti
farþeganna aðeins haft dvalar-
leyfi i einn dag.
t gær voru undirritaðari dóms-
málaráðuneytinu reglur um ferð-
Á fundi Norðurlandaráðs æsk-
unnar i Osló i fyrradag var lýst
yfir stuðningi við tslendinga i
landhelgismáiinu. Urðu töluverð-
ar umræður um málið en tillaga
um stuðning samþykkt að end-
ingu. Fulltrúar frá öllum stjórn-
málaflokkum Norðurlanda sátu
þingið og samþykktu þeir allir til-
löguna utan einn.
1 tillögunni segir m.a. að Norð-
urlandaráð æskunnar veki at-
hygli á þeirri sivaxandi hættu
sem auðlindum hafsins stafar að
gegndarlausri rányrkju.
til hins ýtrasta. Þá benti Sveinn á
umræður um, að Flugfélagið taki
i notkun þriðju þotuna, en frá þvi
var sagt i Alþýðublaðinu á laug-
ardaginn var.
ir til Vestmannaeyja og dvöl þar,
og segir þar m.a., að heimild til
dvalar þar hafi þeir, sem lög-
heimili eigi i Vestmannaeyjum,
þeir sem starfi i Vestmannaeyj-
um og þeir aðrir, sem þangað eigi
lögmæt erindi. Allir, sem koma til
Eyja eiga, samkvæmt reglum
þessum, að láta skrá sig hjá lög-
reglunni við komu og tilkynna
brottför, og jafnframt skulu lög-
reglunni sýnd skilriki, sem veitir
heimild tii dvalar. Það er bæjar-
stjórn Vestmannaeyja, sem gefur
út skilriki þeirra, sem lögheimili
eiga i Eyjum, en skilriki annarra
gefa Almannavarnir út. Eins og
áður gefur Sveinn Sæmundsson út
skilriki fréttamanna.
Bæjarfógetanum i Vestmanna-
eyjum er heimilt að takmarka
ferðir manna um einstök svæði i
Heimaey og sömuleiðis að tak-
marka hámarkstölu þeirra, sem
þar dvelja.
Brot á þessum reglum varða
sektum og varðhaldi, nema
þyngri refsing varði, samkvæmt
lögum.
Þvi skuli lögð áherzla á þörfina
að tryggja strandrikjum rétt á og
yfir landgrunninu. Af þessum á-
stæðum er lýst yfir stuðningi við
útfærslu Islendinga i 50 sjómilur,
afstöðu forsætisráðherra Finn-
lands fagnað, og harmað mjög að
rikisstjórnir Norðurlanda skuli
ekki hafa viljað styðja Islendinga
i þvi lifshagsmunamáli þeirra að
vinna gegn rányrkju fiskistofn-
anna.
Finnskt hús
Fyrir frumkvæði Finnlands-
deildar Norræna Byggingar-
dagsins hafa samtök, fyrir-
tæki og stofnanir i byggingar-
iðnaðinum ákveðið að gefa eitt
ibúðarhús, fjölskyldu, er misst
hafi heimili sitt i eldgosinu i
Heimaey. Hefur Húsnæðis-
málastofnunin beðið finnsku
Ilúsnæðismálastofnunina, að
færa gefendum þökk fyrir hina
myndarlegu gjöf.
IIIIIIIIIIIIIIIIIHII HEIMFERÐ VESTMANNAEYJAR TOK 50 DAGA
1 vikunni kom til Hafnarf jarðar
fyrsti Japansskuttogarinn af 10
sem Islendingar eiga von á næstu
mánuðum. Nýja skipið heitir
Vestmannaey VE 54, og er
heimahöfn Vestmannaeyjar eins
og nafnið gefur til kynna. Fyrst
um sinn mun skipið gert út frá
Hafnarfirði.
Vestmannaey er 461 brúttó-
rúmlest samkvæmt nýju mæling-
unni. Er það sama stærð og flestir
Japanstogararnir verða. Er skip-
ið ákaflega vel útbúið til veiða.
Heimferðin tók 50 daga, og lagði
skipið að baki 13,500 sjómilur áð-
ur en það kom hingað. Er þetta án
efa lengsta sigling sem islenzkt
fiskveiðiskip hefur lagt að baki
áður en það hefur getað hafið
veiðar.
SEXURNAR ÚR ÍSLENZKU FLUGSðGUNNI
ÆSKAN
STUDDI
OKKUR
0
Fimmtudagur 22. febr. T973.