Alþýðublaðið - 22.03.1973, Page 9

Alþýðublaðið - 22.03.1973, Page 9
íþrottir 2 Ágúst inn í stað Axels Agúst Svavarsson ÍR fær sannarlega óvænt „come back” i islenzka handknattlciksiandsliöið uni helgina. Agúst má þakka iþróttafréttamönnum þetta að nokkru, þvi þeir völdu liann ekki i prcssuliðið. Þvi ieitaði landsliös- nefndin til hans er Axel Axelsson gekk úr skaftinu, með þeim árangri að hann mun leika a.m.k. fyrri landsleikinn við Norðmenn. Menn eins og Viðar Simonarsop, scm sýndi stórleik með press- unni, hiaut ekki náð fyrir augum nefndarinnar. Það virðist vera „princip” hjá landsliðsnefndar- mönnum að útiloka menn úr pressuliðinu, og því fer gildi pressuleikja þverrandi. Landsliðið gegn Norðmönnum verður þannig: Markverðir: 1. Ólafur Bendiktsson, Val 12. Gunnar Einarss., Haukum Útileikmenn: 2. Gunnst. Skúlason, Val 3. Auðunn óskarsson, FH 4. Jón Karlsson, Val 5. Einar Magnúss., Vikingi 6. Björgvin Björgvinss., Fram 7. Sigurb. Sigsteinsson, Fram 8. Agúst ögmundsson, Val 9. ólafur H. Jónss., Val 10. Geir Hallsteinsson, FH 11. Ágúst Svavarsson, 1R Gunnar Einarsson leikur þarna sinn fyrsta landsleik, og þeir Jón Karlsson og Ágúst Svavarsson koma i liðið að nýju eftir langt hlé. Þetta ersundsveitÆgis, sem sigraði með miklum glæsibrag i bikarkeppni SSÍ um sfðustu helgi. Fremri röð frá vinstri: Kristinn Kolbeinsson, Þórunn Alfreðsdóttir, Flosi Sigurðsson, Vilborg Júliusdóttir, Salómc Þórisdóttir, Páll Arsælsson, Guðrún Pálsdóttir, örn Geirsson, Kristjána Ægisdóttir, og Finnur Garðarsson. Efri röð frá vinstri: Guðmundur Þ. Harðarson þjálfari, Guömundur Kúnarsson, Axel Alfreðsson, Halldór Kolbeinsson, Sigurður ólafs- son.Hildur Kristjánsdóttir.Halla Baldursdóttir, Helga Gunnarsdóttir og Irma Toft, aðstoðarþjálfari. AB-mynd: Friðþjófur. PRESSAN BARA FETIFRA SIGRI! Pressuliðið var aðeins hárs- breidd frá sigri i leiknum gegn landsliðinu á þriðjudagskvöid. Pressan hafði leitt ieikinn alveg frá byrjun, og það var ekki fyrr en á iokaminútunum að landsliðið náði forystu og tókst að tryggja sér sigur, 22:19. Sú ráðstöfun að setja Sigurberg til höfuðs Viðari Símonarsyni gerði gæfumuninn, þvi Viðar hafði fram að þeim tima nánast verið óstöðvandi, enda gert átta mörk, Við þessar aðgerðir fór mesta bitið úr sókn pressunnar, og tap varð ekki um- fiúið. Pressan byrjaði mjög vel, komst i 5:0, og það var ekki fyrr en á 13. minutu að landsliðið komst á blað. Fram að þeim tima hafði Tryggvi Gunnarsson, mark- vörðurinn ungi frá Akureyri, staðið sig mjög vel. Gegnum- sneitt stóð hann sig með prýði i leiknum, þótt hann sýndi kannski ekki sinar beztu hliðar, enda að vonum taugaóstyrkur i sinum fyrsta stórleik. Viðar og co héldu áfram að finna leiðina i netið, og munurinn út hálfleikinn hélzt þetta 3-5 mörk, og i hálfleik var staðan 13:9 pressunni i hag. Byrjun siðari hálfleiks lofaði góðu hjá pressunni, þvi þegar 11 minútur voru liðnar af leik, var staðan 16:11 pressunni i hag. En nú sá landsliðsnefndin að ekki ► ► ► Brynjólfur Markússon reynir þarna að brjótast i gegnum varnarvegg landsliðsins. AB- myndir: Friðþjófur. þýddi að láta Viðar ganga lausan öllu lengur, og Sigurbergi var falið það hlutverk að fylgja Viðari eftir hvert fótmál. Fór nú að syrta i álinn hjá pressunni, og svo var komið þegar 11 minútur voru til leiksloka, að landsliðið jafnaði 16:16. Siðan sigldi landsliðið framúr hægt og örugglega á loka- minútum, drifið áfram af Geir Hallsteinssyni sem loksins hafði vaknað til lifsins. Lokatölurnar urðu 22:19. Mörk Landsliðsins: Agúst Ogm. 6, Geir 4 (4v), Jón K. 3, Agúst Sv. 3, Björgv. 2. Sigb. Gunnst, Einar og Auðunn eitt mark. Mörk pressunnar: Viðar 9 (2v), Stefán 3, Sigfús 2, Brynj. 2, Vilhj. Vilberg og Stefán G. eitt mark. Frammistaða landsliðsins var lengstum mjög slök og loka- minúturnar björguðu heiðri liðsins gjörsamlega. Ágúst Ogmundsson var langbezti maður liðsins að þessu sinni, en einnig voru þeir Agúst Svavarsson, Jón Karlsson og Ólafur Benediktsson þokkalegir. Einar Magnússon og Ólafur H. Jónsson voru alveg út á þekju, og gerðu hverja vitleysuna annarri verri. Hjá pressunni var það Viðar sem bar höfuð og herðar yfir aöra leikmenn. Landsliðsnefndin getur hreinlega ekki gengið framhjá honum lengur. Þá átti Sigfús Guðmundsson góðan leik i vörninni, og sömuleiðis nafnarnir Stefán Jónsson og Gunnarsson. Tryggvi Gunnarsson sannaði það að hann á eftir að verða mjög góður markvörður, þegar hann hefur öðlazt reynslu i 1. deild, sem verður væntanlega næsta vetur. Bergur Guðnason gat ekki leikið með liðinu vegna meiðsla, og koma það sér mjög bagalega, þvi Bergur hefði getað orðið maðurinn til að stýra pressunni fram til sigurs. —SS. Fimmtudagur 22. marz 1973 0

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.