Alþýðublaðið - 22.03.1973, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.03.1973, Blaðsíða 11
ég var vön þegar ég hellti i hana mjólkinni. Þá þurfti ég ekki að beygja mig. Nora stóð rétt fyrir aftan mig og um leið og ég lét skálina á sinn stað og var að hella mjólkinni heyrðist skyndileg druna. Nora hafði gripið i pilsin á mér og righélt i þau. Steinriðið, sem ég hafði sett skálina á virtist allt i einu molna. Ég heyrði skar- kalann af múrbrotum, sem féllu niður. Ég vissi ekki hvað gerzt hafði, þvi Nora hafði kippt mér afturábak af sliku afli, að við duttum báðar. Nora var fyrst á fætur, hún var náhvit i framan. —-Minta! Er allt i lagi með þig? Ég gat ekki sagt það með vissu. Ég var of ringluð. Ég gat ekki hugsað um neitt annað en hið skyndilega hrun og hvernig ég hefði hrasað fram, ásamt Noru...niður úr efsta turni Wite- KRÍUÐ QHL-fíur '30^' j Lc.—A OFRI. /Dju ‘au'v D fyRTf/R Fugl- / 8 5 ‘dTRRK uR 7 Duó IE6UR t fíuRH Ð/R 6 V/XL 3 6l<IKR H/ÓL fSlOr.*• N£/?tP. L E/v&D f.; V SLFP b 5 ORQ £>TT 5ró(? v£lT>i % VLRU : 'O [• NOTU AOla •) /-n<n- oaÐ * To#isr>* OKKUR VANTAR BLAÐBURÐAR- FÓLK í EFTIR- TALIN HVERFI Laugarteigur Laugarnesvegur Rauðilækur Kópavogur — Austurbær. Skúlagata Borgartún ásamt — Höfðahverfi. HAFIÐ SAM- BAND VIÐ AF- GREIÐSLUNA Œ Sími »1 86660 ladies eins og nunnan forðum daga. — bessi fifl! hrópaði Nora. — Þeir áttu að vara okkur við. Þetta steinrið var hættulegt. Svo kraup hún niður við hlið mér. — Minta...? Ég vissi að hún var að hugsa um barnið mitt. Ég fann hreyfingar þess og mér létti ósegjanlega af að vita að það var lifandi. — Ég ætla að flýta mér að ná i hjálp, hélt Nora áfram. — Vertu hérna kyrr. Hreyfðu þig ekki. Ég reis upp við dogg þegar hún var farin. Bella var að sleikja kettlingana sina, alls óafvitandi um þann harmleik, sem nærri þvi hafði átt sér stað. Hrollur fór um mig og ég beið þess að barnið mitt léti mig aftur vita af sér á lifi. Ég þorði ekki að risa upp af ótta við að gera þvi eitthvert mein og það virtist langur timi liða áður en Nora kom aftur. Lucie var með henni, kviðin og hrelld á svip. — Minta! Hún kraup niður við hlið mér. — betta er hræðilegt. bað ætti að skjóta þessa menn. — Hvernig eigum við að koma henni niður stigana? spurði Nora — Við gerum það ekki, sagði Lucie, — fyrr en Hunter læknir hefur litið á hana. — Það er eitthvað við þennan turn, sem mér geðjast ekki að, sagði ég. — Hvað þá? spurði Lucie. — Eitthvað ..illt. — Þú talar eins og þjónustu- fólkið.sagði Lucie hvasst. Hún hafði megnustu óbeit á þvi sem hún nefndi „kjánalegan hugar- burð”. Af venjulegu hyggjuviti sinu hafði hún haft með sér kodda og ábreiður og hún og Nora voru hjá mér þar til Hunter læknir kom. Hann lét mig risa á fætur. — Engin bein brotin, sagði hann. Hann hleypti brúnum er hann sá steinriðið. — Hversvegna var þetta látið viðgangast? spurði hann. — Þeir hafa verið að berja hérna vikum saman, sagði Lucie. — Við hefðum átt að láta okkur detta i hug, að eitthvað þessu likt kynni að gerast. Þegar maður hugsar um alla þessa umturnun i svo gömlu húsi...Hvað sem um það er að segja þá skulu nú kettlingarnir fluttir niður. Kisa verður kannski ekkert hrifin af þvi, en hún verður bara að hafa það. Ég sendi Evans upp eftir þeim, hann getur komið þeim fyrir einhversstaðar i hesthúsinu. — Þú mátt ganga niður i her- VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar slærðir. smiðaðar eftir beiðni. GLUGGASMIÐJAN Síðumúla 12 - Sími 38220_ bergið þitt, sagði Hunter við mig. — En ég held þú hefðir gott af að hvila þig i fáeina daga ...svona i öryggisskyni, ha? — Ég skal sjá um að hún geri það, sagði Lucie ákveðin. Það var þvi enginn skaði skeð- ur, en Lucie krafðist þess að ég héldi kyrru fyrir. Hún hefði þó ekki þurft að gera sér áhyggjur út af þvi, þar eð ég var staðráðin i að fara i öllu eftir fyrirmælum læknisins til að tryggja öryggi barnsins mins. En tveimur nótt- um siðar dreymdi mig draum. Mér þótti ég vera stödd i turnin- um og skyndilega greip mig sama skelfingin og áður. Ég skimaði i kringum mig, en gat ekkert séð. Og þó var þar eitthvað — einhver andlitslaus vera, sem reyndi að þvinga mig yfir steinriðið. Ég vaknaði með andfælum og góða stund hélt ég að ég væri i raun og veru i turninum. Svo fann ég fyrir rúminu minu, hlýju og notalegu. Ég var ein i þvi. Stirling svaf nú i öðru herbergi. Hann hafði sagt eitthvað um að það væri betra fyrir barnið. Ég lá hugsi og minntist þess er ég hafði gengið stigann upp i turninn og haldið að einhver væri á eftir mér, og óttinn, sem þá hafði gripið mig var sá sami og ég hafði fundið i draumnum. Maud hafði verið fyrir neðan. En ef hún hefði nú ekki verið þar. Ég hugs- aði mér sjálfa mig haldandi i steinriðið, en eitthvert illyrmi nálgaðist að baki mér . . . og eng- inn fyrir neðan. Þetta var gott dæmi um heimskulegan hugar- burð barnshafandi konu, sem finnur svo sterka þörf hjá sér til að vernda hið ófædda barn að hún imyndar sér að einhver sækist eftir lifi hennar. Hvers vegna? 1 hvaða tilgangi? Ég hristi af mér siðustu leifar svefnsins og hló að sjálfri mér. Fyrsta atvikið hafði verið helber imyndun: hið siðara var óhapp, sem hefði getað hent hvern sem var. Enginn hafði neina ástæðu til að vilja vinna mér mein. Stirling vildi halda kvöld- verðarboð — og það heldur iburðarmikið. Hann taldi að húsið væri nú ekki lengur i sorg; við hefðum ekki getað haldið þau boð Verkamenn óskast 1. Nokkra verkamenn i byggingavinnu. 2. Mann vanan dekkjaviðgerðum. Húsnæði og fæði á staðnum. Upplýsingar i sima 1-17-90 i Reykjavik — og 92-1575 á Keflavikurflugvelli. íslenzkir aðalverktakar h.f. Keflavikurflugvelli. Aðstoðarmaður óskast Óskum eftir að ráða duglegan mann til starfa á lóð Landspitalans. Nánari upplýsingar gefur Bjarni Björns- son á Landspitalanum, simi 24160, og á Skrifstofu rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, simi 11765. Reykjavik, 21. marz 1973. Skrifstofa rikisspitalanna. HANSA-fermingargjafir HANSA-húsgögn HANSA-gluggatjöld HANSA-kappar HANSA-veizlsbakkar VönduS Islenzk framleiSsla. UmboSsmenn um allt land. HANSA H.F. Grettisgötu 16 . Sitni 25252 AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60 M/S HEKLA fer frá Reykjavik miðvikudaginn 28. þ.m. vestur um land i hringferð. Vörumót- taka fimmtudag, föstudag og mánudag til Vestfjarðahafna, Norðurfjarðar, Siglu- fjarðar, Ólafsfjarðar og Akureyrar. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður, Bankastr. 12 -------------------o Fimmtudagur 22. marz 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.