Alþýðublaðið - 23.03.1973, Blaðsíða 3
vv V " m
Hundruð undanþágumanna
við vélstjórastörf
Óf remdarástand
segir Vélstjóra
félag íslands
Kemur úr eiturloftinu í
Eyjum í bæinn til að
fá sér frískt loft
„I fyrravor, þegar við vorum
búnir að taka inn i Vélstjórafélag-
iö eitthvað á annað hundrað
manns, eftir að Vélskólinn var
búinn, þá stóðum við uppi með 32
menn, sem voru með réttindi á
ýmsum stigum, allt upp i að vera
búnir með nám. Þessir menn
fengu ekkert að gera i sinni grein
á meðan hundruð undanþágu-
manna voru i vélstjórastörfum”.
Þessi ummæli eru frá Vél-
stjórafélagi Islands. Það er þetta
ástand, sem nemendur Vélskól-
ans átöldu harðlega á fundi sinum
á þriðjudaginn var. I ályktun,
sem fundurinn samþykkti ein-
róma segir svo:
„Fundur Vélskólanema,
haldinn 20. marz 1973, fordæmir
þær undanþágur til vélstjórnar til
handa ómenntuðum mönnum,
sem sifellt eiga sér stað, og telur
þær ruddalega litilsvirðingu við
það nám, sem nemendur skólans
stunda, auk þess sem við teljum
engum, sem áhuga hefur á þvi.það
vorkunn að koma i skólann og
stunda þar nám, þar eö
nemendur hans hafa nú aðild að
Lánasjóöi islenzkra náms-
manna”.
Vélstjórafélagið telur, að i
þessum undanþágumálum sé nú
orðið algert ófremdarástand. I
fyrra, þegar félagið tók upp
skráningar vélstjóra á bátum frá
Stokkseyri, réru þaðan 8 bátar,
sem 16 vélstjórar voru á. Aðeins
einn þeirra hafði réttindi á 1. stigi
en allir hinir voru réttindalausir.
Kunnugt er um mörg dæmi hlið-
stæð, og vist er um það, að nem-
endur Véskólans og stéttarfélög
vélstjóra eru uggandi út af þróun
réttindamála sinna.
Þó gosið ferlegt, gasi
magnað,
grimmt oss herji, finnst mér
þó
verst af öllu að vita þagnað
Vestmannaeyjaradió.
Þessari visu gaukaði Jón
Stefánsson frá Vestmannaeyj-
um að Alþ.bl. i vikunni, en hann
hefur verið starfsmaður Vest-
mannaeyjaradiós i 13 ár og hélt
tryggð við það, þar til fyrir
skömmu, að gasmengunin þar
inni varð svo mikil, að hann
„náði ekki andanum”. Þá
mældist gasið tifalt á við það,
sem taliö eru hættumörk. „Ég
var á vakt þegar gosið byrjaði”,
sagði Jón, „og hef siðan unnið
hálfan mánuð i einu i Eyjum en
verið viku i senn i Reykjavik til
að fá mér friskt loft, — þótt mér
finnist loftið hérna reyndar
bölvað eiturloft”.
Nú er gamla simstöðvarhúsið
þar sem Vestmannaeyjaradió
er til húsa, komið á hættusvæði
vegna gassins, og starfsmenn-
irnir komnir upp i gagnfræða-
skóla, þar sem setja á upp 90
númera simstöð 6900—6989.
Er og i undirbúningi að flytja
tæki radiósins og sæsimastöðv-
arinnar i gagnfræðaskólann.
Þess verður þvi væntanlega
ekki langt að biða, að rödd Jóns
Stefánssonar taki aftur að
hljóma i talstöðvum bátanna við
Eyjar.
Finnst fríska loftið reyndar bölvað eiturloft
KOSNINGAR I
haskölanum
VMll SEINNA
NAFN KONUNNAR
Konan sem beið bana i umferð-
arslysinu á Hringbraut á þriðju-
daginn hét Hólmfriður Friðriks-
dóttir. 61 árs að aldri. Hún lætur
eftir sig eiginmann og uppkomin
börn. Hólmfriður var húsfreyja
að Ytri-Reykjum i Miðfirði, en i
vetur hafði hún dvalizt hjá dóttur
sinni að Holtsgötu 13, Reykjavik.
Kjörstjórn sem Stúdentaráð
Háskólans setti á stofn til að sjá
um kosningu fulltrúa stúdenta i
Háskólaráð, hefur tekið þá
ákvöröun að fresta kosningum
um eina viku. Það verða þvi eng-
ar kosningar i Háskólanum i dag,
heldur næsta föstudag, þann 30.
marz.
Með þessari ákvörðun hefur
kjörstjórnin tryggt að stúdentar
við liffræði- og jarðfræðideild Há-
skólans fái notið kosningarréttar
sins, en þeir eru nú i námsferð i
Færeyjum. Kjörstjórn hafði kom-
ið á fót utankjörstaðaatkvæða-
greiðslu fyrir þessa nemendur, en
frambjóðendur Vöku kröfðust
lögbanns við þeirri atkvæða-
greiðslu, og féllst borgarfógeti á
það, eftir að tryggingarfé hafði
verið lagt fram.
Kjörstjórn hefur þvi samkvæmt
úrskurði fógeta hætt við utankjör-
staöaatkvæðagreiðsluna, en þess
i stað frestað kjörfundi um eina
viku, svo umræddir stúdentar fái
kosið. Telur kjörstjórn þetta
heimilt, þar eð henni sé falin öll
framkvæmd kosninganna
samkvæmt 9. grein kosningar-
reglugerðar, og hún eigi að skera
úr i öllum deilumálum.
Mál þetta hefur vakið mikla
ólgu meðal stúdenta, og hafa ófá
dreifibréfin verið i gangi i Há-
skólanum.
ÞORIR
VANN
STÓRT
Séra Þórir Stephensen hefur
verið kjörinn prestur við
Dómkirkjuna í Reykjavik.
Kosningar fóru fram á sunnu-
dag, en atkvæði voru talin i
skrifstofu biskups I gær-
morgun. Hlaut séra Þórir 2081
atkvæði, en mótframbjóðandi
hans, séra Halldór S. Gröndal,
hlaut 860 atkvæði. Kjörsókn
var 55% og hlaut séra Þórir
70% greiddra atkvæöa, og er
kosningin þvi lögmæt.
Séra Þórir Stephensen er 41
árs, fæddur 1. ágúst 1931.
Hann lauk stúdentsprófi við
MR 1951 og embættisprófi i
guðfræði viðH.l. i janúar 1954.
Sama ár varð hann prestur i
Dölum, en 1960 vigðist hann til
Sauðárkróks og var þar til
haustsl971, að hann tók við
starfi sem aöstoðarpresur
séra Jóns Auðuns við Dóm-
kirkjuna.
Séra Þórir er kvæntur Dag-
björtu Stephensen, og eiga þau
þrjú börn.
Nú eru Úlafsvíkurbörnin
svæfð í hasti svo mömm-
urnar komist í þorskinn!
„Hér I ólafsvik vinna allir að
fiskverkun sem vettlingi geta
valdið, og húsmæður fara i fisk-
inn þegar þær eru búnar að svæfa
börnin”, sagði Ottó Árnason
fréttaritari blaðsins er við rædd-
um við hann i gær.
Mikil aflahrota var i Breiðafirði
i siðustu viku og fram i þessa
viku. Fiskvinnslustöðvarnar i
Ólafsvik geta ekki unnið allan
þann afla sem að landi berst, og
var þvi gripið til þess ráðs að
senda fisk með bilum til Akra-
ness. Vegna aurbleytu á vegum
lögðustþessir flutningar niður, og
siglir nú hluti bátaflota Olsara
með afla sinn til Akraness á
hverjum degi.
„Það vantar tilfinnanlega fólk
til vinnu hér i Ólafsvik”, sagði
Ottó.
KJARVALSSTAÐIR OPNA
Kjarvalsstaðir, myndlistarhús-
ið á Miklatúni, verður formlega
opnað á laugardag. Sýningar hafa
þegar farið fram i húsinu, m.a. á
siðustu Listahátið, en húsið var
reist i tilefni áttræðisafmælis Jó-
hannesar S. Kjarvals 15. október
1965.
Sem fyrr segir hafa aflabrögð
verið fádæma góð við Breiðafjörð
að undanförnu. Er þetta gol-
þorskur, mjög stór og fallegur, og
þvi góður til vinnslu. Sem dæmi
um aflann má nefna, að 24 bátar
komu með 425 lestir til ólafsvikur
á sunnudaginn. Matthildur hafði
mestan afla, 35 lestir.
Þann 15. marz hafði 3181 lest
borizt á land i Ólafsvik, en á sama
tima i fyrra var aflinn 4790 lestir.
Lárus Sveinsson var aflahæstur
með 322 lestir i 49 róðrum, Jökull
var með 250 lestir i 50 róðrum,
Pétur Jóhannsson 248 lestir i 42
róðrum, Matthildur 245 lestir i 50
róðrum og Sveinbjörn Jakobsson
210 lestir i 36 róðrum.
BRÆÐUR RÁDNIR í STÚRF
RIT STJÚRNARFULLTRÚA
OG FRÉTTASTJÖRA
Alþýðublaðsútgáfan hf. hefur
ráðið Bjarna Sigtryggsson rit-
stjórnarfulltrúa Alþýðublaðsins
og bróður hans, Sigtrygg Sig-
tryggsson, fréttastjóra þess.
Bjarni Sigtryggsson er 27 ára,
fæddur 12. febrúar 1946. Hann
byrjaði i blaðamennsku 1964 og
réðst tii Alþýðublaðsins 1969.
Bjarni hefur gegnt starfi frétta-
stjóra blaðsins frá þvi i ágúst i
fyrra.
Sigtryggur Sigtryggsson, sem
tekur við starfi fréttastjóra af
bróðursinum, er 23ja ára, fædd-
ur á Húsavik 14. febrúar 1950.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum við Hamrahlið 1970 og
byrjaði sem blaðamaður við Al-
þýðublaðið þá um haustið. Sig-
tryggur er kvæntur Þóru
Jóhannesdóttur.
Þeir Bjarni og Sigtryggur eru
synir Bryndisar Bjarnadóttur
og Sigtryggs Þórhallssonar,
fulltrúa.
Breytingar á ritstjórn Alþýðublaðsins
Föstudagur 23. marz. 1973
o