Alþýðublaðið - 23.03.1973, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálaritstjóri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ristjórnarfulltrúi Bjarni Sig-
tryggsson. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðset-
ur ritstjórnar Hverfisgötu 8—10. Sími 86666. Blaðaprent hf.
Ríkisstjórnin og sjómennirnir
Sjómannaverkfallið hefur orðið
til mikils tjóns. Það er fyrst og
fremst sök rikisstjórnarinnar. Hér
hefur i raun og veru ekki verið um
að ræða venjulega kjaradeilu milli
launþega og atvinnurekenda,
heldur hefur rikisstjórnin verið
þriðji aðili að deilunni vegna tap-
reksturs togaranna. En hún hefur
aldrei látið málið til sin taka af
neinum áhuga eða neinni alvöru.
Þess vegna hefur deilan dregizt
svo mjög á langinn sem raun ber
vitni.
En loksins tók rikisstjórnin þó
rögg á sig. f fyrradag lagði hún
fram lagafrumvarp um að lögfesta
siðustu tillögur yfirmanna i deil-
unni. Hér var vissulega um óvenju-
legt spor að ræða. Vegna þjóðar-
nauðsynjar á þvi, að togararnir
geti hafið veiðar, ákvað þingflokk-
ur Alþýðuflokksins þó strax að
styðja frumvarpið, enda gerði
hann ráð fyrir þvi, að með þvi væri
ekki raskað launahlutfalli milli
undirmanna, sem nýlega hafa gert
frjálsa samninga, og yfirmann-
anna, sem lögfesta átti kjörin fyrir.
Athugun á frumvarpinu i þing-
nefnd leiddi hins vegar i ljós, að
yfirmönnum var með frumvarpinu
tryggður meiri réttur en undir-
menn voru nýbúnir að semja um. í
frumvarpinu var gert ráð fyrir þvi,
að sé skipverjum fækkað t.d. há-
setum á dekki, þá skuli aflahlutur
yfirmanna hækka. Engin ákvæði
eru hins vegar i hinum nýju kjara-
samningum Sjómannasambands-
ins og útgerðarmanna um að há-
setar skuli fá hliðstæða hækkun
vegna fækkunar skipverja, t.d.
vegna fækkunar yfirmanna.
Hér var um augljóst misrétti að
ræða. í fyrstu virtist svo sem um
mistök ein hefði verið að ræða.
Hannibal Valdimarsson félags-
málaráðherra hafði lýst þvi yfir,
að i frumvarpinu fælist aðeins hlið-
stæð kjarabót til yfirmanna og
undirmenn hefðu samið um, enda
hefði annað aldrei verið tilgangur-
inn og væri ekki heldur réttmætt.
En annað kom i ljós.
Lúðvik Jósefsson sjávarútvegs-
ráðherra mátti ekki heyra nefnt,
að stafkrók yrði breytt i frumvarp-
inu. Yfirmennirnir skyldu fá meiri
rétt og meiri kjarabætur en undir-
mennirnir.
Fulltrúi Alþýðuflokksins i félags-
málanefnd, Gylfi Þ. Gislason, flutti
þá breytingartillögu um, að undir-
menn skyldu fá hliðstæða viðbót
við aflahlut sinn og yfirmönnum
var tryggður i frumvarpinu, ef
skipverjum væri fækkað. Þá gerð-
ist það, að allt stjórnarliðið sam-
einaðist gegn þessu sjálfsagða
réttlætismáli. 1 tillögunni fólst ekki
að taka neitt það af yfirmönnum,
sem rikisstjórnin var búin að lofa
þeim, heldur aðeins að tryggja
undirmönnum hið sama. En það
mátti ekki. Rikisstjórnin reyndist
ekki stjórn sjómanna, heldur mál-
svari yfirmanna gegn undirmönn-
um.
Skyldi ekki ráðherrunum sjálf-
um fara að kligja við þvi að kenna
sig við vinnandi stéttir? Allan al-
menning er fyrir löngu farið að
gera það.
Ný símanúmer
Áðalnúmer 8-20-33
T imbursalan 8-22-42
Verzlunin 8-21-80
Sölumenn 8-65-50
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVÖRUDEILD
Suðurlandsbraut 32
AUGLÝSIS í ALÞÝÐUBLAÐINU
FLOKKSSTARFIÐ
AÐALFUNDUR
Alþýðuflokksfélags Reykjavikur verður haldinn i
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, n.k. miðvikudag 28.
marz, 'jd. 8.30.
Dagskrá nánar auglýst síðar
Stjórnin
AÐALFUNDUR
Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykjavik verður
haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, fimmtu-
daginn 29. marzn.k. og hefst kl. 8.30 e.h.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Frú Steinunn Finnbogadóttir, borgarfulltrúi
ræðir þátt kvenna í þjóðmálabaráttunni.
3. Önnur mál.
Félagskonur eru hvattartil að mæta vel og stundvís-
lega.
Stjórnin.
KVÖLD-
VAKA
Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði verður haldin
n.k. sunnudag 25. marz kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu.
Dagskrá:
1. Ljóðalestur, Ölafur Þ. Kristjánsson.
2. Einsöngur, Guðlaugur Tr. Karlsson.
3. Leikþáttur í umsjá ungra jafnaðarmanna.
4. Upplestur, frú Guðrún Ingvadóttir.
5. ???
6. Veizlukaffi.
7. Bingó.
Allir velkomnir.
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði.
VERKALÝÐS-
OG LAUNAAAÁL
Almennur fundur um verkalýðsmál á Hótel Esju,
mánudaginn 26. marz nk. kl. 20,30.
Gestur fundarins: Pétur Sigurðsson, varaformaður
Sjómannafélags Reykjavíkur.
FUJ
Guðlaugur Tr. Karlsson.
Föstudagur 23. marz. 1973
o