Alþýðublaðið - 09.05.1973, Side 1
RENNUR
í TJÖRN
NORRÆNA
HlíSSiNS!
SJA
BAK-
SÍÐU
•Þjóðnýta sjávarútveginn
Rikisstjórn Perú ákvað i gær að þjó&nýta
sjávarútveg landsins. Sem kunnugt er, hefur Perú
verið i hópi mestu fiskveiðiþjóða heimsins, og
lengi vel sú mesta miðað við veiðimagn. Þjóð-
nýtingin mun skaða Bandarikjamenn um
milljónir dollara.
Ástæða þjóðnýtingarinnar eru hin miklu vand-
ræði sem sjávarútvegurinn komst i vegna
minnkandi ansjósuveiða tvö siðustu árin.
Bítillinn Paul McCartney hefur staö-
fest í viðtali við brezka blaðið SUN að
hann og hinir meðlimir hljóm-
sveitarinnar The Beatles muni koma
saman á nýjan leik og hljóðrita plötu
með einu eða tveim lögum.
George Harrison, Ringo Starr og John
Lennon hafa hitzt i Los Angeles — en
það stóð á svari frá Paul. Nú er það
fengið.
„Tilraun
til
mann-
dráps”
Finnbogi Þórsson, Völu-
felli 44, Reykjavik, sem
réðst á 19 ára stúlku uppi i
Breiðholtshverfi laust
fyrirsl. jól, og stakk hana
með hnifi, hefur nú verið
ákærður fyrir tiiraun til
manndráps. Refsing fyrir
þessháttar afbrot getur
varðað allt frá fimm ára
fangelsisvist og upp i ævi-
langa. Finnbogi náðist
norður á Akureyri
skömmu eftir áramótin
sl. og játaði hann á sig
verknaðinn við lögreglu-
yfirheyrslur. Tii vara er
Finnbogi ákærður fyrir
likamsárás, en skoðist
hún mjög alvarleg getur
refsing fyrir hana varðað
allt að ævilöngu fangelsi.
Hann hefur setið i gæzlu-
varðhaldi siðan hann
náðist, og gengið undir
geðrannsókn. Samkvæmt
niðurstöðum hennar er
Finnboti talinn ábyrgur
gerða sinna og þar með
sakhæfur. —
Alþýðubandalagið
í kosningar
,.hvenær sem er
Getnaðarvarnarefni úr slori
verðandi íslenzk útflutningsvara?
Eru getnaöarvarnarefni,
unnin úr fiskinnyflum,
verðandi útflutningsgrein á
islandi? Aö þessu er m.a.
vikið i grein um lifefna-
verkfræði i nýútkomnu
timariti Verkfræðinga-
félags tslands. Höfundur
greinarinnar, prófessor
Sigmundur Guðbjarnar-
son, fjallar m.a. um
spurninguna: Hvað erindi
á lifefnaverkfræði til
Islands? Er á það bent, að
hráefni úr fiskúrgangi,
einkum innyflum fiska,
geti verið hentugt til fram-
leiðslu margskonar
lifrænna efna til lyfja-
iðnaðarins. Dr. Þórður
Þorbjarnarson hefur nú um
20 ára skeið fylgzt með
mögulegri nýtingu fisk-
slógs til efnavinnslu. Með
tilkomu enzymverkfræði,
og möguleika, sem sú
framleiðslutækni virðist
opna, þá aukast líkurnar
fyrir betri nýtingu þessa
hráefnis. Þá er skýrt frá
þvi, að lyfjaiðnaðurinn hafi
i vaxandi mæli beint at-
hyglinni að nýjum lindum
hráefna i hafinu. Er i þvi
sambandi nefnd fram-
leiðsla prostaglandinefna,
sem hafa á siðustu árum
vakið mikla athygli, þar
sem þau virðast likleg til að
verða áhrifarikust viö tak-
mörkun barneigna. Séu
efni þessi gefin einu sinni i
mánuöi, framkalla þau
fóstureyðingu eða koma i
veg fyrir þungun. Einnig
lofa þessi efni góðum
árangri viö meöhöndlun
hjarta- og nýrnasjúkdóma,
astma o.fl. Nú hafa fundizt
hagkvæmari leiðir við
framleiðslu efna þessara,
en þær, sem til þessa hafa
verið notaðar.
Viðræður hafa farið fram
við bandarisk og þýzk
fyrirtæki
Nú erum við tilbúnir flokksstarfsemina og
i kosningar hvenær sem
er, sagði einn af
framámönnum Alþýöu-
bandalagsins i samtali
viö blaðamann Alþýðu-
blaðsins i gær. Við erum
nú þegar búnir að ljúka
viö ýmis þau skipulags-
og undirbúningsatriði,
sem vanalega eru unnin
fyrir kosningar, svo við
getum verið tilbúnir með
stuttum fyrirvara. Okkur
er nú ekkert að vanbúnaðl
Og eftir öllum sólar-
merkjum að dæma er
ekki annað að sjá, en að
þessi Alþýöubandalags-
maður hafi greint satt og
rétt frá, að Alþýðubanda-
lagið telji nú öruggara að
vera viö öllu búið. Miklu
lifi hefur verið hleypt i
sem dæmi má nefna, að
nú er sem óðast verið að
Iboða trúnaðarmenn
; Alþýðubandalagsins i
hinum ýmsu hverfum
borgarinnar til fundar-
halda.
Sama mats á stjórn-
málaviðhorfinu gætir
einnig hjá hinum
stjórnarflokkunum tveim
— eini munurinn er sá, að
af stjórnarflokkunum
viröast Alþýðubanda-
lagsmenn einir vera
óhræddir við að leggja út i
kosningar; hvort heldur
sem það er nú til marks
um, aö þeir séu öruggari
um sig en samstarfs-
mennirnir eða hitt, að
þeir kunni aö dylja skap
sitt betur.
Lækurinn skítugi
og skolpið úr opnu
holræsinu sameinast
þarna og renna út í
vatnslitia lækjar-
sprænu, sem
hlykkjast um Vatns-
mýrina, út í tjörnina
fyrir neðan Norræna
húsið, þar sem álftir
og endur ala upp
unga sína og loks
rennur lækurinn út í
tjörn. Oþrifnaður
þessi stafar frá
Umferðarmið-
stöðinni.
alþýðu
r Frcttnæmt
r r
SAMAN A NY