Alþýðublaðið - 20.06.1973, Blaðsíða 1
Notaðir bílar frá Bandaríkjunum:
Með smygl í skottinu
alþýðu
aðið
Ekki mátti á milii sjá
hvort lyftist hærra, brún-
in á tollvörðunum eöa
skott-Iokin á nokkrum
þeirra bifreiða, sem flutt-
ar hafa verið inn frá
Bandarikjunum nú sið-
ustu daga en þar gat að
líta útvarpstæki, segul-
bandstæki og jafnvel
mótorhjól. Alla þessa
hluti hefur nú tollgæzlan
tekið I sina vörzlu.
Eins og blaðið hefur
skýrt frá, hefur svo mikill
kippur hlaupið f innflutn-
ing á notuðum bifreiðum
frá Bandarikjunum, að
margar aukaferðir hafa
verið farnar undanfarið
til þeirra flutninga. Með
sumum þessara skipa
hafa veriö fluttir hátt á
annað hundrað bifreiðir i
ferð, en meginhluti
bifreiðanna á höndum
mun færri aöila. Til
dæmis hefur blaðið frétt
um 12 bila á vegum
raftækjainnflytjanda i
Reykjavik.
Algengt er við innflutn-
ing á notuöum bifreiðum,
aö lausleg verðmæti, svo
sem bilaviðtæki, eru tekin
úr og geymd i farangurs-
rými bifreiðar, vegna
þjófnaðarhættu i vöru-
geymslum erlendis. Iiins
vegar hafa nú mörg
útvarpstæki fundizt i
sama skotti, og ýmsir
aðrir hlutir, sem naumast
geta talizt vanalegir
fylgihlutir bifreiða.
,Varlegra að hugsa sig um
áður en kúbeinið er þreytt’
Tjónið, sem lögreglan í Keflavík olli á
leigubifreiðinni, metið á 50 þúsund
Skemmdir þær, sem lög-
regluþjónar i Keflavik
unnu á leigubifreið þar i bæ
við vínleit fyrir nokkru,
hafa nú verið metnar af
dómkvöddum mats-
mönnum, og virtu þeir
skemmdirnar upp á rúm-
lega 53 þúsund krónur. Þá
var fallizt á að fara fram á
1100 kr. á dag vegna at-
vinnutaps, en eftir er að
ákveða miskabætur. Eins
og Alþýðublaðið skýrði frá
á sínum tima fundu lög-
regluþjónarnir ekkert vfn i
bilnum, og skýrði eigandi
hans, Reynir Gislason,
aðfarir þeirra við leitina
þannig i viðtali við Alþýðu-
blaðið i gær, að þeim hafi
ekki gengið annað til en að
sýna vald sitt, þeir hefðu
auðveldlega getað leitað af
sér allan grun án þess að
skemma nokkurn hlut.
Baldur Möller, ráðu-
neytisstjóri dómsmála-
ráðuneytisins sagði i viðtali
við Alþýðublaðið, að i þessu
tilfelli hafi legið beint við
að biða og láta tímann
vinna fyrir sig, „það var
varlega i slíkt farandi upp
á veikan grun”, sagði
hann. Það skal tekið fram,
að lögreglan i Keflavik
hafði að minnsta kosti
þrivegis áður gert
árangurslausa áfengisleit
hjá þessum sama manni.
Baldur Möller sagði enn-
fremur i viðtali við Alþýðu-
blaðið, að „vinnubrögð
þessara manna virtust
vera eitthvað óhöndugleg,
og það er varlegra að
hugsa sig um áður en farið
er að þreyta kúbeinið”.
Reynir gat ekki byrjað að
vinna aftur fyrr en viku
eftir að atburður þessi átti
sér stað, en hann lét slá til
það sem skemmdist og
setja nýja hliðarriíðu i
bilinn i stað þeirrar sem
lögregluþjónarnir brutu.
Það er alltaf auðveldara að virða fyrir sér lifið og-til-
veruna, þegar einhver fullorðin fær að hafa fyrir
labbinu.
Reynir vill inn
til bjarnanna
LEIKFELOGIN MEÐ ÁÆTLUN
UM LEIKSKÚLA í HAUST
Leikhússtjórar gengu á fund ráðherra í gær
— Vilja fá
■ ceneu á funH Maamisar IH Hk ■ ■ JT
☆Nu er
að fá
með-
mælin
ríkisstyrk
Kraftajöluninn Reynir Leósson úr
Njarðvikunum, vili nú fá að takast á við
isbirnina tvo i Sædýrasafninu, en þeir
eru báðir fullvaxnir og hvor um sig
margfalt mciri um sig en Reynir.
Itcynir kom um daginn i safnið mcð
kvikmyndatökuinann með sér og vildi
láta mynda viðurcignina. Kristinn rt.
Karlsson umsjónarmaður i safninu,
vildi hins vegar ekki leyfa Reyni að fara
inn til bjarnanna, þannig að ekki varð
Reyni að ósk sinni i fyrstu lotu.
Ilins vegar bauð Kristinn honum að
koina inn til Ijónanna, en það boð þáði
Reynir ekki, liklega vcgna þess að þau
eru ekki enn fullvaxin.
Leikhússtjórar beggja
leikhúsanna hér i borginni
gengu á fund Magnúsar
Torfa Ólafssonar,
menntamálaráðherra, i
gær og lögðu fyrir hann til-
lögur að stofnun leiklistar-
skóla, sem leikhúsin ræk.ju
i sameiningu með styrk frá
rikinu.
Hugmyndin er, að
skóli þessi taki til starfa i
haust. Blaðið hafði sam-
band við ráðherra, en hann
sagðist ekki hafa haft tima
til að kynna sér tillögurnar
það náið, að hann vildi
segja sina skoðun á málinu.
Félag islenzkra leikara
hefur hvatt mjög til stofn-
unar leiklistarskóla þegar i
haust, og sagði Klemenz
Jónsson, formaður félags-
ins við Alþýðublaðið i gær.
að ekki megi liða lengri
timi en þegar er orðið án
þess, að leiklistarskóli
starfi i Reykjavik, en ár er
siöan Þjóðleikhússkólinn
hætti störfum, en fjögur ár
siðan skóli Leikfélags
Reykjavikur var lagður
niður. Sagði hann, að þegar
sé fariö að bera á skorti á
ungum leikurum við leik-
húsin, en geysimikil eftir-
spurn er nú meðal ungs
fólks eftir að komast i leik-
listarnám. Sagði Klemenz,
að ætlunin sé að brúa með
þessu móti bilið þar til
rikisleiklistarskóli verður
stofnaður.
☆FBI
á ís-
landi
Um 70 manna hópur FBI
manna er nú staddur hér á
landi og verður i nokkra
daga.'eftir þvi sem blaðið
kemst næst. Það er þó ekki
svo, að bandariska alrikis-
lögreglan FBI séhér á ferð,
heldur er þetta hópur
Bandarikjamanna, sem
dvöldu hér á tslandi á
striðsárunum i
herþjónustu.
Skammstöfunin FBI
stendur fyrir „Forgotten
boys of Iceland." eins og
þessi hópur nefnir sig.
Margir þeirra eru með
konur sinar með sér. og i
dag ætlar útsýnisflug á
Reykjavikurflugvelli, að
ferja nær allan hópinn tii
Eyja og til baka. En fyrir
utan það hafa fyrrverandi
hermennirnir mestan
áhuga á að komast á þær
slóðir. sem þeir voru á. á
striðsárunum,-
A siðasta landsfundi
Kvennréttindafélags ts-
lands lagði laga- og fundar-
skapanefnd f r a m
breytingartillögu við 4.
grein laga KRFt. sem
kveður á um það. hverjir
séu hlutgengir meðlimir
félagsins. Var af- liður til-
lögunnar svohljóðandi:
„Einstaklingar, karlar og
konur. hvar sem er á
landinu frá 16 ára aldri. og
hafi þeir meðmæli einhvers
félagsmanns". geta orðið
meðlimir félagsins. Hlaut
tillagan verðugar undir-
tektir. Frá þessu er skýrt i
ársriti Kvennréttinda-
félags tslands: 19. júni.
sem út kom i gær.