Alþýðublaðið - 24.07.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 24.07.1973, Blaðsíða 12
Övissa um Bagley Rithöfundurinn Desmond Bagl- ey, sem skrifaði skáldsögunajJt i óvissuna”, en ísland er vettvang- ur þeirrar sögu, virðist vera al- variega veikur. Hann ætlaði að koma til tslands i siðasta mánuði, en þvi var frestað i þennan mánuð vegna veikinda hans. Ekki hefur enn heyrzt frá honum að hann ætli að koma i þessum mánuði, en hann ætlaði að tilkynna komu sina með fyrirvara. Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Fl, sagði i viðtali við blaðið i gær, að hann hefði heyrt, að Bagley hefði fengið hjartaáfall i vor, þvi strax i april hefði verið tilkynnt að hann kæmi ekki i júni. Ekki vissi hann nánar um heilsu rithöfundarins. Sem kunnugt er, ætlaði Bagley að koma hingað til að aðstoða við undirbúning kvikmyndunar sög- unnar, en hún verður kvikmynd- uð hér næsta sumar. Undirbún- ingsvinnan mun þó hafin þrátt fyrir fjarveru höfundarins. — Málflutningur í fjárdráttarmáli á Akureyri í dag 1 Sakadómi Akureyrar fer i dag fram málflutningur, þar sem tveir fyrrverandi starfsmenn bæjarfógetans þar eru ákærðir fyrir meint brot i sambandi við tollafgreiðslu. Mál þetta kom upp um áramótin 1971—’72, er grunur féll á tvo menn við embættið um ólögmæta fjártöku og skjalafals, sem ákært er fyrir, meðal annars. Halldór Þorbjörnsson, settur yf- irsakadómari i Reykjavik, er dómari i málinu, þar sem bæjar- fógetinn, Ofeigur Eiriksson, vék sæti. Af hálfu Saksóknara rikisins flytur Hallvarður Einvarösson, aðalfulltrúi, málið, en skipaðir verjendur eru lögmennirnir Ge- org Tryggvason og Hreinn Páls- son. Háskólamenntun i mjólkuriðnaðinn Siðustu vikuna i júni var haldin hér ráðstefna norrænna ráðstefnunni, en undanfarin ár hefur mjólkuriðnaðurinn haft forgöngu um alla menntun á matvælasviðinu. Þörfin fyrir f'ólk með há- skólamenntun i mjólkuriðnaði fer nu stöðugt vaxandi, en þrátt fyrir það hefur sú menntunaraðstaða verið nokkuð fyrir borð borin á sumum Norðurlandanna, einkum i Sviþjóð og hér á landi. INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ TIL LÁNSVIÐSKIPTA Jblnaðarbanki /V ÍSLANDS KÓPAVOGS APÓTEK Cnið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kl' 1 °9 3 Simi 40102. rStærðfræðikennarar lögðu allti of mikið upp úr kennslu mengis Fyrir forgöngu skóla- rannsóknardeildar Mennta- málaráðuneytisins er nú undir- búin samræming á námsefni og kennslutilhögun i stærðfræði. Miðar hún fyrst og fremst að þvi að mengi eða mengjafræði verði notuð sem hjálpartæki við kennslu i almennum hefðbundn- um greinum stærðfræðinnar. En eins og kunnugt er, hefur þessi nýja aðferö viða hrakið hina fyrri reikningskennslu út úr skólakerfinu, þrátt fyrir það, að hún getur alls ekki komið i hennar stað. Mengi eða mengjafræði hélt innreið sina i stærðfræðikennslu Reykjavikurskóla árið 1966. Var þetta merkileg nýlunda, sem var svo frábrugðin hefðbundn- um aðferðum, að ,,gamli skólinn” stóð hreint og beint höggdofa. Sjónvarpsnotendur áttu þess kost að kynnast hinum nýju hugtökum i sýnikennslu, sem Guðmundur Arnlaugsson, rektor, hafði með höndum. Fljótlega sóttu æ fleiri skólar á um að innleiða kennslu i þessari grein, og ekki laust við, að þeim væri það eðlilegt metnaðarmál. Andri Isaksson, deildarstjóri skólarannsóknardeildar menntamálaráðuneytisins, sagði i viðtali við blaðið i gær, að framangreindar breytingar á námsefni skólanna i þessu tilliti, hefðu að mestu verið gerðar að frumkvæði fræðslustjórnar Reykjavikurborgar með sam- þykki skólarannsóknanna. Kvaö Andri rannsóknirnar hafa leitt i ljós, að gagnger endurskoðun á stærðfræðikennslunni væri nauðsynleg. Hafa að undan- förnu verið gerðar tilraunir hér- lendis sem stuözt er við i sam- ræmingu og endurskipu- lagningu hennar. Þá er og höfð hliðsjón af tveggja ára starfi norrænnar nefndar, sem eink- um hefur fjallað um unglinga- stigið. Hörður Lárusson, sagn- fræðingur, sem ásamt nefnd, hefur unnið mjög að þessu máli, sagði, að óeðlilega mikið hafi verið lagt upp úr hugtökum mengjafræðinnar, i stað þess að nota þau sem hjálpartæki við kennslu hefðbundinna aðferða. Telur Hörður engan vafa á þvi, að sú tilhögun hafi dregið úr þjálfun nemenda i talnameð- ferð, sem m.a. væri til baga við nám i framhaldsskólum og i at- vinnulifinu. Væri þetta undirrót þeirra breytinga, sem nú væri verið að gera, en með fyrir- hugaðri samræmingu stærö- fræðikennslunnar, væri tvi- mælalaust stuðlað að viðtækari þekkingu og skilningi nemenda á öllum stigum og sviðum stærðfræði. Þá gat Hörður þess, að víða erlendis færu fram um- fangsmiklar tilraunir um inni- hald og framsetningu kennslu- bóka, þar sem sérstakt tillit væri tekið til þess hluta nemenda, sem miður sækist námið. Börnin læra samfélagsfræði A vegum skólarannsóknar- deildarinnar er þegar hafin til- raunakennsla i samfélagsfræði i barna og unglingaskólum. Miðarhún að breyttum kennslu- háttum i sögu, landafræði , lif- fræði og félagsfræði þar sem þessar greinar eru nánar tengdar hver annarri en yfir- leitt hefur verið venja. Drýgst- an þátt i þessari nýbreytni eiga þau Andri Isaksson, deildarstjóri, Loftur Guttorms- son, sagnfræðingur, og Kristin Tryggvadóttir kennari, sem þegar hefur samið tvö hefti kennslubókar i samfélagsfræði. Er framsetningu og kennslu þannig háttað, að forvitni barnsins er stöðugt vakin i umhverfi þess i sem flestu tilliti, þar sem umhverfið er i viðasta skilningi allur sá heimur, sem við búum i. Er þetta vafalaust með merkari nýjungum, sem nú er unnið að i fræðslumálum. Verkfræðingar vilja 40% hækkun Stéttarfélag verkfræð- inga hefur nú sagt upp kjara- samningum við Reykjavikur- borg, og renna þvi núgildandi samningar út hinn 31. ágúst næstkomandi. Margir verk- fræðingar, sem starfa hjá öðr- um bæjar- og sveitarfélögum, hafa tekið mið af þessum samningum, sem og nálega 100 verkfræðingar hjá verkfræði- stofnunum og einkafyrirtækjum. Hjá Reykjavikurborg eru starf- andi um 20 verkfræðingar, sem eiga aðild að uppsögninni. Samtimis þvi, að samningun- um var sagt upp, setti stéttar- félagið fram kröfur sinar. Meðal annars er vitað, að það fer fram á 40% grunnkaups- hækkun. Viðræður um nýja samninga eru enn ekki hafnar. Ríkið lokar fyrir helgina Allar áfengisútsölur ATVR verða lokaðar laugardaginn 4. ágúst, og eins og venja hefur i veriö, einnig mánudaginn 6. ágúst, sem er fridagur verzlunarmanna. Er þetta einn liður i samkomulagi ÁTVR og afgreiöslumanna i á f e n g i s ú ts öl u n u m um laugardagsfri yfir sumartim- ann. Að öðru leyti felst það I samkomulaginu, að hinar þrjár útsölur i Reykjavik skipta með sér laugardagslokunum frá og með 21. júli til og með 3. sept., þannig, að hvern laugardag verður ein þeirra lokuð á þessu timabili, en hinar tvær opnar. Kemur sú tilhögun naumast að sök. Hins vegar ber laugardags- lokunin fyrir Verzlunarmanna- helgina nokkuð annan keim, einkum ef einhver er þá eins og skáldið sagði: „Svo þurr i kverk og þurr i háls, og þorstinn ægilegur”. BARATTUMALUNUM BREYTT BAKKUS VANN Misjafnar sögur fara af félags- heimilum úti á landsbyggðinni, enda gengið skrykkjótt að fram- fylgja banni við áfengisneyzlu i húsunum. 1 félagsheimilinu i Hnifsdal er uppgjöfin greinilega algjör fyrir Bakkusi og menn þar hafa tekið upp önnur baráttumál. A salern- inu á staðnum hefur verið komið fyrir spjöldum þar sem stendur stórum stöfum, „Bannað að gubba i vaskana”. SENDIBIL ASTOÐIN HF Enn eru horfur á góðu veðri i dag og jafnvel á morgun, að þvi er Jónas Jakobsson veðurfræð- ingur sagði i gærkvöldi, en þetta er óvenjulangur stillu- og góð- viöriskafli, sérstaklega með hliðsjón af þvi að veðrið er búið að vera svo jafn gott um allt land. Hitinn i dag verður liklega svipaður og i gær, en i gær komst hann I 20 stig hæst, en 23 i fyrradag. Heldur svalara veð- ur á Austurlandi, en þó vel heitt. Ástæðuna fyrir þessu óvenju- lega góðviðri sagði Jakob þá, að háþrýstisvæði væri yfir land- inu og umhverfis, og væri það ó- venjulega stöðugt. Engar stór- vægilegar breytingar á veðri eru fyrirsjáanlegar á næstu dögum, sagði Jónas, en ekki vildi hann lofa góðu veðri langt fram I timann að svo stöddu. — KRILIÐ /J5 /?//</$ 5 rjo/p/v 21 sróLpfl 'flTT 3Í/WT '/ BfíKf vE/rr -r/Crf/ GfíNTj FL-ár CrfíNCr , Ufí/rVrf /n'RL . Æ3>/ \ ' 3 PLfí/fTft HHLWP 2 HRBVF /ST { SEP, P/YZ) HETjU /ffí N RISTI mm/ 1 L 9 b'olhr 'fí SKORPR PULPR sjb//u /n S/DfíST uw/ 5 i DUCr LLÚUR BRÚNfí Vfít/m 7 r é> L Y/</L ORÐ ' MÆ.UKMRVI FIMM á förnum vegi ólafur Þ. Kristjánsson, fyrrv. skólastjóri: Nei, ég hef annað að gera. Og þóttkomi myndir i kvikmynda- húsin, sem mig langar að sjá eru þær vanalega hættar, þegar ég kem mér að þvi aö fara. Aftur á móti horfi ég of mikið á sjónvarp, en ég sofna vanalega út frá þvi. Július Brjánsson, prentnemi: Töluvert mikið, og ég reyni að sjá allar góðar myndir. Annars varð ég móðgaður út i einn kvik- my ndahússeigandann um daginn, — hann sýndi svo hrylli- lega lélega mynd. Aö öðru leyti hafa verið mjög góðar myndir i bióum undanfarið. Helga Þorgeirsdóttir, skrif- stofustúlka: Ég geri það nú. En það fer annars eftir þvi, hvaða myndir eru sýndar, ef þær eru góðar þá fer ég, — og það slæðast oft góðar myndir með hinum. Ferðu mikið í kvikmyndahús? Óli Tynes, blaöamaður: Mjög mikið. Ég sé allskonar myndir, yfirleitt ómerkilegar hasarmyndir. Mánudags- myndirnar sé ég aldrei, þær eru á allt of háum menningar- standard fyrir mig. Ég sækist helzt eftir myndum með John Wayne. Axel Einarsson, hæstarréttar- lögmaður: Ég geri ekki mikið af þvi, ég hef ýmislegt annað að gera i fri- stundum minum. En ef myndir vekja athygli mina þá fer ég. Ég horfi ekki heldur mikið á sjón- varp, ég reyni að velja úr þá þætti, sem mér finnst vera at- ’ hyglisverðir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.