Alþýðublaðið - 27.07.1973, Page 2
TÍZKA UNGRA KARLMANNA
Ljósblái liturinn
víkur fyrir fjöl-
breyttu úrvali
úr denim-efni
• 1 siðasta mánuði opnaði Karna-
bær tvær nýjar verzlanir að
Lækjargötu 2, húsinu á horni
Lækjargötu og Austurstrætis. —
Bonaparte, „sérverzlun fyrir
hinn vandláta nútimamann”, og
Verbúðina, sem selur sportfatnað
og allan hversdagslegan klæðnað
á unga fólkið, „flest annað en
jakkaföt og annan ' „finan”
fatnað”, eins og verzlunar-
stjórinn, Rúnar Garðars-
son, tjáði okkur. „En sá fatnaður
fæst að sjálfsögðu i Bonaparte”.
• „Það sem vinsælast hefur verið
i sumar eru föt úr „burstuðu
denim”, bæði jakkar og buxur,
ýmist með marglitum bróder-
ingum i eða „plain”. Ljósblái
liturinn, sem veriö hefur nær alls-
ráöandi, er heldur á undanhaldi,
en denim-efnið heldur vinsældum
sinum, kemur núna i miklu fjöl-
breyttara litaúrvali. Þannig eru
nú á boðstólum hjá okkur denim-
buxur i einum þrem bláum litum,
svörtum, brúnum og „beige”
(brúndröppuðum), og einnig
jakkar, bæði á herra og dömur i
sömu litum.”
• Eftirspurn eftir leöurfatnaði
hefur aukizt mjög i sumar og
jafnvel þótt leður sé dýrt hráefni
og leöurfatnaður þar af leiðandi
nokkuð dýr, virðist fólk vilja
borga vel fyrir góða leöurflik.
Endingin er lika margföld miðað
við önnur efni. Við seljum bæði
siða og stutta leöurjakka, siða i
klassiskum litum eins og dökk-
brúnum, svörtum, vinrauöum og
bláum, og stutta i enn fleiri litum,
svo sem grænum, appelsinu-
gulum, beige og gráum.”
• „Köflóttar skyrtur halda
miklum vinsældum og gildir það
jafnt um dömur og herra. En það
sem vinsælast er yfir sumar-
timann til að klæöast aö ofan eru
auðvitað bolir og blússur i alls-
konar litum og gerðum.”
• „Ég þori ekki að spá neinu um
þróun fatatizkunnar i haust; þetta
er mjög örum breytingum undir-
orpið. En við munum kappkosta
að hafa alltaf það nýjasta og
vinsælasta á boðstólum.”
o
Föstudagur 27. júlj 1973