Alþýðublaðið - 27.07.1973, Síða 5
[alþýóu
w
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálarit
l'Stjóri Sighvatur B jörgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
'Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggsson.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn
Jóhannsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfis-
■götu 8—10. Simi 86666. Blaðaprent hf.
Fölnað blóm
Eitt af blómunum i hnappagati riksistjórnar-
innar átti að vera það, að hvers konar áætlana-
gerð skyldi efld. Alþýðuflokkurinn fagnaði
þessum fyrirætlunum. Það hefur ávallt verið
grundvallaratriði i stefnu hans. að hið ODÍnbera
skuli hafa stjórn á heildarfjárfestingunni i
landinu, m.a. til þess að geta látið þær
framkvæmdir, sem nauðsynlegastar eru taldar
frá sjónarmiði heildarinnar, ganga fyrir. Þegar
rikisstjórnin á fyrsta þingi sinu flutti frum-
varpið um Framkvæmdastofnunina, studdi
Alþýðuflokkurinn það, þótt hann væri sammála
ýmsum atriðum þess, svo sem stjórn hinna póli-
tisku komissara á stofnuninni. En tilgangurinn
var góður. Efla átti áætlanagerð og heildar-
stjórn á fjárfestingunni.
Litlum sögum hefur farið af störfum
komissaranna. Þeir eru i hópi hæstlaunuðu
embættismanna landsins, hafa bankastjóralaun
ásamt öllum hlunnindum. En ekki hefur farið
mikið fyrir aukinni heildarstjórn á fjárfest-
ingunni. 1 sannleika sagt hefur aldrei rikt annar
eins glundroði i þessum efnum og nú. Komiss-
ararnir hafa ekki komið nálægt áætlanagerð um
mestu fjárfestingu íslendinga, skuttogarakaup-
in. Hafa menn fyrir satt, að Lúðvik Jósepsson
hafi ekki treyst þeim til sliks verks og hafi bann-
að þeim afskipti af þvi.
Og nú er komið i ljós, að þeir hafa ekkert
fylgzt með fyrirhuguðum stórbyggingafram-
kvæmdum i Reykjavik. Þeim virðist hafa verið
ókunnugt um ákvörðun Seðlabankans um að
reisa stórbyggingu á Arnarhóli. Komissararnir
vakna fyrst við það, að farið er að sprengja fyrir
byggingunni. Þá ráðast þeir á flokksbræður sina
i bankaráði Seðlabankans fyrir framkvæmda-
semina. Og Timinn hefur árásir á Lúðvik
Jósepsson fyrir að stöðva ekki framkvæmd-
irnar. Lúðvik setur hins vegar upp sakleysissvip
og segist að visu hafa vitað um ákvörðun Seðla-
bankans, en hann sé svo valdalitill, að hann geti
ekki stöðvað hana!
í dag munu komissarar stjórnarflokkanna i
Framkvæmdastofnuninni ræða við flokks-
bræður sina i bankaráði Seðlabankans um það,
hvor sé valdameiri. Upphaflega var mál þetta
allt heldur spaugilegt, en nú er það orðið alls-
herjarauglýsing á algeru stjórnleysi stjórnar-
flokkanna i fjárfestingarmálum, hvernig svo
sem málið kann að enda.
Þeir hafa gleymzt
Sjálfsbjörg, félag lamaðra og fatlaðra, hefur
unnið mikið og merkilegt starf og hlotið athygli
alþjóðar fyrir dugnað sinn og atorku i ýmsum
hagsmuna- og nauðsynjamálum lamaðra og
fatlaðra. Þeir eru nú orðnir ófáir einstakling-
arnir, sem hafa fundið auðveldari leið til lifs-
bjargar og lifshamingju fyrir atbeina félagsins.
Nýjasta stórátak Sjálfsbjargar er vinnu-og
dvalarheimilið við Hátún, sem nú er sem óðast
að komast i gagnið. Alþýðublaðið óskar félaginu
hamingju og heilla i tilefni af þessum áfanga.
En um leið minnumst við þess, að tiundi hver
landsmanna er að einhverju leyti fjölfatlaður.
Við minnumst þess, að þessi þjóðfélagshópur
hefur gleymzt, þegar verið var að byggja yfir
alls konar almenna þjónustustarfsemi. Það
hefði ekki kostað mikið, að gera þessu fólki
kleift að njóta hinna ýmsu þjónustufyrirtækja,
ef hugsað hefði verið til þess i upphafi. Þetta
verður að breytast.
Almennar þjónustustofnanir verða að vera
þannig úr garði gerðar, að þær verði aðgengi-
legar fyrir menn i hjólastólum og fatlað fólk.
FRÁ JAFNAÐARMÖNNUM í SVIÞIÖÐ:
RÆÐA OLOFS PALME 3. HLUTI
A fundum með iorystumönnum
fyrir einstökum atvinnugreinum
er sifellt krafizt að fá að vita,
hver sé afstaða jafnaðarmanna,
Það er i sjálfu sér eðlilegt, þvi að
þeir eru málsvarar mikilvægs
hagsmunahóps i sænsku þjóð-
félagi.
Þetta þing hefur svarað þessu.
Við vitum, hvar við stöndum i
aðalmálum. Nú er að koma
stefnunni i framkvæmd.
Ég lauk ræðu minni á
setningarhátiðinni með þeim
orðum, að við gengjum til starfa
með ábyrgðartilfinningu vegna
allrar þjóðarinnar. Það er ekkert
mont að halda þvi fram, að þessi
ábyrgðartilfinning vegna allrar
þjóðarinnar hafi verið leiðarljósið
i störfum þingsins. I þeim sama
anda skulum við reyna að koma
samþykktum þingsins i fram-
kvæmd.
En við erum enginn sértrúar-
flokkur. Við stundum ekki á neitt
samsæri. Við lokum okkur ekki
inni i læstum klefum. Við erum
opin þjóðarhreyfing, sem veit
hvað hún vill.
Þess vegna þurfum við ekki að
leita illdeilna vegna illdeilnanna
sjálfra. Við erum reiðubúnir til
átaka, ef þess þarf við. Við erum
að sjálfsögðu fúsir til samstarfs,
sé um það að ræða. En mestu
máli skiptir fyrir okkur að koma
stefnumálum okkar fram.
Þingið hefur markað stefnuna,
og nú förum við að þreifa fyrir
okkur og rökræða opinberlega við
margs konar hópa og hagsmuna-
flokka i þjóðfélaginu. Við göngum
til þessararökræðna i fullri sann-
færingu um, að það er allri þjóð-
inni til gagns að tryggja atvinnu,
bæta starfsumhverfi, vernda
náttúruna, veita launþegum
rikari áhrif i fjárhagslifinu.
Stefna jafnaðarmanna-
flokksins, eins og hún hefur verið
mörkuð á þessu þingi, er i reynd
vitnisburður um sterka trú á
framtiðina. Við trúum á framtið
iðnaðarþjóðfélagsins, og við
erum sannfærðir um, að vanda-
málin, sem okkar biða, eru
viðráðanleg.
Jafnaðarmannaflokkurinn
treystir þvi, að mönnum leiki
hugur á og þeir séu reiðubúnir til
að taka sér á herðar aukna
ábyrgð á framþróun i fjármálum
og iðnaði, til þess að auka á þann
hátt öryggi og velliðan.
Á grundvelli samþykkta
þingsins býður jafnaðarmanna-
flokkurinn þess vegna öllum
hópum og hagsmunaflokkum i
Sviþjóð til samstarfs á breiðum
grunni til þess að taka i
jákvæðum anda þátt i starfi að
áframhaldandi endurnýjun á
þjóðfélaginu sænska.
Fyrir viku komum við saman
til afkastamikils þings. Þvi er nú
lokið. Rökræður um stefnu okkar
hafa eins og venjulega orðið
okkur til ánægju og uppörvunar.
Nú hefst hversdagsstritið að
nýju. Það þekkjum við allir af
reynslu: i flokksstjórn, þing-
flokki, fulltrúastarfi, fagsam-
tökum.
Starfshópar hefjast nú handa,
skýrslur verða unnar, samningar
gerðir, lög samin. Samþykktir
þingsins verða steyptar i afmark-
aðar tillögur.
Viö fáum hver og einn i
flokknum tækifæri til að leggja
fram okkar skerf. Okkar biður
vandi og erfiði, timabundin
áhyggjuefni margs konar,
þrautin að sannfæra aðra, leita
samstarfs við aðra eða halda uppi
baráttu fyrir tillögum okkar.
Við hefjumst ótrauðir handa.
Og við erum sannfærðir um, að
við getum ráðið við þetta, af þvi
að við erum lýðræðisjafnaðar-
menn, af þvi að við erum sann-
færðir um að endurbótastefnunni
er fært að verða þjóðinni að
mikilvægu gagni.
Barátta okkar er ekki eingöngu
strit i útskýringum og skipu-
lagningu einvörðungu. Hún er
jafnframt barátta fyrir
lýðræðinu.
Þvi að þetta er friðsamleg
barátta. Fortölur, rökræður og
staðreyndir eru vopnin. Við erum
alla tið að sýna, að unnt er að
koma fram þjóðfélags-
breytingum á friðsamlegan hátt.
Með þvi að búa mönnum betra
samfélag snúum við vopnin úr
höndum þeirra, sem prédika
ofbeldi og byltingu.
Umbætur tryggja öryggi
fólksins. Og við erum upp með
okkur af að vera lýðræðissinnaðir
umbótamenn.
Flokksvinir!
Frá þinginu hefur verið greini-
lega sagt i fréttum. En fólk úti um
land hefur ekki átt kost á að
fylgjast með þingstörfunum stig
af stigi, þeir hafa ekki orðið fyrir
hughrifunum. Flestum mönnum i
Sviþjóð hefur þetta verið ósköp
venjuleg vika með starfi og
fritimum, með hversdagslegum
Framhald á bls. 4
SUMARHÁTÍD
að Aratungu laugardaginn 28. júlí kl. 9
Skemmtiatridi:
Gufonundur Jóhssom óperusöngvari
syngur vib undirleik Óíafs Vignis
AÍbertssonar.
Jón B. Gunnlaugsson fiytur skemmtiþátt
Gubíaugur Tryggvi Karlsson flytur
ávarp og stjórnar fjöldasöng
Hljómsveitin
BRIMKLÓ
leikur fyrir dansi
w
Sætaferdir frá B.S.I. Sellossi og Laugarvatni kl 9.
F.U.J.
\
Föstudagur 27. júlí 1973
o