Alþýðublaðið - 17.08.1973, Side 2

Alþýðublaðið - 17.08.1973, Side 2
MEÐALÆVI KVENNA SEX ÁRiJM LENGRI EN KARLA „Konur betur undir lífið búnar af náttúrunnar hálfu” Konur eiga lengri meðalævi en karlmenn — hvort heldur það er i Bandarikjunum, Japan, Frakklandi, Vestur- Þýzkalandi eða tslandi, þá mega þær gera sér vonir um lengri ævi en herrar sköpunarverksins. Þetta árið geta vestur-þýzkar konur gert sér vonir um að lifa i 73 ár og sex mánuði, karlmaöurinn 67 ár og fimm mánuði — eða þvi sem næst sex árum skem- ur. Þetta hefur löngum verið i þá áttina, þó að hlutföllin hafi eitthvað ei- litið færzt til. Það hefur löngum verið reynt að skýra þetta þannig, að karlmenn stundi hættu- legri vinnu en konur, og þegar lönd hafa átt i styrjöldum, þá gera þær að sjálfsögðu strik i reikn- inginn. En jafnvel þótt á allt slikt sé litið, haggar það ekki þeirri staðreynd, að konum er — frá náttúr- unnar hendi — sköpuð lengri ævi en körlum, og nú telur bandariski lif- fræðingurinn, dr. Estelle Ramey prófessor, sig hafa orðið þess visari hvað veldur. Þessi liffræðingur álit- ur, að likurnar fyrir þvi að konan nái hærri aldri en karlmaðurinn, séu ráðnar þegar i móðurlifi. Þegar sameinast egg og sæðis- fruma — réttara sagt, þegar sæðið frjóvgar egg konunnar — skapast viss- ar litningasamstæður, en þær ráða erfðaeiginleik- um; hin svonefnda XX- samstæða veldur þvi að barnið verður kvenkyns, XY-afbrigðið, að það verður karlkyns. Nú hafa rannsóknir leitt i Ijós, að talið er, að litningasam- stæðan XY, karlkyns sam- stæðan, sé erfðaeiginleika vegna ekki eins likleg til langlifis og XX-samstæð- an, eða kvenkynið. Þessi „ágalli” erfðaeig- inleika karlkynsins kemur meðal annars fram i þvi, að 12% fleiri karlkyns fóstur misfarast en kven- kyns, og fyrstu viku eftir fæðingu deyja 34% fleiri sveinbörn en meybörn að meðaltali. Þeir erfða- eiginleikar, sem ráða lifs- hæfninni eru ekki eins þroskaðir hjá karlmann- inum og konunni. „Konur eru betur undir iifið búnar af náttúrunnar hálfu”. Að ekki skuli samt sem áður vera rikjandi karlmanna- skortur i heiminum kemur til af þvi, að miklum mun fleiri karlkyns fóstur eru getin heidur en kvenkyns. Ekki er þetta þó nóg. Karlkyns-hormóninn testosteron, er og ævi- styttandi. Þessi hormón eykst að magni til i blóð- inu, lendi karlmaðurinn i hættu eða þreytist — þjáist af þvi sem nú er kallað einu nafni streita. Þessi hormón veldur þrengingu i æðakerfinu, og hækkar þannig blóðþrystinginn. En þar sem það hefur sýnt sig að þessi æðaþrengsli verða yfirleitt ekki lag- færð með iþróttum eða likamlegu erfiði og hreyfingu, þó að þvi heyrist oft haldið fram, er það oftast hinn of hái blóð- þrýstingur og getur þann- ig hæglega orsakaö hjartabilun. Konan stendur þar svo ólikt betur að vigi. Kven- kyns-hormóninn, östrogenið, hefur öfug á- hrif við karlkyns-hormón- inn, og dregur mjög úr lik- unum á blóðrásartruflun- um og hjartabilun. Það er fyrst á breytingatimabili konunnar, að karlkyns- hormóninn getur aukist eitthvað i blóði hennar og valdið þessum truflunum, en naumast nema að litlu leyti, enda kemst hún fljótt yfir það. Þegar prófessor Ramey minnist á likurnar fyrir þvi að karlmenn nái háum aldri, og hvernig þær megi auka, segir hún: „Þeir eiga að kunna hóf metn- aöargirnd sinni, og draga þannig úr hættunni á streitunni. Þeir eiga að hafa hugrekki til að gefa tilfinningum sinum lausan tauminn og ekki leggja hömlur á skapsmuni sina; hið fyrra getur annars valdið magasári, hið sið- ara blóðtappa”. Og loks segir hún að karlmenn eigi að iðka iþróttir og leggja á sig meiri likamlega á- reynslu, en nú tiðkist yfir- leitt, ef þeir vilji vinna gegn „neikvæðum áhrif- um karlkyns-hormónanna i blóði sinu. Og að endingu segir kon- an og prófessorinn þetta: „Fjöldi kvenna reynir nú að klifa niður i lægðina til karlmannanna, með þvi að taka upp sömu „sjálfs- morðs”-afstöðuna til lifs- ins og þeir, og apa þeirra háttu. Samkvæmt hinni visindalegu liffræði eiga þær, segir hún, að haldai áfram að vera konur, lif- fræðilega og athafnalega; hugsa um heimili, börn og eiginmann — og einkum að ala börn. „Allar breyt- ingar frá þvi eðli, sem þær eru fæddar með, hafa hættur i sér fólgnar”. í Þýzkalandi hefur mannsævin lengzt að mun að meðaltali frá þvi 1910. Nákvæmt reiknað skýrslum samkvæmt var meðaiævi karlmanna þá 44,8 ár, en er nú 67,4; meðalævi kvenna hefur lengzt á sama timabili úr 48,3 árum i 73,5 ár. Bandariskur liffræðingur, Estella Ramey, hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að aldur sé mönnum ákveðinn i móður- kviði. □ Bandarískur líffræðingur hefur rannsakað sambandið milli erfða og aldurs Ný aðferð við græöslu beinbrota Yfirlæknirinn við sjúkrahúsið i Garmisch-Partenkirchen, hefur um árabil varið tómstundum sin- um að miklu leyti i tilraunir með nýja aðferð við græðslu beinbrota. Aðferð þessa og tækni hefur hann þróað i samvinnu við eðlisfræðing i Miinchen, Werner Kraus að nafni. MINNINGAR- SPJÖLD HALLGRÍMS- KIRKJU fást í Hallgrímskirkju (GuSbrandsstofu), opið virka daga nema laugardaga kl. 2-4 e.h., sími 17805, Blómaverzluninni Domus Medica, Egilsg. 3, Verzl. Hall- dóru Ólafsdóttur, Grettisg. 26, Verzl. Auglýsingosíminn okkor er 8-66-60 2S' °s Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 21. ágúst kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl 5. Sala Varnarliðseigna. Aðferð þessi er i stuttu máli i þvi fólgin.að þéir félagar nota veikan rafstraum likamanum til aöstoð- ar við græðslu alvarlegra bein- brota, sem ekki mundi takast annars. Svo og þar sem slik beinbrot hafa valdið afbrigðileg- um vefjamyndunum i sambandi við meðhöndlun. Þessi aðferð hefur þegar verið reynd á nokkur hundruð sjúkling- um, þar á meðal allmörgum, sem hlotið hafa svo alvarleg beinbrot að ella hefði hlotið að koma til aflimunar. Brotið er neglt saman á venjulegan hátt,en naglinn er gerður með rafskauti, og siðan er hinn brotni limur vafinn leiðslu með öðru rafskauti, en veikur rafstraumur eftir það stendur um leiðsluna. Yfirlæknirinn, dr. Lechner, heldur þvi fram, að þessi veiki rafstraumur samsvari eðlilegri rafhleðslu likamans, sem truflazt hafi við beinbrotið. Eðlisfræði- Eðlisfræðistofnun sú I Miinchen, þar sem Werner Kraus starfar, hefur nú i undirbúningi framleiðslu nauðsynlegra tækja handa öðrum sjúkrahúsum i Þýzkalandi.sem vilja reyna þessa nýju aðferð. Þess má geta, að Garmisch- Partenkirchen hefur um margra áratuga skeið verið einhver fræg asti vetrariþróttastaður i Evrópu Meðal annars eru þar nafntogað- ar skiðabrekkur, sóttar bæði af kunnum görpum og þeim sem vilja verða kunnir garpar, viðs- vegar að. En sú keppni hefur og kostað margan.slæm beinbrot, og er þvi ekki að undra þó að mikil áherzla sé lögð á alla tækni við græðslu beinbrota i sjúkrahúsinu þar, eins og að framan getur. 0 Föstudagur 17. ágúst 1973.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.