Alþýðublaðið - 17.08.1973, Qupperneq 4
Frá mönnum
og málefnum
Hnykkur
á beinu
línuna
Bein lina útvarpsins hefur
jafnan flutt fjörlegt og fræðandi
efni, enda byggð upp á beinu
sambandi almennings og ráða-
manna. Siðasti þáttur var engin
undantekning, hvað þetta
snertir. En hann varð þó aftur á
móti til þess að upp kom
hnykkur á beinu linuna.
Opinber embættismaður var
fenginn sem svaramaður til
þáttarins.Hann gaf kost á sér,
en setti um leið það skilyrði, að
ákveðinn einstaklingur mætti
ekki koma á beinu linuna. Hér
skal enginn dómur lagður á þær
væringar þessara tveggja
manna, sem eru ástæða þess, að
embættismaðurinn vildi ekki
virða hann svars. Embættisheiti
og nöfn skipta hér engu máli.
Aðalatriðið er, að starfsmenn
útvarpsins féllust á þaö að loka
beinu linunni fyrir ákveðnum
einstaklingi að kröfu annars. Og
það voru þeir , sem hindruðu
sambandið án þess svo mikið
sem kynna sér, hvers eðlis mál
það var, sem spyrja átti um.
Samskipti stjórnanda þáttar-
ins og þess, sem spyrja vildi,
komu aldrei fyrir eyru útvarps-
hlustenda. Hér skal þó engan
veginn gerður að þvi skórinn, að
þetta atvik sé ekki einstakt i
sinni röð. En hvað með
áframhaldið? Útvarpið er opin-
ber stofnun og þessi hnykkur á
beinu linunni, sem prjónaður
var af starfsmönnum útvarps-
ins sjálfum — i stað þess t.d. að
hleypa fyrirspyrjanda að og
láta svaramanninn um að neita,
er óneitanlega enn einn fleinn-
inn i viðkvæmt holdafar rikis-
útvarpsins.
Eða skyldi Vitus t.d. geta
komið fram i beinu linunni með
þvi skilyrði, að Helga Sæmunds-
syni, Gylfa Þ. Gislasyni,
Indriða G. Þorsteinssyni
. Benedikt Gröndal, Gisla J.
! Astþórssyni Freysteini
Jóhannssyni, eða Olafi Jónssyni
— svo nefndir séu nokkrir þeir
menn, sem Vitus hefur heyrt
bendlaða viö sin skrif, yrði ekki
hleypt að honum með spurning-
ar?
VITUS
Helgason hf. STEINtÐJA
▼
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
Einholtl 4 Slmar 26677 og 14254
|alþýðu|
13ÉÉ0JER
BLAÐIÐ ÞITT
V o I ks wagenei gendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen ?
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
Haustpróf 1973
fyrir framhaldsdeildir gagnfræðaskóla
fara fram i Lindargötuskóla sem hér seg-
ir:
Próftimi:
Mánudagur 20. ágúst kl. 9
Þriðjudagur 21. ágústkl. 9
Miðvikudagur 22. ágúst kl. 9
Fimmtudagur 23. ágúst kl. 9
Föstudagur 24. ágúst kl. 9
Laugardagur 25. ágúst kl. 9
Prófgrein:
Þýzka
Danska, Landafr.
Enska
Stærðfræði
Efnafræði
Aðrar greinar
Menntamálaráðuneytið
VíPPU - BlLSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 snrí
Aðrar slærðir. smíÖaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Siðumúla 12 - Sími 38220
UH UG SKABIGKIPIR
KCRNF.LÍUS
JONSSON
skOlavOrousiígs
BANKASIR4116
ie600
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vakin á
þvi, að samkvæmt auglýsingu Viðskipta-
ráðuneytisins, dags. 5. jan. 1973, sem birt-
ist i 4. tbl. Lögbirtingablaðsins 1973, fer 2.
og 3. úthlutun gjaldeyris- og/eða innflutn-
ingsleyfa árið 1973, fyrir þeim innflutn-
ingskvótum, sem taldir eru i auglýsing-
unni, fram i september 1973. Umsóknir
um þá úthlutun skulu hafa borizt Lands-
banka íslands eða útvegsbanka Islands
fyrir 1. september 1973.
Landsbanki íslands útvegsbanki íslands
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjald-
föllnum og ógreiddum þinggjöldum ársins
1973, álögðum i Kópavogskaupstað, en þau
eru: tekjuskattur, eignarskattur, kirkju-
gjald, slysatryggingagjald v/heimilis-
starfa, iðnaðargjald, slysatryggingagjald
atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr.
67/1971, lifeyristryggingagjald skv. 25. gr.
sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald,
almennur og sérstakur launaskattur,
kirkjugarðsgjald og iðnlánasjóðsgjald.
Ennfremur fyrir skipaskoðunargjaldi,
lestagjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti,
skoðunargjaldi bifreiða og slysatrygg-
ingagjaldi ökumanna 1973, vélaeftirlits-
gjaldi, svo og ógreiddum iðgjöldum og
skráningargjöldum vegna lögskráðra sjó-
manna, áföllnum og ógreiddum skemmt-
anaskatti og miðagjaldi, söluskatti af
skemmtunum, gjöldum af innlendum toll-
vörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og
gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipu-
lagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti,
sem i eindaga er fallinn, svo og fyrir við-
bótar og aukaálagningum söluskatts
vegna fyrri timabila.
Verða lögtök látin fara fram án frekari
fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð
rikissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu
úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki ver-
ið gerð.
Bæjarfógetinn i Kópavogi,
15. ágúst 1973
Sigurgeir Jónsson.
Bifreiðastjóri óskast
Lyfjaverzlun rikisins óskar að ráða bif-
reiðastjóra.
Upplýsingará skrifstofunni, Borgartúni 7.
Fyrirspurnum ekki svarað i sima.
Lyf javerzlun rikisins
Lausar stöður
1. Stúlka óskast til skrifstofustarfa i tolladeild rlkisendur-
skoðunarinnar, verzlunarmenntun eða hagnýt reynsla
æskileg.
2. Staða bréfritara, verzlunar- eða stúdentspróf áskilið.
Laun samkvæmt kjarasamningum rikisstarfsmanna.
Umsóknir meö uppi. um menntun og fyrri störf sendist
fyrir 10. september n.k.
Reykjavík, 10. ágúst 1973
Rikisendurskoðun.
Laus störf
Störf fangavarða við Hegningarhúsið i
Reykjavik eru laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf sendast skrifstofu Sakadóms
Reykjavikur, Borgartúni 7 fyrir 28. ágúst
næstkomandi.
Yfirsakadómari.
AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
0
Föstudagur 17. ágúst 1973.