Alþýðublaðið - 30.08.1973, Page 11
íþróttir
HOLLENDINGUM TðKST EKKI AÐ Ní
• •
TVEGGJA STAFA TOLU - UNNU 8:1
ELMAR VAR
Hollendingar unnu seinni leikinn sem fram fór i
Deventer i gærkvöld 8:1. Þeir sýndu nú mun betri
og ákveðnari leik en um daginn, og máttu islenzku
leikmennirnir hafa sig alla frammi við að verjast
sóknarlotum þeirra hollenzku. Diðrik Ólafsson
þurfti enn að koma i markið i stað Þorsteins Ólafs-
sonar, og varði hann oft á tiðum stórvel, og verður
ekki sakaður um mörkin. Eina mark islenzka liðs-
ins kom undir lok fyrri hálfleiks, og skoraði
Elmar Geirsson, bezti maður islenzka liðsins, það
inark með miklum glæsibrag, þetta er fyrsta
markið sem Holland fær á sig í keppninni. Þar með
er þátttöku okkar i þessar-i undankeppni Heims-
meistarakeppninnar i knattspyrnu lokið. Leiknir
voru sex leikir, sem allir töpuðust, og markatalan
var 2:29 okkur i óhag. Mörk okkar i keppninni
skoruðu örn Óskarsson og Elmar Geirsson.
tslenzka liðið sótti öllum á
óvart mun meira fyrstu 20 minút-
urnar af leiknum. Var ekki laust
við að undrunarkliður færi um
hina 27 þúsund áhorfendur sem
troðfylltu Deventer Stadium, völl
hollenzka félagsins Go Ahead
Eagles. Löngu var uppselt á leik-
inn. Ekki fengu okkar menn
hættuleg tækifæri þessar minút-
ur. Hins vegar sóttu Hollendingar
1:0 í gærkvöld
Orslitleikja i 1. deild i Englandi
i gærkvöld:
Derby-Man. City 1:0
Man. Utd-Stoke 1:0
Newcastle-Southampton 0:1
Norwich-QPR 1:0
Alan Hinton skoraði fyrir
Derby, Steve James fyrir Ma.
Utd. og Mick Channon fyrir
Southampton.
i sig veðrið, og eftir að Diðrik
hafði varið stórkostlega vel gott
skot stórstjörnunnar Johan
Cruyff, urðu honum á mistök á 17.
minútu sem kostuðu mark. Hann
hljóp vitlaust út úr markinu og
hægri útherjinn Brokamp skoraði
1:0. Þremur minútum siðar kom
2:0, og var Gruyff þar að verki
með föstu skoti sem fór i stöng og
inn. Þannig komu mörkin hvert af
öðru, Neshers skoraði það þriðja
með fallegum skalla á 23. minútu
og Gruyff það fjórða á 29. minútu
eftir fyrirgjöf Brokamp á hægri
kantinum.
Og svo var það á 45. minútu
leiksins að Guðgeir Leifsson fékk
knöttinn við vitateig islenzka liðs-
ins, lék á nokkra Hollendinga og
sendi siðan stungubolta fram
völlinn. Þar var Elmar Geirsson
kominn á fulla ferð, stakk hrein-
lega alla hollenzku vörnina af á
sprettinum, lék loks á hollenzka
í
JACKIE
SELDI
BOBBY
NOBBY
Merkileg sala átti sér stað
i Bretlandi á mánudaginn.
Jackie Charlton framkvæmda-
stjóri 2. deildarliðsins Middles-
brough seldi Nobby Stiles til 2.
deildarliösins Preston fyrir 20
þúsund sterlingspund. Fyrir
hönd Preston undirritaði Bobby
Charlton framkvæmdastjóri
samninginn.
Sem sagt, Jackie seldi fyrrum
félaga sinn I énska landsliðinu,
Nobby, til bróður sins og fyrrum
félaga i enska landsliðinu
Bobby. Þeir þrír léku allir með
enska landsliðinu þegar það
varð heimsmeistari 1966. Þeir
þrír gengu frá kaupunum á hálf-
tima á mánudaginn. Bobby
hafði sótzt mjög eftir að fá
Nobby, en Jackie var lengi að
hugsa sig um, þvi hann vildi
helzt ekki missa Nobby. Bobby
og Nobby voru ekki bara félagar
hjá enska landsliðinu, heldur
léku þeir mörg ár saman hjá
Manchester UnitedBobby hefur
trú á að Nobby geti gert það
sama fyrir Preston og Dave
Mackay gerði fyrir Derby hér
um árið, er hann dreif það upp I
1. deild. og til meistaratitils
markvörðinn og renndi knettin-
um i netið. Þetta var sérlega vel
gert, bæöi hjá Elmari og Guð-
geiri, enda var mikið klappað.
Þannig var staðan i hálfleik, 4:1
Hollendingum i vil, og ekki voru
liðnar nema 40 sekúndur af siðari
hálfleik er knötturinn lá enn i is-
lenzka markinu. 1 þetta sinn var
það Kerkhof sem skoraði. Sami
maður átti þátt i sjötta marki
Ho 11 endinganna aðeins
tveimur minútum siðar,
en það var Schneider
sem rak endapunktinn á þá
sóknarlotu úr vitaspyrnu. Á 72.
minútu varð staðan 7:1, er Van
Hanevem skoraði með skalla eftir
fyrirgjöf frá Gruyff. Og enda-
hnútinn á þennan markaleik rak
svo útherjinn Brokamp á 74.
minútu, er hann sendi knöttinn
léttilega i netið eftir að hann og
Neeskers höfðu leikið islenzku
vörnina sundur og saman.
Sem fyrr segir voru Hollend-
ingarnir mun ákveðnari i þessum
leik en hinum fyrri, sem endaði
5:0 fyrir þá. En ekki tókst þeim i
BEZTUR
þessum leik frekar en þeim fyrri
að uppfylla óskir hollenzkra
knattspyrnuunnenda um 12—14
mörk, til þess veitti islenzka liðið
of mikla mótspyrnu. Sem fyrr
segir verður Diðrik ekki sakaður
um mörkin, en það hefði þó verið
styrkur að hafa Þorsteins með.
Það voru dýr mistök að taka hann
ekki útaf slasaðan i leiknum við
Vestmannaeyjar um daginn, i
stað þess að frysta meiðslin og
láta Þorstein siðan leika allan
leikinn. Bezti maður islenzka
liðsins var Elmar Geirsson, en
einnig áttu þeir Guðgeir Leifsson
og Ólafur Sigurvinsson góðan
leik. —SS.
LEEDS VANN ARSENAL 2:1
Heil umferð hefur verið leikin I
I. deildinni ensku i þessarri viku.
Urslit liggja fyrir i sjö leikjum af
II, en vegna slæmra skilyrða var
ekki ljóst hvort tækist að ná úr-
slitum leikja i gærkvöld. Hafi það
tekizt er sagt frá úrslitunum hér á
siðunni. Urslitin úr leikjunum sjö,
sem fram fóru á mánudags- og
þriðjudagskvöld, urðu þessi:
West Ham-lpswich
Arsenal-Lceds
Birmingh.-Tottenh.
Burnley-Chelsea
Coventry-Liverp.
Evert.-Leicester
Wolves-Sheff. Utd.
3:3
1:2
1:2
1:0
l::0
1:1
2:0
Arsenal tapaði þarna óvænt
fyrir Leeds á heimavelli, eftir að
hafa átt meira í leiknum. Arsenal
sótti einkum af miklum móði i
byrjun, en tókst ekki að notfæra
sér nema eitt marktæki’f æri af
mörgum upplögðum. Markið
skoraði Blockley, miövörður sem
Arsenal keypti frá Coventry i vor.
Peter Lorimer jafnaði fyrir Leeds
beint úr aukaspyrnu, og sigur-
mark Leeds kom undir lokin er
Blockley stýrði knettinum i eigið
mark eftir fyrirgjöf Madaley.
Wilson i marki Arsenal heföi átt
að geta afstýrt markinu.
Þá töpuðu meistarar Liverpool
dýrmætum stigum.er þeir töpuðu
FH FOR I 2.
ÞRÖTTUR N (
FH smeygöi sér i annað sætiö i
2. deildinni um siðustu helgi, með
þvi að sigra Þrótt Neskaupsstað
fyrir austan 3:1. Staöan i hálfleik
var 2:0. Þar meö má telja öruggt
að Þróttur N falli i 3. deild.
Liöið á bara eftir tvo leiki, og
þarf að sigra i þeim báöum til aö
fá aukaleik um fallið viö Selfoss.
Þetta verður að telja nær útilok-
að, þegar þess er gætt að Þróttur
á eftir að leika við forystuliðiö
Viking i Reykjavik. Fer sá leikur
fram á laugardaginn og ef Vik-
ingur vinnur eru úrslit ráðin i 2.
deild, Vikingur sigrar en Þróttur
fellur.
Mörk FH á laugardaginn gerðu
þeir Helgi Ragnarsson og Ólafur
Danivalsson, en eitt markanna
var sjálfsmark. Staðan i 2. deild
er þá þessi:
SÆTHI - EN
STÖRHÆTTU
fyrir Coventry. Eina mark leiks-
ins gerði Hutchinson á 64. minútu.
Framlinumenn Liverpool fóru
illa með mörg upplögð tækifæri.
Martin Peters gerði bæði mörk
Tottenham i þokkalegum leik i
Birmingham. Þá virðist Burnley
ætla að standa sig vel i 1. deild,
Frank Gasper gerði sigurmarkið
að Turf Moor yfir Chelsea. Jim
McCalliog og Derek Dougan
gerðu mörk Wolves i leiknum
gegn Sheffield Utd.
Leikur West Ham og Ipswich
var sögulegur, þvi ungur nýliði
hjá West Ham, Mervin Day, varö
að fara i markið á siðustu stundu,
og stóö sig ekki of vel. Ipswich
haföi yfir 3:1 þegar sex minútur
voru eftir, með mörkum David
Johnson 2 og Trevor Whymark.
En West Ham tókst að jafna, i
þessum stórskemmtilega leik
tveggja skemmtilegra liða. Mörk
West Ham gerðu Bonds, Brooking
og Best — SS.
Víkingur 12 9 1 2 34: 8 19
FH 12 7 2 3 28: 13 16
Þróttur R 12 6 3 3 27 : 17 15
Völsungur 12 7 1 4 21: 22 15
Ármann 12 6 2 4 20: 21 14
Haukar 12 3 3 3 15: :20 9
Selfoss 12 3 0 9 12: 33 6
Þróttur N 12 0 2 10 10: 32 2
Heil umferð verður leikin um
næstu helgi I 2. deild.
— SS.
Útborgun bóta Almannatrygginga
í Gullbringu- og Kjósarsýslu
i Seltjarnarneshreppi
mánudaginn3. sept. kl. 10—12 og 1.30—5.
í Mosfellshreppi
þriðjudaginn 4. sept. kl. 1—3. .
í Kjalarneshreppi
þriðjudaginn 4. sept. kl. 4—5.
í Kjósarhreppi
þriðjudaginn 4. sept. kl. 5.30—6.30.
í Grindavikurhreppi
miðvikudaginn 5. sept. kl. 1—4.
í Vatnsleysustrandarhreppi
fimmtudaginn 6. sept. kl. 11—12.
í Njarðvikurhreppi
fimmtudaginn 6. sept. kl. 1—5.
í Gerðahreppi
föstudaginn 7. sept. kl. 10—12.
í Miðneshreppi
föstudaginn 7. sept. kl. 2—5.
Sýslumaðurinn i Gullbringu-
og Kjósarsýslu.
Pimmtudagur 30. ágúst 1973.
o