Alþýðublaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 20.11.1973, Blaðsíða 2
Eru karlmenn ekki eins aó6ir kokkar? AOEINS KONUR HLUTU VERÐLAUN A sunnudagskvöld voru til- kynnt úrslit og áfhent verðlaun i Ljóma-smáréttarsamkeppn- inni, Var það gert i hófi að bing- holti i Reykjavik. Davið Sch. Thorsteinsson, framkvæmda- stjóri Smjörlikis h/f, stjórnaði hófinu og tilkynnti úrslitin, en Gunnar J. Friðriksson, fram- kvæmdastjóri, stjórnarmaður i Smjörliki h/f, afhenti verölaunin. Verðlaun voru sam- tals að upphæð 80 þúsund krónur. Fyrstu verðlaun, 40 þúsund krónur, hlaut frú Gerður Guð- mundsdóttir, Sævarlandi 8, Reykjavík, (Dulnefni: ,,Kötturinn Klói”), fyrir Rækju- pönnukökur. Umsögn dómnefndar: Frumlegur, einfaldur i matargerð og ljúf- fengur. önnur verðlaun, 20 þúsund krónur, komu i hlut frú Sigur- laugar Jónsdóttur, Stekkjar- holti 4, Akranesi, (Dulnefni S.J.), fyrir llumarrétt sinn. Umsögn dómnefndar: Ljúf- fengur, samsetning góð, ein- faldur i matargerð. briðju verðlaun, 10 þúsund krónur, hlaut frú Linda Wendel, Blöndubakka 15, Reykjavik, (Duinefni: ILWA), fyrir Tarta- lettur með ostamauki. Umsögn dómnefndar: Tækni- lega rétt samsett og Ijúffengt ostamauk og einfalt i lögun. Fjórðu verðlaun, 5 þúsund krónur, fékk frú bórunn Hauks- dóttir, Laufvangi 10, Hafnar- firði, (Duinefni: „Bitte”), fyrir Krabbaskál. Umsögn dómnefndar: Frekar dýr réttur, skemmtilega sam- settur og ljúffengur. Fimmtu verðlaun, einnig 5 þúsund krónur, hlaut frú bor- björg Jósefsdóttir, Hverfisgötu 31, Hafnarfirði, (Dulnefni: „Tóbias”), fyrir rétt sinn Fylitir piparávextir meö kræklingi og sveppum. Umsögn dómnefndar: Nýstárlegur réttur, skemmtileg meðhöndlun á kryddi, ljúf- fengur. Verðlaunahafarnir komu allir til hófsins ásamt eiginmönnum sinum eða gestum. bar var einnigdómnefndkeppninnar, en hana skipuðu: Haukur Hjaltason, veitingamaður, for- maður, frú Agla Marteinsdóttir, frú Dröfn Farestveit, frú Elsa Stefánsdóttir, Jón Asgeirsson, fréttamaður, og Skúli bor- valdsson, veitingamaður. Dimnefndin vann mikið starf, og að ailra dómi, mjög gott starf. Nefndin athugaði um 260 uppskriftir og prófaði 30 rétti sérstaklega, og suma oftar en einu sinni. bátttaka var alls staðar af landinu. Karlmenn sendu tölu- vert af uppskriftum, en engar þeirra komust i úrslit. Gestum i hófinu var boðið að gæða sér á verðlaunaréttunum, áður en úrslit voru tilkynnt. bað er til marks um að úrslita- keppnin var bæði hörð og jöfn, að allir úrslitaréttirnir voru af gestum taldir liklegir i fyrsta sætiö. RÆKJU- PÖNNU- KÖKUR (Ætlað fyrir fjóra) 1) Eldfast fat er smurt með Ljóma-smjörliki. 2) Bakaðar pönnukökur heldur þykkri en við höfum venjulega. 1 pönnukökurnar nota ég 1 egg, 3-4 matskeiðar hveiti, 1/2 dl vatn og mjólk og bræði bita af Ljóma, þeyti saman og baka. 3) bá kemur rækjujafningurinn, sem ég legg i pönnukökurnar: 1/2-1 laukur 1/2-1 epli 150 gr rækjur 1 matskeið hveiti 1 dl mjólk 1 dl rjómi karrý ' Laukur og epli skorið i smáa bita og brúnað i Ljóma- smjörlíki. bá hveiti, mjólk og rjómi hrist saman og karrý sett i eftir smekk. Jafningurinn soðinn i 1 min. og siðan rækjurnar settar i, en þær mega ekki sjóða. Jafningurinn settur á pönnu- kökurnar og þeim vafið um. Skornar sundur i miðju og raðað i eldfasta fatið. Rifnum osti og bitum af Ljóma-smjörliki er stráð á. Sett i 200 gr. heitan ofn. begar Ljóminn er bráðinn og osturinn fengið fallegan gul- brúnan lit er rétturinn til. Ljómandi gott með grænu salati, ristuðu brauði og hvit- vfnsglasi. „Kötturinn Klói” Frú Gerður Guðmundsdóttir varð 40 þúsund krónum rlkari I Ljóma smáréttasamkeppninni, en þar hlauthún 1. verðlaun, fyrir uppskrift slna á rækju-pönnukökum. Davið Sch. Thorsteinsson frkv.stj. Smjörlfkis hf„ óskar frú Gerði til hamingju. Bak við Davfð stendur Gunnar J. Friöriksson, stjórnarmaður Smjörifkis hf. (Ljósm. K.M.) Svipmyndir frá Ljóma-hófinu (Ijósm.: Friðþjófur) Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. Skipholt 29 — Sími 244(56 BLOMAHUSIÐ sxmi 83070 Skipholti 37 Opið til kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N o Þriðjudagur 20. nóvember 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.