Alþýðublaðið - 11.12.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 11.12.1973, Blaðsíða 5
Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit- stjórnar, Skipholti 19. Sími 86666. Af- greiðsla: Hverfisgötu8-10. Sími 14900. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími 86660. Blaðaprent hf. Alþýðublaðsútgáfan hf. Stiornmala- ritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs- son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður ALMENNINGUR ER UGGANDI Glæsilegur borgarafundur, sem Alþýöuflokkurinn efndi til um óðaverðbólgu og skattamál á Hótel Sögu í Reykjavik á sunnudaginn var, var stað- festing á þvi, að almenningur á islandi er nú mjög uggandi um horfurnar i efnahagsmálum þjóðarinnar. Þrátt fyrir það, að fundur þessi var boðaður i desembermánuði þegar flestir eru uppteknir við jólaundir- búning, kom svo mikill mann- fjöldi til fundarins, að fjölmarg- ir fengu ekki sæti og urðu að standa eða leita i hliðarsali hússins. Það kom einnig glöggt i ljós af þeim spurningum, sem beint var til stjórnmálaforingj- anna og skattasérfræöinganna, að almenningur er í fyrsta lagi búinn að fá meira en nóg af stjórnleysi ríkisstjórnarinnar á efnahagsmálunum og þeirri óðaverðbólgu, sem vaxið hefur undir handarjaðri hennar og i öðru lagi að það er krafa laun- þega, hvar i flokki, sem þeir standa, að ranglátri skattalög- gjöf rikisstjórnarinnar verði tafarlaust breytt til betri vegar. i fyrsta lagi er sú krafa á þá lund, að þeirri skattpiningu verði aflétt, sem skattalög ríkis- stjórnarinnar hafa gert venju- legu launafólki að sitja undirog i öðru lagi krefst almenningur þess, að það mikla misrétti, sem skattalögin bjóði upp á, verði tafarlaust leiðrétt. Jafnvel málsvarar rikisstjórnarinnar á fundinum viöurkenndu, að skattalögum þeim, sem rikis stjórnin lét verða eitt sitt fyrsta verk að setja, yrði að breyta. Þeir viðurkenndu, að þau væru ekki réttlát. Formenn þriggja stjórnmála- flokka af þeim fimm sem máls varar mættu fyrir — enginn kom frá Alþýðubandalaginu — gagnrýndu efnahags- og skatta- málastefnu rikisstjórnarinnar harðlega. En einn flokkurinn af þessum þremur haföi ekkert annað til málanna að leggja en gagnrýnina eina. Það var flokk- ur Bjarna Guðnasonar, Frjáls- lyndi flokkurinn. Hann hefur engar tillögur lagt fram um úr- bætur i skattamálum og mál- svari hans á fundinum haföi ekkert fram að færa i þeim sök- um annaö en gömul slagorð. Hann gat gagnrýnt stefnu stjórnarinnar — það er heldur litill vandi — en ekki meir. Hinir stjórnarandstööu- flokkarnir tveir — Alþýðuflokk- ur og Sjálfstæðisflokkur — hafa hins vegar sett fram tiliögur um aðgerðir i skattamálunum. Þeir hafa bent á ákveðnar leiðir jafnframt þvi, sem þeir gagn- rýna stefnu rikisstjórnarinnar. En á tillögum þessara tveggja flokka er grundvallarmunur. Það kom t.d. ljóslega fram á fundinum, aö skattamálatillög- ur Alþýðuflokksins stefna fyrst og fremst að þvi að bæta hag þeirra, sem eru með lágar og miðlungstekjur á meðan Sjálf- stæðisflokkurinn leggur mesta áherslu á að bæta hlutfallslega mest stöðu þeirra, sem hæstar tekjurnar hafa. Þá kom það einnig ljóslega fram, að tillögur Alþýðuflokksins eru raunhæfar, en tillögur Sjálfstæöisflokksins fyrst og fremst sýndartillögur. Alþýöuflokkurinn bendir á lciðir til þess að fá rikissjóöi aftur þær tekjur, sem hann missir við það að launatekjur verði gerðar tekjuskattsfrjálsar, en Sjálf- stæðisflokkurinn bendir ekki á neitt slfkt.Hann vill rýra tekjur rikissjóös um 4,4 milijarða án þess að neitt komi i staðinn og formaður Sjálfstæðisflokksins gat ekki svarað þvi á fundinum, hvernig hann vildi spara i rikis- útgjöldum sem næmi þessari háu upphæð. Engar slikar áætlanir hefur Sjálfstæðis- flokkurinn gert og er það ábyrgðarleysi í meira lagi af stærsta flokki þjóðarinnar. Það er ekki nóg að gagnrýna bara hina ranglátu stefnu rikis- stjórnarinnar i efnahags- og skattamálum, eins og Bjarni Guðnason gerir. Það er ekki nóg að gagnrýna og koma með sýndartillögur eins og Sjálf- stæðisflokkurinn gerir. Gagn- rýninni verða að fylgja raun- hæfar og ábyrgar tillögur um betri og réttlátari stefnu — framkvæmanlegar og skyn samlegar tillögur eins og skattatillögur Alþýðuflokksins eru. HÚSFYLLIR Á BORGARAFUNDINUM GLÆSiLEGUR FUNDUR Á SÖGU Á VEGUM ALÞÝÐUFLOKKSINS UM ÓÐAVERÐBÓLGU OG SKATTAMÁL Geysimikil fundarsókn var á borgarafundinn um óðaverðbólgu og skattamál, sem Alþýðuflokk- urinn boðaði til á Hótel Sögu s.l. sunnudag. Þegar fundurinn hófst kl. 2 e.h. var hvert sæti i Súlna- salnum setið, fjölmargt fólk var i hliðarsölum og i sætum l'rammi við uppganginn i salinn og stór hópur fólks, sem ekki fékk sæti, stóð við uppganginn. Fundurinn hófst með þvi, að Baldvin Jónsson, formaður fram- kvæmdastjórnar Alþýðuflokksins — en hann stýrði fundinum — setti fund og bauð frummælendur og fundargesti velkomna. Þá voru mættir auk hins fjölmenna hóps fundargesta fulltrúar allra þeirra stjórnmálaflokka, nema eins, sem boðið hafði verið að senda framsögumenn til fundar- ins. Enginn mætti frá Alþýðu- bandalaginu, en fundinum barst langt skeyti frá Ragnari Arnalds, formanni Alþýðubandalagsins, þar sem fundarboðunin var harð- lega gagnrýnd og Ragnar tjáði sig hvorki geta mætt né geta sent annan i sinn stað. Fékk hann þó boðin á fundinn með þriggja daga fyrirvara og hafði enga tilraun gert til þess að hafa samband við fundarboðendur með einum eða öðrum hætti fyrr en með skeyta- sendingunni. E.t.v. er skýringin á fjarveru Alþýðubandalagsins sú, sem Bjarni Guðnason gaf undir fótinn með i upphafi ræðu sinnar er hann sagðist hafa skilið fundarboðið þannig, að þeir mættu, sem þyrðu — og allir hefðu þorað, nema einn. Eftir aö Baldvin Jónsson hafði sett fund, lesið skeyti Ragnars Arnalds og lýst fundarsköpum, hófust framsöguræður. Fyrstur talaði Gylfi Þ. Gislason af hálfu Alþýðuflokksins, en svo komu þeir hver af öðrum framsögu- mennirnir — Halldór E. Sigurðs- son. Bjarni Guðnason. Hannibal Valdimarsson og Geir Hallgrims- son. Fluttu þeir allir stuttar fram framsöguræður og var þeim lokið laust eftir kl. 3. Þá var opnað fyrir fyrirspurn- um úr sal, sem ýmist voru sendar skriflega til fundarstjóra eða bornar upp munnlega, en gengið var með hljóðnema um salinn. Var spurningunum ýmist beint til stjórnmálaforingjanna og þá um pólitisk efni, eða til skattasér Iræðinganna Eyjólfs K. Sigur- jónssonar, endurskoðanda, og Bergs Guðnasonar, lögfræðings skattstjórans i Reykjavik, sem svöruðu fyrirspurnum um álagn- dngarmál og lýstu skoðunum sin- um á ýmsum atriðum i núgild- andi skattalögum. Fjölmargar fyrirspurnir bárust og var þeim ekki lokið fyrr en um kl. hálf fimm. í fundarlok lengu framsögu- menn svo nokkrar minútur hver til þess að mæla lokaorð og lauk fundinum klukkan rúmlega fimm. Eins og áður var sagt var mikill fjöldi fólks á fundi þessum, sem fór i alla staði vel fram, og þar sem hann var haldinn á tima, sem ekki getur talist heppilegur fund- artimi, má ljóst vera, hversu mikill áhugi er hjá fólki um þau mál, sem þar voru til umræðu. FLOKKSSTARFIÐ KJARAMALIN I.aunþegaráð Alþýðuflokksfélags Kcykjavikur heldur fund n.k. miðvikudagskvöld kl. 2(1.3« i Ingólfscafé. Karl Steinar Guðnason, lormaður Verkalýös- og sjó- mannafélags Keflavikur og Þórunn Valdimarsdóttir, varaformaður Verkakvennafélagsins Framsóknar, ræða kjaramálin og gang samninganna. I.aunþcgaráðsfólk fjölmennið! Stjórnin Þeir sátu fyrir svörum. Frá vinstri: Auður stóll Alþýöubandalagsins, Hannibal Valdimarsson, Geir Hall- grimsson, Gylfi Þ. Gislason, Baldvin Jónsson fundarstjóri, Bjarni Guðnason og sérfræðingarnir Bergur Guðnason og Eyjólfur K. Sigurjónsson. JOLAFUNDUR Kvenfélag Alþýöuf lokksins i Reykjavik heldur JÓLAFUND n.k. fimmtudagskvöld kl. 20,30 i Félagsheimili prentara að Hverfisgötu 21. Félagskonur sjá um vandaða jóladagskrá að venju. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin Þriðjudagur ll. desember 1973. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.