Alþýðublaðið - 11.12.1973, Síða 10

Alþýðublaðið - 11.12.1973, Síða 10
 gegn Vikingi. Valur vann sinn leik 17:11 og Armann vann sinn leik 9:8 eftir þeirn ieikjum að dæma, sem þegar eru búnir i 1. deild kvcnna, cru ailar likur á þvi að Kram og Valur berjist cnn einu sinni um meistaratitii- inn. Þær systur, Björg og Sigrún Guðmundsdætur, voru i sér- flokki hjá Val. Þær skoruðu nær öll mörkin, Sigrún 8 og Björg 5. Þá var Markvörðurinn einnig nokkuð góður. Hjá KR. skoruðu þær Hansina (5) og Hjördis (3) flest mörkin. Mikil barátta var i leik Ar- manns og Vikings, og tókst Ár- manni að tryggja sér sigurinn undir lokin, enda fékk liðið átta vitaköst á móti einu hjá Vikingi. Flest voru þó varin af ágætum markverði Vikings, Þórdisi Magnúsdóttur (systir Jóns Hjaltalin). Erla Sverrisdóttir skoraði 6 af mörkum Ármanns, og hjá Vikingi skoruðu þær Agnes og Guðrún flest mörk, tvö mörk báðar. Hér fylgja með myndir sem teknar voru i leikj- unum llann var heldur rislágur handknattleikurinn sem kven- fólkið bauð uppá I Laugardais- höllinni á sunnudagskvöld. Þá lck Valur gcgn KH og Armann til hliðar er mynd af viðureign Vals og KR, og að of- an mynd frá viðureign Ármanns og Vikings. Á Akureyri fór fram einn ieik- ur i 1. deild kvenna á föstudags- kvöld, Þór lék gegn FH, og sigr- aði FH 16:11. Blakiö Stórar tölur Kins og við var að búast, voru leikir helgarinnar f ts- landsmótinu i blaki frekar ó- jafnir. Fyrst léku stúdentar gegn Breiðabliki, og unnu 2:0 (15:0 og 15:4) og Vikingur lék gegn HK og vann einnig 2:0 (15:0 og 15:2). Stúdentar áttu ekki i neinum erfiðleikum með Breiðablik, en þó er greinilegt að Breiða- bliksmenn eru i sókn undir stjórn hins ötula iþróttakenn- ara Páls. Dagbjartssonar. Vik- ingar höfðu algera yfirburði, unnu fyrri lotuna 15:0 og sú seinni stóð 14:0 þegar Kópa- vogsmenn fengu tvo punkta i röð. HK. er samansett úr nem- endum MH, og virðist biak- kunnáttu þar heldur hafa hrakað. Vfkingar mættu nú til leiks með auglýsingu frá Dun- lop á búningum sinum, fyrst blakliða til að bera slikt. Næst verður ekki leikið fyrr en eftir áramót, nánar tiltekið 13. janúar, og þá á Laugar- vatni. Landsliðið Mæta þýskum í kvöld islenska handknatt.leiks- landsliðið hélt til Austur- Þýskalands á sunnudaginn, og i kvöld leikur það sinn fyrsta landsleik af fimm i hraðamóti þar i landi. Dagskrá þessa móts er ákaflega erfið, sem sést best á þvi að liðin leika fimm leiki á sex dögum. Leik- urinn i kvöld cru gegn liði gestgjafanna, Austur-Þjóð- verjum. Annars er dagskráin þessi: Þriðjudagur 11. des. Gegn A-þjóðv. i Rostock. Miðvikudagur 12. des. Gegn Tékkum i Greversmuhl- en. Fimmtudaginn 13. des. Gegn A-liði A-Þjóðverja i Greversmuhlen. Föstudagur 14. des. Fri. Laugardagur 15. des. Gegn Heimsmeisturum Rúmeniu i Schwerin. Sunnudagur 16. des. Gegn Ungverjum i Rostock. Mánudagur 17. des. Haldið heimleiðis. Hér verður viðdvölin varla löng, þvi liklega fer Norður- landamótið fram i Noregi milli jóla og nýárs. Gunnsteinn og hans menn fá nóg að gera á næstu dögum. 2. deild karla Þróttarar efstir Sex leikir fóru fram i 2. deild karla um helgina, og eftir þá leiki stendur Þróttur uppi sem eina taplausa liðið I deildinni, og eins og útlitið er nú, Ifkleg- astir sigurvegarar. A Akureyri voru KR og IBK á ferðinni A laugardaginn lék KA fyrst við KR, og sigraði 24:21. Þetta var einn af út- slitaleikjum mótsins. KR var yfir Ihálfleik 14:7, en i s.h. var Haukur Ottesen tekinn úr um- ferð, og minnkaði þá munur- inn, enda Haukur langbesti maður liðsins. Er aldrei að vita nema KA hefði unnið, ef Haukur hefði verið i gæslu allan leikinn. Haukur gerði 10 mörk og Brynjólfur 12 fyrir KA. Þá unnu Keflvfkingar Völs- unga naumlega 19:18, og er þvi liklegt að Húsavikurmenn verði i fallbaráttunni ásamt Fylki. Þorsteinn Ólafsson geröi 11 af mörkum IBK og Sig. Sigurðsson 8 af mörkum Völsungs. A sunnudaginn vann KR svo Völsung 17:13. Sem fyrr var Haukur markhæstur hjá KR með 6 mörk, en Sveinn Páls- son hjá Völsungi með 4mörk. KA vann svo IBK með mikl- um mun, 32:16. Var leikur liðsins nú mun betri en fyrri daginn. Brynjólfur markhæst- ur KA manna með 10 mörk og Sævar hjá IBK með 7 mörk. A Seltjarnarnesi vann Grótta Fylki verðskuldað 28:21. Björn Pétursson mark- hæstur með 10 mörk og Einar Einarsson hjá Fylki með 6 mörk. Þá sigraði Þróttur spútniklið Breiðabliks 22:20. Þróttur greinilega með besta liðið, en Breiðablik hef- ur tekið fádæma framförum undir stjórn Þórðar Sigurðs- sonar. Friðrik gerði 7 mörk fyrir Þrótt og Halldór Braga- son 4, en hann var tekin úr umferö. Hörður Harðarson gerði 6 af mörkum Blikanna. Diðrik ólafsson lék nú úti, ekki I markinu eins og um daginn, og stóð sig mjög vel. Borðtennis Aætlun breytist Eins og við sögðum i laugar- dagsblaðinu, báru Kinverjar sigur úr býtum i landskeppn- inni gegn íslendingum i Laugardalshöllinni á föstu- dagskvöld. Kom þessi sigur að sjálfsögðu ekki á óvart, heldur hitt að Islendingur skyldi ná að vinna einn leikinn, þannig að lokatölurnar urðu 8:1. Það var Hjálmar Aðalsteinsson KR sem þetta afrek vann. Annars virtist Kinverjum það mikið i mun að sýna þá vináttu sem rikir milli þessara tveggja misstóru þjóða. Var það greinilegt á látbragði þeirra öllu.svosem þegar þeir gengu ásamt islensku kepp- endunum inn á völlinn, en þá leiddust allir, nokkuðsem ekki hefur áður sést i sambandi við landsleiki.A miðvikudaginn keppa þeir i opnu móti, og fara heim degi fyrr en ráðgert var, vegna yfirvofandi verkfalls flugfreyja. Þriðjudagur 11. desember 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.