Alþýðublaðið - 24.12.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 24.12.1973, Blaðsíða 9
 □ Hversu skörp er athyglisgáfa þín - hve lengi mannstu það sem þú heyrir? Ertu máske einn af þeim, sem muna ekki stundinni lengur það sem þeir heyra? ÞÚ ERT vafalaust fæddur með þeim hæfileika að he/ra, en ekki til þess að hlusta. Það er list, að hlusta, og það er eitt af þvi, sem menn verða að læra. Þvi meir sem þú þroskar þennan hæfileika, þeim mun betri áheyrandi verður þú, og það hefur þær afleiðingar, að þú gleymir færru af þvi, sem þú heyrir, og lærir meira af þvi, sem sagt er. Það, að kunna að hlusta, hefur mikla þýðingu i daglegu lifi voru. Tuttugu og fimm prósent af þeim tima, sem við dveljum með öðru fólki, fer i það að hlusta og margt af þvi, sem við tökum okkur fyrir hendur, er i beinu sambandi við það að hlusta. Og þó er það staðreynd, að meirihluti fólks hlustar að- eins með öðru eyranu, eins og sagt er — það er að segja, aðeins til hálfs. Þetta er ástæðan fyrir þvi, að oft verður að endurtaka fyrirmæli við fólk, og það gerir ýmsar skyssur i starfi sínu. Það er einnigástæðan fyrir þvi, hve fólk er gleymið á það, sem það heyrir. Dr. Ralph Nichols hefur sagt: „Strax eftir að venjulegt fólk hefur hlustað á það sem aðrir segja við það, man það ekki nema um það bil helminginn af þvf, sem það heyrði — alveg sama, hversu vel það þóttist hafa lagt viö eyr- un.” Fólk kvartar tiðum yfir þvi, að það hafi svo brigðult minni, en venjulega er gleymska þess eða minnisleysi þvi að kenna, aö það hlustar ekki af athygli. Hvernig á fólk lika að geta munað, hvað sagt var, þegar það t.d. hlustar á fyrirlestur, en hefur ekki hugann við það aö hlusta og jafnvel sofnar undir ræðunni? Gott minni er undir þvi komið að maður kunni aö hlusta. Athyglisgáfan Góður áheyrandi sýnir lifandi áhuga og eftirtekt. Hann lætur ekki hugann reika um alla heima og geima meðan hann hlustar. Hann fellur ekki i þetta sljóleikaástand, eins og margir gera, sem horfa á ræðu- manninn, án þess að heyra, hvað hann segir. Nei, hann beit- ir athyglisgáfu sinni. Hann ein- beitir huganum að því, sem fyrirlesarinn segir. Eftirtökuseminni má likja við 1 jós — skinið verður sterkara og skærara, þegar þvi er beint að ákveðnum hlut. Þannig er eftir- tektarsemin, ef henni er ein- beitt, og maður verðu móttæki- legri fyrir þær upplýsingar, sem gefnar eru. Er þessu þannig varið með þig, þegar þú hlustar á fyrir- lestur? Beinirðu athygli þinni að þvi, sem ræðumaðurinn segir? Eða flögrar athygli þin frá einu til annars og festirðu hugann við óviðkomandi hluti á meðan? f stað þess að hlusta á ræðu- manninn ertu ef til vill að hugsa um heimili þitt, dyrnar, sem þú gleymdirað loka, þegar þú fórst, eða rafmagnið, sem þú gleymdir að skrúfa fyrir. Kannski hvarflar hugur þinn á vinnustað þinn eða til einhvers annars staðar, þar sem þú hefur nýlega verið. Þú ert kannski að rifjaupp fyrir þér samtal eða deilu, sem þú hefur áttvið einhvern að deginum. Þegar þú svo loks rankar við þér eftir þessar hugleiðingar, hefur fyrirlesarinn ef til vill talað i margar minútur. Þá verður þú að rembast við að komast að þræðinum á ný. Eftir að þú hefur hlustað i nokkrar minútur, byrja nýjar óviðkom- andi hugsanir að iaumast að hugskoti þinu. Litlu siðar hrekkurðu við, er ræðumaður- inn er hylltur. Þú klappar af ákafa, eins og aðrir, samtimis þvi.sem þú brýtur heilann um, fyrir hverju sé nú eiginlega verið að klappa. Hjá þeim, sem við hlið þina situr færðu þær upplýsingar, að ræðumaður hafi mælt eitthvert snilliyrði. En út á hvað það gekk, hefurðu ekki hugmynd um. Þú hlustaðir ekki. Þegar fyrirlestrinum er lokið og þú getur ekki munað, hvað ræðumaðurinn sagðL kennirðu kannski um minnisléysi. En þetta er alls ekki gleymsku þinni að kenna, heldur þvi, að þú hlustaðir ekki. Þú gerðir þá skyssu, að leyfa hugsunum þinum að flögra frá einu til annars i stað þess að einbeita þeim að fyrirlestrinum. Þessi hvimleiði vani, að láta staðar vinsæll, heldur veit hann lika mikið, þegar fram liða stundir." Hugurinn getur útilokað hljóð Ein aðalástæðan fyrir þvi, að margir eru lélegir áheyrendur er hinn mikli munur á hugsana- og talhraða. Meðal hugsunar- hraði er um það bil 400 orð á minútu, en meðal talhraði að- eins um 125 orð á minútu. Þessi hraðamismunur veldur þvi, að óviðkomandi hugsanir leita á hjá þeim, sem hlustar. Ef fólk, andlega skilið, dregur ekki tjald fyrir þessar aðvifandi hugsanir, verður þvi ljóst, að það tapar af miklu af þvi sem fyrirlesarinn segir. Áhuginn slævist og ef til vill sigrar svefninn hlustand- lesarnas. Hann þarf að læra það, að ,,draga tjaldið” fyrir og frá eftir þvi sem honum hentar, til þess að loka úti allar truflandi hugsanir. Svo þarf hann auðvitað að opna huga sinn og láta hann verða mót- tækileganfyrir þvi, sem fyrir- lesarinn segir. Þetta er engan vegirin auðvelt. Það er erfitt að halda þessu „andlega teppi” niðri. Utanaðkomandi hugsanir knýja sifellt á og reyna að fá tjaldið dregið til hliðar eða reyna að skriða undir skarir þess. Einbeiting Þú getur aukið eftirtökusemi þina með þvi að útloka óviðkomandi hljóð og einbeitt þér að efninu, sem um er rætt. Þetta er hægt að gera með æfingu. Það eru margvislegar æfingar, sem að gagni geta komið, en hér skulu aðeins nefndar tvær. Sú fyrri er talnaæfing. Bezt er að byrja með þvi að setjast ein- hvers staðar til hvildar á róleg- um stað. Lok.ð þvi næst augun- um og teljið frá einum til hundrað. Teldu iiægt, og um leið og þú telur, skaltu leiða þér fyrir sjónir, hvernig hver ein- stök tala er skrifuð með hvitri krit á svarta töflu. Þetta virðist á hugsana- og talhraða, sem raun ber vitni, verður sá sem hlustar að gera eitthvað til þess að hindra hugsanirnar i þvi að „hlaupa i skarðið.” Þetta er hægt að gera með þvi að beina huganum að rannsókn á þvi efni, sem fyrirlesarinn flyt- ur. Það má gera með þvi að bera orð hans saman við það, sem hann hefur áður sagt og staðreyna samhengi þess, einnig með samanburði við þa þekkingu sem maður sjálfur hefur áður hlotið um efnið. Reyndu aö spá um það fyrir fram.hvað fyrirlesarinn muni segja næst, og hugleiddu skoðanir hans og hvernig er hægt að heimfæra rökstuðning hans við eðli málsins sjálfs. Vertu vakandi fyrir þvi, sem á skortir við málflutning hans. Oft eru eins miklar upplýsingar fólgnar i þvi, sem ræðumenn segja ekki.eins og þvi, sem þeir segja. Þú munt komast að raun um að þessar hugleiðingar þinar verða ekki aðeins til þess að koma á samræmi milli tal- hraðans og hugsanahraðans, heldurhjálpa þær þér einnig til að beina athyglinni að fyrir- lestrinum.og þaðlciðir aftur af sér, að þú manst botur en ella, hvað 1> rirlesarinn sagði. GOÐUR AHEYRANDI? hugann reika, getur læknast, ef þú hefur áhuga fyrir þvi. En það er mikið átak að yfirvinna þennan leiða vana, einsog allan annan óvana, sem maður hefur tamið sér. En ef þú reynir, þá muntu geta aukið hæfileika þina til að hlusta að minnsta kosti um tuttugu og fimm prósent. En það mun lika veita þér meiri ánægju af þvi sem þú heyrir. Það er mikilvægur liður i almennri þekkingu, að kunna að hlusta, en það eru einungis fáir, sem vita, hvernig þeir eiga að hlusta. Nokkrir skólar hafa veitt þessu atriði eftirtekt og skilja þýðingu þess. 1 Banda- rikjunum eru nú að minnsta kosti tuttugu og tveir háskólar og æðri skólar, sem tekið hafa upp kennslu i þvi að hlusta. Það verður enginn góður hlustandi af þvi einu saman að þegja meðan aðrir tala. Þetta krefst meiri sjálfsafneitunar og einbeitni, en að vera kyrr og þögull. Maður verður að beina athyglinni óskiptri að þvi sem sagt er. Með öðrum orðum, maður verður að hlusta á allt, sem viðmælandinn hefur að segja, áður en maður reynir sjálfur að svara. Sá sem kann að hlusta, til- einkar sér þá þekkingu, sem annar hefur og tjáir. Ameriskur leikari einn, sem nú er látinn, sagði eitt sinn i blaðinu „The Rotarian”. Góður áheyrandi er ekki aðeins alls ann. En hugurinn hefur þó þann mikilsverða hæfilcika að geta útilokað hljóðin. Þetta ættu áheyrendur að athuga og not- færa sér. Þetta sannast best á klukkuhljóðinu. Hafi maður klukku i herbergi sinu og er orðinn vanur ganghljóðinu, hættir maður að taka eftir þvi. Maður heyrir það einu sinni ekki, nema maður beinlfnis hlusti eftir þvisérstaklega.Þetta er að útiloka hljóðin úr huga sin- um. Við heyrum alls ekki i gangverki klukkunnar, um- ferðaniðinn frá götunni, eða drunur fossins i nágrenni bústaðar okkar, meira að segja hávaði steypuvélarinnar eða véla verksmiðjanna, truflar ekki hið minnsta starfsfólkið, þegar það hefur unnið lengi við þessi skilyrði. Við verðum þessara vana- bundnu hljóða aöeins vör, ef við förum að hugsa um þau. Hið sama verður uppi á teningn- um, þegar maður hlustar á fyrirlesarann. Ef maður ein- beitir ekki huganum að þvi, sem sagt er, mun rödd ræðu- mannsins smám saman koma upp i vana, rétt eins og hljóð klukkunnar. A sama hátt getur hlust- andinn aftur á móti notfært sér þennan eiginleika hugans, og lokað úti öll önnur hljóð og áhrif, ef hann vill einbeita sér að þvi að hlusta á orð fyrir- vera auðvelt, en þegar þú hefur talið upp að tiu eða fimmtán muntu verða þess var, að óskyldar hugsanir taka að leita hugans. Og þessar hugsanir verða áleitnari eftir þvi sem lengra liður. Strax og hugsunin um eitthvað annað nær tökum a þér, skaltu hætta að telja og byrja upp á nýtt. Við næstu tilraun reynirðu að komast lengra i talningunni en fyrst, áður en ný hugsun truflar þig. En eftir þvi sem þú heldur þessari æfingu lengur áfram muntu komast aö raun um, að hæfileiki þinn til þess að útloka óskyldar hugsanir þroskast si- fellt. Þú munt geta „skrifað” fleiri og fleiri tölur áður en truflandi hugsun sigrar. Hin æfingin er i þvi fólgin að þú skalt fá einhvern til aö lesa upphátt fyrir þig. Hlustaðu með athygli meðan hann les, ein- beittu þér og reyndu að útiloka allar aðvifandi hugsanir. „Dragðu fyrir þær tjald.” Það sem lesið er þarf að vera fremur þungskilið, sem krefst dálitillar umhugsunar. Þegar vinur þinn hefur lesið um stund, skaltu biðja hann að hætta, og at- hugaðu þá, hve mikið þú manst af þvi, sem lesið var. Þetta er góð æfing til að einbeita athygli sinni, og hún mun gera þig að betri áheyranda. Hvernig fólk hlustar Þar sem svo mikill munur er Það er að sönnu misskilning- ] ur að ætla, að manni beri að I leggja sér á minni allar upplýsingar, sem i fyrirlestri felast. Aftur á móti þarf | áheyrandinn að vera vakandi fyrir hugmyndum, sem fram koma, en ekki einstökum upplýsingum sérstaklega. Ef þú manst hugmyndirnar, þá munu hinar almennu upplýsingar i sambandi við þær koma af sjálfu sér. Það hefur að sjálfsögðu mikið að segja, að áheyrandinn hafi áhuga fýrir þvi, sem um er rætt. Þess vegna er það hlut- verk ræðumannsins að gera mál sitt þannig úr garði, að það veki áhuga áheyrandans. Gerið ekki þá skyssu að gagn- rýna fyrirlesarann með sjálfum yður meðan hann er að tala, það er að segja framkomu hans, einkenni eða jafnvel málfræði- legar villur i framsögn hans. Meðan þú ert með hugann bundinn við þess konar hluti, hlustarðu ekki á það, sem hann segir. Þú getur ekki einbeitt at- hygli þinni að efninu, sem um er fjallað, ef þú ert með hugann við eitthvað annað. Það krefst mikillareinbeitni að þroska hæfileika sinn til þess að verða góður áheyrandi, og það krefst einnig áreynslu að varð- veita þann hæfileika. Þetta get- ur haft mikla þýðingu i hinu daglega lifi bæði við nám og störf. D Jólablaö 1973 í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.