Alþýðublaðið - 24.12.1973, Page 19

Alþýðublaðið - 24.12.1973, Page 19
-.....-............... . ...— il Mi I »v & il :Úi i 4 fia! 5*; JtV »5** ► “ v '* Htí [fíí $ Jpi i:n ií IG JOLASVEINNINN VARÐ TIL hann hæt+ur, því að ég sá mömmu einu sinni setja sælgæti i jólapokann, sem hangir upp á vegg. Jóli minn var alveg eins og Guðmundur Jónsson að framan, en hann var ekkert líkur honum í framan, því Guðmundur er ekki með neitt skegg. Og svo ætla ég að setja saman visu um hann ,,Jóla'' minn, því að ég kallaði hann alltaf Jóla. Hann Jóli var góður, með jólin hann kom. Ef Jóli ekki kemur, þá eru engin jól Því Jóli er jólin og jólin Jol Án Jóla skin aldrei á jólunum sól. Ég lá oft i rúminu og beið eftir þvi, að Jóli kæmi, en hann var alltaf kominn skömmu eftir að ég sofnaði. Ég sendi Jóla mjög oft bréf og skrifaði honum fleiri síður og teiknaði myndir af honum. Mamma sagði, að það væri hægt að hringja til hans, ef ég færi ekki beint að sofa, en ég vildi fá simanúmerið hans. Mamma neitaði alltaf að segja mér það. Það er heldur ekki í síma- skránni. Ég bað systur mína um að finna það, þegar ég kunni ekki að lesa, en það hefur víst verið leyninúmer, Hún fann það ekki heldur. börn eftir AraMatthíasson, 9 ára jpETTA HAN^ Jol-Í HtO StNN* V-\V W. •n?! * þíf m 4 -íiv il[i SAGA EFTIR INGIBJORGU SIGURÐARDOTTUR -»- — - ^ a—- vera til allt, sem vitað var um jólin og meira að segja lika ýmislegt, sem enginn vissi leng- ur. En hvað sem hann las rhikið og gruflaði i bókunum fann hann ekkert um Jólaköttinn. Aftur á móti fann hann mikið um bernskubrek Jólasveinanna, en það er önnur saga. Það er nóg að þið vitið, að Jólakötturinn skemmti sér ágætlega yfir þeim bókum. Og þá var bara eitt, sem hann gat gert. Gamli Jólakötturinn var svo kalkaður, að ekkert fékkst úr honum af viti, svo nýi Jólakötturinn ákvað að fara til mannheima og vita, hvort hann fengi einhvern botn i málið. Kannski mennirnir hefðu betra minni en Jólasveinarnir. Ferðin var löng og erfið, og Jólakötturinn hafði með sér nokkrar jólakökusneiðar og hangikjötsbita i nesti. Hann fór ekki á sleða eins og Jóla- sveinarnir voru vanir, heldur gekk hann. Hann var nú lika köttur. Loks kom hann að húsi, þar sem ljós var i öllum gluggum. Þar inni var kona að gera jóla- hreingerningu. t kringum hana snérust krakkar á öllum aldri, heill aragrúi af þeim fannst Jólakettinum. Þau voru reynd- ar ekki nema fjögur, en i Jóla- landinu voru engin börn nema Jólabarnið, sem var siungt, og þess vegna var- Jólakötturinn óvanur krökkum. ,,Æ, flækist nú ekki fyrir mér,” sagði konan. ,,Ég þarf að klára þetta. Ef við verðið ekki þæg, þá kemur Jólakötturinn á jólunum og klórar ykkur."" Börnin stilltust nokkuð, en Jólakötturinn gekk burt i þung- um þönkum. ,,Klóra þau? Mér dettur ekki i hug að klóra þau,” hugsaði hann. ,,Mér er ekkert illa við krakka. Þau eru ágæt greyin. Af hverju ætli konan hafi sagt þetta?” Hann kom að öðru húsi. Þar inni voru fátæklega klædd hjón að tala saman. ,,Við verðum að hafa einhver ráð með föt handa krökkunum yfir jólin,” sagði maðurinn. ,,Þau mega ekki fara i Jólakött- inn, greyin.” ,,Nei, það er alveg áreiðan- legt,” sagði konan. „Þarna kom þetta aftur,” hugsaði Jólakötturinn. ,,Af hverju er öllum svona illa við mig? Ég, sem geri ekki flugu mein.” Það var alveg sama hvert Jólakötturinn fór og hvaða glugga hann hleraði við og kikti inn um. Allir töluðu um að Jóia- kötturinn mundi klóra eða bita eða jafnvel ÉTA börnin, ef þau væru óþæg eða fengju ekki ný föt. Það fannst Jólakettinum hreint ekki nógu gott. Hann var ails ekki vondur, og datt sist af öllu i hug að gera nokkrum krakka mein. Hann var ekki beint i sólskinsskapi, þegar hann fór aftur heim i Jólalandið. ,,Það er þá bara bezt, að ég verði vondur”, hugsaði hann. ,,Ég ætla i verkfall.” En svo gerði Jólakötturinn sér grein fyrir þvi, að það myndi enginn taka eftir þvi, að hann væri i verkfalli. Það vissi hvort eð er enginn hvað hann ætti að gera. ,,Þá verður að gera eitthvað annað,” mjálmaði kisi við sjálf- an sig. Hann labbaði upp að stóra húsinu, þar sem veðurstjórn- unarstöðin var til húsa. Keynd- ar var veðrinu yfirleitt að ganga sinn gang nema um jólin. Þá varð að sjá um að jólasnjór- inn kæmi á réttum tima. Jólakötturinn fiktaði i vélun- um og breytti stillingunni á jóla- snjónum. Hann átti að koma 23. desember og haldast i tvo daga eða svo. En Jólakötturinn stillti á hitabylgju. ,,Hana,” tautaði hann. ,,Það verður gaman að sjá hvað þeim finnst um þetta. Nú komast Jólasveinarnir heldur ekki i bæ- inn — það er enginn snjór fyrir þá að renna sér á.” Svo fór hann sina ieið. Næst gekk hann að jólabóka- flóðinu, sem streymdi áfram með miklu skrjáfi. „Þetta þarf að stifla,” hugs- aði hann. Hann fór i eina jóla- gjafaverksmiðjuna, og sótti eins mikið og hann gat borið af jóla- gjöfum. Þar voru dúkkur og bil- ar og boltar og ilmvötn og pipur og hrærivélar og alls kyns hlut- ir, sem fólk gefur gjarna i jóla- gjöf". Jólakötturinn fór margar feröirfrá verksmiðjunni til jóla- bókaflóðsins. „Það er eins gott, að þetta er allt sjálfvirkt,” hugsaði hann. „Það væri ekki nógu gott ef þetta uppgötvaðist strax.” Loksins þegar hann var búinn að stifla jólabókaflóðið svo rækilega, að bara einstáka litil bók slapp út, þá settist hann niö- ur og hugsaði málið. „Þá er ég búinn að sjá fyrir jólasnjónum og jólabókunum. Jólagjafaframleiðsluna get ég stoppað með þvi að slökkva á vélunum. En það þarf áreiðan- lega eitthvað fleira til að hindra jólin. Hvað getur það verið?” Það voru auðvitað jólatrén og jólamaturinn, en við þvi var ekkert að gera. Það var of seint að eiga við það. En jólaskrautið gat hann eyðilagt. Það var erfitt að eiga við jóla- skrautið. Jólasveinamamma geymdi það nefnilega i kjallaranum sinum og hafði sjálf umsjón með þvi. Þangað varð Jólakötturinn að laumast óséður, þvi þó Jólasveína- mamma væri orðin gömul og gleymin, þá hafði hún ennþá augu á hverjum fingri. Og reyndar uppgötvaði hún Jóla- köttinn. „Hvað ertu að gera hérna hjá jólaskrautinu?” spurði hún. „Það er mitt verk aö sjá um það. Ertu búinn að finna hvað þú átt aö gera?” „Ég á að klóra og bita krakka,” sagði Jólakötturinn. „Ég vil ekki gera það. Ég er i verklalli.” „Nú jæja,” sagöi Jólasveina- mamma. ,,()g hvað viltu þá fá? Kauphækkun eða eitthvað ann- að?” „Ég vil bara fá aðra vinnu,” sagði Jólakötturinn. „Mér finnst þessi ekki nógu góð. Ég Y—^}\ /-ÍTr? ^ - A i Atw'x ætla að stoppa jólin, þangað til ég fæ aðra vinnu.” „Stoppa jólin?” spuröi Jóla- sveinamamma skelfingu lostin. „Hvcrnig þá?” Jólakötturinn ætlaði auðvitað alls ekki að segja henni það, en Jólasveinamamma vissi lengra en nef hennar náði, og loksins tókst henni að veiða allt upp úr honum. „Ja, kisi,” sagði hún. „Nú er ég svo aldeilis hlessa á þér. Þú segist ekki vilja meiða krakka, en samt ællarðu að taka frá þeim jólin. Ég hugsa að allir krakkar vildu frekar láta klóra sig og bita en fá erígin jói. Nú verðurðu strax að laga allt, sem þú hefur komið I ólag.” „En þá fæ ég ekkert annað að gera, og ég vil lika vera með á jólunum,” sagði Jólakötturinn hálfgrátandi. Hann sá eftir þvi ÞEGAR JOLA- KÖTTURINN FÓR í VERKFALL :iv! Y‘ll l:U 1 ! ÍXL •ffri itp ii! V - m að hafa sagt Jólasveinamömmu allt saman. „Ég vil ekki standa úti i kuldanum, og að öllum sé illa við mig.” „Við kippum þvi einhvern veginn i lag,” sagði Jólasveina- mamma. „Flýttu þér nú bara að ganga frá öllu.” Jólakötturinn fór með hálfum hug, en hann treysti samt Jóla- sveinamömmu. Og það er einmitt Jólasveina- mömmu að þakka, aö við feng- um að heyra þessa sögu, þvi hún ákvað nefnilega aö bera það undir krakkana, hvað Jólakött- urinn ætti að fá að gera. Og nú skuluð þið reyna að svara þvi. Þið getið verið viss um það, að Jólakötturinn biður óþreyjufull- ur. Liklega er hann meira að segja áferli i mannheimum núna um jólin til að vita, hverju þiö svariö. iir? p Hii .ttt1 Ííí Li$í +1; Itv T(> i m ffi£ ;ÍÍT M. & Ö? lí :tií tr k t-rit viií m 1 u ú tir «v*< AU m ií ------------------------------© Jolablaö 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.