Alþýðublaðið - 25.01.1974, Side 12
alþýðu
mvm
Veöurspáin fyrir höfuð-
borgarsvæðið f dag gerir ráð
fyrir suðvestan stinnings-
kalda með slydduéljum. Hit-
inn verur nálægt frostmarki.
Er þvi lítil brey.ting á veðr-
inu frá þvi, sem það var áið-
asta sólarhring, en I gær var
úrkoma 3 millimetrar og hit-
inn 1 stig.
Annars var suðlæg átt um
allt landigær og hvergi frost
á láglendi.
KRILIÐ
£/?6/ LE6UR 15M/ iUtm <jKIL yRU/ 6UEPH FELR g/Ð Tó/flfW LE LEÓf/R
V
f ■
'&ÉKK &OR
FLjOJ
KEIRfí þflNN/ 1 ö BÓlfí
pn’fíLm UR/NN
ERILL E/NK ST l»t/b 'L.L /q
[)
VlRTI FjíR_ OL'íTi
2 e/"s
rfluG Null
HöCrlR
VILDU MEIRA HREINLÆTI
- VORU REKNIR FYRIR
Stakkageymslan I Neptúnusi.
örin ofarlegatil vinstri á mynd-
inni bendir á lúguira þar sem
sjórinn pusast inn.
félagar, að nær óhugsandi sé að
þurrka vettlinga á frivakt.
Astandið i stakkageymslunni
er þannig, að sé einhver ágjöf
pusast sjór inn um opna lúgu,
svo stakkarnir eru ætið renn-
andiblautir, þegar gripa þarf til
þeirra, — svo þokkalegt sem er
að standa þannig klæddur á
dekki i gaddi og ágjöf.
Þessi atriði báðu þeir félagar
fulltrúa útgerðarinnar að lag-
færa áður en haldið væri út á ný,
en siðdegis i gær var ekki sýnt,
að mikið hefði verið gert. Skrif-
uðu þá sjö hásetar og netamenn
undir plagg þar sem stóð ein-
faldlega: „Okkur vantar meiri
þrifnað um borð i Neptúnusi”.
Sagðist Halldór Fannar hafa
farið með plaggið til útgerðar-
stjórans, Bjarna Ingimarsson-
ar, en hann sagði aðeins: ,,Þú
ferð ekki á skip hjá mér oftar,
Halldór minn, við höfum ekkert
með svona menn að gera”.
Urðu sjömenningarnir þvi eft-
ir i gærkvöldi, þegar togarinn
héltút, en það var um sexleytið,
og sagði Halldór við fréttamann
blaðsins um sjöleytið, að liklega
biðu þeir á ytri höfninni eða
færu til Grindavikur og biðu þar
eftir þvi, að skrapaö veröi sam-
an i fulla áhöfn. „Þeir hirða upp
einhverja róna, sem ekkert vita
hvað þeir eru að gera”, sagði
Halldór.
Neptúnus
hélt út —
■ •• JA
sjo urðu
eftir í landi
„Heldur vildi ég vera dauður
þorskur i lestinni á Neptúnusi en
lifandi háseti i lúkar”, sagði Jón
Matthiasson, háseti á Neptún-
usi, þegar Alþýðublaðið hafði
tal af honum og félaga hans,
Halldóri Fannar, i gær. „Það er
velhugsaðum að hafa lestarnar
þrifalegar til þess að fiskurinn
verði verðmeiri, og það er lika
hugsað vel um trollið, vegna
þess að það er svo dýrt. En um
okkur skipverjána er minna
skeytt, — við erum minna virði
en bæði þorskurinn og trollið”,
sagði Jón-.
Þeir félagar sögðu, að öll
skipshöfnin sé sammála um
það, að ýmsu varðandi þrifnað
um borð sé ábótavant, og þegar
þeir komu i land eftir siglingu
fyrirfáum dögum var þess farið
á leit.við útgerðina, að úr þessu
væri bætt.
Til að sannfærast um ástandið
um boð hélt fréttamaður Al-
þýðublaðsins með þeim Jóni og
Halldóri um borð i Neptúnus
siödegis i gær, fáum klukku-
stundum áður en átti að leggja
úr höfn i veiðiferð. Togarinn var
að vfsu nýmálaður að utan og
leit þokkalega út, en i vistarver-
um skipverja framá var ástand-
iö öðruvisi. Þrátt fyrir, að
hásetar reyndu hvaö þeir gátu
að skrúbba og skúra vistarverur
slnar á heimleið tókst ekki að
útrýma þrúgandi saggalykt,
sem þeir sögðu aðallega stafa af
þvi, aö fyrir fjórum árum kom
leki að skipinu, og fylltist þá
lúkarinn af sjó. Flæddi sjor und-
ir gólfið, og var ekki haft fyrir
þvi að þurrka hann upp.
Hreinlætisaðstaða sögðu þeir,
að fyrirfyndist varla um borð,
hvergi heitt vatn nema i eldhús-
inu, og strax og togarinn fer að
velta gruggast ryð og önnur ó-
hreinindi upp I vatnstönkunum
þannig að fljótlega stiflast allir
kranar. Ein sturta er um boð, og
það afturá, en staðsetningin
skiptir reyndar ekki máli, þvi
vatn hefur aldrei komið úr
henni.
Þar sem hvergi fyrirfinnst
heitt vatn á krönum er að sjálf-
sögðu litill ylur á ofnum, og þvi
bætist kuldi ofan á saggann i
vistarverum háseta. Sögðu þeir
INNLÁNSVIÐSKIPTI LEIÐ
TIL LÁNSVIÐSKIPTA
f
ABUNAÐARBANKI
'U ÍSLANDS
KOPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SENDIBIL ASTOOIN Hf
Baldur Hauksson, sölumaður:
Ég hef ekki farið I leikhús i þrjú
ár, en það gæti vel verið að ég
sæi Flóna, ef ég tæki upp á að
fara.
Sigurður J. ólafsson, mat-
reiðslunemi: Ég hef ekki enn
fariö að sjá Flóna, en ég hef á-
huga á þvi. Peningaráðin hafa
sitt að segja, en þegar ég hef
efni á, fer ég talsvert i leikhús.
Þorsteinn Steingrim sson,
starfsmaður fikniefnadómstóls-
ins: Ég fer sjaldan i leikhús, og
hef ekkert farið i vetur, en ef ég
fer, er ég ákveðinn I að sjá
Leöurblökuna heldur, þvi ég hef
gaman af söngleikjum.
Hefur
Gunnar Jóhannsson, bifvéla-
virki: Ég he séð Flóna, og þótti
mjög gaman, en annars fer ég
mikið i leikhús, og gæti trúað að
ég sæi svona þriðja hvert verk
sem sýnt er.
þú séð Fló á skinni?
Asvaldur Andrésson, bifreiða-
smiður: Ég sá Flóna og þótíi
mjög gaman. Ég fer i leikhús
einu sinni á ári, eða þegar lista
og menningasjóður Egils Vil-
hjálmssonar h/f býður starfs-
fólkinu I leikhús. —
J