Alþýðublaðið - 25.01.1974, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 25.01.1974, Qupperneq 2
HÁRKOLLU VERDUR KONAN AÐ VELJA FYRIR SIG SJALF EN ÞAR ER ÞÚRF FYLLSTU AÐGATAR Hárkollur eru orðnar meðal þess, sem enginn kvenmaður vill vera án. Og það er meira en skiljanlegt, þegar athuguð er sú fyrirhöfn, sem þær þurfa á sig að leggja til þess að vera finar um hárið — vel að merkja þurfi þær ávallt að eiga við sitt eigið hár. Þá er þúsund sinnum hand- hægara að eiga „kolluna” til- búna heima — auk þess sem kollugreiðslan endist oft mun betur, en greiðsla hins eðlilega konuhárs. Flestar konur þurfa helst að eiga tvær kollur — aðra- með stuttu hári en hina með siðu. Um stuttu hárkollurnar er ekkert sérstakt að segja. En þær með siða hárinu geta verið varasamar. Sumar þeirra eru nefnilega þannig, að algerlega útilokað er að setja i þær rúllur eða túpera þær. Hvað sem gert er verður hárið — sem raunar er nú oftast úr næloni og öðrum gerviefnum — rennislétt. Slikar hárkollur eru alls ekki gallaðar. Svona er þeim ætlað að vera af hálfu framleiðendanna. Hárið á að vera slétt i þeim og ótúperað og þvi ætti hver sú kona, sem hyggst fá sér hárkoilu með siðu hári, að ganga vandlega úr skugga um það, áður en kaupin eru gerð, hvort kollan sé af þeirri tegund, sem ávallt verður slétt, eða hvort setja megi „hárið” upp og túpera það. Það eru nefnilega ekki allar konur, sem vilja ganga með slegið sitt hár — enda fer það sumum þeirra illa. Og fyrir eina slika væri það harla ömurlegt að upp- götva, að nýja og fallega kollan með siða hárinu, sem hún var að kaupa, er einmitt þannig af „guði” gerð, að alls ekki er hægt að setja hana upp eða túpera. Annars skalt þú — ef þú ert að festa þér kaup i hárkollu — ekkert vera hrædd við gervi- efnin. Kollur úr náttúrlegu hári (sem raunar er mun oftar dýra- hár, en manna, hvað sem aug- lýsingarnar segja) eru i fyrsta lagi miklu dýrari en hinar og i öðru lagi ekki eins sterkar og endingargóðar — þótt vist séu þær kannski fallegri.. einkum nýjar. En gervihárkollurnar eru lika oft listilega vel gerðar, þannig að næstum ómögulegt er að sjá, að þar sé ekki allt Stereo-heyrnartæki eru orðin mjög vinsæl nú upp á siðkastið. En hér sem annars staðar þarf neytandinn á leiðbeiningum að halda og á áhugamaðurinn alls ekki að velja þau fyrstu heyrnartæki, sem hann rekur augun i. Þegar heyrnartækin eru valin, þarf að velja þau eftir sömu meginreglum, og þegar maður velur sér stereohátalara. Eini munurinn er sá, að heyrnartækin eru ekki við það miðuö að fylla heilt herbergi af hljómum. Við framleiðslu heyrnartækja er byggt á tveimur megin-lög- málum — annars vegar hinu dynamiska og hins vegar hinu elektróstatiska. Og sannast hefur, að heyrnartæki, sem byggð eru skv. elektróstatiska- kerfinu, eru til muna betri, en hin, sem byggð eru skv. þvi dynamiska, sem aftur á móti eru rrLun ódýrari. Einnig er hægt að flokka heyrnartækin i tvo aðra flokka — eftir þvi, hvort þau eru „opin” eða „lokið”. „Opnu” gerðirnar gefa yfirleitt betri hljómburð, en ókosturinn við þær er sá, að slik heyrnartæki einangra eyrað ekki fyrir utan- aðkomandi hljóðum. Þvi verður að vera hljótt i herberginu, sem sá er i, er hlýðir á hljómlist með „opnu” heyrnartæki. Einnig er nauðsynlegt að reyna heyrnartækið á höfðinu áður en keypt er. Það má t.d. ekki vera of þungt og það verður að falla vel að eyrunum. Einkum þetta siðasttalda ræður miklu um hljómgæðin. Heyrnartæki eru annað hvort tengd við hátalaratenginguna á magnaranum eða ! sérstakan tengil á honum, sem aðeins er ætlaður heyrnartækjum. Sá tengill er oft framan á magnaranum, þannig að auð- velt er að komast að honum. Séu tveir tenglar á magnaranum — annar fyrir heyrnartæki, en hinn fyrir hátalara, ætti magnarinn að vera þannig byggður, að þegar heyrnar- tækin eru sett i samband þá fari hátalararnir sjálfkrafa úr sam- bandi. Enn betra er þó ef magnarinn er útbúinn með takka, þar sem slökkva má eða kveikja á hátölurunum án þess að þurfa að taka þá úr sam- bandi. „ekta”. Og svo er styrkleikinn miklu meiri. Allar hárkollur verður að sjálfsögðu að máta, áður en þær eru keyptar og best er að velja sér lit, sem er ekki allt of ólikur hinum eðlilega háralit konunnar sjálfrar. Það er ekki vegna þiess, að ella kynni að sjást i „náttúrlega” hárið undir koll- unni og litamismunurinn kæmi upp um kellu. Slikt er mjög fátitt. Astæðan er sú, að manns eigin háralitur á yfirleitt best við manns eigið yfirbragð — m.a. lit og áferð húðarinnar — og mjög ólikur litur hárkollu kynni að gera útkomuna af samstarfi náttúrunnar og tækn- innar aldeilis hörmulega. Ending hárkollu er að sjálf- sögðu komin undir gæðum hennar og meðferð. Góð hár- kolla heldur sér i mörg ár, ef rétt er með hana farið, en minnist þess, að hárkollur á að þvo i köldu vatni og hita má aldrei hleypa að þeim. Gætið þess einnig, að ekki á að þvo hárkóllurnar mjög oft. Jafnvel þótt kolla sé notuð að jafnaði, þarf ekki að þvo hana nema einu HEYRNARTÆKI EDA HATALARI? Ýmsar tæknilegar upplýsingar fylgja heyrnar- tækjum alveg á sama hátt og hátölurum. Þeir, sem vel heima eru i hljómburðartækni, geta notað sér þessar upplýsingar að gagni við val á heyrnartækjum, en allur almenningur verður fyrst og fremst að treysta á sitt eigið tóneyra. Athugið þó vel, að heyrnartækið verður að vera af sama gæðaflokki og magnarinn. Mikilvægasti kostur heyrnar- tækjanna er svo að sjálfsögðu sá, að með þeim er hægt að hlusta á hljómlist hversu háværa sem er ánþess að ónáða fjölskylduna eða nágrannana. Einmitt þess vegna aukast sifellt vinsældir heyrnartækj- anna — hjá öllum aðilum. Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. Skipholt 29 — Sími 244fifi BLÓMAHÚSIÐ simi 83070 Skipholti 37 Opid til kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. Sérhver kona ætti að eiga tvær hárkollur — eina með siðu hári og aðra með stuttu. sinni i mánuði. Fitan, sem myndast á hársverðinum og gerir það að verkum, að manns eigið hár verður svo fljótt óhreint, kemst aldrei i snertingu hárkollu að nokkru ráði og þess vegna er alveg nóg að bursta hana bara vel, en þvo hana ekki nema svo sem einu sinni i mánuði sé hún oft notuð — mun sjaldnar sé hún aðeins notuð við sérstök tækifæri. MÁTULEGIR SKÖR HANDA BARNINU Það er talsvert vandamál fyrir marga foreldra að velja rétta skóstærð fyrir litil börn sin. Of stórir skór veita fætinum litinn stuðning og geta bæði sært fótinn og stuðlað að þvi, að hann aflagist. Um hvað of litlir skór geta gert við barnsfót þarf ekki að fjölyrða. Allir foreldrar vita það. En vandinn er sá, að litlu börnin finna oft ekki sjálf, hvaða skór eru við hæfi og hverjir ekki. Þá verður for- eldrið að koma til skjalanna og giska. En það er ekki endilega nauðsynlegt að vera með neinar getsakir. Einföld lausn er til á málinu. Láttu barn þitt standa báðum fótum á þykku pappaspjaldi. Dragðu siðan með blýanti nákvæma stærð fótanna á spjaldið. Næst þegar þú ferð til skókaupmannsins, skaltu svo hafa spjöldin með þér og máta þau inn i þá skó, sem þú hyggst kaupa. Spjöldin verða að vera rúm i skónum — lengd þeirra að innan t.d. verður að vera 1,5-2 cm. meiri en á spjaldinu, þvi gera verður ráð fyrir sokkum og þvi, að barnið geti átt skóna eitthvað þótt fóturinn stækki smávegis. Sé um að ræða skó til vetrar- brúks, þegar barnið er i þykkum ullarsokkum verður munurinn auðvitað að vera meiri. Einföld lausn erfiðu vandamáli 1 lalþýðuj mfiimi Okkur vantar Sendisveina Alþýðublaðið óskar eftir að ráða sendi- sveina á ritstjórn og i afgreiðslu til sendi- ferða bæði fyrir og eftir hádegi. Hálfs dags ráðningar koma vel til greina. Sendisvein arnir þurfa að hafa hjól. Nánari upplýsingar veittar i sima 14900 og 86666. Alþýðublaðið ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KRON DÚÍIA í GtflEflBflE /íffli 64ROO o Föstudagur 25. janúar T974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.