Alþýðublaðið - 02.02.1974, Blaðsíða 1
Hingað fyrir sumar:
Slade og Nazareth
og Uriah Heep 0
► ► ► ► o
Laugardagur 2. febrúar 1974 557;
EG HEF
MEIRA AÐ
SEGJA
ÍHUGAÐ
SJÁLFS
MORÐ
I SJÁ HORNIÐ - 3
(H)ROS í
hnappa-
gatiö
► 12
flugflota varnarliðsins
er hreyfanlegar
f I ugsveiti r
Um helmingur af flug- hreyfanlegar flugsveitir, Hér er nú 9 flugvéla
flota varnarliðsins á eða 14 vélar af þeim 32 Orion sveit, það eru kaf-
Keflavikurflugvelli eru sem þar eru. bátaleitarflugvélar, og er
sú sveit nr. 49, en fyrir
viku var hér sveit nr. 24.
Skipt er um þær sveitir á
nokkurra mánaða fresti,
og flytjast flugmenn,
flugvirkjar, og aðrir
menn sveitinni tilheyr-
andi með.
Þá eru hér að jafnaði 2
Hercules björgunarvélar,
en þær eru hér aldrei
nema tvær vikur i senn,
og fara flugmennirnir
með flugvélunum.
Þá er hér sveit þriggja
Constellation véla, sem
eru radarvélar, og er
hver sveit ekki nema um
mánuð hér i einu. Flug-
menn og flugvirkjar
flytjast með.
sveit 12 Phantom þota, en
sú sveit nefnist loftvarna-
sveit. 1 henni eru einnig
þrjár T-33 æfingaþotur.
Loks er svo ein DC-3,
sem sér um birgða-
flutninga milli Kefla-
Þær sveitir sem hér eru
að staðaldri eru: Sveit
þriggja björgunarþyrla,
sem oft hefur komið við
sögu hér við bjarganir, og
vikurflugvallar og radar-
stöðvarinnar á Stokks-
nesi, og ein DC-6b, sem
eingöngu er notuð til
millilandaflugs.
Þeir menn, sem starfa
við föstu flugsveitirnar,
starfa hér að jafnaði i tvö
ár, séu þeir með fjöl-
skyldur sinar hér, en i 12
mánuði, séu þeir
einhleypir. Um
þriðjungur varnarliðs-
manna er hér með
fjölskyldur sinar.
HVER STJÚRNAR SKATT-
PÍNINGU Á ÞINGEYINGUM?
Skattþegnar Þingeyjarsýslu hafa fengiö sendar til-
kynningar um fyrirframgreiöslu þinggjalda, sem
ekki eiga stoð i lögformlegum heimildum. Hafa þeir
verið krafðirum 75% fyrirframgreiðslu skatta, miðað
við álagningu þeirra á siðasta ári, I stað 60%, sem
heimilt er að innheimta. Er mikill urgur i mönnum
nyrðra vegna þessa, en þegar þeir leita skýringa, er
þeim sagt að þetta sé gert samkvæmt fyrirmælum.
Er Alþýðublaðið spurði Jón Sigurösson, ráöuneytis-
stjóra i fjármálaráðuneytinu um þetta mál, sagði
hann, aö ráðuneytið hefði gefið fyrirmæli um inn-
heimtu fyrirframgreiðslu skatta á sama hátt i Þing-
eyjarsýslum sem annars staðar eða 3/5 miðað við
siðustu álagningu.
Blaðið hafði samband viö Sigurö B. Jónsson, full-
trúa sýslumanns, og spuröi hann hvernig i þessu lagi.
Kvaðst hann ekki fjalla um þessi mál, en gerði ráð
fyrir, aö farið væri eftir fyrirmælum ráöuneytisins.
Staðfesti hann, að við einnheimtuna væri miðað við
3/4 en ekki 3/5 eins og verið hefði.
Skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins, Höskuldur
Jónsson, kannaði til hlitar útsend fyrirmæli ráðu-
neytisins i þessum efnum til innheimtumanna rikis-
ins. Reyndustþau á einn veg i þessu tilliti. Innheimta
ber 3/5 miðað við siðasta ár.
Gjaldkeri sýslumannsembættisins á Húsavik, Hall-
ur Jónasson, kvaöst hafa sent út tilkynningar um
greiðslu á 3/4fyrra árs gjalda, samkvæmt fyrirmæl-
um sýslumanns.
Sýslumaðurinn, Jóhann Skaftason, er þvi miður
sjúkur og reyndist ekki unnt að spyrja hann um þetta
mál.
HRAUNIÐ
GLEYPIR
SENDINGAR
EYJARADÍÚS
Vestmannaeyjaradió er
ekki enn komið i sama
horf og fyrir gos, enda
þótt að stöðin eigi að
þjóna mikilvægu hlut-
verki fyrir allar siglingar
við suðurströndina.
Landssiminn hefur þó
loks látið gera við neyð-
arsendinn á stöðinni, en
hann hefur verið bilaður i
nokkrar vikur, þrátt fyrir
að Landssiminn hafi
fengið itrekaðar tilkynn-
ingar um það.
Bilunin lýsti sér þannig,
að stöðin heyröi neyðar-
köll, en gat ekki komið
neinum boðum né leið-
beiningum til skipa i
háska.
En þrátt fyrir lagfær-
ingar Landssimans sið-
ustu daga eru miðbylgju-
sendingar VM radiós enn
i ólestri, og heyrast send-
ingarnar ekki nema 20 til
30 milur út, að sögn eins
starfsmanns við stöðina.
Nýja hraunið gleypir og
truflar sendingarnar og
þarf þess vegna að finna
sendinum nýjan stað, en
hann er nú á simstöðvar-
húsinu.
Þvi hefur Landssiminn
ekki komið i verk, og una
sjómenn viö suðurströnd-
ina þessu illa, að sögn
starfsmannsins við VM
radió.
mmm
tm