Alþýðublaðið - 12.05.1974, Side 1

Alþýðublaðið - 12.05.1974, Side 1
 : .■ : SS! manna, en Sigurður Eggerz for- sætisráðherra veitti henni við- töku. Er þetta enn eitt dæmi um höfðingsskap iðnaðarmanna og mátt samtaka þeirra, en byggingarnar, sem þeir reistu i miðbænum, Iðnó og gamla iðn- skólahúsið, voru stórvirki á sinum tima. Hitt kom hins vegar ekki fram i frásögn hins fróða leiðsögumanns, að kostn- aður við Ingólfsstyttuna var greiddur með dálítið sérkenni- legum hætti. Efnt var til happ- drættis um heilt hús, svo nefnt Ingólfshús við Bergstaðastræti, sem nú er brunnið. Slikt var mjög fátitt i þá daga. Svo undarlega vildi til, að enginn gaf sig fram með vinnings- númerið, þegar dregið var. En löngu seinna fann einn af helztu embættismönnum bæjarins það i fórum sinum, innan um gamla greidda reikninga, og önnur plögg, sem hrein tilviljun var, að hann skyldi ekki vera búinn að fleygja. Fáir reyndust lika vita um byggðarhætti i Skuggahverfinu á siðustu öld né heldur skýringu á götunöfnunum þar. Og margt skemmtilegt mátti heyra um Skólavörðuholtið og Skóla- vörðuna, sem þar stóð. Þingholtin eiga sér lika merkilega sögu þótt miklu yngri sé, en þar bjuggu á þessari öld Hannes Hafstein, Jón Magnússon, Pálmi Pálsson, Bjarni Sæmundsson og Árni Pálsson. Bæði Jón Magnússon forsætisráðherra og Meistari Pálmi Pálsson yfirkennari, sem Meistaravellir i vesturbænum eru kenndir við, af þvi að hann rak þar búskap, fluttu hús sin inn tilhöggvin frá Noregi. Þá var fróðlegt að heyra um bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar við Aðalstræti og innréttingar Skúla Magnússonar. Til er á prenti mikill fróð- leikur um Reykjavik og sögu hennar. En það er annað að vera staddur á sögustöðunum sjálfum, heyra frá þeim sagt og láta hugann reika til liðins tima. Reykvikingar vita áreiðanlega of litið um borgina sina. Saga hennar er bæði löng og merki- leg. Aukin þekking á henni mundi gera okkur að betri Reykvikingum og betri mönnum. GÞG II II II II18 ii IIIIII IIIIII . ' > mm m 8 r' tfö SUNNUDAGS- LEIDARINN HVAÐ VEISTU UM BORGINA ÞÍNA? Sunnudag nokkurn fyrir skömmu efndi Alþýðuflokks- félag Reykjavikur til kynnis- ferðar um sögustaði i Reykja- vik. Leiðsögumaður var Jón Bjarnason , sem reyndist stór- fróður og sagði frá á skemmti- legan og alþýðlegan hátt. Að lokinni ferðinni, sem tók um tvær klukkustundir, var það mál manna, að ekki væri vansa- laust, að þeir skuli ekki hafa vitað fyrr ýmislegt af þvi, sem þeir urðu visari um i ferðinni. Það er eflaust ekki að undra, þótt mönnum sé ekki kunnugt um byggð og bæjarstæði á Arnarhóli fyrir tveim öldum. En fróðlegt var að heyra um það. Hitt virtist ótrúlega fáum kunnugt um, að það voru sam- tök iðnaðarmanna i Reykjavik, sem gáfu tslendingum styttuna af Ingólfi Arnarsyni 1924. Jón Halldórsson húsasmiðameistari afhenti hana fyrir hönd iðnaðar- Mll IIII «111 IIII 1« II Sunnudagur 12. maí 1974. 72. tbl. 55. árg.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.