Alþýðublaðið - 12.05.1974, Síða 6
r
BÍLAR OG
UMFERÐ
||
Þorgrímur Gestsson
Veðurguðirnir
I I
og bílsportiö
Það á ekki af bilaáhuga-
mönnum i Reykjavik að
ganga, þegar um er að ræða
að koma af stað aksturs-
keppni. t haust ætlaði
Bindindisfélag ökumanna að
gangast fyrir góðaksturs-
keppni i tilefni af 20 ára
afmæli félagsins, en henni
varð að fresta viku eftir viku
sökum aurbleytu á þrauta-
svæðinu þar til henni var
aflýst. 1 lok febrúar ætlaði
BFö að halda isaksturskeppni
á Leirtjörn skammt frá
Reykjavik, en þá endurtók
sama sagan sig, — fyrst var
keppninni frestað vegna verk-
fallsins, siðan vegna slæms
veðurútlits, og enn hefur ekki
verið unnt að halda keppnina
vegna þess, að i nokkrar vikur
hefur aldrei frosið nægilega til
að tjörnina legði.
barna er Islandi liklega rétt
iýst, þegar ekki er unnt að
halda góðaksturskeppni i
byrjun vetrar vegna rigninga,
né isaksturskeppni á miðjum
vetri vegna hlýviðris. Liklega
gerði BFÖ rétt i þvi að hætta
að hugsa um isaksturskeppni
á þessum vetri en geyma hana
til næsta vetrar. Þá ætti að
vera unnt að halda slika
keppni með mjög stuttum
fyrirvara þar sem öllum
undirbúningi að tilhögun
sjálfrar keppninnar er lokið,
þ.e. búið er að skipuleggja
keppnissvæðið og ákveða
þrautir, svo ekkert er eftir
nema merkja svæðið.
Hinsvegar mættu áhuga-
menn um „bilsport” vel fara
að huga að einhverju sumar-
starfi, og er þar af mörgu að
taka. Liklega þýðir þó varla
að hugsa um rally eða þjóð-
vegaakstur i þess orðs fyllstu
merkingu, en keppni i einni
tegund þjóðvegaaksturs má
hæglega halda á þessu ágæta
landi þar sem ekkert má, sem
gerir að verkum, að ökumenn
geti ekki „stöðvað á þriðjungi
þeirrar vegalengdar, sem auð
og hindrunarlaus er fram-
undan og ökumaður hefur
fulla yfirsýn yfir”. Þarna er
átt við „sparaksturskeppni”
þar sem meðaihraði er tiltölu-
lega lágur en mjög strangt
eftirlit með þvi, að öllum
reglum sé hlýtt og öllum tima-
áætlunum fylgt.
Keppni i sparakstri var
mjög vinsæl viða i Evrópu á
árunum 1950-1960, en siðan
minnkuðu vinsældir hennar
með auknum áhuga á rally og
keppni i hraðakstri yfirleitt,
þar sem slikt þótti meira
spennandi. Þegar oliukreppan
skall yfir i haust og verð-
hækkanir á bensíhi i kjölfarið
á henni, fóru menn að rifja
upp reglurnar i sparakstri, og
mér er kunnugt um að
minnsta kosti eina keppni,
sem þegar hefur farið fram i
' Danmörku. Hún var nokkuð
löng eða 900 km en að sjálf-
sögðu getur sparaksturs-
keppni verið af öllum lengdar-
gráðum. Eg imynda mér td.,
að Borgarf jörðurinn væri
ágæt akstursleið eða þá
^ ~
O------------------------------
,SPARNAÐUR
ER GRÓÐI'
Sparnaður er gróði, segja hin-
ir visu menn, og þessi augljósu
sannindi þurfa bileigendur ekki
sist að hafa i huga nú þegar ben-
sinverðið er á sifelldri uppleið
Fylgni er mjög mikil milli
bensineyðslu vél og þvi, hversu
auðveldlega bensinið brennur,
og mjög auðvelt og ódýrt er að
létta undir með vélinni við brun-
ann.
Fullkominn bruni i bensin-
hreyfli byggist á þvi, að hlut-
fallið milli bensins og lofts sé
rétt, og eins þvi, að kveikingin
fari fram á réttum tima.
Fyrsta skilyrði fyrir þvi, að
blöndungur og kveikja vinni ná-
kvæmlega rétt er, að loftið hafi
greiðan aðgang að blönd-
unum, og það er einmitt
þetta atriði, sem oft gleymist.
Það sem oftast veldur óeðli-
lega mikilli bensineyðslu er
loftsian. Sé hún ekki hrein
kemstekki i gegnum hana nægi-
lega mikið loft inn á blöndung-
inn, og bruninn verður ófull-
nægjandi. Afleiðingin verður
aukin bensineyðsla og aukin
loftmengun af útblásturs lofti.
Loftsian er „lunga” bilvélar-
innar, — um hana fer það súr-
eíni, sem nauðsynlegt er til þess
að bruni geti átt sér stað. En
hlutverk loftsiunnar er að
hreinsa óhreinindi úr loftinu svo
það komist ekki inn i vélina og
eyðileggi hana (sbr. lungu),
sem sjá má á þvi, að smátt og
smátt verður loftsian dökk af
óhreinindum. Venjuleg fjögurra
strokka vél notar við venjulegan
akstur 30 til 40 milljónir litra af
lofti á ári, og má af þvi sjá, að
óhreinindin, sem eiga að setjast
i hana, hljóta að vera geysi
mikil. Ending loftsiunnar er að
sjálfsögðu mismunandi, — t.d.
endist loftsia, sem eingöngu er
notuð i Sahara, mun skemur en
loftsia sem er notuð á norður-
pólnum. A norðlægum slóðum
er ráðlagt að skipta um siuna
eftir hverja 20 þús. kilómetra,
og getur það hæglega átt við,
þegar eingöngu er ekið á ryk-
lausum vegum. En á sumrin,
þegar menn eru mikið á ferð i
rykmekki þjóðveganna verður
að skipta mun oftar. Góð regla
er að láta lita á loftsiuna i hvert
skipti, sem smurt er eða at-
huguð eða skipt um oliu.
Þjálfaðir stgrfsmenn smur-
stöðvanna sjá nokkuð fljótt,
hvort nægir að blása úr siunni an kostar ekki meira en 3-400
með þrýstilofti eða hvort skipta krónur, en vélin kostar tugi
Þarf. Það borgar sig að skipta þúsunda og jafnvel hundruð
oftar en nauðsynlegt er talið, si- þúsunda.
Hafið eftirlit með loftsíunni
ENN QN FÚRMN
Á BIÖTSTALLI
KAPPAKSTURS
íoreldri, en faðir hans rak
ásamt bróður sinum snyrti-
vörufyrirtækið Revlon þar til
fyrir 15 árum, en siðan hefur
hann rekið eigið snyrtivöru-
fyrirtæki. Peter er annar
sonurinn, sem ferst á
kappakstursbraut, en yngri
bróðir hans, Martin, fórst i
Hollandi árið 1970.
Revson var mjög á uppleið
sem kappakstursmaður, en
hann hóf að keppa árið 1960.
Braut hann þá allar brýr að baki
sér og gerðist atvinnu-
kappakstursmaður gegn vilja
foreldra sinna. Hann settist að i
London og bjó i ibúð með
kappakstursmönnunum Chris
Amon, Tony Maggs og Mike
Hailwood. Revson vann fyrstu
grand prix sigra sina i fyrra, —
breska grand prix á Silverstone
i júli og Kanada grand prix i
september. Þá sigraði hann
Can-Am keppnina árið 1971.
Peter Revson, ásamt
unnustu sinni/ Marjorie í
Wallace/ sem er fyrr- /
verandi Ungfrú heimur. f
Enn eitt hörmulegt
kappakstursslysið varð föstu-
daginn 22. mars á Kyalami
brautinni við Jóhannesarborg.
Bandarikjamaðurinn Peter
Revson missti stjórn á bil
sinum, sem er af gerðinni Ford-
U.O.P. Shadow, þegar hann var
i reynsluakstri fyrir Suður-
Afriku grand prix, með éim af-
leiðingum, að hann lenti á
öryggisgirðingunni valt á nærri
250 km hraða og varð alelda á
svipstundu.
Tveir fyrrverandi heims-
meistarar i formula 1 akstri,
þeir Graham Hill og Emerson
Fittipaldi voru á brautinni,
þegar slysið varð. Þeir stöðvuðu
þegar í stað og fóru að
brennandi flakinu, tókst að
draga Revson út, en hann dó á
leið á sjúkrahús. Haft er eftir
Hill, að honum hafi virst sem
eitthvað hafi orðið að fjöðrunar-
búnaði bils Revsons, og á hjól-
förum á brautinni mátti sjá, að
billinn hafði skriðið til áður en
hann lenti á girðingunni.
Peter Revson var 35 ára
gamall, trúlofaður bandarisku
fegurðargyðjunni Marjorie
Wallace, sem er nú Ungfrú
heimur. Revson var af auðugu
Árnessýsla. Þar kæmu inn i
keppnina erfiðleikar á að rata
rétta leið, en að sjálfsögðu er
rétt að hafa hana sem
erfiðasta og vandrataðasta.
Sparaksturskeppni eins og sú,
sem Akurnesingar héldu fyrir
nokkrum árum og var fólgin i
þvi að aka á vissum fjölda
litra inn Hvalfjarðaströnd, er
ekki vænleg til að vekja áhuga
fólks.
KYNNING Á BÍLUM ÁRGERÐ 1974, MEÐ U
LÝSINGUM UM VERÐ, HÁMARKSHRAÐA,
BENSÍNEYÐSLU, VÉL, STÝRISÚTBÚNAÐI, FJ
O.FL. ATRIÐI, FRÁ 16 BÍLAINNFLYTJENDU
Sunnudagur 12. maí 1974.