Alþýðublaðið - 12.05.1974, Page 7

Alþýðublaðið - 12.05.1974, Page 7
! Með öryggi og hagkvæmni að einkunnarorði Nokkur undanfarin ár hafa bilaframleiðendur einbeitt sér að þvi að gera bila sina sem öruggasta, og hafa þeir náð nokkrum árangri i þvi. Nú hefur annað atriði bæst við, sem þarf umhugsunar við. Það er elds- neytissparnaður. A bilasýningu i Genf, sem haldin var fyrir stuttu, og hafði einkunnarorðin „öryggi”, var meðal annarra bila þessi bill frá Ford. Þar er ekki einungis tekið tillit til öryggisins, heldur einnig elds- neytissparnaðarins, sem nefndur var. Billinn er hannaður hjá hönnunarmiðstöð Fords, Giha i Torino og er nefndur „Coins”. Hann er þriggja sæta sportbill, og með hagkvæmni og öryggi i huga tókst að gera hann sér- staklega léttan eða aðeins 650 kg. Það þýðir, að vélin þarf ekki að vera nema 40 hestöfl, en samt er hámarkshraðinn 120 km/klst. Aðeins einar dyr eru á bilnum, og eru þær að aftan. Með þvi að opna dyrnar opnast einnig vélarhús og farangurs- rými. Byggingarlagið gerir það að verkum, að yfirbyggingin verður mjög sterk og örugg, en hinsvegar verða menn að vera hálfgildings fimleikamenn til að komast inn i bilinn og út úr honum. Sterk veltigrind yfir byggingunni til enn frekari styrktar. Glerhaf er mikið á „Coins”, sem gerir það að verkum, að út- sýni úr bilnum er mjög gott. Ein rúðuþurrka er á framrúðunni, en hún er af sömu gerð og er notuð á stórum flutningabilum, og hreinsar 60% af yfirborði rúðunnar. Af öðrum forvitnilegum at- riðum má nefna, að venjulegt mælaborð fyrirfinnst ekki i bilnum, en öllum mælum hefur verið komið fyrir i tveimur stórum mælum með ljósatölum, sem fljótlegt er að lesa á. „Coins” er 3,74 m langur, 1,88 m breiður og hæðin er aðeins 1,06 m. Ford hefur ekki i hyggju að hefja f jöldaframleiðslu á „Coins”, enda er það heldur ekki mögulegt með þeirri tækni, sem þekkist nú. Það helsta, sem nútima fjöldaframleiðslu- tækni ræður ekki við, eru rúðurnar i bilnum. ÞANNIG ER REYNT AÐ TRYGGJA ORYGGIFOR- MULA 1 ÖKUMANNANNA Þriggja manna framtíöasportbíll frá Ford öryggið hefur algjöran forgang i kappakstrinum eins og annars staðar i bilaheim- inum, og sifellt er unnið að auknu öryggi kappaksturs- manna. Það er heldur ekki van- þörf, á, þvi hraðinn er oft vel yfir 300 km á klst. hjá þeim kappakstursmönnum, sem aka formula 1 bilum. Og kapp- akstursmennirnir sjálfir hafa að sjálfsögðu mikinn áhuga á eigin öryggi. 1 fyrra gekk það meira að segja svo langt, að samtök formula 1 ökumanna neitaði að keppa, eftir að Eng- lendingurinn Williamson fórst i Grand prix keppni i Hollandi i fyrra, nema samþykkt yrðu ýmis ný öryggisatriði. — En samt halda þeir áfram að drepa sig á kappakstursbrautunum. En sem betur fer sleppa þeir oftar lifandi frá óhöppunum, og i tilefni siðasta slyssins i formula 1, sem sagt er frá annars staðar á siðunni, segjum við hér lítillega frá þvi þegar Sviinn Ronnie Peterson missti JPS Lotusinn sinn út af braut- inni, þegar hann var að reyna ný regndekk fyrir Kanada grand prix i fyrra. Billinn snerist i beygju, en Petersen slapp með skrámur,tókst á loft og hafnaði við öryggisgirðing- una. I John Special Lotus erý tiu öryggisatriði mikilvægust: 1 Veltigrind, sem gerð er úr 4-5 mm þykku stáli (Peterson sagði eftir óhappið, að sennilega sé betra að hafa grindina ekki úr stáli, heldur efni, sem ekki neistar af. Liklegt er talið, að neisti frá öryggisbil Williamson hafi kveikt i bensininu, sem rann úr tanki bilsins, þegar hann valt, og þannig átt sök á dauða hans). 2. Sex punkta öryggisbelti með lás i miðju, sem opna má með einu hand- taki. Þegar ökumaðurinn er spenntur niður getur hann varla hreyft sig. 3. Slökkvitæki, sem fer sjálfkrafa af stað með hjálp hitaelements. Lika má setja tækið af stað með handfangi, sem er staðsett milli fóta öku- mannsins. 4. Samkvæmt reglunum verður að vera á öllum formula 1 bilum hringur, fylltur höggdeyfandi efni, i kringum ökumanninn. 5. Elds- neytisgeymarnir mega ekki taka nema 80 litra hver, og eru þeir umkringdir plastmassa, sem kemur i veg fyrir, að elds- neytið leki i burt þótt gat komi á tankinn. 6.Súrefnisgeymir, sem tengdur er i hjálm ökumanns. Geymirinn opnast um leið og slökkvitækið, þ.e. þegar eldur kviknar. Eldurinn getur orðið svo bráður, að hann eyðir öllu súrefni frá ökumanninum á svipstundu. 7. Eins og á mörgum venjulegum fólks- bilum er öryggisstýri á JPS Lotus, sem gefur eftir við högg. 8. Öryggisboltar eru á milli dekks og felgu, og heldur hann dekkinu kyrru ef springur. Þetta gerir það að verkum, að unnt er að stýra bilnum þótt dekk verði vindlaust. 9. Þétti- massi, sem sprautast i dekkin, ef springur, er nýjasta upp- finningin frá Goodyear.Massinn kemur i veg fyrir, að loftið leiki út, með þvi að setjast i gatið á slöngunni. Þetta hefur verið reynt á þann hátt, að skrúfjárn var rekið i gegnum dekk, og siðan var hægt að aka bilnum á 180 km hraða. 10. Tvöfalt hemlakerfi er á Lotusnum eins og mörgum nýrri fólksbilum, en sá er munurinn, aðþaðerekkii kross eins og venjulega, heldur eru framhjólin á sjálfstæðu kerfi á móti sjálfstæðu kerfi á afturhjólunum. RÉDST í ÚTGÁFUNA VEGNA GÍFURLEGRAR BÍLADELLU bílará íslandi 74 Rétt i þann mund er prentara- verkfallið var að skella á, kom i bókabúðir bæklingur með nafninu „Bilar á Islandi ’74” þar sem kynntar eru velflestar nýjar gerðir bila, sem fluttar eru til landsins, eða 65 gerðir og undirgerðir frá 16 innflytj- endum. 1 bæklingnum er getið um verð bilanna, miðað við miðjan febrúar sl., þjóðerni, viðbragð (0-100), hámarkshraða, eldsneytiseyðslu, byggingu, tæknilegar upplýsingar um vél, girkassa, stýrisútbúnað, fjöðrun, rafkerfi, mál bilsins og umboðsmann. Útgefandi bæklingsins er Hafliði Benediktsson, og segir hann i formála, að astæðurnar fyrir þvi, að hann tók sér fyrir hendur að gefa hann út séu fyrst og fremst gifurleg biladella, áberandi skortur á bíla- sýningum, tilfinnanlegur skortur á samanþjöppuðum upplýsingum um bila, sérstak- lega fyrir þá, sem búa utan Reykjavikursvæðisins. Vist er, að bæklingur sem þessi er mjög gagnlegt framtak, þvi þarna má á fljótlegan hátt fá samanburð á verði og tækni- legum útbúnaði og að sjálfsögðu útliti. Þetta kemur þeim að sjálfsögðu best, sem ekki geta þrætt bilaumboðin til að fá upp- lýsingar, en hinsvegar er það öllum ómetanlegt að geta hug- leitt i ró og næði heima hjá sér, hvaða bilar koma helst til greina, þegar menn eru i kaup- hugleiðingum. — Það er hins- vegar mikill galli, að sumir um- boðsmenn hafa látið undir höfuð leggjast að senda út- gefanda upplýsingar um vöru sina, og þvi vantar algenga og vinsæla tegund eins og t.d. Fiat. Bæklingurinn er mjög þokka- legur i útliti, 36 siður, auk kápu- siða, og prentaður á góðan pappir. 1 uppsetningu er hann langt frá þvi að vera frumlegur, en danski bæklingurinn „Bil revyen” virðist vera tekinn all nákvæmlega til fyrirmyndar. Það er þó siður en svo bæklingn- um til lasts, þvi „Bil revyen” er mjög þokkalega og hreinlega sett upp. Hinsvegar hefði út- gefandi „Bila á tslandi” Forsiða hins nýja bila- blaðs kannski mátt taka „Bil revyen” sér enn meir til fyrirmyndar og birta stuttar fræðslugreinar um bilinn og vélina þar sem ýmis atriði i bilakynningunni eru skýrð nánar, og stuttar leið- beiningar varðandi val á nýjum bll. — Verð kr. 125.00. / Sunnudagur 12. maí T974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.