Alþýðublaðið - 04.07.1974, Blaðsíða 2
14 km olíubornir austur í Flóa næsta sumar
Malbikið teygir sig
í sveitir
Hljómar og
kirkjukórar
á þjoöhatíö
Suðurnesja
Þjóðhátið Suðurnesjamanna
verðurhaldin helgina 6.-7. júli
og hefst með dansleikjum i
Stapa i Njarðvik og Festi i
Grindavik á laugardaginn kl.
22.00.1 Festi leika Hljómar og
Stuðlatrió i Stapa. útihátiö fer
siðan fram i Svartsengi við
Grindavik sunnudaginn 7. júli
og verður sett kl. 2. Að setn-
ingu lokinni verður helgistund
i umsjá sóknarpresta og
kirkjukóra af svæðinu. Þá
flytur Guðlaugur Þorvaldsson
háskólarektor ræðu. Að henni
lokinni syngur Haukur Þórð-
arson einsöng. Þá flytur Krist-
inn Reyr skáld frumsamið
hátiðarljóð og Karlakór Kefla-
vikur syngur undir stjórn
Geirharðs Valtýssonar. Þá
leika Hljómar frá Keflavik
fyrir unglingadansi og að þvi
loknu les Helgi Skúlason leik-
ari upp. Að lokum verður
glimusýning, sem flokkur úr
Vikverjum sér um.
Aðgangur að útihátiðinni er
ókeypis, en seld verða merki
hátiðarinnar, sem er barm-
merki úr málmi. Veitingar
verða á staðnum og einnig
verða kaffiveitingar i Sam-
komuhúsinu Festi allan eftir-
miðdaginn. A Sunnudagskvöld
verða dansleikir i Festi þar
sem Hljómar leika og i Stapa,
þar sem Stuðlatrió leikur og
hefjast dansleikirnir kl. 21.00.
austur
í gær voru opnuð til-
boð í lagningu 14.0 km
kafla Suðurlandsvegar i
Flóa. útboðið var miðað
viðað Ijúka verkinu í lok
september 1975.
Tilboð bárust frá 4 aðilum,
frá Aðalbraut hf. að upphæð
kr. 173.657.000, —, frá Istaki
hf. og Sveinbirni Runólfssyni
sf. að upphæð kr. 169.978. 020,
— frá Miðfelli hf.,' Veli hf. og
Vörðufelli hf. að upphæð kr.
189.005. 000, —og frá Ýtutækni
hf. að upphæð kr.
175.404. 500,—. Aætlun Vega-
gerðar rikisins, gerð af Al-
mennu verkfræðistofunni hf.,
var kr. 156.906. 000,—
Nú eru það
gallafötin
sem gilda
Við sögðum frá hér á
síðunni í gær, að stutt-
buxurnar og stuttu pilsin
væru gersamlega horfin
og þætti mörgum miður.
En okkur varð á að
gleyma því sem er kom-
ið í staðinn, því ekki fór
svo að kvenfólkið legði
buxurnarog pilsin á hill-
una og færi ekki í neitt í
staðinn.
Nú eru það nefnilega
gallabuxurnar og jakkar
úr kakí, denim eða
gallabuxnaefni, eins og
flestir kalla það og allir
skil ja.
Gengur þessi tíska svo
langt að nú eru sam-
kvæmisjakkar jafnvel
sniðnir úr þessu efni,
svo það gengur orðið
jafnt við skurðgröft og
brúðkaup. Vinsældir
gallabuxnaef nisins
ganga nú orðið út fyrir
fatnað eingöngu, þvi nú
eru fáanlegir nýir bilar
með gallabuxnaefni á
sætum og hurðaspjöld-
um. — Mynd: Friðþjóf-
ur
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
BLOMAHUSIÐ
Simi 83070
Skipholti 37
Opið til kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
Fyrsta íslenska konan
sem verður dýralæknir
Þann 21. júni siðastliðið ár lauk islensk kona glæsilegu
lokaprófi frá Den Kongelige Landbrugshöjskole i Kaupmnna-
höfn. — Kona þessi er Eufemia Hannah Gisladóttir, dóttir
Betty og Gísla Hermannssonar, Laugarnesvegi 74, Reykja-
vik. — Eufemia er þegar byrjuð að vinna á rannsoknarstofu
bjá Den Kongelige Landbrugshöjskole, samtimis sem hún
vinnur sem slysavörður að næturlagi.
Eufemia er gift og á eina dóttur 3 ára að aldri.
Þetta rákumst við á i nýjasta tölublaði Húsfreyjunnar.
Heill bar fluttur
frá Reykjavík til
Akraness
Fréttamönnum og nokkrum
gestum var boðið að skoða
breytingar þær, sem gerðar
hafa verið á Hótelinu á
Akranesi. Má segja, að um
nýbyggingu sé að ræða, svo
mjög hefur þvl verið breytt og
að öllu leyti til hins betra.
Gistirými hefur verið stórbætt
og skemmtanasalur endur-
byggður, m.a. með nýrri, full-
kominni loftræstingu. Kaffi-
terian er mjög nýtiskuleg og
einnig hefur verið komið upp
fádæma snotrum bar og er það
Vínlandsbarinn af hótel Loft-
leiðum Halldór Július-
SOn, framkvæmdastjóri
hótélsins, kynnti gestum
framtiöaráform i rekstrinum.
Benti hann m.a. á þá mögu-
leika, sem sköpuðustu með
tilkomu hinnar nýju Akra-
borgar og opnun svo glæsilegs
hótels. Væri t.d. tilvalið fyrir
góða eiginmenn að bjóða
konum sinum i helgarferð á
Skagann. Þá skapaðist gott
tækifæri til ráðstefnuhalds,
vilji menn skreppa af höfuð-
borgarsvæðinu, þó ekki væri
nema einn dag.
Bæjarstjórinn á Akranesi,
Gylfi ísaksson, þakkaði fyrir
hönd gesta og lýsti ánægju
sinni yfir þessum menningar-
auka á Akranesi. Er vonandi,
að Akurnesingar og aðrir meti
þetta framtak og stuðli að
reisn þessa stórendurbætta og
nánast nýbyggða hótels.
DUftA
í GlfEflBflE
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐVERZLA f KR0N
/ímí 04200
©
Fimmtudagur 4. júlí 1974