Alþýðublaðið - 11.08.1974, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 11.08.1974, Blaðsíða 5
Háhyrningar Þó að menn hafi mikinn visindaáhuga á háhyrningum, óttast þeir sivaxandi um eyðileggingu kynstofnsins vegna ofveiði. mánaða voru trynis- frumur búnar að ná eðli- legri lögun og lit. Þetta hefur mjög víðtæka merkingu, því að vísinda- mönnum kemur saman um það, að hætta sé á krabbameini, þegar frumurnar endurnýjast hratt — og samt hefur aldrei sést krabbavottur í háhyrningi. Fiskirannsóknar- stofnunin í Kanada hefur allt frá því 1971 haldið uppi talningu og staðsetningu háhyrninga- torfna, og séð um talningu á háhyrningum í Austur-Kyrrahaf i. 16 þús. spurningalistar voru lagðir fram, sem áttu að ná yfir þriggja daga tímabil. Ein skýrslán sýndi, að rúmlega 360 hvalir sáust í hafinu við Bresku Kolumbíu, 114 við Washington fylki, enginn í Oregon, 13 í Kaliforniu og 62 í suðlægum hluta Alaska (alls549). ( hverri torfu voru að meðallagi 25 einstaklingar og nær allar torfurnar sáust innan 20 mílna frá ströndinni. (Það að svo mikið sást í sjónum við Kanada gæti verið árangur fleiri manna við athuganirnar). Þessi könnun er hluti af víðtækum könnunum á sjódýrum með heitt blóð, sem dr. Nichael Biggs og félagar hans við Fiskveiðirannsóknar- stofnunina í Kanada hafa gengist fyrir. Nú geta yfirvöld á hverjum stað gefið út leyfi til að veiða hahyrninga í þeirri von, að unnt sé að halda aftur af sam viskulausum veiðimönnum, sem reyna að hagnast á $ 20.000 greiðslu, sem sum sædýrasöfn vilja greiða fyrir lifandi háhyrning. Frekar verður þó gengið i könnun á lifnaðarháttum háhyrninga með því að festa við þá senditæki. Þetta er mikill leiðangur sem gerður er út til að fylgjast með hvölunum bæði af skipi og úr flug- vél. Hvalirnir eru merktir i þeirri von, að til þeirra verði sagt, ef þeir sjást og fylgst með þeim á Vesturströnd Banda- ríkjanna. Merkingin er gerð með kælingu og um leið hverfa svörtu f rumurnar í bakugganum og verða hvítar. Alla haf líff ræðinga langar til að vernda háhyrningana þóað áhugi Kandada- og Bandaríkja- manna á þessum hvölum séu bæði visindalegs- og mannlegs eðlis, halda Norðmenn og Japanir áfram að veiða þá til matar. Dr. Biggs segir: ,,Ég held, að fólkið vilji ekki láta veiða þessa hvali til fæðu og lýsis- framleiðslu. Það er litið gagnrýnisaugum á sævardýr með heitu blóði hér í Bandaríkjunum." Efst t.v. 2350kilóa háhyrningur aðstökkva yfir streng I sundlauginni sinni. T.h.: Mike Connor, þjálfari, riður Shamu og heldur sér fast, þegar hvalurinn kafar ofan á9 metra dýpi og þýtur örhratt upp á yfirborðið. Það tók hann rúmt ár að þjálfa dýriötil þessa. Neðst t.v.: Hér er veriðaðbúa háhyrning undir læknisrannsókn á rannsóknarstofu I Kanada. T.h.: Einn háhyrninganna er albinói. Sunnudagur 11. ágúst 1974 ©

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.