Alþýðublaðið - 11.08.1974, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.08.1974, Blaðsíða 6
BÍLAR OG UMFERÐ Reynsluakstur Alþýðublaðsins: Datsun 260Z 2 + 2 Erfitt að halda honum á löglegum hraða Þótt Islendingar hafi fengið á sig orð fyrir að kaupa mikið af dýrum „lúxusbilum ” hefur hingað til ekki borið mikið á þeim flokki „lúxusbila”, sem dýrastir eru fjöldaframleiddra bila. Þvi má segja, að i bilaflota landsmanna vanti svotil alveg hina svonefndu sportbila, að ekki sé talað um „háaðalinn” i þeim hópi, bila eins og Porsche Carrera, Alfa Romeo, Ferrari og Lotus, svo fáir einir séu nefndir. Þó sést einn og einn sportbill á götum Reykjavikur, en nær ein- göngu af ódýrari gerðunum. Það er ekkert furðulegt, að Is- lendingar hafi litið gert af þvi að kaupa sportbíla, þeir henta vægast sagt illa fyrir islenska vegi, — utan borgarinnar ná þeir vegir varla 200 kiló- metrum, sem eru slikum bilum bjóöandi. Núna nýlega var þó bætt að- eins úr sportbilaskortinum, þegar til landsins kom nýjasti sportbillinn frá Nissan verk- smiðjunum i Japan, Datsun 260 Z 2+2. Þessi sportbill, sem um- boðsmaðurinn fyrir Datsun bila, Ingvar Helgason, flutti inn, er að þvi leyti frábrugðinn flestum öðrum sportbilum, að hann er beinlinis sniðinn fyrir svonefnda „rallykeppni” eða þjóðvega- keppni, enda hefur hann verið sigursæll á þeim vettvangi, sigraði m.a. Austur-Afriku- safarikeppnina i vetur. Þessi bill, sem Ingvar hefur flutt til landsins, er ný og endur- bætt útgáfa af Datsun 240 Z, og framleiðsla á honum er svo ný- lega hafin, að hann hefur fram- leiðslunúmerið 41. Breytingarn- ar frá fyrri gerð, þ.e. Datsun 240 Z, sem reyndar var á bilasýn- ingu Bilgreinasambandsins fyrir tveimur árum en siðan sendur út aftur, eru ekki ýkja miklar. Þó hefur verið gerð sú breyting, að hann rúmar nú þrjá farþega I stað eins áður, en þannig er einkennið 2+2 til komið. Til þess að fá þetta aukna rými hefur þaki bilsins verið lyft nokkuð þannig, að „krypp- an” að aftan hefur aukist. Þá hefur rúmtak vélarinnar verið aukið úr 2400 ccm i 2600 ccm, og þar með hestöflin úr 151 SAE i 162 SAE. Snúningurinn hefur lika verið aukinn úr 5600 snún/min i 6500 snún/min. Innréttingunni hefur litið verið breytt, — eina breytingin er sú, að stýrið og handfangið á gir- stönginni voru úr ljósum við, en öryggisins vegna eru þessir hlutir úr hinu venjulega plasti, en leðurklæddir. Innréttingin sver bilinn mjög skemmtilega i ætt við aðra „göfuga” sportbila, og öllu komið fyrir þannig að það liggi sem best fyrir augum og hönd- um. Hraðamælir og snúnings- hraðamælir eru beint fyrir framan ökumann, em fjórir minni mælar eru staðsettir fyrir miöju, þ.e. bensin-, vatnshita-, oliuþrýstings- og ampermælir, auk rafmagnsklukku. t fljótu bragði séð virðast framsætin halda nokkuð vel að likaman- um, þótt það verði ekki full- reynt, nema á langri keyrslu, og samkvæmt bandariskum öryggiskröfum eru bökin há og enda i hnakkapúða. Aftursætið er svipað og i öðrum sportbil- um, þ.e. frekar mjótt og fóta- rúm lttið, en á styttri leiðum á að fara þokkalega um mann þar. Til þæginda fyrir þá, sem sitja aftur i er ein af einföldum en snjöllum hugdettum Japan- anna. Þeir hafa komið fyrir tveimur hurðarhúnum á hurð- unum, annar er aftast og efst fyrir farþegann aftur i, en hinn neðarlega og framarlega á hurðinni, á mjög þægilegum stað fyrir ökumann. Girstöngin er á breiðum, leðurklæddum stokk á milli framsætanna, stutt og mjög lip- ur. Girarnir eru fimm áfram, og er sá fimmti yfirgir með hlut- fallinu 1:1. Reyndar má segja, að i venjulegum innanbæjar- akstri i Reykjavik nægi þrir fyrstu girarnir, — I þriðja gir heyrist ekki I vélinni þótt ekið sé á vel 100 km. hraða, og hámarkshraði á þeim gir er varla undir 150 km. hraða. Inn- sogið er á mjög frumlegum stað, eða á stokknum rétt aftan við girstöngina. Hinsvegar var ég ekki alveg sáttur við stað- setningu handbremsunnar, en hún er farþegamegin við stokk- inn á milli sætanna, og þar sem sætin eru lág kemur átakið á handbremsuna dálitið óþægi- lega út. Eins og svo mjög tiðkast nú á öllum gerðum biía er Datsun 260 Z af svonefndri „hatchback” gerð (öllu heldur það sem kallað er þvi nafni i Bandarikjunum, en annað orð yfir þetta fyrir- brigði hef ég enn ekki heyrt), — þ.e. afturhlutinn er opnanlegur, og er þá hægur aðgangur að far- angursrými, sem um leið er inni ibilnum sjálfum og nýtist þann- ig betur en venjulegt „skott”. Af þessum sökum er Datsuninn enginn „tannburstabill” eins og svo margir sportbilar, en sagt er, að i marga sportbila sé ekki hægt að koma meiri farangri en tannburstanum. Af þessari siðasttöldu ástæðu er notagildi Datsun 260 Z þegar orðið talsvert meira en margra annarra sportbila, og þar við bætist, að hann er ekki sniðinn viö akstur á steinsteyptum veg- um eingöngu, eins og segir i upphafi er billinn sannkallaður „rallybill”, og þótt þyngdar- punkturinn sé neðarlega eins og tiðkast á sportbilum er hæð undir lægsta punkt rúmir 16 sentimetrar. Afturhjólin eru á svonefndum „fljótandi” öxlum, og það þýðir að drifkúlan er mun hærra staðsett en þegar afturöxullinn er stifur eins og yfirleitt er á afturhjóladrifnum bilum. Fjaðrabúnaður er gorm- ar að framan og aftan, og eru þeir tengdir jafnvægisörmum. Diskahemlar eru að framan en borðar að aftan. Um aksturseiginleikana get ég varla dæmt eftir stutta öku- ferð á góðum vegi, og auk þess var billinn nýr og ókeyrður, svo ekki var óhætt að þeyta vélina að nokkru marki. A Vestur- landsveginum reyndi ég þó að gefa honum inn eins og ég taldi óhætt og komst að þvi, að jafn- vel þótt vélin væri ekki látin snúast hraðar en helming þess hámarkssnúnings, sem gefinn er upp á snúningshraðamælin- um, var billinn kominn uppund- ir 150 km. hraða, þegar skipt var i fjórða gir. Vélin virtist varla vera meira en i lausa- gangi, þegar komið var á þenn- an hraða, enda ekki nema f tæp- lega 4000 snúningum, og ekki var annað að finna en endalaust væri hægt að bæta við hraðann. En jafnvel þótt þessi sportbill sé nothæfur hér á malarvegun- um okkar kynnu menn nú að spyrja sem svo, hvaða vit sé i þvi að kaupa hingað bil á 1,7 millj. króna, bil sem tekur að- eins þrjá farþega og er aðallega byggður með hraða fyrir augum — hér á landi er hæsti hámarks- hraði ekki meiri en svo, að á Datsun 260 Z er hægur leikur að brjóta allar reglur um há- markshraða án þess að skipta úr öðrum gir. Svo sannarlega er ekki mikið vit i þvi, — bilar sem kosta hálfa miljón gegna full- komlega þvi hlutverki, sem bil- um er ætlað að gera. — En ætti ég tvær milljónir aukalega væri freistingin stór. o Sunnudagur 11. ágúst 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.