Alþýðublaðið - 15.09.1974, Page 5

Alþýðublaðið - 15.09.1974, Page 5
AÐ TJALDABAKI UM VIÐRÆÐUR UG VINÁTTUTENGSL (eða Fóstbræðrasaga hin nýja) Fagrir draumar fá oft fljótan endi. Fáir spillast þó fyrr en draumar stjórnmálamanna um þúsund ára rikin. Þannig entist þúsund ára riki Adolfs Hitlers ekki nema u.þ.b. sex ár — og þúsund ára riki Eysteins Jóns- sonar ekki nema helming þess tima; án þess að verið sé að gera tilraun til þess að jafna þessum tveimur draumamönn- um saman. Það er engum vafa undirorp- ið, að um margra ára skeið var það hjartfólgnasti draumur Ey- steins Jónssonar að frysta Sjálf- stæðisflokkinn úti úr islenskum stjórnmálum um langan aldur. Hann lagði sig fram um það að náðst gæti fóstbræðralag með Framsóknarflokknum og vinstri flokkunum, sem svo sterklega yrði njörfað saman, að bræðralagsböndin gætu hald- ið um langan aldur og þannig komið i veg fyrir stjórnaraðild Sjálfstæðisflokksins um lengri tfma. Að sjálfsögðu átti Fram- sóknarflokkurinn að leika for- ystuhlutverkið i þessari vinstri samfylkingu — og þar með hafa á hendi það málamiðlunarhlut- verk, sem til þyrfti svo halda mætti samfylkingunni saman. Fóstbræðralag af þessu tagi tókst með Alþýðubandalaginu og Framsóknarflokknum i stjórnarandstöðu þessara flokka á árum viðreisnarstjórn- arinnar. Þórarinn Þórarinsson og Magnús Kjartansson urðu þar eins og samvaxnir tviburar og Eysteinn hélt niðri öllum óánægjuröddunum i Framsókn- arflokknum vegna of náinna tengsla flokkanna tveggja. En samvinna af þessu tagi var ekkert vandamál að ráði á meðan flokkarnir bábir sátu i stjórnarandstöðu. Það var fyrst þegar þeir komust í stjórnarað- stöðu og gátu farið að valsa með landsins gagn og nauðsynjar sem brotalamirnar fóru að marki að koma I ljós. Að þvl gekk Eysteinn Jónsson vitandi vits og hafði fyrir löngu komist að þeirri niöurstöðu, að eina ráöið til þess að viðhalda fóst- bræðralaginu undir slikum kringumstæðum væri, að for- ystuaðilinn — Framsóknar- flokkurinn —• væri nógu um- burðarlyndurog eftirgefanlegur við „litla bróöur”. Það var þvi ósköp eðlilegt, að stjórnarstörf rikisstjórnar Olafs Jóhannes- sonar einkenndust strax frá upphafi af undanlátssemi Framsóknar I garð helsta sam- starfsflokksins, kommúnista. Þetta var það hlutskipti, sem Framsóknarflokkurinn varð á sig að taka að skoöun Eysteins ef einhver von ætti að vera til þess, að 1000 ára riki vinstri flokkanna gæti á fætur risið á Islandi. Að sjálfsögðu var svo ætlun hans að Alþýðuflokkurinn yrði fenginn með i samstarfið — enda skorti ekki á að eftir þvi væri leitaö I tið rikisstjórnar Ölafs Jóhannessonar. En nú er draumurinn hans Eysteins úti. Hann stóð aðeins i þrjú ár. Það gerðist nokkurn veginn jafnsnemma, að Ey- steinn Jónsson hætti setu á Al- þingi og að formaöur Fram- sóknarflokksins myndaði ihaldsstjórn fyrir formann Sjálfstæðisflokksins að ráðskast meö. Og þann enda hlaut draumurinn e.t.v. fyrst og fremst vegna þess, að þeir menn, sem Eysteinn Jónsson sjálfur hafði valiö til forystu i flokki sinum, höfðu gefist upp við það að reyna að gera draum hans að veruleika — vildu raun- ar aldrei gera alvarlega tilraun til þess að endurvekja nýja og betri vinstri stjórn þótt svo yrði viö landsstjórn og flestir flokkar hafa þörf fyrir að fá tækifæri til sliks af og til. Alþýðubandalagið er þar engin undantekning frá öðrum — en það hefur haft færri tækifæri til þess en aðrir flokk- ar. Alþýðubandalagið naut sin að mörgu leyti vel i rikisstjórninni og var eini stjórnarflokkurinn, sem styrkti stöðu sina með setu i henni. Þvi var eðlilega uppi innan flokksins löngun til þess aö halda áfram og ótti um það, Geir Hallgrimsson: Fóstbræöur skipulögðu sókn gegn honum, en hún rann út i sandinn. að lita út til þess að friða mætti sem mest vinstri öflin i Fram- sóknarflokknum. Var aldrei grundvöllur fyrir nýrri og betri vinstri stjórn? Mikil blaðaskrif hafa oröið um, hvers vegna tilraunir vinstri flokkanna og Framsókn- arflokksins til stjórnarmyndun- ar fóru út um þúfur. Mörg meg- inatriði hafa þar veriö tind til — en mörgu hefur líka verið sleppt, sem e.t.v. hafði ekki minni áhrif. Að sjálfsögðu var það ekki aðeins eitthvað eitt eða tvennt, sem varö til þess, að „vinstri viðræðurnar” urðu ár- angurslausar. Þar kom margt til — bæði smátt og stórt — sem hafði samverkandi orsakir. Alþýðubandal.var t.a.m. mjög tvíbent i málinu — af eðlilegum orsökum. Þar tókst löngunin til þess að vera áfram við völd á við hræðsluna við það að þurfa áfram að stjórna. Stjórnmálaflokkur — Alþýðu- bandalagið sem aðrir flokkar — er stofnaður til þess að reyna sig að ef „vinstri viðræðurnar” mistækjust þá gæti þess verið langt að biða, að flokkurinn fengi annað tækifæri. Eins voru ýmsir Alþýðubandalagsmenn hræddir við það, að ef flokkur- inn heyktist á stjórnarþátttöku, þá myndi um hann verða sagt, að Alþýðubandalagið væri flokkur, sem ekki gæti setið i rikisstjórn vegna þess hve erfitt væri að fá hann til þess að tak- ast á við efnahagsvandamál — og flokkur, sem aðeins getur starfaö I stjórnarandstöðu en vantar bein i nefið til þess að sitja i rikisstjórn i erfiðu árferði á aö sjálfsögöu ekki auðvelt með að ná til kjósenda, þvi fólki finnst hann þá vitaskuld næsta gagnlitill málsvari, þegar á rið- ur. Bæöi þessi sjónarmið — og ýmis fleiri — gerðu það að verk- um, að innan Alþýðubandalags- ins voru talsvert rikari tilhneig- ingar til þess að halda áfram i stjórn og þá með vinstri flokk- unum og Framsóknarflokknum (eöa I nýrri „nýsköpunarkom- binasjón”, sem á tima var tölu- vert velt vöngum yfir, en aldrei reynd ). Meðal þeirra, sem voru þessu heldur fylgjandi innan Al- þýðubandalagsins má nefna hópa svo sem eins og verkalýðs- foringja flokksins, sveitar- stjórnarmenn hans marga hverja og ýmsa menn s.s. eins og Inga R. og Guðmund Hjart- arson, sem mjög fást við fjár- mál — bæði flokksins og á opin- berum vettvangi. Þessir menn gerðu sér að sjálfsögðu grein fyrir þvi, að ef Alþýðubandalag- ið ætlaði sér að sigla inn i nýja rikisstjórn — með hverjum svo sem það yrði — þá yrði flokkur- inn að vera reiðubúinn til þess að slaka töluvert mikið á i ýms- um stefnumálum sinum, t.d. varðandi varnarstöðina á Keflavikurflugvelli. 1 þeirra augum var þaö engin frágangs- sök. En þetta var hvergi nærri sjónarmið allra Alþýðubanda- lagsmanna. Ráðamiklir menn voru þar mjög á öndverðum meiði. Kom þar ýmislegt til. Nokkur hópur Alþýðubanda- lagsmanna óttaöist það t.d. mjög, að óhjákvæmilegt væri að grlpa til þeirra úrræða i efna- hagsmálum, sem flokkurinn ætti erfitt með aðstanda að. Það hefur ávallt verið stefna Al- þýðubandalagsins þegar efna- hagserfiðleikar hafa steðjað að þjóðarbúinu að neita að horfast i augu við vandamálið I heild sinni, vera ófáanlegt til þess aö eiga aðild aö umfangsmiklum heildaraðgerðum sem miða að frambúðarlausn, en setja allt sitt traust þess i stað á „smá- skammtalækningar”, sem að- eins megna að halda öllu nokk- urn veginn fljótandi frá degi til dags — I von um, að eitthvaö það gerist, sem bjargað geti öllu við. Þetta var sú stefna, sem flokkurinn fylgdi i efnahags- málum öll þau þrjú ár, sem hann sat I ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar. Þessi stefna — sem stundum getur vissulega tekist ef heppnin er með — hafði leitt til þess, að menn höfðu að- eins ýtt vandanum á undan sér uns svo var komið, að Ólafur Jó- hannesson lýsti þvi skýrt og skorinort yfir i viðræðunum, að ástandið væri nú orðið þannig, að hann tæki ekki lengur i mál „smáskammtalækningar” Al- þýöubandalagsins heldur yrði nú aö móta heildarstefnu til þess að starfa eftir. Flokkur, eins og Alþýðubandalagið, sem I eðli sinu er I rauninni ávallt stjórnarandstöðuflokkur i efna- hagsmálum hvort heldur hann er innan eöa utan rikisstjórnar hefur að sjálfsögðu i röðum sin- um fólk, sem alls ekki getur til þess hugsað að þurfa að opna sitt blinda auga, viöurkenna vanda, sem flokkurinn og það hefur staðfastlega haldiö fram að ekki sé til og bera ábyrgð á einhverri heildarstefnumótun til lausnar á honum. t annan stað er svo i Alþýðu- bandalaginu fjölmargt fólk, sem aöeins á sér eitt mál — and- stöðuna við NATO og varnar- stöðina á Keflavikurflugvelli. 1 augum þessa fjölmenna hóps eru öll önnur mál smámál og vegna vals forráðamanna flokksins á frambjóðendum og málpipum er svo komið, að i forystusveit flokksins, t.a.m. i þingflokknum, er talsvert lið fólks með þennan einspora hugsanagang. Þessi hópur fólks innan Alþýðubandalagsins tók það auðvitað ekki i mál, að Al- þýðubandalagið, sem hafði fengið góða kosningu, kæmi nærri nokkri rikisstjórn, sem ekki herti fremur en slakaði á stefnu þeirrar fyrrverandi i varnarmálunum. „Herinn burt, herinn burt, herinn burt.” Ann- að skipti þennan hóþ ekki nokkru máli. Þessi hópur „einsporung- anna” innan Alþýðubandalags- ins hefur auðvitað sin beinu áhrif á flokkinn, stefnumótun hans og ákvarðanir. En nú bætt- i boði voru, toguðust á i Alþýðu- bandalaginu. Og Alþýðubanda- lagið gat aldrei gert það upp við sig hvort sjónarmiðið ætti að ráða. Jafnvel þegar „vinstri viðræðunum” var formlega lok- ið kom fram ósk frá Alþýðu- bandalaginu um, að þeim yrði 'áfram haldið — en samt engar nýjar hugmyndir eða tillögur frá þvi, sem hefðu getað lagt grundvöll að áframhaldandi til- raunum. Afstaða Alþýðubandalagsins i vinstri viðræðunum var þvi hið tvístigandi „haltu mér — slepptu mér” sjónarmið. Það, að Alþýðubandalagið gerði i raun aldrei upp hug sinn um, Ólafur Jóhannesson: Þrátt fyrir flókna leikfléttu tapaði hann skákinni. ist annað við, sem einnig hrelldi þá flokksforingja, sem höfðu löngun til áframhaldandi stjórnarþátttöku þótt það kynni að kosta tilslökun i varnarmál- unum. Sem sé það, að Samtök frjálslyndra og vinstri manna yrðu meira eða minna utan við rikisstjórnina. Vitað var, að þeim yrði ekki boðið ráðherra- sæti i nýrri vinstri stjórn og þvi mátti ætla, að þau yrðu bæði með henni og móti. En hverju breytti það? Það hefði t.d. breytt þvi, að liklegt er, aö a.m.k. Möðru- vallaarmur SFV hefði rekið harða stjórnarandstöðupólitik gegn rikisstjórninni i varnar- málunum og gagnrýnt hana harðlega fyrir undanslátt i þvi máli. Og þá hefði Alþýðubanda- lagið sem sé verið i hættu um að missa yfir til fylgis við SFV stóran hóp harðlinu-herstöðva- andstæðinga — þess fólks, sem hingað til hefur hvergi fundið pólitiskan verustað fyrir sig, nema innan veggja Alþýðu- bandalagsins. Þvi var það, að lögunin til áframhaldandi stjórnarþátt- töku og óviljinn til þess að sitja áfram i stjórn við þau býti, sem hvort það vildi eða vildi ekki, hafði með öðru talsverð áhrif á þaö, að „vinstri viðræðurnar” urðu árangurslausar. ólafur haföi fyrir löngu hafið undirbúning að samstjórn með Sjálf- stæðisf lokknum. Aðstaða Alþýðuflokksins i viðræðunum var eðlilega tölu- vert miklu einfaldari, en hinna flokkanna þriggja, sem þátt I þeim tóku. Einfaldlega vegna þess, að flokkurinn hafði ekki átt aðild að rikisstjórn þeirra og var nýr aðili i viðræðunum. Mikill vilji var innan Alþýðu- flokksins fyrir þvi, að hann tæki þátt I þessum stjórnarmyndun- artilraunum — þrátt fyrir frek- ar slæma útkomu hans i kosn- ingunum. Aður hafði hann neit- aö að taka þátt i stjórnarmynd- unartilraunum með Sjálfstæðis- flokknum og Framsóknar- flokknum, sem Geir Hallgrims- son bauð til, en nú samþykkti flokksstjórn hans samhljóða að flokkurinn gerði tilraun fyrir sitt leyti til þess að koma á fót rlkisstjórn Framsóknar- flokksins og vinstri flokkanna. Viðræðunefnd Alþýðuflokks- ins var send til þeirra viðræðna með tvö skilyrði fyrir þátttöku Alþýðuflokksins i slikri rikis- stjórn. t fyrsta lagi að snúið yrði frá stefnu fyrrverandi rikis- stjórnar i varnarmálunum og tekin upp ný stefna, sem miðaði að þvi að tryggja áframhald- andi varnir landsins, en þó þannig, að ákveðnar formbreyt- ingar yrðu gerðar á skipan þeirra mála. í öðru lagi að sam- ráð yröi haft við verkalýðs- hreyfinguna um lausn efna- hagsmála. Bæði þessi skilyrði voru ákaf- lega einföld og sjálfsögð frá sjónarhóli Alþýðuflokksins. Hann hafði ávallt verið andvig- ur stefnu fyrrverandi rikis- stjórnar i varnarmálunum og frá þeirri afstöðu hvorki gat hann né vildi hvika. Þá bættist það einnig við, að I kosningun- um höfðu Sjálfstæðisflokkurinn og málgögn hans reynt allt sem þáu gátu til þess að gera Al- þýðuflokkinn tortryggilegan i málinu og Alþýðuflokksmenn voru staðráðnir i þvi að láta slika spádóma ekki á sig sann- ast. Skilyrðið um samráðið við verkalýðshreyfinguna kom til af jafn augljósum ástæðum. I fyrsta lagi var það afstaðan til þess samráðs, sem hafði svipt rikisstjórn ólafs Jóhannessonar þingmeirihluta sinum — og þar tók Alþýðuflokkurinn afstöðu með Birni Jónssyni og verka- lýðsarmi SFV. í öðru lagi var eitt helsta kosningaloforð Al- þýðuflokksins að fyllsta samráð við launþegasamtökin skyldi verða skilyrði fyrir þvi, að flokkurinn tæki þátt i myndun rikisstjórnar að kosningum loknum. 1 þriðja lagi var þetta skilyröi mjög i anda þeirra manna innan Alþýðuflokksins, sem áherslu lögðu á það, að Al- þýðuflokkurinn tengdist nánari böndum við verkalýðshreyfing- una. Og I fjórða lagi var þetta næsta eölileg afstaða flokks, sem nýlega hafði fengið liðs- styrk forseta Alþýðusambands tslands m.a. vegna þeirrar af- stöðu, sem flokkurinn markaði um samráð viö verkalýðshreyf- inguna á s.l. vetri, þegar rikis- stjórn ólafs Jóhannessonar sprakk i loft upp einmitt á þvi að neita um slik samráð varðandi erfiöar efnahagsaðgerðir. Þessi tvö skilyrði voru við- ræöunefnd Alþýðuflokksins fengin með einróma samþykkt flokksstjórnar — og engum Al- þýöuflokksmanni datt annað i hug en að hægt væri að fá við- ræöuaðilana til þess að fallast á þau. Samtök frjálslyndra og vinstri manna voru að visu með i þessum viðræðum um stjórn- armyndun. En þau voru þar sem eins konar áheyrnaraðili — aukahjól undir vagni. Tilvist þeirra þarna var miklu frekar vegna þess, aö þau höfðu átt sæti i rikisstjórn Ólafs Jó- hannessonar, en að liðsinni þeirra væri talið nauðsynlegt — eða jafnvel æskilegt af sumum. I viðræðunum voru þau þvi ávallt heldur utan garna og þvi ekki ástæða til þess að fjalla neitt sérstaklega um þeirra þátt. Gunnar vildi gjarna eftir- láta ólafi forsætisráð- herraembættið til þess að þeir Geir hefðu báðir jafna stöðu þegar á Landsfund kæmi. Og þá er komið að siðasta að- ila viðræðnanna — Framsókn- arflokknum — eða öllu heldur Ólafi Jóhannessyni, persónu- lega. Raunin er nefnilega sú, að i þessum viðræðum sem bæði fvrir þær og eftir er eins og Framsóknarflokkurinn sé ekki raunveruleg stjórnmálasamtök hóps manna, heldur aðeins einn maður — Ólafur Jóhannesson. Stefna flokksins og ákvarðanir hverju sinni ráðast af duttlung- um þessa eina manns. Þeir, sem kynnu að halda, að Ólafur Jó- hannesson sé atkvæðalitill þurradrumbur, léttvægur á hin- um pólitísku metaskálum, fara mjög villur vega. Hann er bæði slunginn og einráður — og sann- leikurinn er sá, að löngu áður en „vinstri viðræðurnar” fóru út um þúfur var hann búinn að gera upp hug sinn um, að svo skyldi fara. ólafur vildi ekki nýja vinstri stjórn. Það er mergurinn málsins. Þetta viðhorf hans er raunar löngu komið fram. Þess fór t.d. að gæta þegar s.l. vor — eftir að inu áfram. Gunnari var jafn mikið i mun að koma i veg fyrir það, að Geir hreppti hnossið —- svo báðir stæðu þeir jafnt að vigi hvað stjórnmálastöðu snerti, þegar kæmi til næsta Landsfundar hjá Sjálfstæðis- flokknum. Þvi gat hann mæta vel sætt sig við það, að Ólafur héldi forsætisráðherraembætt- inu I nýrri rikisstjórn — rikis- stjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins — en þeir Geir báðir jafnsettir fagráð- herrar. Þarna áttu bæði Ólafur og Gunnar þvi sameiginlegra hagsmuna að gæta og tókst með þeim góð vinátta með viðræð- um. Þessar viðræður fóru auðvit- að ekki framhjá Geir og hans mönnum. Þeim var það þvi ekk- ert á móti skapi þegar svo æxl- aðist á Alþingi s.l. vor, að Ólafur missti stjórn á rás viðburðanna, neyddist til þess að slita vin- áttuhjali við Gunnar Thorodd- sen, rjúfa þing og efna til kosn- inga. En vinátta, sem þannig er til Gunnar Thoroddsen: Fóstbræöralagið varö honum næstum aö falli. rikisstjórn hans hafði misst þingmeirihluta sinn. Þá urðu þeir atburðir, sem nú greinir frá. Eins og landslýður veit, þá hafa nú um langan aldur staðiö deilur um forystu Sjálfstæðis- flokksins — fyrst milli Jóhanns Hafsteins og Gunnars Thorodd- sen og nú milli Geirs Hallgrims- sonar og Gunnars. Þessi átök um forystuna koma oft fram með harla einkennilegum hætti — m.a. þannig, að oft er vin- samlegra milli hlutaðeigandi aðila og manna i öðrum stjórn- málaflokkum en á milli flokks- bræðranna innbyrðis. Um nokkurt skeið hafði verið méinlitið milli ýmissa manna i forystu Framsóknarflokksins, m.a. ólafs Jóhannessonar, og Gunnars Thoroddsen. Þvi var það, að eftir að rikisstjórn Ólafs missti þingmeirihluta sinn i vor, þá byrjuðu viðræður milli Ólafs og Gunnars um hugsanlega nýja rikisstjórn — stjórn Framsókn- ar og ihalds. Báðir höfðu þar tafl að tefla. Ólafi var mikið i mun þá, sem siðar, að verða forsætisráð- herra I slikri rikisstjórn — að halda forsætisráðherraembætt- stofnað, reynist talsvert lifseig. Þvi var það, að er Geir Hall- grimsson bauð Framsóknar- flokknum og Alþýðuflokknum til viðræöna um stjórnarmyndun að kosningum loknum, þá svar- aði ólafur með bréfi, þar sem engin efnisleg ástæða var gefin fyrir höfnun Framsóknar- flokksins á boðinu en Geir i rauninni veitt ruddalegt af- svar. Um þessar mundir voru tald- ar likur á þvi að unnt kynni að reynast að koma nýrri vinstri stjórn á laggirnar og vera kann, að ólafur Jóhannesson hafi þá ekki verið búinn að fullráða það við sig að sú tilraun skyldi ekki bera árangur, þótt þess væri þá skammt að biða. En bréfið til Geirs var einnig stilað með ann- aö I huga. ólafur var þar lika að opna sér aðra leið til forsætis- ráðherraembættisins en þá, að „vinstri viðræðurnar” kynnu að skila árangri. Sem sé þá, að svara Geir Hallgrimssyni með þeim hætti að ijóst væri, að Framsóknarflokkurinn (þ.e. Ólafur Jóhannesson sjálfur) væri með öliu frábitinn því að fara i stjórn undir forsæti Geirs Hallgrimssonar. Og hvað merkti það, þegar lengra leið? Það merkti einfaldlega það, að ef tilraun Ólafs Jóhannesson- ar færi út um þúfur og leitað yrði til Sjálfstæðisflokksins aft- ur um að reyna stjórnarmynd- un, þá kynni svo að fara, að for- setanum þætti vænlegra til ár- angurs að fela ekki formanni flokksins, Geir Hallgrimssyni, að reyna öðru sinni, heldur þvert á móti formanni þing- flokks Sjálfstæöisflokksins, Gunnar Thoroddsen. Og hverju breytti það fyrir Ólaf Jóhannes- son að vini hans, Gunnari, yrði falin tilraunin? Einfaldlega þvi, aö hann þóttist vita, að ekki myndi nást samstaða um Gunn- ar i Sjálfstæðisflokknum sem forsætisráðherra. Sú staða Gunnars að vera falið að gera stjórnarmyndunartilraunina myndi hins vegar koma á jafn- ræði milli hans og Geirs Hall- grimssonar og likur væru á þvi, að úr þeim vanda yrði leyst með þvi að Sjálfstæðis- flokkurinn sættist á Ólaf sjálfan sem forsætisráð- herra en þá Gunnar og Geir sem fagráðherra báða tvo. Þar með væri hinu sameiginlega mark- miði þeirra beggja, Ólafs og Gunnars, endanlega náð. Þannig fylgdi ólafur Jó- hannesson þvi fordæmi flokks sins að hafa opnar dyr til allra átta. Um margra mánaða skeið hafði hann af og til leitt hugann að þvi að hverfa frá samvinnu við vinstriflokkana en leit þess i stað til 'Sjálfstæðisflokksins. Fyrir löngu hafði hann reynt að leggja grundvöllinn að eigin stöðu I sliku samstarfi og þótt árangurinn hafi ekki orðið sá, sem hann vonaði, þá munaði litlu — og ekki verður honum um kennt, að Geir hafði betur i siðustu lotunni. Af þessu má sjá, að Ólafur Jó- hannesson haföi i rauninni aldrei trú á þvi að „vinstri við- ræðurnar” gætu borið árangur. Hann hafði búið sig undir að svo yrði ekki. Hann var búinn að fá sig fullsaddan af Magnúsi Kjartanssyni og Lúðvik, hafði andúð á Gylfa og Alþýðuflokkn- um og var og er beinlinis illa við Björn Jónsson. En hins vegar varö Ólafur að tefla sitt „vinstri viðræðnatafl” — og tefla það þannig, aö koma Alþýðuflokkn- um og Alþýðubandalaginu i hár saman út af þvi, hvor þeirra ætti sökina á þvi, að upp úr slitnaði — en sjálfur gæti hann laumast óséður fyrir ihaldshornið. Og þetta tafl tefldi Ólafur þannig, að það varð ekki fyrr en Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag höfðu þreytt fangbrögðin um skeið sem loks rann upp fyrir þeim það ljós, að hvorugur átti i rauninni sökina á þvi, að upp úr viöræðunum slitnaði — að sá, sem aldrei vildi neinn árangur var Ólafur Jóhannesson, sjálfur hinn saklausi engill. En þá hafði honum lika gefist ráðrúm til þess að koma sér fyrir i himna- rikisvist ihaldsins. úrslitum um sigur Geirs réö þrumuræöa, sem Jóhann Hafstein hélt i þingflokki Sjálfstæðis- f lokksins. Þar sagöi hann m.a. aö þegar flokkur þeirra ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar gengi til stjórnar- myndunar þá væri for- sætisráðherraembættið hans. Leikflétta Ólafs Jóhannesson- ar, sem miöaðist við það að hann hefbi möguleika til þess að halda forsætisráðherraembætt- inu áfram hvort heldur sem mynduö yrði ný vinstri stjórn eða stjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins bar ekki árangur — þótt litlu munaði. En hún hafði nær þvi bundið enda á pólitiskar vonir leiknauts Ólafs, Gunnars Thoroddsen. Sjálfstæðismönnum og þá ekki hvað sist Geir Hallgrims- syni og fylgismönnum hans var auðvitað mætavel ljóst hver var tilgangurinn meö makki þeirra Ólafs Jóhannessonar og Gunnars Thoroddsen. Og þeir hugsuðu Gunnari þegjandi þörf- ina. Þá ráðningu hlaut Gunnar, þegar þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins valdi ráðherra úr sin- um hópi — en þá hafði ioks tek- ist að tryggja Geir Hallgrims- syni forsætisráðherraemb- ættið og átti Jóhann Hafstein ekki sista þáttinn i þvi. Þegar velja átti fjóra ráð- herra úr röðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins á þing- flokksfundi var i raun aðeins um formsatriöi að ræða. Þá þegar var búið að ganga frá þvi, að til starfans ætti að kalla þá Gunnar Thoroddsen, Matthias Bjarna- son og Matthias Mathiassen fyrirutan Geir sjálfan. Ingólfur Jónsson hafði beðist undan framanum. Þegar á þingflokksfundinn kom var þvi aðeins um það að ræða að staðfesta áður tekna ákvörðun. Sumir, þ.á m. Gunn- ar Thoroddsen, töldu rétt að af- greiða málið formlega með ein- faldri bókun, sem þingflokkur- inn lýsti sig samþykkan. En þá fóru menn að aka sér og spyrja, hvort ekki væri nú rétt að láta fara fram atkvæðagreiðslu og þeir fjórir, sem flest atkvæði fengju, yrðu tilnefndir. Þannig ætti framgangsmátinn að yera og rétt skyldi vera rétt. Gunnar, sem ekki uggði að sér, féllst á þetta. En þeim mun meira undrandi varð hann, þeg- ar niðurstöður atkvæðagreiðsl- unnar lágu fyrir. Þær urðu á þann veg, að Geir Hallgrimsson fékk 24 atkvæði (þingmenn flokksins eru 25), Matthias Bjarnason 22 atkvæði og hinn Matthiasinn álika mörg, Gunn- ar Thoroddsen 17 atkvæði og Ingólfur Jónsson (sem þá fyrir örskömmu hafi fallist á að gefa kost á sér) 16 atkvæði! Aðrir þingmenn fengu þetta 2-3 atkvæði hver. Það var þvi aðeins 1 atkvæði i þingflokki Sjálfstæðisflokksins, sem réði úrslitum um það, að Gunnar Thoroddsen var til- nefndur fjórði ráðherra Sjálf- stæðisflokksins, en ekki Ingólfur Jónsson. Það gæti jafnvel hafa verið atkvæði Gunnars sjálfs! Þetta var hefndin — refsingin fyrir makkið við Ólaf Jóhannes- son. Þetta kom sem reiðarslag yfir Gunnar og hans menn og olli þvi m.a., að heilan sólar- hring neitaði Gunnar að taka við ráðherraembætti þvi, sem hann haföi þó marið i þingflokknum. En hann lét þó undan að lokum — m.a. fyrir þrábeiðni sigur- vegarans og oddvita hinnar nýju stjórnar, Geirs Hallgrims- sonar. Það eru þvi a.m.k. tveir menn, sem ekki gengu með sér- lega léttu geöi til ráðherrastóla sinna á Alþingi daginn eftir myndun hinnar nýju rikis- stjórnar. ólafur Jóhannesson og Gunnar Thoroddsen. Tveir skákmeistarar á taflborði stjórnmálanna, sem urðu fórn- arlömb sinnar eigin leikfléttu. Tósti og Orri Sunnudagur 15. september 1974. Sunnudagur 15. september 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.