Alþýðublaðið - 24.11.1974, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 24.11.1974, Qupperneq 7
Ávarp til þjóðarinnar á bindindisdaginn 24. nóvember 1974 Ljóst er að augu æ fleiri manna opnast nú fyrir því að áfengi er hœttulegt fíkniefni, bölvaldur manna og þjóða. Evrópuráðið og Norðurlandaráð hafa nýlega gert samþykktir um áfengismál og hvetur hið fyrr- nefnda meðal annars til að halda áfengi í háu verði og auka bindindisfrœðslu, bœði í skólum og œskulýðs- fclögum. I sumum nágrannalöndum okkar, þar sem sala áfengis er engum hömlum bundin, fjölgar dauðsföll- um af völdum áfengisneyslu svo mjög að einungis krabbamein og hjarta- og æðasjúkdómar valda dauða fleiri manna (Frakkland). Hérlendis hafa meðal annarra lœknasamtökin var- að við þeim hættum sem við blasa og hvatt til þess ,,að sala áfengra drylckja verði takmörkuð“. Framundan er mikið átak í umhverfismálum. Upp- blástur gróðurlendis skal stöðvaður, vörnum beitt og helst snúið í sókn. En við skyldum minnast þess að fleira getur blásið upp og sundrast en grœnir reitir. Neysla áfengis og annarra vímuefna veldur þeim upp- blæstri sem oft reynist erfitt að grœða. Áfengis- neysla er ekki einkamál. Margt barnið vex úr grasi og hefur ævistarf sitt kalið á hjarta vegna drykkju foreldra. Og margt atgervisfólk hefir ísland misst í þá óseðjandi hít sem elfur áfengisins er. Það er þarft að berjast gegn mengun umhverfisins. Hitt er þó enn mikilvægara að koma í veg fyrir meng- un líkama og sálar, háskalega mengun sem getur sið- blindað jafnvel hina bestu menn. — Við teljum það skyldu hugsandi manna að skera upp herör gegn drykkjutískunni og hörmulegum afleiðingum hennar. Slík herför hæfir vel á þjóðhátíðarári. heil brigðisráðherra . / inenntanuilaráðherra form. Landss. gegn áfengisb. áfengisvarnaráðunautur * alþingismaður biskup ^4,' t (orm. Kvenfélagasambands íslands alþingismaður álþingismaður f/ prófessor alþingismaður tórtemplar HUNDASLAGUR FYRIR PENINGA! A myndunum, sem fylgja þess- ari grein sjáum við tryllta og blóöþyrsta hunda murka lifið hver úr öðrum. Þannig eru endalokin I nýjustu afþreyingu Bandarikjamanna i hundaslag. Einn hundurinn liggur deyjandi á jörðinni meðan andstæöingur hans rffur hann á hol. Mikið fé er i húfi, þvi að jafnt konur sem karlar leggja allt að 6 milljónum Islenskra króna undir — og veðjað er á grimmdina. óhugnanlegur leikur, sem fer fram á óhreinum skuggasviöum. Og frumkvöðullinn er — þvi miður fyrir Englendinga — mið- aldra Skoti. Kostnaðurinn David Gardiner er feit- laginn maður frá Glas- gow sem settist að i Kan- ada fyrir tuttugu árum og hóf að ala upp morð- hunda. Hann á heima í Flam- borough, sem er um það bil 40 mílur frá Toronto, og ræktar þar Staffords- skíris-terríera, sem allir Englendingar vita, að eru óvenju grimmlyndir. Hann benti blaðamanni á nokkra hvolpa, sem virtust óvenju æstir og sagði: ,,Hundarnir myndu berjast til bana, ef ég hefði þá ekki alla hlekkj- aða". Gardiner talar enn ensku með skoskum hreim og hann lætur hundana byrja að berjast 14 mánaða gamla. Bardagahundur kostar 270 þúsund krónur, en tík- in 150 þúsund. Þessar upphæðir eru þó litlar í samanburði við það, sem f járhættuspilar- ar leggja undir á hunda- bardagakeppnum í Kan- ada og Bandaríkjunum. Einkarit eru birt og helga sig eingöngu þess- um ófögnuði, sem varla er unntað nefna ,,íþrótt". Imyndunaraflið megnar naumast að bæta við það, sem í þeim stendur... „Hálsslagæð Lou er sprungin og honum blæðir mjög," stóð í einni frétt- inni. „Hitler hefur náð vfir- tökunum og dregur Sam um á trýninu," stóð i ann- arri. Fjölskyldur á skemmti- ferðum horfa stundum á þessa hundabardaga — sem alltaf eru haldnir leynilega. Varðmenn eiga að að sjá um, að lögregl- an ryðjist ekki inn á svæðið. Stundum eru dýrin klukkustundum saman að tæta hvort annað I tætlur, en lögreglan vill koma í veg fyrir slíka bardaga. Þjálfun hundanna er stundum jafngrimmdar- leg og bardagarnir. Lóð eru bundin við kjálka þeirra til að þeir verði stærri og sterklegri og hundarnir settir á hlaupagrind til að lær- vöðvarnir verði styrk- meiri. Gardiner — lítur alls ekki á hundaslagsmál sem grimmilega baráttu — er að koma heim til Skotlands. Það verða margir, sem sakna f jölskyldunnar, þegar hann flytur frá borginni, sem hann ól upp bardagahunda sína. Iso- bel kona hans ók nefni- lega skólavagninum. V Sunnudagur 24. nóvember 1974.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.