Alþýðublaðið - 15.12.1974, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.12.1974, Blaðsíða 2
BRflMBQLT UMSJQfl: GJSLi 5VJEJLHLH LQFT5SQJH Þaö ber merki um mikla grósku i popptónlistarlifi vorrar ágætu þjóöar, þegar út koma á sama tima tvær stórar plötur, með þekktum listamönnum, og ekki má á milli sjá hvor þeirra er betri. Þeir sem hér um ræöir, eru hljómsveitin Change, og Jó- hann G. Jóhannsson. Þar sem Brambolt treystir sér ómögu- lega til þess aö gera upp á milli þessara tveggja platna, mun veröa fjallaö um þær á jafn- réttisgrundvelli, og þeim ætlaö svo til sama rúm á siöum Bram- bolts utan hvaö fjallaö er um plötu Jóhanns i dálkinum um nýjar hljómplötur þar sem hún er komin i verslanir, en plata Change ekki. Þeir félagar i Change hafa dvaliö undanfarna mánuöi i Englandi, eins og flestir vænta- nlega vita. A þessari nýju plötu þeirra getur aö heyra árangur- inn af þessari sjálfskipuöu út- legð þeirra. Þess i milli sem þessi plata kemur út, og þeir fé- lagar fóru út, komu út tvær litl- ar plötur i sama umslagi, og var þar um aö ræða ný lög, sem var fariö mjög illa meö i upptöku. Nú bregöur hins vegar svo við, aö á nýju plötunni getur aö heyra dæmi um bestu upptökur sem hægt er aö framkvæma hvar sem er. Mun það áreiöan- lega einum manni að þakka nær Change með stórkostlega eingöngu, og er þaö H.P. Barn- um. Barnum þessi er og hefur verið undanfarin ár einn af frægari upptökumeisturum út i hinum stóra heimi, og þó sér- staklega Bandarikjunum. Nýja Change-platan er glöggt dæmi um það hversu mikinn hlut góð- ir upptökumenn og útsetjarar geta átt i góöri plötu, og þarf ekki annaö en aö bera litlu ný/a góða plötu.. Change-plöturnar saman við þessar, til að heyra hinn geysilega mun. Barnum hefur áöur tekiö upp ótölulegan fjölda hljómsveita, en þeirra á meðal eru margar þekktustu hljóm- sveitir og skemmtikraftar sem viö þekkjum i dag. Að hans eigin sögn er hann aö taka upp og út- setja fyrir Change vegna þess Framhald á bls.3 ... w A sviðinu Hljómsveitin Dögg, sem við tökum fyrir núna i þættinum ,,á sviðinu”, er ein yngsta hljóm- sveitin, sem segja má um að þeir séu komnir i þóp atvinnu- hljómlistarmanna, og má alveg segja það, aö þeir skipi þann hóp með sóma. Þeir hafa náð töluveröum vinsældum á skömmum tima, og þá einkum meöal unglinga á gagnfræöa- skólastiginu. Þeir eiga þó margt ólært, og ég tek undir orð þeirra sjálfra þess efnis, að þeir eigi margt eftir ólært. Það er þó enginn grundvöllur fyrir þvi að dæma frammistöðu þeirra á sviði eftir þvi, og vilji maður ná yfir þá einu lýsingarorði, þá yröi þaö „góöir”, en þó meö ákveönum fyrirvara. Þeir hafa þaö sér til ágætis, að vera ungir frlskir strákar, en notfæra sér það alls ekki svo sem skyldi. Þannig ættu þeir aö geta lagt miklu meiri kraft I tónlistina og sviösframkomuna, en þaö er nokkuö sem nýgræöingar á „sviöinu” ættu að keppa meira að, þaö yrði þeim áreiöanlega til framdráttar. Þá vantar strákana i Dögg einnig öll tónlistareinkenni, svo og imynd. Þaö sem ég á viö meö imynd, er þaö, aö þeir komi sterkir út á sviöi og skilji eitthvaö eftir. En þeir spila ágætlega, og kunna til verkanna, og þaö er fyrir Hljómsveitin Dögg mestu, ef menn ætla aö halda uppi balli. Enginn þeirra viröist taka öðrum fram hvaö getu snertir, og koma þeir þannig mjög sterkir út sem heild, og er þaö einn af þeirra aöalkostum, og ef vel er á spilunum haldiö, ættu þeir að geta náö nokkuö langt. Longspil / Jóhann G. Jóhanns- son Sun records Þá er hljómplatan með Jóhanni komin á markaö, og var þaö vel, aö hún skyldi ná fyrir jól. Langspil heitir hún, og mun nafnið tilkomiö af þvi, aö hljóöfæriö islenska, langspil er notaö I fyrsta laginu, „Road Runner”. Þaö hefur veriö vitaö undanfarin ár, aö Jóhann er einn efnilegasti lagasmiöur og tónlistarmaöur sem viö eigum, og hann hefir áður gefið út mjög góöar litlar plötur. Stóra platan staöfestir lika þessa vissu, og hún er mjög góð. Ef skyggnst er inn fyrir hiö fallega umslag, kemur í ljós plata, sem mikið hefur veriö vandaö til, og ekkert til sparaö til aö hún yröi sem best úr garöi gerð. Skemmtileg- ustu lög eru aö mlnum dómi „Road runner” Hard to be alone”, og „I love my babe”. Mjög góö plata, og ánægjulegt aö vita til þess.hve mikil gróska er I Islensku tónlistarlifi um þéssar mundir. Nánar er fjallað um tilurö plötunnar annars staðar á siöunni. Sailor / Sailor Epic / CBS Af og til eru gefnar út plötur innan poppsins, sem eru svo góöar og gallalausar, að maður heldur einna helst, að hér hafi átt sér stað einhver ægileg mis- tök. Svo er þó ekki, heldur er hér um að ræöa nýjar, ferskar hljómsveitir, sem koma manni svona hressilega á óvart. Svo er meö Sailor. Þeir hafa þarna gef- iö út eina af bestu og skemmti- legustu plötum ársins 1974, og er þaö vel af sér vikiö af svo nýrri hljómsveit sem þeir eru. Allar melódiur eru mjög skemmtileg- ar, raddsetning frábær, svo og allar útsetningar og hljóðfæra- leikur. Yfir plötunni hvllir ein- hver ferskur blær sem gripur mann strax, og lesi maður text- ana kemst maður aö þvl að þeir eru skemmtilegir og vel geröir. Mjög erfitt er aö ætla sér að draga eitthvert sérstakt lag út úr, þar sem platan er öll mjög jafngóö, og liklega best aö ráö- leggja öllum sem þetta lesa, aö ná sér I „Sailor” hið fyrsta, svo aö þiö getiö heyrt I henni meö eigin eyrum. Explores your mind / Al Green London A1 Greeen er um þessar mundir meö frægustu söngvur- um I Bandarikjunum, og hefur oft komist á lista meö lög sin. Á „Explores your mind” er aö finna lagiö „Sha la la” sem hef- ur veriö vinsælt með honum aö undanförnu, svo og mörg önnur ágæt lög. Þaö væri tæpt aö telja hann meö þeim listamönnum sem flytja soultónlist, þar sem tónlist hans hefur fyrir löngu fariö töluvert út fyrir ramma þeirrar tónlistar. A1 Green er mjög melódlskur og algjör and- stæöa annars þekktasta söngvara Bandaríkjanna, James Brown. Allar útsetningar laga eru mjög vandaöar, og platan hin áheyrilegasta, og á áreiöanlega eftir aö auka á hróöur Greens. Með betri lögum á plötunni eru „Sha la la','„rm hooked og you, hangin’on'1 og ..One nite stand”. X5-O.P. DlrtyOI'Mon Vearofoeclsion MeAndMrs-Jones Sotísfoctlon Cuaranteed Loverrain Phyliísound / Ýmsir listamenn Philadelphia / CBS Einhver besta plata sem út hefur komið meö þessari tegund tónlistar, og örugglega einhver besta safnplata sem út hefur komiö. Á þeim tæpum 70 mínút- um sem platan spannar yfir, er safnaö saman 20 lögum meö átta ligtamönnum, sem eru hver öörum þekktari innan soul-tón- listarinnar. Þessi lög, sem ganga undir samnefninu „Phillisound, eru öll I sama flokki ab þvi leyti, ab hér er um aö ræöa velútsetta, vandaba og oft á tiöum mjög skemmtilega soul-tónlist, flutta af fyrsta- flokkshljóöfæraleikurum. Flest þessara laga, hafa oröiö mjög fræg, bæöi i heimalandi sinu, Bandarlkjunum og Evrópu, og þá um leiö einnig listamennirn- ir. A plötunni eru meöal annars „0, Jays”, meö lögin „For the love of money”, og „Back stabbers”, „Three degrees” meö „Dirty ol’man og Year og decision, og þannig mætti lengi telja. Mjög eiguleg plata, og sér- lega heppileg fyrir þá sem vilja kynnast soultónlist eins og hún gerist best. Albert Hammond / Albert Hammond Epi/CBS Albert Hammond hefur fyrir löngu sannaö ágæti sitt sem lagasmiöur, og átt mörg lög i efstu sætum vinsældalistanna. Á þessari nýju plötu Hammonds eru tvö lög sem hafa nýlega orö- iö vinsæl meö honum, „I’m a train”, og „I don’t wanna die in an air disaster”. Þá er einnig aö finna nýjasta lag hans, sem er núna á lista, en þaö er lagið „Names, tags, numbers and labels”. Nokkur hinna laganna eru einnig mjög góö, en þaö sem eftir er ekki nema skugginn af hinum, og á ekkert erindi á hljómplötu. Þetta er þrátt fyrir þaö ágæt plata, og hægt aö gera þarna ágætiskaup meö því aö ná I þrjú af hans vinsælustu lögum, og nokkur önnur aö auki. Þeir sem eru hrifnir af Albert Hammond og lögum hans, ættu ekki ab láta þessa nýjustu fram hjá sér fara. önnur góö lög eru t.d. „Dime queen of Nevada, We’re running out og Half að million miles from home”. L OFANGREINDAR PLÖTUR ERU FENGNAR AÐ LÁNI í FACO, LAUGAVEGI 89. Sunnudagur 15. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.