Alþýðublaðið - 15.12.1974, Síða 3
Jóhann G. með
aðra engu síðri....
Jóhann G. Jóhannsson er
gamall I hettunni sem tónlistar-
maöur, og ætti þvi aö „kunna
tökin á tækninni” enda er sú
raunin hér á. Hann veit bersýni-
lega hvað það er sem hann ætlar
sér að gera, og hann gerir það
mjög vel. Platan er mjög vel
gerð að öllu leyti, hljóðfæraleik-
ur, útsetningar og annaö slikt
unnið af stakri vandvirkni, og
árangurinn verður þessi frá-
bæra plata, Longspil.
Hann mun, eins og reyndar
Change, hafa verið fjármagnað-
ur, á meðan á gerð plötunnar
stóð, og er gott að vita til þess,
að einhver von skuli vera til fyr-
ir févana islenska hijómlistar-
menn, til að koma áætlunum
sinum i framkvæmd. A plötunni
getur að heyra margt forvitni-
legra takta og hljóðfæra, og
skemmtilega notkun þeirra, svo
sem i „Roadrunner”, og „I love
my babe”, og i „Roadrunner”
reyndar leikið á langspil.
Yfirbragð plötunnar er með ró-
legra móti, og eiga rólegri lögin
áreiðanlega eftir að falla mörg-
um i geð, en þar nýtur Jóhann
sin einmitt best. Þetta eru
mjúkar og skemmtilegar
melódiur sem falla manni vel i
geð eftir að hafa hlustað á þær
nokkrum sinnum. Það virðist
hafa verið vel þess virði fyrir
Jóhann, að eyða töluverðum
tima i upptökur, og hann ætti
eindregið að halda áfram upp-
teknum hætti. Þá má geta þess,
að ætlunin er að „Longspil”
veröi gefin út erlendis, og jafn-
vel að Jóhann vinni eitthvað er-
lendis lika, þvi að þegar mun
hafa verið haft samband við
þekktar umboösskrifstofur sem
hafa sýnt honum mikinn áhuga.
Ekki mun þó enn hafa verið
gengið frá samningum við
plötuútgáfu og dreifingarfyrir-
tæki, en nokkur tilboð munu
hafa borist sem hægt er að velja
úr. Það mun þvi ekki vera svo
fjarstætt að ætla, að Jóhann geti
öðlast sömu viðurkenningu og
frægð erlendis, og Change virð-
ast á góðri leiö með að gera.
Change 2
að þeir eru með því besta sem
hann hefur heyrt i lengi, og hann
er þess fullviss, að þeir eigi eftir
að verða mjög þekktir, og svo
vegna þess að hann hefur gam-
an af þvi.
Það er engum vafa undirorp-
ið, að platan nýja er einhver al-
besta plata sem islensk popp-
hljómsveit hefur gefið út um
dagana. Það er stórmerkilegt
að heyra hverju Barnum nær út
úr Change, og hverju honum
tekst að koma inn á plötuna. Allt
„sound” og útsetningar og svo
hljóðfæraleikur er eins og best
verður á kosið, og við fáum hér
virkilega að heyra hvað býr i
Change, og hvers þeir eru
megnugir, séu þeir virkjaðir
rétt. Platan er snilldarverk, og
okkur sem hjá stöndum ber
vissulega að sýna þakklæti okk-
ar i verki, og það verður best
gert með þvi að láta plötuna
ekki fara alveg fram hjá sér.
Annars er það helst að frétta af
þeim félögum, að þeir munu
ætla að eyða hér rólegu jólafrii,
hvar eftir þeir munu halda utan
til Los Angeles til plötuupptöku,
og siðan halda hér tónleika með
Sinfóniunni eins og við greind-
um frá hér fyrir skömmu, og
mun H.P. Barnum verða þar
potturinn og pannan.
ÚJJwZ)
Umbúða- og sorppokar
Tilboð óskast i umbúðapoka fyrir
A.T.V.R. o.fl. og einnig sorppoka fyrir
grindur eða kassa til notkunar við ibúðar-
hús o.fl.
TJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
1 x 2 — 1 x 2
17. leikvika — leikir 7. des. 1974.
Úrslitaröð: 211 —12X —111 —112
1. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 17.500.00
405 4511 9872 12340 35170 35953 37566
491 5136 10387 35028 35709 36876 37863
2219 4092 5356 8561 11383 12251 35110 35786 37406 38388+
2. VINNINGUR: 10 réttir — kr. 1.700.00
i 3418 8522 13021 35916 37406 38330
203 3857 8550 13311 35953 37406 38371
208 4998 8571 35170 36044 37406 38425
212 5136 9314 35170 36086 37537 38441
214 5170 9423 35183 36517 37863 38443
377 5869 9971 35236 36577 + 37922 38445
473 5908 10388 35443 36741 37934 38508
782 6366+ 10428 34561 36783 37935 38648
1643 56568 11452 35652+ 36876 37936 38631 +
1748 6849 11463 + 35786 36949 37981 + 38631 +
1958 6874 11506 35857 37063 + 37981 + 38633 +
2360 7424 11668+ 35875 37173 38013 38722
2624 + 7511 12043 35887 37280+ 38038 38756
2878 7724 12163 35890 37397 38318 38831 +
3025 8366 12778 35891 + nafnlaus
Kærufrestur er til 30. des kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyöublöð fást hjá umboðsmönnum og
aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kær-
ur veröa teknar til greina. Vinningar fyrir 17. leikviku
verða póstlagðir eftir 2. jan. 1975.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvlsa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVIK
/ísp\
Stórfréttir
frá Hagkaup.
Búðin orðin tvöfalt stærri!
Nóg pláss fyrir alla, líka á föstudögum og laugardögum.
Sunnudagur 15. desember 1974.