Alþýðublaðið - 29.12.1974, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 29.12.1974, Blaðsíða 4
Hér sjáið þið borð hlaðið góðgæii og dreng að bana kominn vegna hungurs. 460 milljónir manna verða að ,,herða sultarólina" um heim allan. Aldrei hefur fólk haft jafnlítið að snæða síðan heimstyrjöldin síðari leið. I þessari grein er lýst því, hvernig hungursneyðin umkringir okkur og hvað við verðum að gera til að sigra þá orustu. í « <4 ■ 4 fcBHwÉ*, * • jgmUfc Við höfum um árabil setið við hlaðið borð og virt fyrir okkur myndir, sem sýna hungursneyð og orðið skelf ingu lostin. Við gef um nokkrar krónur og höldum að allt komist í gott lag. En við verðum ein- hvern tímann að gera okkur Ijóst, að svo er ekki. Hungursneyð fá- einna landsvæða er orðin að næringarskorti víðs- vegar. Sérfræðingar segja: „Gerist ekki eitt- hvað afgerandi fljótlega hrynur siðmenningin." Þessi Ragnarök virðast endalaus. 1974 létust 10 milljónir manna úr hungri og 460 milljónir þjáðust af húngurvofuógn. Á næsta ári farast mun fleiri af hungri. Á hverj- um degi fæðast 200 þús- und börn og 40% þeirra fá aldrei fylli sína. Fyrir 12 árum nægðu umf rammatvælabirgðir heimsins til að halda líf- inu í mannkyninu í 91 dag, en nú aðeins í 26 daga. Það er nú allur varaforð- inn. 1974 skorti 30 milljón tonn af korni og haldi þróunin áfram svona verður skorturinn 85 milljón tonn eftir 10 ár. En við sitjum enn við hlaðið borð, þó að mat- vælaráðstefnan í Róm sjái ekki fyrir annað, en hungursneyð og skortur fari sifellt vaxandi. Menn hljóta því að spyrja sjálfa sig: Hvenær verðum við að herða sultarólina? Svarið við því er bæði skýrt og skorinort: o Sunnudagur 29. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.