Alþýðublaðið - 09.01.1975, Page 4

Alþýðublaðið - 09.01.1975, Page 4
Framhöld — Framhöld — Framhöld Minningarorð 2 liðsmaður í sinu gamla og trausta stéttarfélagi. Það er sárt að kveðja Brynjólf, en eigi má sköp- um renna. Alþýðublaðið þakkar honum langt og gott starf og mikla tryggð, og Alþýðuf lokkurinn þakk- ar traust hans og stuðning. Við vottum f jölskyldu hans dýpstu samúð. Benedikt Gröndal. Alþýðublaðið hefur átt þvi láni að fagna að hafa notið starfa góðra og trúrra manna. Einn þessara manna var Brynjólfur Björnsson, prentari, sem borinn var til grafar i gær. Brynjólfur hóf kornungur störf hjá Alþýðu- blaðinu og starfaði þar svo um áratuga skeið. Er hann einn af þremur sem lengstan starfsaldur eiga við Alþýðublaðið, en auk Brynjólfs eru það þau Meyvant Hallgrimsson, prentari, og Ingi- björg Sigurðardóttir. Brynjólfur var traustur og góð- ur starfsmaður og mikill Alþýðu- blaðsmaður. Alþýðublaðið á hon- um margt gott upp að inna. Hann var trúr og skyldurækinn og bar jafnan hag blaðsins og jafnaðar- stefnunnar fyrir brjósti. Nú er Brynjólfur kvaddur. Alþýðublaðið og samstarfsfólk hans þar þakkar honum góða við- kynningu og gott samstarf. Fyrir hönd blaðsins og samstarfs- manna Brynjólfs þar, votta ég konu hans, börnum og öðrum ættingjum samúðarkveðjur. Erlendis frá 5 Áhyggjur Fulbrights snúast nú um verðbólguna, sem hann telur versta fjandmann lýðræðisþjóð- anna. Margir, þ.á m. Kissinger, virðast telja, að Bandarikin eigi jafnvel að gripa til vopna til þess að tryggja sér næga oliu frá oliu- framleiðslurikjunum. Fulbright hefur á ferli sinum fylgst ineð mörgum áþekkum ævintýrum stjórnar sinnar og er alveg á önd- verðum meiði við slik sjónarmið. Hann fullyrðir, að ef Bandarikin flæki sér i slikar aðgerðir, þá muni það hafa alvarlegt áfall I för með sér. Fulbright telur, að sá vandi, sem Bandarikin eiga nú við að etja, eigi upptök sin i Viet- namstriðinu. „Vietnamstriðið var upphafið að þvi, að Bandarik- in tóku að glata áliti og stuðningi umheimsins”, segir hann. „Rikisstjórnin einblindi auk þess á þetta strið þegar hún átti þvert á móti að beina kröftum sinum að þvi að leysa þá efnahagserfið- leika, sem við blöstu.” Ford forseti bauð Fulbright stöðu ambassadors i London. Það boð hæfði hvorki fjárhag hans né skaplyndi. Hinn 69 ára gamli upp- gjafastjórnmálamaður hefur enn ekki tekið ákvörðun um, hvað hann hyggst gera i framtiðinni. Stjórnmál 2 að leggjast á bæn eftir at- burðinn og önnur slik um- mæli er að finna i fréttinni. t lok fréttarinnar er hún svo auðkennd sem frétt frá Reut- er-fréttastofunni, en Þjóð- viljinn kaupir fréttaþjónustu af þeirri fréttastofu. Nú myndi engum frétta- manni Reuters detta það i lifandi hug að ræða um „hyski Thieus” i fréttum, sem siðan eru sendar út um heim — m.a. til Þjóðviljans, — jafnvel þótt hann væri sjálfur þeirrar skoðunar, að um „hyski” væri að ræða. Reuter skrifar ekkert frekar um „hyski” Thieus en frétta- stofan myndi birta fregnir um „lýð” Brésnefs, „rusl” Kastrós eða „skepnur” Maos. Og það, sem meira væri. Ef yfirmenn fréttastof- unnar kæmust að þvi, að viðskiptavinir þeirra — blöð eða aðrir fjölmiðlar — um- skrifuðu fréttir með þessum hætti og auðkenndu þær svo með nafni fréttastofunnar, þá myndu þeir umsvifalaust óska eftir þvi, að frekari við- skiptum yrði slitið. Það er hægt að skrifa blöð, sem lita fyrst og fremst á það sem hlutverk sitt að vera málgögn ákveðinna stjórn- málaflokka, með ýmsum hætti. En sá háttur, sem Þjóðviljinn hefur á frétta- skrifum sinum og hér hefur verið lýst, hefur löngu verið afsagður af öllum blöðum og öllum blaðamönnum, sem hafa snefil af sjálfsvirðingu til að bera. Svona voru blöð skrifuð fyrir 40 árum, en svona eru blöð ekki skrifuð lengur og svona skrif stinga i augu — hvaða skoðanir, sem menn kunna að hafa á þeim málum, sem verið er að fjalla um. SB — SB. AAálverkasalan HÆTTIR Allt á að seljast, komið og gerið góð kaup. Höfum mörg frumverk eftir: Kjarval, Jón Egilberts, Höskuld Björnsson, Eyjólf J. Eyfells, Sigurð Kristjánsson, Veturliða og fleiri þekkta listamenn. Einnig eftirprentanir, töluvert af gömlum bókum o. fl. Opið kl. 2-6 virka daga, ekki laugardaga. Málverkasalan Týsgötu 3. Simi 17602. Vinningsnúmerin i happdrætti Styrktarféiags vangefinna R 48155 Chevrolet Nova R 44931 Toyota Corona R 30015 Mazda 616 1 281 Renault 12 G 8006 Austin Mini VINNINGSNÚMERIB ER 14179 umsumMni UÞlwrtmiKSMs —— ——■■■ I ——» Vatnsveita Reykjavíkur óskar að ráða deildarverkfræðing til starfa. Æskilegt er að verkfræðingurinn hafi sérhæft sig i rekstri og uppbyggingu vatnsveitukerfa, en þó er það eigi nauð- synlegt. Einnig kemur til málaað ráða verkfræðing með staðgóða reynsiu i rekstri og skipulagningu fyrirtækja. Umsóknum sé skilað til Vatnsveitu Reykjavikur, Skúlatúni 2, fyrir 1. febr. n.k. Vatnsveitustjóri. jAuglýsið í Alþýðublaðinu: : Sími 28660 og 149Q6 \ Orðsending frá Hitaveitu Reykjavíkur til pípulagninga- meistara Vegna mikilla anna við tengingar húsa eru pípulagningameistarar minntir á, að tilkynna með m.k. 2ja daga fyrirvara um þau hús, sem þeir þurfa að fá tengd við veituna. Sérstaklega er áriðandi að tilkynnt sé i tíma þegar frost er, til þess að forðast skemmdir á hitakerfum og óþægindi ibúa húsanna. Hitaveita Reykjavikur. [ Alþýðublaðið á hvert heimili ] Dei Idarh júkrunar kona Staöa deildarhjúkrunarkonu við Lyflækningadeild Borgarspitalans er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. febrúar 1975. Upplýsingar um stöðuna eru veittar á skrifstofu for- stöðukonu Borgarspitalans. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist til stjórnar sjúkrastofnana Reykjavikurborgar Borgarspitalanum fyrir 15. janúar n.k. Reykjavik, 8. janúar 1975. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavikurborgar. o Fimmtudagur 9. janúar 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.