Alþýðublaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 12
alþýðu mum Bókhaldsaðstoó með tékka- færslum BÚNAÐAR BANKINN KÓPAVOGS APÓTEK Opiö öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SENDIBIL ASTOÐIN Hf iÓLASÚLIN KOSTABI 100 MILUOMIR Telja má fullvist, að þeir íslendingar sem fóru erlendis i desember mánuði, eða tóku sér svo kallað vetrarfri, hafi eitt um 100 miiljónum króna i gjaldeyri. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem Alþýðublaðið hefur aflað sér hjá ferða- skrifstofum borgarinnar, þá hafa ekki færri en um 2500 manns tekið sig til og eytt jólafriinu erlendis. Meirihlutinn mun hafa kosið að flat- maga á sólarströndum Kanarieyjanna og Spánar, en einnig fór talsverður fjöldi til ann- arra landa. Vinsældir jólaferða aukast stöðugt. Mikið hefur undanfarið verið falað um yfirvof- andi heimskreppu, og helstu ráðamenn þjóðar- innar hafa margoft lýst því yfir að undanförnu, að við verðum að herða sultarólarnar, búa okkur undir yf irvofandi kreppu, og að viðskiptajöfnuöur okkar við útlönd sé mjög óhagstæður. Alþýðublað- inu fannst því fróðlegt að athuga hvort ekki hefði dregið stórlega úr ferðum manna erlendis, úr því að ástandið var orðið svona slæmt. En útkoman varð önnur en búast hefði mátt við. Það kom í Ijós við þessa athugun, að fjöldi ferðamanna sem fór er- lendis í desembermánuði 1974, er að minnsta kosti jafn mikill og í sama mánuði 1973, ef ekki tölu- vert meiri. Kreppan, og tilmæli ráðamanna þess efnis að við ættum að leggja hart að okkur við aðspara, virðast þvi ekki vera farin að hafa nein áhrif enn, að minnsta kosti ekki á útgjöld fólks til ferðalaga. Þannig fóru þessi 2500 manns með um 50 milljónir í löglegum gjaldeyri í eyðslu erlend- is. Við þessar 50 milljónir má síðan bæta við öðrum 50 millj. sem inn í falla dvalarkostnaður erlendis greiddur af ferðaskrif- stofunum í beinhörðum gjaldeyri. Dvalarkostn- aður er m.a. hótelkostn- aður, matur og ferðalög. Hann er um 40% af því sem ferðin kostar, og ef ferðin kostar milli 40—50 þúsund krónur, þá gerir það um 20 þúsund krónur á ferðamann. Inn í 50 milljónirnar fellur einnig kostnaður við eidsneytis- töku flugvéla erlendis sem er greiddur í gjald- eyri, og leyfileg notkun íslenskra peninga til kaupa í fríhöfninni, sem er 1500 kr. á hvern ferð- amann, en því er öllu skipt í gjaldeyri. Þetta eru því samtals um 100 milljónir króna, sem þetta kostar okkur í gjaldeyri. Það er því ekki aðsjá, að hiðslæma efna- hagsástand sem hér rikir sé farið að bitna mjög mikið á landanum. Margir sækja í snjóinn . . . Af þessum fjölda fóru um 360 á vegum ferða- skrifstofunnar Sunnu og flugfélagsins Air Viking, en langflestir þeirra sem fóru í jólasólina fóru á vegum Flugleiða og ýmissa ferðaskrifstofa til Kanaríeyja, en Kanaríeyjar virðast vera vinsælastar um þetta leyti árs. Þó mun einnig töluverður fjöldi hafa farið á skíði í Austurríki og öðrum stöðum þar sem sól og snjór er næg- ur. FIMM á förnum vegi "1 1 1 ................... f' * Langar þig ekki í vetrarfrí til sólarlanda? Sigurbjörn Björnsson: „Ég er aö fara þann sextánda suöur á ströndina á Kanari. Vona aö þar veröi gott veöur, ég fór i fyrra i fimm vikur, og þá var alltaf sólskin”. Siguröur Helgason, forstjóri: „Nei, ég er ekkert mikiö fyrir aö fara þangaö, kann betur viö kuldann hér heima.” Aöalbjörg Asgeirsdóttir, hús- móöir: „Nei, mér likar betur svalinn hér heima”. Aöalsteinn Eiriksson, kennari: „Nei, mig mundi aldrei langa til aö fara til sólarlanda yfirleitt, mundi frekar fara til útlanda til þess að skoöa markveröa staði, en ekki flatmaga i sólinni”. Heiöar Ragnarsson, matsveinn: „Nei, ég held ekki neitt frekar. Ágætt aö vera á fslandi, þaö er besta land i heimi”.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.