Alþýðublaðið - 10.01.1975, Page 12
alþýðu
mmW\
l'liistns llF
PLASTPOKAVERKSMIOJA
Símar 82639-82655
Vatnagörbum 6
Box 4064 — Róykjavtk
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
SENDIBIL ASTOÐIN Hf
IIM FÆRDINA EÐA ÖLLU HELDUR
ÚFÆRDINA k ÞJÚÐVEGUNUM
„Það skipulag, sem
er á snjómokstri var
sett á árið 1968. Það
miðar að þvi að halda
færu milli þéttbýlis-
staða og byggðarlag-
anna milli þeirra.
Einnig er ofarlega á
blaði að tengja ver-
stöðvar við þjónustu-
svæði. Til fámennra
staða i strjálbýli er
mokað sjaldnar og
sums staðar aðeins
einu sinni i mánuði i
samráði við sveitar-
stjórnir til að hægt sé
að koma við aðdrátt-
um, einkum á þunga-
vöru eins og til dæmis
oliu, fóðurvörum og
þess háttar. Og til eru
byggðarlög sem ekki er
nei tt i ugsað um.”
Þam ig svarar Hjör-
leifur Ólafsson, yfir-
maður vegaeftirlits
Vegagerðarinnar
spurningu Alþýðu-
blaðsins um það á
hvaða vegi væri lögð
áhersla við snjóruðning
á vetrum.
Um kostnað við snjó-
ruðning sagði Hjörleif-
ur: „Kostnaður við
snjóruðning og þvi sem
honum er samfara og
við köllum vetrarvið-
hald er tekinn af við-
haldsfé vega. Árið 1973
var vetrarviðhald rúm-
lega 99 milljónir af 430
milljóna króna heildar-
viðhaldi. Árið 1974 var
áætlað til viðhalds vega
790 milljónum króna.
Þar af höfðu farið i
vetrarviðhald mánuð-
ina janúar til júni 91,2
milljónir og lauslegar
áætlanir benda til að
kostnaðurinn siðari
hluta ársins hafi numið
um 40 milljónum. Það
er raunar ekki loka-
tala. Uppgjöri er ekki
lokið og eins gætu aðil-
ar, sem verkin unnu átt
eftir að skila reikning-
um.”
Alþýóublaöið aflaði sér
i gær yfirlits um færð á
vegum landsins hjá
Vegagerð ríkisins. Jafn-
framt fékk blaðið hjá
Hjörleifi Ólafssyoi nokk-
urt yfirlit um þá vegi,
sem ófærir eru:
Á Suðvesturlandi eru
allar aðalleiðir færar og
allt vestur á Snæfellsnes.
Heydalur er vel fær og
Snæfellsnes norðanvert
og fært er inn í Dali.
Kerlingarskarð er ófært
svo og Brattabrekka, en
fært er stórum bilum um
Fróðárheiði.
Heydalsvegur var lagð-
ur til að gera samgöngur
við Snæfellsnes norðan-
vert og Dali öruggari.
Síðan það var gert má
heita að Brattabrekka sé
ekki mokuð og hefur hún
nú verið ófær frá í
nóvember. Dregið hefur
verið mjög úr mokstri á
Kerlingarskarði meðan
tíð er óstöðug í svartasta
skammdeginu. Hins veg-
ar er Fróðárheiði mokuð
tvisvar i viku, þegar
veður leyfir, því ekki
þykir nógu gott að ætla
útnesingum að fara Hey-
dal og Nesið allt norðan-
vert.
Vestan Búðardals er
þungfært, en stórir bilar
komast Svínadal og fyrir
Gilsf jörðí Reykhólasveit.
Út frá Patreksfirði er
fært stórum bílum yfir
Kleifarheiði og um Hálf-
dán til Bíldudals. Á Hálf-
dáni var þó skafrenning-
ur í Gær.
Heiðarvegir á Vest-
f jörðum eru yfirleitt ekki
mokaðir vetrarmánuð-
ina. Það þá við til dæmis
Dynjandisheiði, Hrafns-
eyrarheiði og Þorska-
fjarðarheiði. Breiðadals-
heiði er oftast haldið op-
inni lengur fram eftir, en
þó fer það mikið eftir
veðurfari.
Einnig er Breiðadals-
heiði oftast opnuð f yrr en
hinar, en það fel allt eftir
mati á hverjum tíma
hvenær það er mögulegt.
Verið var í gær að ryðja
snjóflóð af Óshlíðarvegi
og stóðu vonir til að þar
yrði fært í gær. Fært var
stórum bílum frá (safirði
til Súðavíkur.
Holtavöruheiði var
ófær í gær. Skafrenning-
ur var í Húnavatnssýsl-
um og var þungfært þar
og á Vatnsskarði. I
Skagafirði var víða
ófært, en fært var þó milli
Sauðárkróks og Varma-
hlíðar.
Öxnada Isheiði var
ófær, en verið var að
ryðja milli Akureyrar og
Dalvíkur.
í dag verður mokuð
leiðin Akureyri—Reykja-
vík, ef veður leyfir.
Til Sigluf jarðar er opn-
að vikulega. Um Ólafs-
f jarðarmúla gildir svipuð
regla og um Breiðadals-
heiði. Alllangt er síðan
Múlinn var fær. Þar hef-
ur verið óstöðug veðrátta,
en hann er opnaður af og
til.
Þungfært var f rá Akur-
eyri til Húsavíkur, jafn-
vel ófært. Austur frá
Akureyri er rudd leiðin
um Dalsmynni, en Vaðla-
heiði látin í friði, og yfir-
leitt gildir sú regla að
þeirri leið er haldið op-
inni, sé um fleiri en eina
að ræða, sem leftari er,
þó önnur styttri sé til, ef
sú er dýrari í vetrarvið-
haldi.
Stórir bílar haf a komist
frá Húsvík til Kópaskers,
en þar er mjög þungfært.
Norðaustanlands er ófært
nema fyrir stóra bíla í
næsta nágrenni Vopna-
f jarðar, þannig að þar er
hægt að sækja mjólk.
Til Þórshafnar er opn-
að hálfsmánaðarlega í
samráði við heimamenn.
Þar er þó ekki um að
ræða veginn um Axa-
fjarðarheiði sem venju-
legast opnast ekki fyrr en
komið er fram á sumar,
heldur er farið um Sléttu.
AAöðrudalsöræf i og Hóls-
sandur eru yfirleitt ekki
fær allan veturinn. Sama
er að segja um Vopna-
f jarðarheiði. Það, sem
Vcpnf irðingar komast að
heiman að vetri til, er
þegar fært er strandleið-
ina um Sandvíkurheiði til
Þórshaf nar.
Á Austurlandi er allt
ófært nema frá Egils-
stöðum um Fagradal á
Reyðarf jörð og þaðan til
Eskif jarðar. Ófært er frá
Reyðarf irði allt suður um
til Hornaf jarðar.
Um Oddsskarð til Nes-
kaupstaðar og um
Fjarðarheiði til Seyðis-
f jarðar gilda sömu reglur
og Breiðadalsheiði. Þar
er haldið opnu fram eftir
vetri eftir þvi sem veður
far leyfir og síðan opnað
að vori, þegar gera má
ráð fyrir að úti séu
vetrarhörkur.
Frá Reyðarfirði til Fá-
skrúðsfjarðar er opnað
tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og föstudögum og
i fyrra, eftir opnun hring-
vegarins var það tekið
upp að ryðja frá
Fáskrúðsfirði allt suður
um til Kirkjubæjar-
klausturs einu sinni í
viku. Þó er rétt að geta
þess, að Breiðdalsheiði er
yf irleitt ekki rudd fyrr en
að vorö heldur er farin
f jarðarleiðin.
Frá Hornafirði er vöru-
bílsfært að Mýrdalssandi,
en þar var þungfært í
gær. Ófært í Mýrdal, en
ætlunin að opna þar í
dag, ef veður leyfði.
FIMM á förnum vegi'
örn Felixson, trésmiöanemi:
„Nei, hann hefur gengið mjög
vel, engir erfiðleikar. Það er að
mestu leyti bilnum að þakka,
hann er mjög góður i snjó.”
Jens Jónsson, lcigubílstjóri:
„Nei, ég get ekki sagt það, þetta
hefur allt gengið eftir áætlun.
Maður getur sagt að það sé að
einhverju leyti bilnum að
þakka.”
Ágúst Stefánsson, loftskeyta-
maður: „Nei nei, og þaö er lik-
lega mest þvi að þakka að ég er
á jeppa.”
Hermann Hjartarson, þéttinga-
maður: „Nei, það hefur gengiö
vel, þó að það hafi verið svolitið
hált. Ég treysti dekkjunum al-
veg.”
Theódór Marinósson, versiun-
armaður: „Nei, ég á i engum
erfiðleikum, enda er ég á góðum
vetrarbil og góðum dekkjum.”
Hefurðu lent í erfiðleikum í snjóakstrinum?
S